Morgunblaðið - 21.01.1982, Page 23

Morgunblaðið - 21.01.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTPjDAQUR 21. JANÚAR 1982 23 Myndin er tekin er athöfn var haldin í Ft. Worth í Bandaríkjunum á dögunum er forsvarsmenn egypska flughersins veittu viðtöku þriðju F-16 orrustuvélinni sem Bandaríkjamenn láta þá fá. Þrjú þúsund Kambódíu- menn flýðu til Thailands Hangkok, 20. janúar. Al*. HERSVEITIR Víetnama með lið Heng Samrin í forystu rédust á skæruliða, handgengna Pol Pot, fyrrverandi forsætisráðherra Kam- bódíu. Arásin var gerð í grennd við landamæri Thailands í vesturhluta landsins og þrjú þúsund Kambódíu- menn, óbreyttir borgarar, flýðu inn á thailenzkt landsvæði, flestir kon- ur og börn. Leitaði fólkið skjóls í skóglendi skammt frá þorpinu Aranya- prathet, sem mjög hefur komið við sögu í fréttum þegar bardagar hafa verið á þessum slóðum, vegna straums flóttafólks þang- að. Þúsundir andstæðinga frú Gandhi handteknir Nýju l)elhi, 20. janúar. Al*. MINNST 11 biðu bana, 300 slösuð- ust, sumir alvarlega, og 11.000 voru handteknir þegar andstæðingar Ind- iru Gandhi, forsætisráðherra, efndu til sólarhrings verkfalls um allt Ind- land samkvæmt fréttum í dag, mið- vikudag. Madrid, Bilbao, 20. jan. Al*. í FRÉTTUM frá Madrid í dag sagði að lögreglumenn hefðu komizt höndum undir fimm tonn af vopnum og sprengiefnum sem skæruliðar ETA hefðu safnað að sér. Var þarna um að ræða skammbyssur, tilbúnar sprengjur, vélbyssur o.fl. Vopnafundur þessi var í tengsl- um við handtökur lögreglu í Baskalandi á ýmsum aðilum, sem grunaðir eru um að vera viðriðnir hryðjuverk á þessum slóðum. ETA-skæruliðahreyfingin skiptist í tvo arma og þeir sem réðu yfir vopnum þessum eru sagðir til- heyra hinum hófsamari. Höfðu samtökin lofað vopnahléi um óákveðinn tíma og heitið að hætta hryðjuverkum, gegn því að stjórn- in styddi óskir þeirra um sjálf- Stra.ssburj;, 20. janúar. Al*. NÝKJÖRINN forseti Evrópuþings- ins, Pieter Dankert, sagði í dag, að samskipti við lönd í þriðja heiminum þyrftu að stóreflast, nauðsynlegt væri að færa út starfsvettvang þings- ins með þátttöku Spánar og Portúgal og gera almennar umbætur á og inn- an ýmissa stofnana þingsins. Teldi hann þetta allt forgangsmál Evrópu- þingsins á næstu árum. Dankert sagði, að á næstu árum myndi efna- hags- og stjórnmálavandi líkast til setja mikinn svip á öll málefni Evr Stjórnarmálgagnið „National Herald", eina blaðið sem kom út í Nýju Delhi í dag, sagði að verk- fallið hefði mistekizt og tveir þriðju verkamanna í borgum Ind- lands hefðu ekki hlýtt verkfalls- áskoruninni. Yfirvöld munu hafa handtekið stætt Baskaland. Hins vegar var vopnahléð rofið fyrir nokkru þeg- ar föður frægrar poppstjörnu var rænt eins og fram hefur komið í fréttum. Hann var síðar látinn laus. í einu helzta dagblaðf Baska- lands, Deia, var yfirlýsing um það frá þessum hófsamari armi ETA að samtökin muni ekki hafa sig í frammi þegar heimsmeistara- keppnin í knattspyrnu fer fram á Spáni á næsta ári. Hins vegar myndu samtökin á friðsamlegan hátt láta á sér bera til að vekja athygli á málstað sínum. Hinn armur ETA, herskárri miklu, hef- ur hins vegar ekkert látið upp- skátt um hvort hann hyggst einn- ig hafa hægt um sig meðan keppn- in stendur yfir. ópu. Pessi vandi kæmi öllum við, en hann byði ekki síður upp á að allar þjóðir legðust á eitt til að vinna gegn honum. Pieter Dankert, 48 ára, hol- lenskur sósialdemókrati, var kjör- inn forseti Evrópuþingsins í gærkvöldi, þriðjudagskvöld. Tók hann við af Simon Veil frá Frakk- landi. Dankert fékk 191 atkvæði í síðustu umferð og bar þá sigurorð af skæðasta keppinaut sínum Eg- 6.000 skipuleggjendur verkfalls- ins, meðlimi verkalýðsfélaga og stjórnmálamenn úr stjórnar- andstöðunni, í þriggja daga að- gerðum um allt land síðustu þrjá dagana fyrir verkfallið. Að sögn blaða og indversku fréttastofunn- ar UNI voru 11.000 handteknir meðan á verkfallinu stóð. Tilkynnt var í dag, miðvikudag, að nokkrir meðlimir verklýðsfé- laga hefðu verið látnir lausir í fylkjunum Andhra Pradesh og Maharashtra, en þeir voru svo fáir að verið getur að allt að 15.000 séu enn í haldi. Embættismenn gáfu í skyn að þeir yrðu fljótlega látnir lausir. Atta verkalýðsfélög tengd vinstri- og hægrisinnuðum stjórn- arandstöðuflokkum hvöttu til verkfallsins til að mótmæla „stefnu fjandsamlegri verka- mönnum", sem þau segja að Gandhi-stjórnin fylgi. Verkalýðs- félögin krefjast greiðslu atvinnu- leysisbóta og afnáms nýlegra laga um bann við verkföllum í mikil- vægum atvinnugreinum. Sam- kvæmt þeim lögum er hægt að hafa menn í haldi í 12 mánuði án þess að þeir komi fyrir rétt. Verkfallið er fyrsta meiriháttar styrkleikapróf frú Gandhi og and- stæðinga hennar síðan hún kom aftur til valda fyrir tveimur árum og bæði ríkisstjórnin og stjórnar- on Klepsch, kristilegum demó- krata frá Vestur-Þýzkalandi. í ræðu sem Dankert hélt, eftir að hann var settur inn í embætti, vék hann að þeim forgangsmálum, sem í upphafi voru nefnd. Hann sagði, að ennfremur þyrfti að huga að kreppunni í Póllandi, matarskorti vítt um heim, vopna- kapphlaupi, mannréttindabrotum í Tyrklandi, E1 Salvador, íran og Sovétríkjunum, svo og viðskipta- málum milli Vestur-Evrópuríkja og Sovétríkjanna og Japan. andstaðan segjast hafa farið með sigur af hólmi. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar spá því að efnt verði til fleiri mót- mæla gegn frú Gandhi. Jafnframt hefur lögreglan beitt bareflum með járnbroddum til að dreifa hundruðum stuðnings- manna Kongressflokks frú Gandhi í Basirhat í Vestur-Bengal þar sem marxistar fara með völd- in. Stuðningsmenn Kongress- flokksins mótmæltu handtökum nokkurra leiðtoga sinna og grýttu lögregluna. Kína: Lifði og lék sér á 600 árslaunum IVking, 16. janúar AIV ÞÆR fréttir berast frá Kína, að maður nokkur, Liu Xiangding að nafni, hafi lifað þar í vcllystingum praktuglega um margra mánaða skeið. Nú er það í sjálfu sér ekki í frásiigur færandi nema fyrir þær sakir, að hann gerði það með því að svíkja fé út úr fólki sem sam- svarar 600 árslaunum þar í landi. I kínversku dagblaði segir frá því í dag, að uppgangur Lius hafi hafist þegar honum tókst að út- vega nokkrum vina sinna sjón- varpstæki en jafnframt lét hann þau orð falla, að hann ætti hauka í horni meðal starfs- manna erlendra fyrirtækja í Kína auk þess sem hann væri öllum hnútum kunnugur á landamærastöðvunum við Hong Kong. Þegar samtals 400 manns höfðu trúað Liu fyrir 2,6 milljón- um ísl. kr. til sjónvarpskaupa lét hann sig hverfa og lifði eftir það í dýrlegum fagnaði, ók um á bíl, snæddi á bestu veitingastöðum, gekk í það heilaga og fór í skemmtilega brúðkaupsferð. Þeir, sem eftir sátu með sárt ennið, vildu flestir sjálfir hafa hendur í hári Lius því að þeir vildu ekki að lögreglan kæmist í málið, en hún varð þó fyrri til og var Liu handtekinn á dögunum. Vopnabirgðir teknar hjá ETA Dankert; Nýr forseti Evrópuþingsins: Efla þarf samskiptin við lönd þriðja heimsins MARLIN-TOG LÍNUEFNI BLÝ-TEINATÓG FLOTTEINN NÆLON-TÓG LANDFESTAR • BAUJUSTENGUR PLAST, BAMBUS BAUJULUKTIR ENDURSKINSHÓLKAR ENDURSKINSBORDAR LÍNUBELGIR NETABELGIR NÓTABELGIR BAUJUBELGIR ÖNGLAR — TAUMAR MÖRE- NETAHRINGIR LÓÐADREKAR NETADREKAR NETAKEÐJA NETALÁSAR NETAKÓSSAR BAUJUFLÖGG NETAFLÖGG PLASTKÖRFUR VÍRKÖRFUR FISKGOGGAR FISKSTINGIR FLATNINGSHNÍFAR FLÖKUNARHNÍFAR BEITUHNÍFAR KÚLUHNÍFAR SVEÐJUR STÁLBRÝNI HVERFISTEINAR í KASSA, OG LAUSIR RAFMAGNS- HVERFISTEINAR • SALTSKÓFLUR ÍSSKÓFLUR SNJÓÝTUR KLAKASKÖFUR VÍR- OG BOLTAKLIPPUR • GÚMMÍSLÖNGUR ALLAR STÆRÐIR PLASTSLÖNGUR GLÆRAR MEÐ OG ÁN INNLEGGS • LOFTSLÖNGUR • VÉLATVISTUR í 25 KG BÖLLUM HVÍTUR OG MISL. • VÆNGJADÆLUR NO. 0, 1, 2, 3. BOTNVENTLAR Ananaustuni^ Sími 28855 Opiö laugardaga 9—12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.