Morgunblaðið - 20.02.1982, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982
37
Una Þorbjörg
Árnadóttir - Minning
Fædd 28. maí 1919.
Dáin 5. febrúar 1982.
Að morgni hins 5. febrúar sl.
varð bráðkvödd að heimili sínu,
Ægisstíg 6 á Sauðárkróki, Una Þ.
Árnadóttir frá Kálfsstöðum í
Hjaltadal. Hún var fædd á
Kjarvalsstöðum í sömu sveit hinn
28. maí árið 1919, dóttir hjónanna
Árna Sveinssonar, Eiríkssonar frá
Skatastöðum, og Sigurveigar Frið-
riksdóttur, Jóhannessonar frá
Reykjum í Hjaltadal. Una var elzt
þriggja systkina. Bræður hennar
tveir eru: Friðrik, f. 23. apríl 1922,
leigubifreiðarstjóri í Reykjavík,
og Árni, f. 18. september 1923,
verkamaður á Sauðárkróki.
Þau Árni og Sigurveig byrjuðu
búskap sinn á Kjarvalsstöðum
vorið 1919 og voru þar til 1923, að
þau fluttust á Kálfsstaði. Ári síð-
ar keyptu þau jörðina og bjuggu
þar síðan allt til ársins 1964, er
þau fóru byggðum til Sauðár-
króks.
Una ólst upp með foreldrum
sínum við venjuleg sveitastörf.
Hún settist aldrei á skólabekk, en
faðir hennar kenndi henni allt
námsefni barnaskóla. Hann fékkst
nokkuð við barnakennslu og var sá
starfi einkar laginn.
Foreldrar Unu voru bæði
greindarfólk og unnu hvers konar
þjóðlegum fróðleik og bókmennt-
um. Það var alltaf sérstakur
menningarbragur á Kálfsstaða-
heimilinu og framúrskarandi
gestrisni, enda komu þangað
margir. Þar voru um langan tíma
til húsa bækur Lestrarfélags
Hólahrepps, auk þess sem heimil-
isfólkið sjálft átti góðan bókakost.
Móðir Siguveigar, Una Sigurðar-
dóttir, sem dvaldist mörg síðustu
ár sín á Kálfsstöðum í skjóli dótt-
ur sinnar og tengdasonar, var
einnig vel að sér og kunni sér-
staklega mikið af sögum og ævin-
týrum, sem hún hafði numið úr
munnlegri geymd. Hún var ólöt að
segja dótturbörnum sínum þessar
sögur og í þessu umhverfi ólst Una
Árnadóttir upp. Það lét því að lík-
um, að hún varð snemma hneigð
til bókar. Þegar stundir gáfust frá
nauðsynlegum störfum, var yndi
hennar að grípa í bók, enda varð
hún mjög vel lesin og kunni mesta
sæg af vísum og kvæðum. Hún var
hagorð sjálf og átti talsvert af
frumsömdum kvæðum í handriti.
Einnig hóf hún að skrifa sögur,
einkanlega eftir að hún fluttist til
Sauðárkróks. Komu út eftir hana
tvær skáldsögur: Bóndinn í Þver-
árdal, 1964, og Enginn fiskar á
morgun, 1969. Auk þess birti hún í
Heima er bezt allmargar smásög-
ur og framhaldssöguna Gömul
spor.
Sögur Unu verða vart taldar
með stórbrotnum bókmenntaverk-
um, en þær eru gerðar af alúð og
skrifaðar á góðu íslenzku máli. I
skrifum sínum fjallaði hún eink-
um um það líf og umhverfi, sem
hún þekkti til af eigin raun, líf
sveitafólks á fyrri tíð og líf verka-
fólks í kaupstað.
Una var oft einlæg og opinská í
tali og viðmóti. Ég held hún hafi
borið gæfu til að varðveita að
nokkru barnið í sál sinni. Hún
elskaði það sem gott var og fagurt,
og þetta lífsviðhorf kemur fram í
sögum hennar, þar sem hið góða
ber jafnan hærra en hið slæma.
Árið eftir að fjölskyldan frá
Kálfsstöðum fluttist til Sauðár-
króks, dó heimilisfaðirinn Árni, en
eldri bróðirinn, Friðrik, fluttist
strax úr sveitinni til Reykjavíkur.
Una fór þá að vinna við fiskverkun
í frystihúsi á Sauðárkróki og hélt
fram þeim starfa um 15 ára skeið.
Hún hélt alla tíð heimili með móð-
ur sinni og yngri bróður, Árna, en
þau systkini eru öll ógift.
Una var vel greind kona og hin
vandaðasta til orðs og æðis í hví-
vetna. Aldrei heyrði ég hana mæla
hnjóð til nokkurs manns og ekki
mátti hún aumt sjá, án þess að
vilja þar eitthvað úr bæta. Móður
sína aldraða, sem lengi hefur átt
við vanheilsu að stríða, annaðist
hún af stakri alúð og nærgætni.
Heimilið á Ægisstíg 6 hefur
fyllilega haldið þeirri menningar-
Minning:
Jóhanna Gunnlaugs-
dóttir frá Eitla-Osi
Jóhanna Gunnlaugsdóttir fædd-
ist 12. júlí 1887 að Múla í Línakra-
dal, V-Hún. Foreldrar hennar
voru Gunnlaugur Gunniaugsson,
bóndi þar, og kona hans, Björg
Árnadóttir, en þau fluttu síðar að
Syðri-Völlum, Miðfirði, þar sem
Jóhanna ólst upp í stórum og glað-
værum systkinahóp. Árið 1915
giftist Jóhanna Birni Jónssyni frá
Ánastöðum á Vatnsnesi. Þau hófu
búskap á Ánastöðum, þar sem
elstu börnin fæddust, en fluttu um
1920 að Litla-Ósi, þar sem þau
bjuggu æ síðan. Börn þeirra hjóna
eru, Hildur, Jón, Þorvaldur, sem
tók við búi á Litla-Ósi, Gunnlaug-
ur og Ingibjörg, allt myndar- og
gæfufólk, sem hefur reynst undir-
rituðum vel. Jóhanna missti mann
sinn 1966. Hún dvaldist síðustu
árin á elliheimilinu á Hvamms-
tanga. Þar andaðist hún 7. febrúar
síðastliðinn.
Eg var svo heppinn að vera
komið fyrir hjá þessum heiðurs-
hjónum í stríðsbyrjun og var þar á
hverju sumri í mörg ár. Mér var
það augljóst á þessum árum að
Björn Jónsso’n vissi allt og gat allt,
meira að segja veitt hval á smá-
kænu. Hann fóðraði mig á hvers
kyns fróðleik, bæði bundnum og
óbundnum og alltaf var af nógu að
taka. Ég finn ennþá leðurlyktina
sem angaði þegar hann vann að
söðlasmíðinni. Jóhanna var mér
sem móðir og lét mig sofa fyrir
ofan sig fyrsta sumarið, mild og
blíð, og signdi mig þegar ég fór í
hreina skyrtu.
Fyrir þá umgjörð, sem þessi
heiðurshjón sköpuðu löngu liðnum
sumrum, verð ég ævinlega þakk-
látur.
Reykjavík, 19. febrúar 1982,
G.Þ.I.
legu reisn, sem var á Kálfsstöðum,
og hin gamla íslenzka gestrisni
hefur jafnan verið í hávegum
höfð.
Með þessum fátæklegu orðum
mínum vil ég minnast Unu og
þakka marga fræðandi og ánægju-
lega stund á þessu heimili undan-
farin ár. Bræðrum hennar og móð-
ur og öðrum vandamönnum votta
ég mína innilegustu samúð. Þau
hafa vissulega mikils misst.
Hjalti Pálsson frá Hofi.
+
Bróöir minn,
JÓN STURLAUGSSON,
Skúlagötu 58,
er látinn. Jaröarförin veröur auglýst síöar.
Þóröur Sturlaugsson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
móöur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JAKOBÍNU GUDMUNDSDOTTUR,
Dalbraut 27.
Vilmundur Ingimarsson, Valgerftur Þorvaldsdóttir,
Guftbjörg Gunnarsdóttir, Haraldur Ágústsson,
Mundheiftur GunnarsdóttirJ.ýftur Jónsson,
Flosi Gunnarsson, Alda Kjartansdóttir,
Hróltur Gunnarsson, Unnur Gréta Ketilsdóttir,
Guftmundur Gunnarsson, María Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
CYNNUM
i DAG
Reykt
02 J
saltað
’olaldakjöt
LYNNINGAR
VERÐ
ÐEINS
pr. kg.
Leyft verð
48.00
)DÍð til kl. 4 ídag
Stamiýrinni
(en aóeins til hádegis
í Austurstræti).
AUSTURSTRÆTI 17
STARMÝRI 2
A