Morgunblaðið - 12.11.1981, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1981
39
fclk i
fréttum
selunum
þessir áhugamenn um verndun sela, og reyndu
að sprauta alls 1200 dýr þar sem er Kuskholm
á Orkneyjum. Kn þó þetta séu fallegar skepn-
ur, þá þekkja íslendingar nú hvað það myndi
þýða fyrir fiskveiði hér við land, ef sjórinn
unihverfis landið væri fullur af selum, svo við
myndum ekki leggja til aljjera friðun sela,
heldur skynsamlega nýtingu.
Á heiðursmerkjaaldri
+ Victor Borge, píanóleikarinn og húmoristinn
heimsfrægi, er kominn á heiðursmerkjaaldurinn.
Nýlega var hengd á hann orða í Finnlandi og sagði
hann við það tilefni, að nú ætti hann loksins tveggja
vikna birgðir af orðum (hvað sem það þýðir nú) —
en hann hefur þegar a.m.k. fengið orðu í heimalandi
sínu, Danmörku, og líka í Svíþjóð og Noregi.
James Bond
+ Þeir hittust nýlega í
Lundúnum, Sean Connery
og Roger Moore, fyrrverandi
James Bond og núverandi.
Það fór vel á með þeim
og þeir gerðu að gamni sínu
eins og sjá má af þessari mynd.
Bjargið
+ Dýraverndunarsinnar láta einskis ófreistað
í baráttu sinni fyrir verndun dýra. I»essi mynd
var tekin af einum skoskum manni, sem ber
mikla umhyggju fyrir velferð sela og ofbýður
allur veiðiskapur á þeim skepnum. Hann
sprautar þarna á veslings kópinn blárri máln-
ingu, svo skinnið verði ónothæft til iðnaðar
framleiðslu, og þá láta veiðimenn þennan
selskóp kannski í friði. I»eir voru sarnan í hópi,
Victor Borge í Iláskólabíói 1974. Hann á eftir að fá
íslenska orðu!
Er hún
svo ekki
stúlka?
+ Þessi fagra stúlka er
-kannski engin stúlka. Tula
Cossey heitir hún, en illar
tungur segja að hún sé Barry,
sem hafi fæðst í bænum Brooke
nálægt Norwich á Knglandi fyrir 27 árum síðan og látið breyta sér
í konu. Foreldrar Barys segja aftur á móti að hann lifi í góðu
yfirlæti í Kómaborg, en meðan Barry lætur ekki sjá sig opin
berlega, getur Tula illa sannað, að hún sé Tula og hafi
ævinlega verið stúlkan Tula, því eitthvað virðist á reiki
um fortíðina. Þetta mál er allt saman mjög leiðinlegt
og enginn botn hefur fengist í það ennþá, en
Roger Moore, „Dýrlingurinn" gamli og núverandi
James Bond, sagði aðeins: — Hún Tula
puntar uppá lífið eins og aðrar fallegar stúlkur.
Nýr James Dean?
+ I»essi ungi piltur heitir Matt
Dillon er ný stjarna í Bandaríkj-
unum. Hann er aðeins 17 ára
gamall, en Bandaríkjamenn
sumir spá honum mikilli vel-
gengni. Hann er þegar kallaður
„framhaldið af James Dean-
goðsögninni" — en James Dean
var frægur kvikmyndaleikari hér
í eina tíð, en átti auma ævi. l»á
kalla menn hann líka hinn „nýja
Marlon Brando“ — svo strákur
má hafa sig allan við, ef hann á
að standa undir þessu öllu sam-
an...
Til móts við atómsprengju
+ Hermenn í viðbragðsstöðu. Þetta eru
sænskir hermenn á strandstað rússneska
kafbátsins, sem sigldi fullur af kjarnorku-
sprengjum upp í landsteinana þar sem Svíar
hafa sína helstu flotastöð. Ekkert hefur
komið um það í blöðum, hvernig svona
nokkuð getur skeð, að óvinakafbátur siglir á
land í helstu herstöð Svía og enginn veit
neitt fyrr en hann „finnst" allt í einu mar-
andi í fjöruborðinu. Sænsk hermálayfirvöld
hljóta að spyrja sig margra spurninga í
kjölfar þessarar heimsóknar kjarnorku-
vopna á sænskt land. En þessir menn, í
viðbragðsstöðu og ekki í viðbragðsstöðu, eru
lítil fyrirstaða atómsprengjum.
Hér er Tula
standandi í mið-
ið með stöllum
sínum úr mynd-
inni nýju um
Jamcs Bond
,For Your Kyes
)nly“.
apo
Skallapopp er safnplatan sem þú hefur
veriö aö bíöa eftir. Á Skallapoppi eru 14
lög meö jafmörgum flytjendum. Þetta er
einhver pottþéttasta partýplatan, sem
gefin hefur veriö út hér á landi.
Skallapopp er plata með
fjölbreytni og
góðri stuðtónlist.
Heildsöludreifing
stttÍAorhf
Símar 85742 og 85055
WLJÓMDEILD
Uyj) KARNABÆR
W Laugavegí 66 — Glœstbe — Austurstraeti 22
w Sími fré skiptiboröi 85055