Morgunblaðið - 12.11.1981, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1981
35
Sýning
í Gallerí 32
Myndlist
Valtýr Pétursson
Ungur teiknari hefur efnt til
sýningar á verkum sínum í Gall-
erí 32, en það er nýtt gallerí, og
er hér um aðra sýninguna að
ræða á þessum stað. Fyrstur
varð þar Veturliði til að vígja
staðinn. Þetta er mjög sæmilegt
húsnæði til að sýna í og liggur
vel við, nálægt miðbænum og því
í námunda við fólksstrauminn,
er því byggðarlagi tilheyrir. Það
mun einnig vera hægt að fá inn-
rammaðar myndir á þessum
stað, og fer því saman sýn-
ingarpláss og innrömmun.
Sá ungi teiknari, sem hér er á
ferð, hefur ekki látið á sér kræla
hér áður, ef ég veit rétt, en hann
hefur komið við sögu hjá frænd-
um vorum Norðmönnum, og
mun vettvangur hans hafa verið
aðallega í Alasundi, eftir því
sem í sýningarskrá stendur. Það
eru tuttugu og ein teikning á
þessari sýningu Einars Þórs
Lárussonar, og eru þær nokkuð
misjafnar að gæðum. Sumar
gerðar með tússi, aðrar með
Trópikana (þekki ekki það efni í
myndgerð) og enn aðrar með
litblýanti og vatnslitum. Þessar
myndir bera sterkt mót af súr-
realískri hugmyndafræði, en
sjálf útfærsla myndanna er
heldur sviplítil og grá, ef svo
mætti að orði komast. Það vant-
ar snerpu í þessar myndir til að
gera þær beinskeyttar í boðskap
sínum og það er auðsjáanlega
ekki mikil reynsla að baki þess-
um teikningum. Það væri ef til
vill of mikis krafist af manni,
sem er að byrja feril sinn sem
teiknari, að allt væri af fyrstu
gráðu. Það er mjög erfitt að ná
góðum árangri með penna og
blýanti, en það er ekki svo erfitt
að gera hlutina þekkjanlega og
nostra við þá. Teikning er ein
undirstaðan góðrar myndlistar
og tengist öllum þáttum mál-
verksins, það þarf því oft á tíð-
um sérstaka kunnáttu og
reynslu til að ná árangri, sem
viðunandi er á þessu marg-
slungna sviði. Einar Þór Lárus-
on mun vera sjálfmenntaður
myndlistarmaður og er ekkert
nema gott um það að segja. Jafn-
vel var svo um tíma, að það þótti
ærið fínna að vera án menntun-
ar frá listaskólum og hafa klár-
að þann þátt sjálfur. Nú er aftur
runnið upp mikið skólatímabil,
og þykir fólk vart gjaldgengt
nema það hafi verið hálfa ævina
undir handleiðslu. Vonandi verð-
ur sú tíska ekki langlíf.
Þetta er lítil og snotur sýning,
sem segir í raun ekki mikið um
þann listamann, er í hlut á. Það
væri ósanngjarnt að vera annað
en góðviljaður ungum lista-
manni, sem er að sýna verk sín í
fyrsta sinn. Ég held, að vart
verði ráðið af þessum verkum,
hvert framhald verður, en eins
og allir vita, eru örlög margra
ráðin við fyrstu atrennu. Aðrir
eiga sér anrtan feril, og þannig er
lífið, það sem einum hentar, er
öðrum til trafala.
Það er viðurkennd staðreynd að Bandaríkjamenn framleíða
kælitæki í hæsta gæðaflokki.
Með vandláta kaupendur í huga bjóðum við pví núna
ameríska PHILCO kæliskápa í mörgum stærðum og litum.
Hér fara saman fallegt útlit og haganlegar innréttingar ásamt
vandaðri hönnun sem tryggir mikla endingu.
PHILCO kæliskáparnir eru pví gæddir öllum peim kostum sem
prýða fyrsta flokks kæliskápa.
Sjón er sögu ríkari — komið í verzlanir okkar og kynnist af
eigin raun amerísku PHILCO kæliskápunum.
PHILCO FYRIR VANDLÁTA
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655
Fram á Sauðárkróki:
Atelur drátt
á ákvörðun
um steinullar-
verksmiðju
í ÁLYKTUN fundar í Verkalýds-
félaginu Fram á Sauðárkróki í
bvrjun þessa mánaðar er m.a.
bent „á þá forystu, sem ráðamenn
á Sauðárkróki hafa haft um þaó
frá upphafi ad reist skuli steinull-
arverksmiðja á íslandi“.
Fundurinn átelur þann drátt,
sem sífellt er á því að tekin sé
ákvörðun um staðsetningu
verksmiðjunnar og skorar á
iðnaðarráðherra og ríkisstjórn
að ákveða nú þegar hlutdeild
ríkisins að steinullarverksmiðju
á Sauðárkróki, eins og segir í
ályktun fundarins.
Ljóðakorn
29 ný lög eftir Atla Heimi Sveinsson komin
út á nótum hjá Almenna bókafélaginu.
Höfundur annaðist sjálfur nótna- og textaritun, káputeikningu o.fi.
)II eru þvssi 29 log samin við íslenska texta eftir kunna og . kunna
höfunda. Bókin sk'ptist i fjóra kafla sem nefnast: 1. Barnagælur. 2.
Nutimaljóð. 3. Gaipansögur. 4. Aukalög.
I.joðakorn er 61 bls. að stærð í þægilegu nótnabroti (34x25 em i
FÆST HJÁ NÆSTA BÓKSALA
Almenna Bókafélagið
Austurstræti 18, Skemmuvegi 36, Kópavogi,
sími 25544. sími 73055.