Morgunblaðið - 21.04.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRIL 1982
Toppbaráttan
í Eyjum:
Sigurjón
á Þórunni
nálgast
1100 tonn
TOPPBARÁTTAN í Eyjum á vetr-
arvertíðinni fer nú harðnandi en
Sigurjón á l'órunni Sveinsdóttur
heldur enn rýmilegri forystu.
Ilörður á Suðurey hefur hins vegar
sótt á undanfarna daga, en nú
munar 70 tonnum á þessum tveim-
ur aflaklóm. 1‘órunn er komin með
1086 tonn og Suðurey með 1016
tonn.
Torfi Haraldsson á Friðar-
hafnarviiítinni og Ásmundur
Friðriksson sögðu í spjalli við
okkur í gær að það hefði verið
reytingsafli hjá bátunum sem
landa hjá'þeim, Helga Jó og Is-
leifur voru með 26 tonn hvor úr
Bugtinni, en aflinn á bát til jafn-
aðar var 15—20 tonn. Mestan
afla hjá- þeim voru þeir með
Valdimar Sveinsson með 67 tonn
og Gjafar með 64 tonn úr Bugt-
inni.
Á Fiskiðjuvigtinni sagði Gísli
Óskarsson okkur að aflinn færi
heldur minnkandi þótt dágóður
væri, bátaflotinn væri nú að fara
úr Kantinum austur á bóginn, en
hins vegar virtist tregt vestur
um.
Mikill afli hefur borist á land í Vestmannaeyjum að undanfornu og þeir á
horkatli Birni hafa ekki farið varhluta af því, þeir fylltu bátinn með 20
tonnum fyrir skömmu í aðeins 42 net, allt rígaþorskur. Skipstjóri er Óli
Guðjóns, sonur hins fengsæla skipstjóra, Gaua heitins frá Miðhúsum í
Kyjum. LjÓNm. Mbl. Sigurgeir.
VSÍ sendir mótmæli til
norrænu ráðherranefndar-
innar vegna fjárveitingar
VINNUVEITENDASAMBAND íslands hefur með bréfi til Norrænu
ráðherranefndarinnar og Friðjóns Pórðarsonar, dómsmálaráðherra,
fulltrúa íslands í nefndinni, mótmælt 400 þúsund króna fjárveitingu
úr hinum samnorræna sjóði til fjögurra einstaklinga til rannsókna á
sviði vinnumarkaðsmála og leggur Vinnuveitendasambandið áherzlu
á, að slíkar rannsóknir séu unnar í nánu samráði við aðila vinnumark-
aðarins. I>eir fjórir einstaklingar, sem fengið hafa þessa fjárveitingu,
eru Einar B. Baldursson, Gylfi Páll Hersir, Jónas Gústafsson og
Siguriaug Gunnlaugsdóttir og nefna þau sig „vinnuverndarhópinn“.
Forsaga þessa máls er sú, að á
fundi Norrænu ráðherranefndar-
innar í lok síðasta árs var sam-
þykkt að veita um 400 þúsund
krónum til rannsóknar í Dan-
mörku og á íslandi og á markmið
könnunar þessarar fyrst og fremst
að vera að afla upplýsinga meðal
iðnverkakvenna um hvaða afleið-
ingar afkastahvetjandi launakerfi
hafi á stöðu kvenna á vinnumark-
aðnum og á þróun jafnréttis. Fjór-
menningarnir hafa leitað eftir
frekari fjárhagsaðstoð frá ís-
lenzka ríkinu og hjá verkalýðsfé-
lögum og samböndum hafa undir-
tektir verið jákvæðar, meðal ann-
ars hjá ASÍ, VMSÍ og Iðju.
Vinnuveitendasamband Islands
frétti hins vegar fyrst af þessari
könnun er „vinnuverndarhópur-
inn“ ritaði VSÍ í febrúarmánuði og
óskaði athugasemda. Athuga-
semdir Vinnuveitendasambands-
ins voru þær að rita ráðherra-
nefndinni og dómsmálaráðherra
og mótmæla fjárveitingu til slíks
verkefnis án þess að haft væri
samband við báða aðila vinnu-
markaðarins.
samnorræna sjóði sem og öðrum
sjóðum hins opinbera til rann-
sókna á sviði vinnumarkaðsmála,
sem ekki eru undirbúnar og unnar
í samræmi við það, sem hér er
sagt.“
I fréttatilkynningu frá „vinnu-
verndarhópnum" segir, að sá þátt-
ur, sem snýr að jafnrétti, beinist
einkum að mismun á vinnutíma og
launum kynjanna, uppsögnum og
ólíkum tengslum við börn og
heimili. Reynt verði að meta
hvaða áhrif ákvæðisvinna hafi á
atvinnuþátttöku kvenna. Þá verði
heilsufar verkafólks kannað svo
og streita og aðbúnaðarvandamál.
Byggt verður á spurningalista-
könnun og er nú verið að útbúa
slíka lista. Fáist ekki frekari fjár-
stuðningur mun könnun þessi ein-
skorðuð við suðvesturhorn lands-
ins, segir í frétt hópsins.
Hækkunarbeiðn-
um var vísað til
ráðherranefndar
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sinum í gær að vísa beiðnum
Hitaveitu Reykjavíkur, Rafmagns-
veitu Reykjavíkur og Landsvirkjun-
ar um gjaldskrárhækkun til sér-
stakrar ráðherranefndar. Eru hækk-
unarbeiðnir þessar á bilinu 15 til
35%.
í ráðherranefndinni eiga sæti
þeir Gunnar Thoroddsen forsæt-
isráðherra, Hjörleifur Guttorms-
son iðnaðarráðherra og Tómas
Árnason viðskiptaráðherra. Sam-
kvæmt upplýsingum Mbl. hefur
verið deilt um það á fundum
gjaldskrárnefndar og ríkisstjórn-
ar hvaða meðferð hækkunarbeiðn-
ir þessar eiga að hljóta.
Helguvík:
Framkvæmdir ganga
samkvæmt áætlun
FRAMKVÆMDIR Orkustofnunar í
Helguvík ganga samkvæmt áætlun.
Að sögn orkumálastjóra, Jakobs
Björnssonar, á Orkustofnun að skila
skýrslu um rannsóknir sínar 15. maí
og ekki er búizt við öðru en það
standist.
Að sögn Svavars Jónatanssonar,
framkvæmdastjóra Almennu
verkfræðistofunnar, verður verk-
fræðistofan áfram með ýmsar
rannsóknir á Helguvíkursvæðinu,
sem undirverktaki Bernard John-
son Incorporated í Bandaríkjun-
um, sem er aðalverktaki gagnvart
bandaríska hernum. Sagði hann,
að Hafnarmálastofnun ætti eftir
að gera ýmsa hluti fyrir verk-
fræðistofuna svo og Hafrann-
sóknastofnun og myndu athuganir
þeirra hefjast í byrjun maí. Að því
loknu yrði unnið úr niðurstöðum
rannsóknanna og farið að frum-
hanna þau mannvirki, sem á
staðnum ættu að rísa. Allt þetta
ár færi í hönnun og mætti þá fyrst
reikna með að byggingarfram-
kvæmdir hæfust á næsta ári.
Samkomulag Vöku
og umbótasinna
FÉLAG umbótasinnaðra stúdenta
við Iláskóla íslands og Vaka, félag
lýðræðissinnaðra stúdenta, hafa
komist að samkomulagi um skipt-
ingu embætta innan Stúdentaráðs,
en þau mynda meirihluta i Stúdenta-
ráði. Félag umbótasinna samþykkti
á fundi í gærkvöldi verkaskipting-
una, sem Vaka hafði áður samþykkt,
og er hún sem hér segir:
Frá Félagi umbótasinna koma
ritstjóri Stúdentablaðsins, 2 stúd-
entafulltrúar í stjórn Félagsstofn-
unar stúdenta, aðalfulltrúi og
varafulltrúi í stjórn Lánasjóðsins,
formaður menntamálanefndar,
formaður funda- og menningar-
málanefndar, fulltrúi og vara-
fulltrúi í æskulýðsnefnd og 3 full-
trúar í stjórn Stúdentaráðs. Frá
Vöku: formaður Stúdentaráðs, 1
stúdentafulltrúi í stjórn Félags-
stofnunar stúdenta, formaður
hagsmunanefndar, formaður
utanríkismálanefndar og 3 full-
trúar í stjórn Stúdentaráðs.
Hlekktist á í lendingu
á ísafjarðarflugvelli
TWIN Otter-flugvél frá Flugfélagi
Norðurlands hlekktist lítillega á við
lendingu á ísafjaröarflugvelli í gær-
morgun. Sextán farþega vélarinnar
sakaði ekki né flugmenn, en væng-
endi skemmdist er hann rakst í
flugbrautina.
Sigurður Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri FN tjáði Mbl. að
Twin Otter-vélin hefði verið að
koma til lendingar inn Skutuls-
fjörðinn í nokkuð góðu veðri.
Fjörðurinn væri erfiður vegna
sviptivinda, en vindur var þó undir
mörkum er yfirvöld krefjast. Er
vélin var komin lágt yfir brautar-
endann hefði skyndilegt niður-
streymi þrýst henni niður öðrum
megin. Gafst flugstjóra ekki ráð-
rúm til að rétta vélina af eða gefa
henni aukið afl. Hefði hún því lent
á öðru hjólinu og vængendinn einn-
ig rekist niður og skemmst lítil-
lega. Hitt aðalhjólið snerti síðan
brautina og lendingin tókst að öðru
leyti vel. Flugvirkjar FN eru nú á
ísafirði og annast bráðabirgðavið-
gerð. Vélinni verður síðan flogið til
Akureyrar til fullnaðarviðgerðar.
Samningurinn í ríkisverksmiðjimum samþykktur:
Starfsfólk fær rúmar 3 þús.
kr. í orlofsuppbót í sumar
Dollaraverð
hefur hækkað
um 0,8% á viku
SÖLUGENGI Bandaríkjadollara
hefur hækkað um 0,8% á einni
viku, þ.e. frá 13. apríl sl., þegar
gengiö var skráð 10,288 krónur,
en í gærdag var það skráð 10,370
krónur.
Frá 4. marz sl., en þann dag
hófst formlegt gengissig sam-
kvæmt heimild ríkisstjórnar-
innar, hefur sölugengi Banda-
ríkjadollara hækkað um 5,5%',
en þann dag var það skráð 9,829
krónur.
Frá áramótum hefur sölu-
gengi Bandaríkjadollara svo
hækkað um 26,7%, en síðasta
dag ársins var það skráð á 8,185
krónur.
í bréfi VSÍ til Friðjóns Þórðar-
sonar segir meðal annars: „Jafn-
framt vill Vinnuveitendasam-
bandið leggja áherslu á nauðsyn
þess, að kannanir á sviði vinnu-
markaðsmála séu unnar í nánu
samráði við aðila vinnumarkaðar-
ins og af þeim, er til þess njóta
trausts þeirra og viðurkenningar.
Er það nauðsynlegt, ef slíkar
kannanir eiga að ná markmiði
sínu og koma að tilætluðum not-
um. Með' vísan til þessa hlýtur
Vinnuveitendasambandið að mót-
mæla fjárveitingum úr hinum
Vitni vantar
AÐFARANÓTT sunnudags varð
banaslys á Reykjanesbraut, skammt
fyrir sunnan Bústaðaveg, svo sem
fram hefur komið í fréttum. Lög-
reglan í Reykjavík biður þá, sem
kunna að hafa orðið vitni að slysinu,
vinsamlega að gefa sig fram.
SAMNINGIIR sá, sem fulltrúar
starfsfólks í ríkisverksmiðjunum og
vinnumálanefnd rikisins undirrituðu
með fyrirvara aðfaranótt sunnudags,
var samþykktur í Sementsverk-
smiðjunni á Akranesi og Áburðar-
verksmiðjunni í Gufunesi í gær með
öllum þorra greiddra atkvæða.
Samningurinn verður borinn undir
atkvæði í Kísiliðjunni við Mývatn í
dag.
Samningar náðust klukkan 4 að-
faranótt sunnudags, 20 tímum áð-
ur en verkfall átti að skella á. Þau
tvö atriði, sem mest var deilt um,
voru varðandi gildistíma samn-
ings og orlofsuppbótar. Sátta-
nefnd kom með „innanhússtillögu"
í þessum málum, sem aðilar féll-
ust á.
Samið var um 3,25% kauphækk-
un frá 1. desember, en samningar
runnu þó ekki út fyrr en um ára-
mót. Samningurinn gildir til 30.
apríl á næsta ári og viidi Vinnu-
málanefnd rikisins að samið yrði
til lengri tíma. Stærsta atriði
samningsins var orlofsuppbótin,
en samið var um greiðslu tveggja
vikna launa samkvæmt byrjunar-
launum í 7. flokki. Starfsmenn fá
samkvæmt þessu tveggja vikna
laun er þeir fara í sumarleyfi eftir
1. maí. I sumar verður orlofsupp-
bótin þó aðeins sem nemur 10 dög-
um, eða röskar 3 þúsund krónur,
en tvær vikur á næsta orlofsári.
Samið var um nokkrar tilfærsl-
ur í störfum, t.d. hjá matráðskon-
um, álag verkstjóra hækkar um
6% og byrjunartími breytist hjá
starfsmönnum í Kísiliðjunni svo
dæmi séu nefnd. Þá er í samkomu-
laginu fyrirvari um breytingar á
samningum, sem kunna að verða
hjá ASI-félögum í sumar. I þess-
um samningi var unnið að sam-
ræmingu við það sem gerist í
Járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga.