Morgunblaðið - 10.12.1981, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1981
39
fclk í JéÉ
fréttum
Öryggið
fyrst
+ Þessi stúlka heitir Tracey
Dixon, og er sautján ára göm-
ul sýningarstúlka og einmitt
svona kom hún sýningargest-
um fyrir sjónir á mikilli heil-
brigðis- og öryggisráðstefnu í
Lundúnum fyrir skömmu.
Hún var að sýna hvernig ætti
að nota eyrnaskjól og örygg-
isgleraugu — en það er greini-
legt af myndinni að jafnrétt-
isráðið í Lundúnum er ekki
eins atkvæðasamt og það hér
uppi á íslandi ...
Gordon Jackson í morðleik Agöthu
+ Gordon Jackson er flestum að
góðu kunnur sem yfirþjónninn
Hudson í Húsbændur og hjú. En
Gordon hefur leikið fleiri hlut-
verk um dagana og er vel metinn
leikari í Englandi, bæði á leik-
sviði, í sjónvarpi og kvikmynd-
um. I breska sjónvarpinu eru nú
syndir þættir úr myndaflokkn-
um The Professionals, sem er
sakamálamyndaflokkur, og leik-
ur Gordon þar aðalhlutverkið, en
er í heldur skuggalegum félags-
skap. Á myndinni sem hér fylgir
þarf Gordon þó ekki að kvarta
undan félagsskapnum, og þessar
tvær stúlkur, sem heita Mary
Tamm og Belinda Carrol, munu
leika ásamt Gordon aðalhlut-
verkin í einu af síðustu verkum
Agöthu Christie „Cards on the
Table" sem er nú fært upp í
West End í Lundúnum. En oft er
flagð undir fögru skinni, og þær
Mary og Belinda leika báðar
morðingja í verkinu, sem hafa
sloppið undan refsivendi lag-
anna. Gordon leikur á hinn bóg-
inn leynilögreglumann hjá
Scotland Yard sem leysir morð-
gátur á færibandi. Hann sagði:
„Það hefur verið stórkostlega
skemmtilegt að vinna að þessum
leik, og ég er í yndislegum fé-
lagsskap. Það er sannarlega
munur að hafa Belindu og Mary
hjá sér, heldur en þá Bodie og
Doyle úr The Professionals — af
hverju.? Þær eru miklu fallegri
til að byrja með ...
ixy. ^ ^ ’ .40+' -x _ ^ ^ *»> *.. . ^ -'vV- íJv ÆS JÉ „x
m *••■•«► 1« ZZ •» «1 <» % * •***' >• ifc
Zt “ **
V #fc. *~w* *** » *.■*„ ** m m ml'Z' ■*■ *, Z ,'+ * * .
f*,**.** £ 2 ?, m ** ~**ZZÍ*k*
aaðmtfHnMðíg
: 2
fsf&m
ffll
■%**
fmm*
> yw* ; *
.»«*»*’*»*■*
SseöCÖðC
IH^I
ÉaT r'CCssv
Æ
s2;
wtgkm
Stefnt á brattann
+ Renato Da Silva, 21 árs gamall Brazilíumaður og
dyravörður í háhýsi nokkru í Sao Paulo, fann einn
daginn hjá sér óviðráðanlega löngun til að klifra upp
háhýsið. Svo kall gekk út og byrjaði að klifra. Brátt
urðu vegfarendur hans varir og lögregla og slökkvilið
voru kölluð á staðinn, en Renato hélt áfram að klifra,
eins og það kæmi honum ekki við. Hann var kominn
upp á 12tu hæð, þegar hann leit loks niður og þá tók
hann andköf og fékk svimakast og var afar þakklátur
mönnum sem náðu að grípa í hann og toga hann inn
um glugga. En þarna á myndinni er Renato sem sé
einsamall á 12tu hæð háhýsisins, að virða fyrir sér
útsýnið...
er hljómplata ódyr
jólagjöf
FÁLKINN sksÍAQr
7
r