Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 41
Sigríður, iðnverkakona, f. 12.
janúar 1922. Maki: Sigurður
Ottósson, blikksmiður, f. 25. júlí
1922.
Guðríður, starfsstúlka, f. 24.
október 1924, dáin 10. marz 1980.
Lilja, húsmóðir, f. 22. ágúst
1926. Maki: Björn Þ. Þórðarson,
læknir, f. 22. febrúar 1925.
Helga, verzlunarm., f. 13. apríi
1928. Maki: Andrés Ottósson, múr-
ari, f. 3. apríl 1928.
Björn, verkfræðingur, f. 1. nóv.
1930. Maki: Hulda S. Guðmunds-
dóttir, húsmóðir, f. 3. sept, 1930.
Svava, húsmóðir, f. 10. febrúar
1932. Maki: Andrés S. Einarsson,
trésmiður og bóndi að Hruna í
V-Skaftafellssýslu, f. 29. des. 1929.
Snorri Guðbjörn, blikksmiður, f.
6. júní 1934. Kvæntist Elísabetu
Elíasdóttur, þau skildu.
Ingibjörg, f. 2. febr. 1937. Maki:
Þorvaldur Þorvaldsson, löggiltur
endurskoðandi, f. 12. júní 1945.
Árið 1920 fluttust þau Sigríður
og Ólafur til Reykjavíkur og
stundaði Ólafur þar blikksmíðar,
fyrst hjá frændum sínum í
blikksmiðju Breiðfjörðs, en síðan
stofnaði hann blikksmiðju og
starfrækti hana þar til þau
brugðu búi og fluttust aftur aust-
ur á Síðu haustið 1929. Þar bjuggu
þau á ýmsum stöðum til að byrja
með, en síðan 9 ár í sambýli við
Jón bónda, Þórunni konu hans og
börn þeirra. Við Múlakot byggðu
þau sér lítið hús og bjuggu félags-
búi með Helgu systur Ólafs og
Bjarna barnakennara syni hennar
og konu hans Sigurveigu
Kristófersdóttur.
Það reyndi mikið á Sigríði á
kreppuárunum, þegar barnmargar
fjölskyldur, sem ekki áttu eignir,
urðu að sjá sér farborða frá degi
til dags með ótrúlegri eljusemi. En
Sigríður átti aðra auðlegð, fágæt-
an dugnað, rólyndi hugans og
Ijúfa lund, sem allt hjálpaði henni
til að komast yfir erfiðleikana.
Sakir húsnæðiseklu urðu þau
hjónin að koma sumum barnanna
í fóstur í lengri eða skemmri tíma,
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982
41
en það birti til um síðir og þau sáu
börn sín þroskast og verða að dug-
andi fólki, sem stofnaði sín heimili
og svo komu blessuð barnabörnin,
hvert af öðru og síðan barna-
barnabörnin svo nú eru afkomend-
ur þeirra Sigríðar og Ólafs 103
talsins.
Þau hjónin fluttust aftur til
Reykjavíkur árið 1948 og bjuggu
þar síðan, enda flest börnin búsett
þar.
Eg minnist þess frá minni æsku,
er ég sótti skóla frá Breiðabólstað
að Múlakoti til Bjarna Þorláks-
sonar, að gott var að koma í litla
húsið hennar Sigríðar móðursyst-
ur minnar, alltaf svo hreint og
vinalegt og gleði ríkjandi. Þá var
gott að vita til þess, að ef Hörgsá
var vatnsmikil eða ísuð og erfið
fyrir hestinn, var alltaf pláss hjá
frænku. Það var góð tilbreyting að
hafa ástæðu til að gista, enda
glatt á hjalla og verið í útileikjum
fram á kvöld, þegar veður leyfði
og var þá stundum erfitt fyrir
frænku að fá börnin til að fara í
háttinn, en aldrei hækkaði hún
róminn eða skifti skapi svo ég
muni.
Þau Sigríður og Ólafur höfðu
róleg elliár hér í Reykjavík. Ári
áður en Ólafur lést, fengu þau litla
íbúð hjá Birni syni sínum og konu
hans Huldu í húsi þeirra að Voga-
tungu 10, Kópavogi og dvaldist
Sigríður hjá þeim meðan heilsan
entist, eða þar til í maí í fyrra að
hún Iagðist inn á St. Jósefsspítala
í Hafnarfirði, þar sem hún fékk
hægt andlát 7. þ.m.
Meðan á spítaladvölinni stóð
fékk hún góða umönnun og naut
manneskjulegrar hlýju svo til
fyrirmyndar var.
Að leiðarlokum vil ég þakka
frænku minni öll gæðin við mig.
Eftirlifandi systkini, frændfólk og
fjölskyldur senda afkomendum
Sigríðar samúðarkveðjur. Við höf-
um fundið hjá henni flesta þá eig-
inleika, sem mega góða konu
prýða.
Guðmundur Snorrason
húsgögn
LangholtsveKÍ 111.
Símar 37010 - 37144.
VÍKINGUR
íslandsmótiö 1 • deild.
VMUR
Stórleikur i
kvöid ki. 20.00
Laugardaishöllinni
i
Einn
at úrslitaleikjunum í 1 •dei,d
Plötuspilari sem spilar
lóðrétt af plötunni.
HLJÓMTÆKJADEILD
Pl KARNABÆR „
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Otrulegt en satt!
Þú þartt ekki lengur
að snúa plötunni við
Plötuspilarinn leikur
af plötunni lóðrétt.
Stórkostleg lenging
á líftíma plötunnar.