Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982 Hjónaminning Ég vil með nokkrum orðum minnast aldarafmælis afa míns, Haraldar Jónssonar frá Skeggja- stöðum í Garði, en í dag eru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Hann var fæddur að Klausturhólum í Grímsnesi 14. mars 1882, en lést 8. mars 1951. Hann var sonur hjón- anna Jóns Jónssonar, f. 1837 í Miðdalssókn, og konu hans, Þuríð- ar Þorgilsdóttur, f. 1842 í Klaust- urhólasókn. Afi ólst upp hjá for- eldrum sínum að Stíflisdal í Þing- vallasveit. Ungur hóf hann sjó- sókn hæði á opnum árabátum og skútum. Árið 1910 flyst hann suð- ur með sjó í Garðinn og bjó fyrst um sinn að Sigríðarstöðum. Ur Garðinum stundaði hann áfram sjóróðra og var formaður á bátum Milljónafélagsins svonefnda, þar til hann varð formaður á sínum eigin bátum. Er mótorbátarnir komu til sögunnar gerðist hann stýrimaður á ýmsum þeirra. í Garðinum kynntist afi ömmu, Björgu Ólafsdóttur, fædd 19. apríl 1889, en hún lést 13. apríl 1949. Hún var fædd og uppalin að Skeggjastöðum í Garði, dóttir hjónanna Ólafs Gíslasonar, f. 28. júní að Nýjabæ, Rangárvallasýslu, d. 27. október 1923, og Guðrúnar Hildibrandsdóttur, f. 18. ágúst 1856, Vesturholti, Rangárvalla- sýslu, d. 26. desember 1937. Áður en amma gifti sig hafði hún stund- að fatasaum í Reykjavík svo og einnig hafði hún verið í kaup- avinnu að Alviðru í Grímsnesi. Árið 1915 gerðu afi og amma sér ferð á hendur til Reykjavíkur og giftu sig þann 9. maí það ár og hófu búskap að Vörum í Garði. Þau bjuggu þar í um eitt ár að þau flytja að Sjólyst og búa þar til árs- ins 1923, að þau taka við búskap að Skeggjastöðum af foreldrum ömmu því það sama ár lést faðir hennar. Afa og ömmu varð 7 barna auðið og komust 6 til full- orðinsára, en eitt lést í frum- bernsku. Þau eru talin í aldursröð: Jón, fæddur 11. ágúst 1916, giftur Ingveldi Jónsdóttur, búsett að Skeggjastöðum, Gunnar, fæddur 26. september 1917, en hann drukknaði er vélbáturinn Eggert GK 521 fórst í slæmu veðri í Garðsjó þann 24. nóvember 1940, Guðmunda Stella, fædd 11. apríl 1920, gift Leifi Björnssyni múrara, búsett í Hafnarfirði, Lovísa, fædd 2. maí 1922, gift Gísla Halldórs- syni skipstjóra, búsett í Keflavík, Olafía, fædd 29. maí 1923, búsett í Keflavik. Hún var gift Alexander Magnússyni en hann lést 10. júní 1979, Hulda, fædd 7. júlí 1929, gift Einari J. Mýrdal skipasmið, búsett á Akranesi og Þuríður, fædd 24. apríl 1932, lést 18. janúar 1933. Engum getum þarf að því að leiða að erfitt hefur það verið að ala upp stóran barnahóp á þessum árum. Að Skeggjastöðum voru afi og amma með nokkrar kýr, en jafnhliða þeim búskap varð afi að stunda sjóróöra til að færa heimil- inu björg í bú, fæða það og klæða. Oft kom það fyrir að afi var lang- tímum saman fjarri heimili sínu þegar hann var á síldveiðum fyrir norðan. Þá kom það í hlut ömmu jafnhliða hinum hefðbundnu heimilisstörfum að sjá um bú- skapinn, vera í heyskap og við fiskþurrkun svo nærri má geta að vinnudagurinn hefur verið bæði TILB0Ð A SKIÐAFÖTUM Dömuskíöabuxur.........................kr. 159.- Dömuskíöagalli.........................kr. 399.- Barna- og unglingaskíöagalli...........kr. 199.- Barna- og unglingaskíöagalli...........kr. 269.- Barna-og unglingaskíöagalli............kr. 369.- w , Herraskíöagalli........................kr. 399.- Herraskíöavesti........................kr. 299.- HAGKAUP ^ Skeifunni15,Kjörgarði, Akureyri > langur og erfiður. Árið 1944 réðust þau í að reisa nýtt steinhús á jörð- inni og fluttu í það sama ár. Að lokum vil ég þakka fyrir þá stund er ég fékk að dvelja hjá þeim bæði lengri og skemmri tíma er ég var ungur drengur. Afi og amma eru bæði jarðsett ásamt dóttur þeirra í kirkjugarð- inum að Útskálum. Blessuð sé minning þeirra. Arnbjörn Leifsson Guömundur Helgi Magnússon — Minning Okkar kæri frændi, Guðmundur Helgi Magnússon, er látinn. Það hefði engum dottið í hug er hann fór í rannsókn rétt fyrir jól, að hann ætti ekki eftir að koma heim aftur, svo frískur sem hann virtist vera. Guðmundur var fæddur 8. janú- ar 1914, sonur hjónanna Guðrúnar Guðmundsdóttur og Magnúsar Hávarðssonar, útgerðarmanns í Neskaupstað. Hann var næst yngstur fimm barna þeirra er upp komust og eru fjögur þeirra nú látin. Guðmundur var okkur systkina- börnunum og börnum okkar einkar kær. Barngóður var hann og alltaf boðinn og búinn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Við systurnar ólumst upp með Gumma frænda frá því við vorum börn. Hann kom á heimili foreldra okkar árið 1946 er hann flutti til Reykjavíkur og bjó þar alla tíð síðan. Það er því margs að minn- ast og söknuðurinn mikill. Við kveðjum kæran frænda með þökk fyrir allt og biðjum Guð að blessa hann. Systurdætur + Konan mín, RAGNHILDUR KR. BJÖRNSSON, andaöist aöfaranótt laugardagsins 13. þ.m. Björn G. Björnaaon. + Sonur okkar, ÞORSTEINN PÉTURSSON, Borg, Tólknafiröi, andaðist í Landspitalanum í Reykjavík þann 12. marz sl. Þórarna Ólafsdóttir, Pétur Þorateinaaon. + Móöir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN PÁLÍNA GUÐJÓNSOÓTTIR, Stangarholti 30, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, mánudaginn 15. mars kl. 13.30. Þeir sem vildu minnast hennar vinsamlega láti líknarstofn- anir njóta þess. Einar I. Siggeiraaon, Kriatín Friöriksdóttir, — Erlendur Siggeiraaon, Málfríður Magnúadóttir, Sigríöur Siggeiradóttir, Guðborg Siggeiradóttir, Rannver Sveinaaon, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö viö andlát og útför eiginmanns míns og fööur okkar, ÁRMANNS JÓNSSONAR, Vaöi, Skriödal, Sigrún Guömundadóttir, Sigurbjörg Ármannadóttir, Ingi Jón Armannaaon, Guðmundur Ármannsson. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.