Morgunblaðið - 21.01.1982, Síða 47

Morgunblaðið - 21.01.1982, Síða 47
47 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1982 Aston Villa tapaði á heimavelli lyrir WBA í deildarbikarnum WEST Bromwich Albion sló Aston Villa út úr deildarbikarnum í gær kvöldi. Aston Villa, sem lék á heima- velli sínum, tapaði 1—0. I>að var bakvörðurinn Derek Statham sem skoraði sigurmarkið á 32. mínútu leiksins. Enski landsliðsmaðurinn í liði Aston Villa, Tony Morley, átti afbragðsgóðan leik í fyrri hálfleikn- um. En er liðin gengu af velli í hálf- leik sendi hann dómara leiksins tón- inn. Dómarinn, Ray Chadwick, sýndi honum þá rauða spjaldið og Villa lék einum manni færra í síðari hálf- leiknum. I'rátt fyrir það lék Aston Villa mun betur en tókst ekki, þrátt fyrir góðar sóknarlotur, að jafna metin. I»etta var áttundi sigur WBA í röð í deildarbikarkeppninni. Úrslit í öðrum leikjum í gærkvöldi urðu þessi: Bikarkeppnin: Hereford — Scunthorpe 4—1 1. deild: Stoke City — Arsenal 0—1 2. deild: Cardiff City — Oldham 0—1 3. deild: Reading — Fulham 0—3 Hess sigraði og heffur nú örugga forystu EKIKA Hess frá Sviss sigraði örugg- lega í svigi heimsbikarkeppninnar, sem haldið var í Bagdastein í Aust- urríki í gær, og er þar með álitin sigurstranglegust í kvennaflokki, en í stigakeppninni hefur þessi 19 ára gamla stúlka örugga forystu. Sam- anlagður tími Hess var 90,66 sek- úndur, en næst kom Ursula Konzett frá smáríkinu Liechtenstein, en sam- anlagður tími hennar var 91,16 sek- únda. Fabianne Serrat frá Frakk- landi varð þriðja á 92,15 og Cristine Cooper frá Bandaríkjunum varð fjórða á 92,35. Brautin þótti geysi- lega erfið og margar skíðakonur fengu vænar byltur, sérstaklega í fyrri ferðinni áður en þeim tókst að læra á brautina. Skagamenn skoruöu fimmtíu og eitt mark — Ármann mætir ÍBK í kvöld í 3. deildinni EINN leikur fer fram í 3. deild ís- landsmótsins í handknattleik í kvöld. Ármann leikur gégn ÍBK í Laugardalshöll og hefst leikurinn kl. 20.00. Um síðustu helgi sigraði lið Gróttu Ármann með einu marki, 18—17, í mjög spennandi leik. Við þennan sigur aukast möguleikar Gróttu mjög verulega á að komast upp í 2. deild. Þá sigraði lið ÍA lið Ögra með 51 marki gegn 15 á Akranesi. Mikiil yfirburðasigur það. En lið Ögra er nú að keppa í sínu fyrsta íslandsmóti og hefur þrátt fyrir þennan ósigur staðið sig allvel á mótinu. Staðan í hálf- leik var 25—8. Landsliðsmark- vörðurinn í knattspyrnu, Bjarni Sigurðsson, skoraði 11 mörk fyrir IA, en fyrrum Ármenningur, Pét- ur Ingólfsson, skoraði 9 mörk. Nokkrum leikjum sem fram áttu að fara var frestað. Staðan í 3. deild er þessi: Akranes 12 8 1 3 354:242 17 Ármann 11 8 1 2 270:197 17 Þór Ak. 10 8 1 1 269:216 17 Grótta 10 7 1 2 262:195 15 Keflavík 9 6 0 3 224:165 12 Reynir S. - 10 3 1 6 235:257 7 Selfoss 8 2 1 5 147:186 5 Dalvík 10 2 0 8 226:265 4 Ögri 11 2 0 9 196:338 4 Skallagr. 7 0 0 7 100:222 0 Fyrsta ársþing ÍF Ársþing íþróttasambands fatl- aðra, sem fresta varð fyrir áramót, verður haldið nk. fóstudagskvöld og laugardag og er þingið haldið í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Hefst þingið á föstudagskvöld kl. 20.00. Þetta er fyrsta þing ÍF, en það er jafnframt yngsta sérsambandið inn- an ÍSÍ. Að sögn Sigurðar Magnússonar, formanns sambandsins, verða mörg mál til umfjöllunar á þing- inu, enda eru það sífellt fleiri og fleiri fatlaðir sem tileinka sér ein- hverskonar íþróttir og útiveru. Vegna ýmiskonar sérstöðu er íþróttastarf fatlaðra töluvert flóknara í framkvæmd en önnur íþróttastarfsemi. Ársþingið er því sá vettvangur þar sem iðkendum og leiðbeinendum víðsvegar að af landinu gefst tækifæri til að ræða hin ýmsu vandamál og leggja á ráðin um framtíðarstarfið. Útivera og íþróttir — sýning í höllinni Dagana 22.-24 janúar nk., verð- ur haldin í anddyri Laugardalshallar sýning er ber nafnið Útivera og íþróttir. Að sýningunni stendur Skíðasamhand íslands og er sýning- in leið til kynningar á skíðabúnaði og skíðaíþróttinni og einnig til fjár öflunar. Alls eru sýningaraðilar 14 og munu þeir sýna allt það nýjasta, sem á boðstólum er í dag, af skíðavörum og ýmsu fleira, einnig verður nýjasta tískan í skíðafatnaði sýnd. Auk þess verður kvikmyndasýning og sýni- kennsla í meðhöndlun skíða. Veitingasala verður á staðnum ásamt fleiru. Sýning þessi er einstakt tækifæri fyrir almenning til að kynna sér skíðaútbúnað o.fl., á einum stað. Ensku landsliðsmennirnir I liði Aston Villa, þeir Peter Withe og (Lv.) Tony Morley, máttu sætta sig við tap í gærkvöldi og vonir þeirra um að komast í úrslit í deildarbikarnum urðu að engu. En ekki nóg með það. Tony Morley var vikið af leikvelli fyrir að senda dómaranum tóninn. Yfirburðir Stenmarks Skíðakappinn Stenmark vann enn einn yfirburðasigur í heimsbikarn- um á skíðum í fyrradag í Adelboden í Sviss. Stenmark var með 2,16 sek. betri tíma en næsti maður. Eru menn nú á eitt sáttir um að Sten- mark hafi aldrei verið betri. Röð efstu manna í svigkeppninni varð þessi: Stenmark, Svíþjóð 2:34,25 Phil Mahre, Bandar. 2:36,41 Julen, Sviss 2:36,82 Stolz, Austurríki 2:37,07 Luescher, Sviss 2:37,32 Luethy, Sviss 2:37,44 Borgarnes: íris Grönfeldt íþróttamaöur Skallagríms 1981 ÍKIS Grönfeldt, frjálsíþróttamaður, hefur verið kosin Iþróttamaður Skallagríms 1981. Á vígslu íþrótta- miðstöðvarinnar í Borgarnesi um helgina gerði Sigurjón Gunnarsson, formaður Skallagríms, grein fyrir kosningunni og afhenti íris far andbikar sem Eyjólfur Torfi Geirs- son hefur gefið í þessu skyni. Iris Grönfeldt hlaut flest stig og var kosning hennar mjög glæsileg. Aðrir í 5 efstu sætunum urðu: 2. Hafsteinn Þórisson (frjálsar íþróttir), 3. Björn Jónsson (knattspyrna), 4. Kolbrún Óttarsdóttir (badminton), 5. Gunnar Jónsson (körfuknattleikur). Þetta er í fyrsta skipti sem út- nefning íþróttamanns Skalla- gríms fer fram, en tilefnið var það að Eyjólfur Torfi Geirsson, fram- kvæmdastjóri Ungmennafélags- ins, hefur gefið í þessu skyni far- andbikar og sett með honum reglugerð um kjörið. Það er stjórn UMFS og formenn íþróttadeilda félagsins sem kjósa íþróttamann- inn. Það fer vel á því að íris Grön- feldt skuli hafa orðið fyrst til að hljóta þennan titil, því sjálfsagt er hún mesti afreksmaður sem Borgnesingar hafa átt í íþróttum. Afrekaupptalning yrði allt of löng en ekki er hjá því komist að geta þriggja íslandsmeta á sl. ári, ís- landsmeistaratitla og landsliðs- sætis í aðalgrein hennar, spjót- kastinu. Einnig þess að íris á þriðja besta árangur spjótkastara á Norðurlöndum árið 1981. HBj. • Iris Grönfeldt tekur við farand- bikarnum, sem fylgir nafnbótinni, íþróttamaður Skallagríms, úr hendi Sigurjóns Gunnarssonar, formanns Skallagríms. Ljósm. Mbl.: n.ttj. Skíðamaður kjörinn íþróttamaður Húsavíkur • Arni Grétar Árnason, 15 ára gam- all skíðamaður, var kjörinn íþrótta- maður llúsavíkur árið 1981. Árni þykir vera mjög efnilegur skíðamað- ur og er unglingalandsliðsmaður í íþrótt sinni. Árni er reglumaður í hvívetna. Þetta er í fimmta skipti sem kjörinn er íþróttamaður Húsa- víkur. í fjögur skipti hafa skíðamenn hlotið þann veglega farandgrip sem Kiwanis-klúbbur staðarins gefur. Fréttaritari Heimsmeistarar til íslands • Þann 3. og 4. apríl munu heimsmeistarar í skíðafimi sýna listir sýnar hér á landi. Flokkur sá er kemur til lands- ins er skipaður níu afbragðs- góðum skíðamönnum sem sýna alls kyns listir á skíðum. Sumar æfingar hópsins minna helst á loftfimleika. Hópur þessi kemur hingað til lands á vegum Flugleiða og Volvo. Sýn- ing hópsins mun fara fram í Bláfjöllum. Arnarmótiö í borötennis Borðtennisklúbburinn Örn- inn heldur hið árlega Arnarmót 23. og 24. janúar í Laugar- dalshöll. Þetta er 11. árið sem keppt er um hinn veglega Arnar- bikar. Mótið er punktamót og hefst keppnin laugardaginn 23. janúar kl. 14 í 1. flokki kvenna og 2. flokki karla. Sunnudaginn 24. jan. kl. 14 hefst keppni í meistaraflokki karla og kvenna og 1. flokki karla. Yfirdómari verður Aðal- steinn Eiríksson. Þátttaka tilkynnist til Jón- asar og Sigurðar. Dregið verður á töflu föstudagskvöldið 22. jan. kl. 20. Ráðstefna um skíöatrimm NÆSTKOMANDI laugardag fer fram á Hótel Loftleiðum trimmráðstefna SKÍ. Káð- stefna þessi er haldin í tengsl- um við sýninguna útivist og íþróttir sem fram fer í Laugar dalshöllinni. Dagskrá ráðstefn- unnar verður þessi: Setning trimmráðstefnunn- ar. Ilannes Þ. Sigurðsson, varaforseti ÍSÍ. Ávarp: Stefán Kristjánsson, form. trimm- nefndar ÍSÍ. Umræður: a) Skíðatrimm á íslandi. Trimmár ÍSÍ. b) Norræn fjölskyldu- landskeppni á skíðum 1983. c) Almenningsganga í Keykjavík í mars nk. d) Norræn skóla- landskeppni á skíðum 1985. e) Önnur trimmmál. Meistaramót í atrennulausum stökkum MEISTARAMÓT íslands í at- rennulausum stökkum verður haldið í Ármannsheimilinu sunnudaginn 31. janúar næst- komandi og hefst klukkan 10.30 árdcgis. Þátttökugjöld greiðist á kcppnisstað. Vænt- anlegir keppendur skrái sig hjá Stefáni Jóhannessyni, síma 19171, eða á skrifstofu FRÍ í síðasta lagi fimmtudaginn 28. janúar. Frá FRÍ Ásgeir lék ekki meö gegn Freiburg BAYEKN Miinchen sigraði lið Freiburg í bikarkcppni i knattspyrnu 3—0, í fyrrakvöld. Mörk Bayern skoruðu Dremmler, HÖness og Kumm- enigge. Ásgeir lék ekki með lið- inu. Real sigraöi REAL Madrid cr komið í úrslit í Evrópukeppni hikarhafa í körfuknattleik. I.iðið sigraði Inter Bratislava 110—89 í síð- ari lcik liðanna sem fram fór í fyrrakvöld. Fyrri leikinn vann Real Madrid líka 111—86. Stð- ari leikur liðanna fór fram í Madrid að viðstöddum 2000 áhorfendum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.