Morgunblaðið - 21.01.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.01.1982, Blaðsíða 19
u ii !)■/:.;-’'.' t------------------- MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDA&tFRiiL-JANÚAR 1982 19 Góður árangur íslenskra unglinga í Skandinavíu Um og eftir áramótin lögðu nokkrir íslenskir unglingar leið sína til Skandinavíu þar sem þeir tóku þátt í alþjóðlegum skákmót- um. Arangur þeirra allra var mjög sómasamlegur, en reynslulitlir unglingar héðan hafa stundum átt undir högg að sækja hjá frændum vorum er þeir hafa háð frumraunir sínar á erlendum vettvangi. Hæst bar árangur Elvars Guð- mundssonar, en á alþjóðlegu móti í Hamri í Noregi náði Elvar fyrsta áfanga sínum að FIDE- meistaratitli. Sem stendur eig- um við íslendingar engan FIDE-meistara, þó nokkrir tillitslausir skákmenn hér hafi tvímælalaust þann nægilega styrkleika til að standa undir slíkum titli. Góðar horfur eru þó á því að á Reykjavíkurskákmót- inu í febrúar nái nokkrir Islend- ingar FIDE-meistaraárangri. Nú eru það einungis Jóhann Hjartarson og Sævar Bjarnason auk Elvars, sem hafa áfanga í slíkan titil, en Jóhann hlýtur þó fyrst og fremst að keppa að al- þjóðlegum meistaratitli. Úrslitin á mótunum í Skand- inavíu um áramótin urðu á þessa leið: Skák Margeir Pétursson Hallsberg Þar fór að venju fram öflugt alþjóðlegt unglingamót og keppti Arnór Björnsson af okkar hálfu. Hann hlaut fimm vinn- inga af níu mögulegum, sem er ágætur árangur, en Arnór er að- eins 15 ára gamall. Sigurvegari á mótinu varð sænski unglingurinn Gösta Svenn. Hann hlaut sjö vinninga af níu mögulegum. I öðru sæti urðu þeir Ralf Akesson, Svíþjóð, og Daniel King frá Englandi. Akesson má muna sinn fífil fegri, því í fyrra sigraði hann með yfirburðum á EvrópumeisU aramóti unglinga í Groningen. Karlstad Þar fór fram stórt opið skákmót þar sem hinn kunni al- þjóðameistari Harry Schiissler sigraði. Þorsteinn Þorsteinsson, sem hefur verið búsettur í Sví- þjóð um nokkurt skeið, varð í fimmta sæti, sem er mjög góður árangur. Þrándheimur Norðmenn halda unglingamót um hver áramót og fór það að þessu sinni fram í hinu forn- fræga höfuðbóli Þrándheimi. Þrír Islendingar voru á meðal þátttakenda, þeir Róbert Harð- arson og Stefán G. Þórisson, sem hlutu fimm og hálfan vinrting hvor og I’áll Þórhallsson sem hlaut fjóran og hálfan vinning, eða 50% slétt. Efst á mótinu urðu þau Simon Agdestein, sem nú er aðalvon Norðmanna í unglingaflokki, og sænska stúlkan I*ia Cramling, sem sízt gefur eftir piltum í sín- um aldursflokki og nálgast nú styrkleika kvenstórmeistara. Þau hlutu bæði sjö vinninga af níu mögulegum, en Simon taldist sigurvegari á stigum. Hamar Þar voru þeir Elvar Guð- mundsson og Þorsteinn Þor steinsson í hópi 18 þátttakenda á alþjóðlegu skákmóti þar sem tefldar voru níu umferðir eftir Monrad-kerfi. Úrslitin urðu þessi: 1. King (Englandi) 6V4 v., 2. Tisdall (Bandaríkjunum) 6 v., 3.-4. Federowicz (Bandaríkjun- Klvar Guðmundsson um) og Bernstein (V-Þýzkalandi) 5V4 v., 5.-9. Klvar, Davies (Eng- landi), Sapi (Ungverjal.), Myreng og De Lange (Noregi) 5. Þor- steinn hlaut 4 v. King náði þarna síðasta áfanga sínum að alþjóðlegum meistaratitli. Mótið var all- sterkt, sem sjá má, t.d. má geta þess að Federowicz er nú orðinn stórmeistari eftir að hafa sigrað á alþjóðlegu móti í Ramsgate í Englandi. Elvar tefldi af öryggi á þessu móti, vann tvær skákir, tapaði einni og gerði sex jafntefli. Hvítt: Klvar Guðmundsson Svart: Bjerke (Noregi) 1. d4 — RfG, 2. c4 - e6, 3. Rf3 — b6, 4. e3 — Bb7, 5. Bd3 — c5, 6. 0-0 — Be7, 7. b3 — 0-0, 8. Bb2 — cxd4, 9. exd4 — d5, 10. Rbd2 — Rc6, 11. Hcl — Hc8, 12. Hel — He8, 13. Re5! Elvar fetar í fótspor Karpovs, en þannig tefldi heimsmeistar- inn gegn Andersson í Tilburg 1980. — Bf8, 14. Rdf3 - g6 Andersson fékk einnig verra tafl eftir 14. — Rxe5,15. Rxe5 — Hc7, 16. c5! - bxc5,17. Bb5 15. c5! — Bh6 Hvítur stendur í báðum tilvik- um betur eftir 15. — Rxe5, 16. Rxe5 — bxcð, 17. Bb5, eða 15. — bxc5, 16. Rxc6 — Bxc6, 17. dxc5 16. Rxc6 — Bxc6, 17. Hbl! — bxc5, 18. dxc5 — Re4, 19. b4 — Ilb8, 20. Be5 — Bg7, 21. Dc2! Engin ástæða var til að leyfa 21. Bxb8 - Rc3 — Hc8, 22. Bxg7 — Kxg7, 23. b5 — Ba8, 24. c6 Elvari hefur til fullnustu tek- ist að útfæra hugmynd Karpovs. Svartur hefur bókstaflega verið kæfður. — Rd6, 25. a4 — f6, 26. I)c5 — He7, 27. Hbdl — Re8, 28. Bc2 — a6? 29. Hxd5! og svartur gafst upp. Borgarnes: Námskeið um neytendavernd Uoruarm si IH. janúar. Borgarfjarðardeild Neytenda- samtakanna, Menningar og fræðslusamband alþýðu (MFA), Verkalýðsfélag Borgarness og versl- unarmannafélag Borgarness héldu um helgina í Borgarnesi „námskeið um neytendavernd". Námskeiðið skiptist í eftirfar- andi aðalhluta: 1. „Hlutverk heim- ilanna í nútíma þjóðfélagi". Leið- beinandi: Sigríður Haraldsdóttir, deildarstjóri hjá Verðlagsstofnun. 2. „Kaup á notuðum bílum". Leið- beinandi: Andri Árnason, lögfræð- ingur FIB. 3. „Hlutverk hins opin- bera“. Leiðbeinendur: Jóhannes Gunnarsson, fulltrúi hjá Verð- lagsstofnun, Jóhannes Siggeirs- son, hagfræðingur ASI, og Sig- ríður Haraldsdóttir. 4. „Fæðan og heilsufar“. Leiðbeinandi: Steinunn Ingimundardóttir, skólastjóri. 5. „Fatnaður og meðferð". Leið- beinandi: Sigríður Haraldsdóttir. 6. „Hlutverk verslunarinnar". Leiðbeinendur: Þórir Páll Guð- jónsson og Sigurður Sigfússon, kennarar, Bifröst. Að sögn Bjarna Skarphéðins- sonar formanns Borgarfjarðar- deildar NS þótti þetta námskeið, sem er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi, takast mjög vel og þátttakendur virtust vera ánægð- ir, en þeir voru um 30 talsins. Bjarni taldi að námskeiðið hefði a.m.k. vakið þátttakendur til um- hugsunar um þessi mál og veitti ekki af því nú á þessum miklu verðhækkanatimum. Aðspurður um önnur helstu viðfangsefni Borgarfjarðardeild- arinnar sagði Bjarni að það yæru helst fræðslumál, þ.e. fyrirbyggj- andi starf að neytendamálum, og svo væri deildin með kvörtunar- þjónustu ef félagar þurfa á slíku að halda. I fræðslustarfinu væri útgáfa fréttabréfs mesta verkefnið en það kæmi út annað slagið. Efni frétta- bréfsins sagði Bjarni að væri leiðbeiningar til neytenda, verð- kannanir og eins væru birt viðhorf ýmissa aðila til neytendamála. Félagar Borgarfjarðardeildar Neytendasamtakanna eru um 300, starfssvæði deildarinnar er versl- unarsvæði Borgarness, þ.e. frá Andakílshreppi að Breiðuvíkur- hreppi að báðum meðtöldum. Starfið er fjármagnað með félags- gjöldum og styrkjum nokkurra sveitarstjórna. HBj. Átta skip hafa leyfi til loðnuveidanna nú ÁTTA loðnuskip hafa nú leyfi (il að stunda luðnuveiðar, en það eru þau skip, sem ekki höfðu veitt helming út- hlutaðs kvóta fyrir 20. desember síð- astliðinn. Andrés Finnbogason hjá Loðnu- nefnd sagði, þegar rætt var við hann í gær, að einhver þessara skipa væru nú farin á loðnumiðin, en ekk- ert hefði fréttst frá þeim enn. Að sögn Andrésar, þá hefur veður á loðnumiðunum verið leiðinlegt að undanförnu. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU skíða ferðir Sölden Zillertal Nied^rau / Næsta brottför: 30. jan. 2. brottför: 13. febr. 3. brottför: 27. febr. Samvinnuferðir-Landsýn minnir á skíðaferðir sínar til Austurrísku skíðabæjanna Sölden, Zillertal og Niederau. Við látum vfirhlaðna ferðamannastaði með allri sinni örtröð liggja á milli hluta. „Aðeins það allra besta" þótti nógu gott og við vonum að farþegamir verði sammála þeim skiða- sérfræðingum okkar sem völdu Sölden, Zillertal og Niederau. Þar er skíðaaðstaða í senn fjölbreytt og spennandi, skíðakennarar á hverju strái, skíðalyftur í tugatali og síðast en ekki síst einstaklega friðsælt og notalegt. Og þegar skiðabrekkunum sleppir er tilvalið að bregða sér á gönguskíði, fara i æsispenn- andi bobsleðaferðir, leika sér á skautasvellum eða bregða sér í hestasleðaferðir um fállega dalina. hreytanlíðursíðanúrísundlaugumog saunaböðum og á kvöldin bíða þín fjölmargir veitinga- og skemmtistaðir með ósvikinni Tíróla-stemmningu, bjölluspili og harmonikkuleik. 2 vikur „„„ verd kr. 4.980 Innifalið: Flug til og frá Múnchen, flutningur til og frá áfangastað, gisting með morgun - verði i tvær vikur og íslensk fararstjórn. Hópafsláttur kr. 500, bamaafsláttur kr. 1.000 Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.