Morgunblaðið - 10.12.1981, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981
+ Kona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, GUDRÚN STEFÁNSDÓTTIR RICHTER frá Ísafíröi, lést.í Landakotsspítala þann 8. desember. Fyrir hönd aöstandenda. Gunnlaugur Guömundsson.
+ Móöir okkar, GUÐRÚN SIGURGEIRSDÓTTIR, Brautarholti S, Ólafsvík, andaöist í Borgarspítalanum aö morgni 9. desember. Börnin.
+ Systir min, ELÍN JÓHANNSDÓTTIR POELSTERL, andaöist á heimili sínu í Florida í Bandaríkjunum, þann 16. nóv- ember síöastliöinn. Maríus Jóhannsson.
t Eiginkona mín, AOALHEIDUR TRYGGVADÓTTIR frá Fáskrúðsfirði, lést á St. Jósefsspítala þann 8. desember. Jón Pétursson, Eyrarhrauni, Hafnarfirói.
+ Minningarathöfn um ■ STEFÁN STEFÁNSSON, tjónaskoöunarmann, Laugarnesvegi 48, veröur haldin í Fríkirkjunni kl. 10.30 laugardaginn 12. des. Jarðaö veröur frá Hraungeröiskirkju kl. 2.00 sama dag, en bílferö verður frá Fríkirkjunni aö minningarathöfn lokinni. Fyrir hönd vandamanna. Guórún Magnúsdóffir.
+ Faöir minn, tengdafaðir okkar, afi og langafi, INGI HALLDÓRSSON, bakarameistari, sem lést 28. nóvember, veröur jarösettur í Fossvogskirkju föstu- dag 11. desember kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Krabbameinsfélag Islands. Anna Ingadóttir, Ólafur Sverrisson, Gunnmar Nielsen, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför LILJU KRISTJÁNSDÓTTUR, Álfaskeiði 64, Hafnarfirði. Ágúst Jóhannesson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+ Þökkum öllum, nær og fjær, auðsýnda samúö og vináttu vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður og tengdamóöur, GUDRÚNAR EYJÓLFSDÓTTUR, Gerðum, Garði. Sveinn Árnason, Árni Sveinsson, Guðlaug Sveinsdóttir.
Lokað
í dag vegna útfarar
GUÐFINNU GÍSLADÓTTUR.
Málflutningsskrifstofa
Jón Oddsson, hrl.
Eignagarður, fasteignasala.
Minning:
Guðfinna Gísladótt-
ir Bolungavík
Fædd 8. janúar 1912.
Dáin 30. nóvember 1981.
I dag kveðjum við heiðurs- og
sómakonuna Guðfinnu Gísladótt-
ur, en hún andaðist að heimili sínu
30. nóvember sl. og er þar með
lokið æviskeiði merkrar konu.
Hún hefði orðið sjötug 8. janúar
næst komandi. Útför hennar verð-
ur gerð í dag frá Fossvogskirkju.
Guðfinna Gísladóttir fæddist í
Bolungavík, elsta barn hjónanna
Sesselju Einarsdóttur og Gísla
Sigurðssonar, sjómanns. Hún var
af alþekktum ættum, móðurættin
m.a. með elstu frumbyggjum
Akraness, en föðurættin úr ísa-
fjarðardjúpi. Heiðvirt og dugmik-
ið fólk. Foreldrar Guðfinnu
bjuggu lengst af í Bolungavík, en
fluttu á efri árum til heimabyggð-
ar Sesselju, Akraness. Systkini
Guðfinnu voru: Ásgerður, gift Sig-
urði Guðmundssyni, tækniteikn-
ara, áður lögreglumanni á Akra-
nesi, Einar, skipstjóri, sem lést
fyrir tveim árum, var kvæntur El-
ísabetu Sveinbjörnsdóttur, ljós-
móður, og Petrína, gift Bjarna Eg-
ilssyni, húsasmíðameistara. Mikil
samheldni og ástríki var með þeim
systkinum og fjölskyldum þeirra,
er aldrei bar skugga á, enda lífs-
glatt fólk og raungott.
Eiginmaður Guðfinnu, tengda-
móður minnar, var Guðmundur
Jakobsson, fyrrum skipstjóri og
útgerðarmaður í Bolungavík, en
nú bókaútgefandi í Reykjavík.
Voru þau bæði fædd í Bolungavík
og skóla- og fermingarsystkin.
Endanlega bundu þau saman
bagga sína, er þau voru við nám
hér í Reykjavík, hún í Verzlun-
arskóla Islands, en hann í Sam-
vinnuskólanum og sú samfylgd
entist í rúm fimmtíu ár og saman
voru þau, er hún kvaddi þennan
heim. I barnaskólanum í Bolunga-
vík kepptu þau um efstu sætin. Af
framsýni og dugnaði kostuðu for-
eldrar hennar hana til frekara
náms, þar sem hún hafði náð góð-
um námsárangri. Var þetta mikið
afrek hjá jafn efnalitlu fólki og
var fáheyrt á þessum tíma. Guð-
finna gat og minnkað náms-
kostnaðinn með vinnu í sumar-
leyfum heima i Bolungavík, en
tengdafaðir minn braust til náms
einn og óstuddur, enda hafði hann
stundað sjómennsku frá ferming-
araldri af miklum dugnaði. Ekkert
virðist því eðlilegra en að þessir
eldhugar sameinuðust. Guðfinna
var ung, þegar hún valdi sér lífs-
förunaut og ástin til hans var afl-
vaki lífs hennar. Bæði voru þau af
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö viö andlát og útför ástkærrar
móöur okkar, fósturmóöur, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
GYDU GUNNARSDÓTTUR
frá Ólafsvík,
Tjarnarbraut 29, Hafnarfiröí.
Gunnar Randversson,
Úlfar Randversson,
Steinn Randversson,
Rannveig Randversdóttir,
Kristbjörg Elíasdóttir,
Agnar Elíasson,
Sigurrós Elíasdóttir,
Fríóa Elíasdóttir,
Sylvia Elíasdóttir,
Aldís Eliasdóttir,
Hulda Haraldsdóttir,
barnabörn og b
Sygin Frímann,
Lovísa Jónsdóttir,
Kristjana Kristjónsdóttir,
Ragnar Magnússon,
Agnar Jónsson,
Lilja Pálsdóttir,
Guömundur Eyjólfsson,
Hjörvar Jóhannesson,
Bergur Sigurðsson,
Björn Fríðþjófsson,
Rafnar Halldórsson,
+
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa,
HERMANNS HERMANNSSONAR
frá Ógurvík.
Anna Hermannsdóttir,
Þuríður Hermannsdóttir,
Þórður Hermannsson,
Sigríður Hermannsdóttir,
Karítas Hermannsdóttir,
Sverrir Hermannsson
Gísli Jón Hermannsson,
Halldór Hermannsson,
Guörún Dóra Hermannsdóttir,
Birgir Hermannsson,
Asgeir Sigurðsson,
Arnviður Ævarr Björnsson,
Vigdís Birgisdóttir,
Steingrímur Birgisson,
Gréta Lind Kristjánsdóttir,
Jónína Einarsdóttir,
Katrín Gísladóttir,
Þórir Þórisson,
Alda Sígtryggsdóttír,
barnabörn og barnabarnabörn.
f
Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför eiginmanns
míns. fööur okkar, fósturfööur, tengdafööur, afa og langafa,
GUDBJÖRNS SIGURJÓNSSONAR
frá Króki,
Safamýri 93.
Margrét Gissurardóttir,
Sigrún Guðbjörnsdóttir,
Sigurjón Guðbjörnsson, Gunnlaug Jónsdóttir,
Ragna Pálsdóttir, Gunnar Ingvarsson,
Guörún Guðmundsdóttir, Sigurður Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö fráfall og útför bróöur
okkar og mágs,
GEIRS FRIOBJORNSSONAR
frá Vík í Fáskrúðsfirði.
Áslaug Friðbjörnsdóttir, Guðmundur Magnússon,
Aðalsteinn Friðbjörnsson, Björn Friðbjörnsson,
Jón Friöbjörnsson, Sveina Lárusdóttir,
Sigurpáll Fríöbjörnsson, Jóna Martensen,
Egill Friðbjörnsson, Guðlaug Þórðardóttir,
Þórhallur Friðbjörnsson.
fátæku fólki og ekki voru efnin
mikil, er þau stofnuðu heimili í
Bolungavík. Líf tengdaforeldra
minna reyndist oft hörð glíma við
mikla og óvænta ytri erfiðleika, en
skömmu fyrir andlát sitt sagði
Guðfinna mér, að gæti hún lifað
að nýju, myndi hún engu breyta.
Hún var kona mannsins síns í
blíðu og stríðu, staðföst og raun-
góð, og við enga konu hefði hún
viljað skipta hlutskipti.
Tengdaforeldrar mínir bjuggu í
Bolungavík til ársins 1951, að þau
fluttu til Reykjavíkur. Eignuðust
þau fimm börn á tuttugu árum, en
þau eru: Arnar, prentari, kona
hans er Sólveig Kristjánsdóttir,
skrifstofustúlka, Valgerður Bára,
gift Jóni Oddssyni, hrl., Theódór
Jakob, bókbindari, kvæntur Hall-
dóru Guðmundsdóttur, sjúkraliða,
Soffía, íþróttakennari og hjúkrun-
arfræðingur, gift Ásgeiri Elías-
syni, íþróttakennara, og yngst er
Gíslína, arkitekt, sem nú er við
framhaldsnám í byggingalist í
Danmörku, Barnabörnin eru fjór-
tán og barnabarnabörnin tvö. Öll
hefðum við viljað hafa hana miklu
lengur meðal okkar, en eigi má
sköpum renna. Barnahópurinn
saknar elskulegrar ömmu. Það er
því með trega, sem hún er kvödd
hinstu kveðju, svo góðar og hug-
ljúfar minningar skilur hún eftir
þessi lífsglaða og raungóða kona,
er lagði allan þann stuðning fram,
er hún átti, börnum sínum og fjöl-
skyldu, á sinn ástúðlega og nær-
færna hátt þar til kraftar þrutu.
Guðfinna var tignarleg og
glæsileg kona, hafði til að bera
háttvísa, fágaða og nærfærna
framkomu. Svipurinn bjartur og
hlýr og geislandi af sannri lífs-
gleði og alúð. Mannkærleikur og
gæska voru hennar aðalsmerki,
hvort sem var til manna eða mál-
leysingja. Hún var einstaklega vel
metin og vinsæl meðal allra
þeirra, er einhver kynni höfðu af
henni. Viðmót hennar var hlýtt og
brosið skínandi bjart, blik augn-
anna óviðjafnanlega fagurt.
Framganga hennar og skaphöfn
staðföst, einarðleg og hreinskipt-
in. Hún var gædd djúpri og sterkri
réttlætiskennd og hafði ígrundað-
ar og fastmótaðar skoðanir. Jafn-
an var hún málsvari þeirra, er
minna máttu sín og sýndi það oft í
verki, þó hún flíkaði því ekki. Hún
lagði aldrei nema gott til allra
mála og lagði hverjum góðum
málstað það liðsinni, er hún frek-
ast gat. Hún var trúhneigð, en
sýndi skoðunum annarra umburð-
arlyndi. Þannig var Guðfinna ekki
einvörðungu velgerð og heilsteypt
manneskja, heldur var hún einnig
stórfengleg listakona. Hún hafði
einstaklega fagra söngrödd og
enginn vafi er, að lífsbraut hennar
hefði getað orðið önnur en hús-
móðurstarfi í litlu sjávarþorpi,
hefði hún kosið að leggja fyrir sig
sönglistina, sem sitt lífsstarf. I
slíku umhverfi hefði hún án efa
náð langt á listabrautinni, enda
góðum gáfum gædd og háttvís
heimsborgari að upplagi. En þessi
lífsglaða og einlæga kona harmaði
aldrei hlutskipti sitt. Hún var fjöl-
skyldu sinni allt og naut þar
hverrar stundar heilshugar og
óskipt. Á heimili sínu var hún ör-
látur og veitull gestgjafi, lund
hennar rausnarleg og stór. í öllu
annríkinu gaf hún sér tíma til að
taka virkan þátt í sönglífi í Bol-