Morgunblaðið - 14.03.1982, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982
Geftir mikla
mömileika í túlkun
HELGITÓMASSON
Lokaæfingin á ballettinum Giselle var
á enda. Dansararnir höfðu farið úr
búningum sínum og sátu nú í þyrpingu
kringum Nönnu Olafsdóttur, ballett-
meistara Islenska dansflokksins, og
Anton Dolin, höfund sviðsetningarinn-
ar, og John Gilpin, meðstjórnanda
hans. Verið var að fara í gegnum þau
atriði, sem máttu betur fara, enda síð-
ustu forvöð, því frumsýningin átti að
verða daginn eftir. I>að mátti því heyra
athugasemdir eins og þessar: „Stelpur,
þið verðið að brosa meira í dansi vin-
kvennanna“ ... „Þið megið alls ekki
horfa upp í loftið þegar hirðfólkið kem-
ur inn, því ekki dettur það niður úr
loftinu“ ... „Ásdís, þú verður að kasta
festinni á áhrifameiri hátt“ ... „Þið
lituð út eins og Frankenstein í öðrum
þætti,“ o.s.frv. o.s.frv. Það var því um
margt að hugsa áður en sýningar hæf-
ust á þessum sígilda og vinsæla ballett,
sem er á verkefnaskrá flestra ballett-
flokka í heiminum. Giselle er byggð á
þýskri þjóðsögu um Viliurnar sem
Heinrich Heine skráði, en Viliurnar
eru andar framliðinna stúlkna. Giselle
var frumsýnd í Parísaróperunni árið
1841 og náði strax gífurlegum vin-
sældum. Ballettinn er í tveimur þáttum
og fjallar um ástir og örlög þriggja per
sóna og er mikil dramatík í verkinu.
íslenski dansflokkurinn í hópdansi.
Helgi
Þrátt fyrir mikið annríki
náðum við tali af helstu döns-
urum sýningarinnar. Fyrst
ræddum við við Helga Tóm-
asson, sem starfar með New
York City Ballet, en hann
dansar hlutverk Albrechts
hertoga af Silesíu, en hann er
heitmaður Bathilde prinsessu,
en ástfanginn af þorpsstúlk-
unni Giselle. Helgi hefur oft
dansað þetta hlutverk áður,
meðal annars sem gestur með
The American Ballet Theatre
og við Parísaróperuna, Kon-
unglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn og víða í Banda-
ríkjunum.
Hvernig finnst honum að
dansa þetta hlutverk fyrir
landa sína?
„Það er alltaf gaman að
koma hingað og hitta fjöl-
skylduna og dansa fyrir ís-
lendinga. En það er ekki hægt
að bera saman aðstæður er-
lendis og hér í Þjóðleikhúsinu,
því hér er sviðið mjög þröngt
og því get ég aðeins sýnt brot
af því sem ég get. Þetta er líka
í fyrsta skipti sem íslenski
dansflokkurinn tekur til með-
ferðar svo stórt verkefni sem
Giselle, svo það tekur tíma
sinn að gera sýninguna sam-
bærilega við það sem gerist
víða erlendis. En mér finnst
dansflokkurinn standa sig vel.
Hann þyrfti að fá fleiri tæki-
færi til að dansa opinberlega,
á því fer flokknum fram.“
Hvernig finnst þér svo að
dansa hlutverk Albrechts her-
toga?
„Mér finnst það bæði gott
og skemmtilegt. Hlutverkið
gefur mikla möguleika í túlk-
un og ég hef alltaf gaman af
því að dansa þessa gömlu,
klassísku bailetta. Þetta er
iíka tilbreyting frá því sem ég
hef verið að dansa að undan-
förnu en það er nauðsynlegt
Helgi Tómasson og Ásdís Magnúsdóttir. Helgi dansar hlutverk Albrechts
hertoga á fyrstu 6 sýningunum.
að dansa hin ólíkustu hlut-
verk.“
Er New York City Ballet
ekki með þessa sömu sígildu
balletta eins og Giselle á verk-
efnaskrá sinni?
„Nei, við dönsum ekki þessa
gömlu söguballetta í flokkn-
um því Ballanchine er ekkert
hrifinn af þeim. Honum finnst
tími til kominn að fara út á
aðrar brautir og reyna það
sem nýrra er á þessu sviði.“
Hvað tekur við hjá þér þeg-
ar sýningum þínum lýkur
hér?
„Ég fer vestur um haf og
dansa í Florida. Síðan mun ég
setja upp ballett sem ég hef
samið fyrir nemendurna í
School of American Ballet, og
er þetta frumraun mín á
þessu sviði.“
Hvernig ballett er þetta?
„Hann er klassískur, sam-
inn fyrir sjö pör, annars er
erfitt að lýsa honum svona í
orðum.“