Morgunblaðið - 21.01.1982, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 21.01.1982, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAPIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1982 Ný þingmál: Ríkisstjórn vill staðfesta aðild Spánar að Nató lA% lækkun tímabundins olíugjalds — óbreytt flutningsgjald á sjávarafurðum 1979. Það var hækkað úr 2,5% I Nokkur ný þingmál vóru lögð framí gær á fyrsta starfsdegi Al- þingis eftir nýjár. Meðal þeirra vóru: • 1) Innganga Spánar í Atlants- hafsbandalagið. Tillaga til þingsályktunar frá ríkisstjórninni, þess efnis, að heimila henni að staðfesta fyrir Islands hönd viðbótarsamning við Norður-Atlantshafssamninginn frá 1949 um aðild Spánar að bandalaginu. • 2) Lækkun olíugjalds um ''2%. Þá var lagt fram stjórnar- frumvarp um lækkun tímabundins olíugjalds til fiskiskipa úr 7,5% í 7,0%.. Olíugjald utan skipta var fyrst tekið upp með lögum í marz 7,5% í október 1980. • 3) Rýmkun eignarnámsheimild- ar loftferðalaga. I gær kom einnig fram frum- varp til laga um breytingar á lög- um um loftferðir, sem felur m.a. í sér rýmkun á eignarnámsheimild- um loftferðalaga. Þá felur frum- varpið í sér heimild til flugmála- ráðherra „að setja reglur um flug- ferðir innlendra flugfélaga og, ef nauðsyn krefur, veita einu eða fleiri félögum sérleyfi til fastra áætlunarferða á ákveðnum leiðum innanlands og utan“. • 4) I triutningsgjald af sjávaraf- urðum. Þá hefur og verið lagt fram stjórnarfrumvarp um útflutn- ingsgjald af sjávarafurðum, þ.e. að það verði áfram 5,5% á árinu 1982. Útflutningsgjald af loðnu- mjöli og loðnulýsi framleiddu á fyrstu 4 mánuðum 1982 verður þó 3,375%, skv. bráðabirgðaákvæði I; tímamörk varðandi ríkisábyrgð fyrir lánum til síldar- og fiski- mjölsdeildar Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, vegna framleiðslu á haustvertíð 1981, eru framlengd til 1. maí 1982, skv. ákvæði til bráðabirgða II. • 5) Flutningssamningar og ábyrgð við vöruflutninga á landi. Fram var lagt stjórnarfrum- varp um „flutningssamninga og ábyrgð við vöruflutninga á landi. Frumvarpið er kaflaskipt: 1) Gild- issvið, 2) Flutningssamningur, 3) Abyrgð flytjanda, 4) Ábyrgð send- anda, 5) Ábyrgð móttakanda og loks 6) Ymis ákvæði. Sigurlaug Bjarnadóttir Tveir varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í gær, er það kom sam- an til fyrsta fundar eftir þinghlé: • 1) Sigurlaug Bjarnadóttir, menntaskólakennari, sem er fyrsti varamaður landskjör- inna þingmanna Sjálfstæðis- flokks, í fjarveru Péturs Sig- Guðrún Hallgrímsdóttir urðssonar, sem er erlendis í opinberum erindagjörðum. • 2) Guðrún Hallgrímsdótt- ir, matvælaverkfræðingur, sem er fyrsti varamaður þing- manna Alþýðubandalags í Reykjavík, í veikindafjarveru Guðmundar J. Guðmundsson- ar. Varaþingmenn Engin frumvörp um efiiahagsmál Alþingi 1 gær: Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, las forsetabréf um framhaldsfundi Alþingis f upp- hafi fyrsta þingfundar Sameinaðs þings í gær eftir þinghlé. Jón Helgason, forseti Sameinaðs þings, flutti minningarorð um Bjartmar heitinn Guðmundsson, sem sat á 12 þingum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og birt eru á þingsíðu Mbl. í dag. Síðan vóru þingfundir í báðum þingdeildum. Engin stjórnarfrumvörp komu fram í gær í tengslum við efnahagsmál. Flutningaráð ríkis- stofnana og tollskrá Helgi Seljan (Abl.) mælti fyrir tveimur frumvörpum í efri deild. Hið fyrra fjallar um flutningaráð ríkisstofnana. Flutningsmaður auk Helga, Ólafur Ragnar Grímsson. Efnis- atriði: Kosning 7 manna í flutn- ingaráð ríkisstofnana, er verði ríkisstjórn til ráðuneytis um „staðarval og flutning ríkis- stofnana, þar með taldar deildir og útibú slíkra stofnana" o.fl. Meintur flutningur á skrif- stofu Síldarverksmiðja ríkisins, frá Siglufirði til Reykjavíkur, kom til tals í þessari umræðu. Var einkum gagnrýnt að þessi flutningur gengi gegn þeim til- gangi að dreifa ríkisstofnunum og valdi um landið, auk þess sem hann væri skýlaust brot á lögum um Síldarverksmiðjur rikisins. Eyjólfur Konráð Jónsson (S) taldi aðalskrifstofu SR eiga að vera í Siglufirði, bæði með hliðsjón af lagafyrirmælum og því, að þar væru stærstu verksmiðjurnar staðsettar. Hitt frumvarpið, sem Helgi flytur ásamt Davíð Aðalsteins- syni (F), Salome Þorkelsdóttur (S) og Karli St. Guðnasyni (A) fjallar um að fella niður gjöld af örygg- is- og hjálpartækjum fyrir sjón- og heyrnarskerta. Idnfræðingar, þing- sköp o.fl. Hjörleifur Guttormsson, iðn- aðarráðherra, mælti í neðri deild fyrir frumvarpi um rétt manna til að kalla sig iðnfræðinga, þ.e. lögverndun starfsheitis. Svavar Gestsson, félagsmála- ráðherra, mælti fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um al- mannatryggingar — til sam- ræmis við ný barnalög. Benedikt Gröndal (A) mælti fyrir frumvarpi um breytingar á þingsköpum, sem fjallar um meðferð þingsályktana, fyrir- spurna og umræðu utan dag- skrár, og miðar að því að koma á betri starfsnýtingu. Nokkrar umræður urðu um málið, sem fékk jákvæðar undirtektir, sem spönnuðu einnig starfssvið og starfsskilyrði þingnefnda og þingmanna. Þingmenn vöruðu þó við því að skerða málfrelsi þingmanna um of. Sighvatur Björgvinsson (A) mælti fyrir frumvarpi þing- manna úr Alþýðu- og Sjálfstæð- isflokki, þess efnis, að orku- kostnað vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota að frádregnum olíustyrk, verði heimilt að draga frá skattskyldum tekjum, noti menn ekki 10% frádráttarregl- una, og er hugsað til að jafna aðstöðumun fólks á svokölluðum „olíusvæðum" og hitaveitusvæð- um. Miklar umræður urðu um málið. Að loknum þingdeildarfund- um vóru þingflokkafundir. Vaka: Varsjárbandalagið fordæmt fyrir íhlutunina í Póllandi Sigríður Vilhjálms- dóttir óbó- leikari í nor- ræna keppni TÓNLISTARHÁTÍÐ ungra ein- leikara á Norðurlöndum verður haldin í annað sinn 25. sept.—2. okt. nk. og að þessu sinni í Stokkhólmi. Fyrsta hátíðin af þessu tagi var haldin í Kaupmannahöfn haustið 1980 og voru þá tveir Islendingar, Manuela Wiesler flautuleikari og Einar Jóhann- esson klarínettleíkari, meðal þeirra 16 listamanna sem unnu sér rétt til þess að koriia fram á hátíðinni. Nú hafa 13 ungir hljóðfæraleikarar og söngvarar verið valdir til þátttöku í hátíð- inni í Stokkhólmi í haust og er einn Islendingur þeirra á með- ai, Sigríður Vilhjálmsdóttir óbóleikari. Auk Sigríðar voru 2 þátttakendur valdir frá Sví- þjóð, 3 frá Danmörku, 3 frá Finnlandi og 4 frá Noregi. Sam- norræn dómnefnd valdi þátt- takendur en í henni sátu af ís- lands hálfu Ragnar Björnsson og Jón Nordal. Sigríður Vilhjálmsdóttir Sigríður Vilhjálmsdóttir stundaði fyrst óbónám hér heima hjá Kristjáni Stephen- sen og tók einleikarapróf frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1974. Hún hefur dvalið erlendis síðan og lokið einleik- araprófum frá Royal College of Music í London og Karajan- stofnuninni í Berlín, en þar hef- ur hún m.a. leikið með Fíl- harmoníuhljómsveit Berlínar undir stjórn heimsfrægra hljómsveitarstjóra, s.s. Karaj- an, Solti, Böhm, Abbato og fleiri. Hún starfar nú sem 1. óbóleikari Ríkishljómsveitar- innar í Koblenz. Undirleikari Sigríðar á Stokkhólmshátíðinni veröur Snorri Sigfús Birgisson. Á ALMENNUM félagsfundi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, 14. janúar sl., var samþykkt eftirfar andi ályktun: Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, fordæmir harðlega íhlutun hernaðarvélar Varsjár- bandalagsins í frelsisbaráttu Pólverja. Enn einu sinni sannast sú staðreynd að mannréttinda- hreyfingar í kommúnistaríkjum, hverju nafni sem þær nefnast, eru barðar niður með harðri hendi. Vaka styður kröfur pólskrar al- þýðu um funda- og félagafrelsi, en slíkt er órjúfanlegur hluti al- mennra mannréttinda. Pólskir stúdentar, sem nýlega hafa tekið upp samstarf við Evr- ópusamtök lýðræðissinnaðra stúd- enta, hafa einnig orðið illþyrmi- lega fyrir barðinu á járnhæl kommúnismans. Stúdentar í Pól- landi eru beittir þvingunum sem á Vesturlöndum myndu kippa stoð- unum undan allri háskólamennt- un. Óháð félög stúdenta eru bönn- uð til þess að hefta samskipti stúdenta á meðal. Háskólarnir eru lokaðir og óvíst um það hvenær þeir verða opnaðir aftur. Vaka hvetur því námsmenn, jafnt sem aðra íslendinga, til að styðja Pólverja í viðleitni þeirra til betra mannlífs. Á áðurnefndum fundi var sér- staklega rætt um afdrif óháðu pólsku stúdentahreyfingarinnar, RMP, sem síðastliðið sumar hóf samstarf við EDS, samtök líðræð- issinnaðra stúdenta í Evrópu, sem Vaka er aðili að. Óháða pólska stúdentahreyfing- in gekk í EDS á aðalfundi samtak- anna á sl. sumri. Áttu þeir sam- kvæmt lögum samtakanna að hafa áheyrnarfulltrúa á fundum þeirra í tvö ár, en jafnframt stefndu þeir FYRRI umferð forvals Alþýðuhanda- lagsins í llafnarfirði fór fram síðastlið- inn laugardag og var þeim tilmælum beint til þátttakenda að tilnefna jafn- marga af hvoru kyni. Þær Þorbjörg Samúelsdóttir og Rannveig Trausta- dóttir urðu efstar í fyrri umferðinni. Þá hefur kjörnefnd tilnefnt 12 nöfn til þátttöku í síðari umferð- að því að fá fasta fulltrúa hjá samtökunum. Þess má enn fremur geta að samtök óháðra stúdenta í Póllandi ætluðu að gangast fyrir ráðstefnu um líkleg viðbrögð Vesturlanda, ef til innrásar kæmi í Pólland af hálfu Sovétríkjanna. Ráðstefnu þessa átti að halda í Varsjá um sl. áramót. Til þeirrar ráðstefnu var boðið fulltrúum frá EDS og þ.á m. einum frá Vöku. Af þessari ráð- stefnu gat að sjálfsögðu ekki orðið vegna kúgunaraðgerða pólskra stjórnvalda. inni, sem fram fer 6. febrúar og eru það eftirtaldir aðilar: Bragi V. Björnsson, Guðmundur Rúnar Árnason, Gunnlaugur R. Jónsson, Hallgrímur Hróðmarsson, Harpa Bragadóttir, Magnús Jón Árnason, Páll Árnason, Rakel Kristjánsdótt- ir, Rannveig Traustadóttir, Sigur- björg Sveinsdóttir, Sigurður Gísla- son og Þorbjörg Samúelsdóttir. Konur í efstu sætum forvals AB í Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.