Morgunblaðið - 21.04.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1982
3
Samninganefnd flugmuu skipt, frá vinstsri: Ingi Olsen, Árni Sipnkswn, Kristján Egilsson, Geir Garðarsson,
formaður FÍA, Tryggvi Baldursson og Jóhann Sigfússon.
Viðsemjendur flugmanna eru, frá vinstri: Leifur Magnússon, Þorsteinn Pálsson, Erling Aspelund og Jóhannes
Óskarsson. Ljó»m. Köu.
Fyrstu samningafundirnir með flugmönnum
FYRSTU samningafundir fulltrúa
Félags ísl. atvinnuflugmanna og
viðsemjenda þeirra voru haldnir
hjá sáttasemjara ríkisins í gær og
fyrradag. Einkanlega er rætt um
ýmis atriði varðandi leiguflugs-
verkefni erlendis.
Fundurinn hjá ríkissátta-
semjara stóð frá því í gær-
morgun og fram yfir kvöldmat.
Fyrir utan kjaraatriði vegna
leiguflugsverkefna er einnig
rætt um hvernig skipuleggja
beri .áhafnaþörf Flugleiða, en
ekki er rætt um beinar kaup-
hækkanir ennþá. Á þessum
samningafundum FÍA og við-
semjenda eru nú einnig þeir
flugmenn er áður voru í Félagi
Loftleiðaflugmanna, en sem
kunnugt er gengu Loftleiða-
flugmenn í FIA fyrir nokkrum
misserum og eru því allir
flugmenn Flugleiða nú samein-
aðir í einu félagi.
Ungir sjálfstæðismenn
með skoðanakönnun um
málefni borgarinnar
UNGIR sjálfstæðismenn í Reykja-
vík gengust fyrir skoðanakönnun
um borgarmál í Reykjavík um síð-
ustu helgi. Náði könnunin til fólks
á aldrinum 20 til 25 ára. Tekið var
500 manna handahófskennt úrtak
úr þjóðskrá, sem síðan var flokk-
að niður eftir aldursskiptingu,
hverfaskiptingu og kynjaskipt-
ingu. Síðan var aiiað upplýsinga
Olíustuld-
ur í Þing-
eyjarsýslu
Húsavík, 20. apríl.
MARGT ber að varast í hinni miklu
umferð sem nú er um héruð, því að
meira ber á stuldi brennsluolíu á
farartæki en áður hefur þekkst.
Um páskana var brotinn upp
bensíntankur við Tjörn í Aðaldal
og einhverju úr honum dælt, en
ekki fullkannað hvað miklu. Þegar
vegagerðarmenn urðu vegna ótíð-
ar að hætta verki við varanlegt
slitlag á veg í Aðaldalshrauni
skildu þeir eftir tæki og olíubirgð-
ir í maiargryfju. Nú fyrir nokkru
kom í ljós að 1500 lítrar af hráolíu
hafa verið teknir ófrjálsri hendi.
Þetta ætti að vera mönnum til að-
vörunar um að gæta vel olíubirgða
sinna. Fréttaritari
um símanúmer þessa fólks, hringt
í það og spurt hvort ekki mætti
koma með spurningalistann til
þess.
Árni Sigfússon, formaður
Heimdaliar, sagði í samtali við
Morgunbiaðið, að fólk hefði tekið
þessu mjög vel og aðeins einn aðili
hefði ekki viljað taka við spurn-
ingalistanum. Þannig gerðu menn
sér vonir um ná út úr þessu um
380 svörum. Spurningarnar voru
21 ails og fjölluðu um borgarmál,
fjölgun borgarfulltrúa, um Stræt-
isvagna Reykjavíkur, skipulags-
mál, æskulýðs- og íþróttamál og
ýmislegt fleira og yfirleitt gert
ráð fyrir að spurningum sé svarað
með já eða nei. Auk þess er gert
ráð fyrir því að menn geti rökstutt
svarið. Árni sagði að þessi könnun
væri fyrst og fremst gerð til að
kanna hvort stefna ungra sjálf-
stæðismanna ætti hljómgrunn
meðal fólks á þessum aldri og
hvort þeir væru á réttri leið.
Leiðrétting
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær á
bls. 2 þar sem skýrt var frá bana-
slysi, er varð í Reykjavík aðfara-
nótt sunnudagsins, var rangt farið
með aldur mannsins, sem lézt.
Hann hét eins og sagði í fréttinni
Reynir Guðmundur Jónasson og
var fæddur 1955, en ekki 1952 eins
og sagði í fréttinni. Hann var því
27 ára. Hlutaðeigendur eru beðnir
velvirðingar á þessu ranghermi.
Skipulagsstjórn
samþykkir byggð
í Sogamýrinni
SAMÞYKKT hefur verið hjá
skipulagsstjórn ríkisins skipu-
lag íbúöarbygginga í Sogamýri
í Reykjavík. Verður heimilt að
reisa um 120 íbúðir, en skipu-
Sýnt frá 12
leikjumáHM
„ÁKVÖRÐUN hefur ekki verið
tekin um hvort bein útsending
verður frá heimsmeistarakcppn-
inni í knattspyrnu í júlí. Hins veg-
ar hefur verið ákveðið að sýna um
12 leiki frá undankeppninni í júní,
ekki í beinni útsendingu heldur
mun danska sjónvarpið senda
filmur af leikjum hingað,“ sagði
Pétur Guðfinnsson, framkvæmda-
stjóri sjónvarpsins í samtali við
Mbl.
Meirihluti útvarpsráðs hefur
lýst vilja sínum til þess að sýna
úrslitaleikina í beinni útsend-
ingu. „Þetta er ekki aðeins
spurning um viija útvarpsráðs,
heldur er þetta fjárhagsspurs-
mál líka. Það er mín skoðun, að
úr því sjónvarpið er á annað
borð lokað einn mánuð á ári,
júlímánuð, þá þurfi ríka ástæðu
til þess að opna. Það skapar for-
dæmi ef opnað verður vegna
HM. Síðan kemur að Olympíu-
ieikum og þarf þá ekki að sýna
beint frá þeim og einnig frá
merkum innlendum atburðum.
Þetta mál verður að skoða í víð-
ara samhengi, en á þessu stigi
vil ég engu spá hvort sjónvarp-
að verður beint úrslitaleikjun-
um í júlí,“ sagði Pétur Guð-
finnsson.
Þá sagði Pétur, að mjög hefði
komið til tals, að ráða einn
fréttamann til viðbótar á
fréttastofu sjónvarps og þá
fréttamann í erlendar fréttir.
Nú eru 8 fréttamenn á sjón-
varpinu og auk þess er þing-
fréttaritari í hálfu starfi.
lagið er að mestu byggt á verð-
launahugmyndum Ormars
Þórs Guðmundssonar. Ráðgert
er að Suðurlandsbraut verði
lögð niður á þessum kafla og
byggð verði hús á hluta þess
svæðis sunnan Gnoðarvogar,
sem nú er autt.
Ibúar við Gnoðarvog, sem eru
óánægðir með hugmyndir þessar,
hafa myndað með sér hagsmuna-
samtök. Telja þeir að íbúðir
þeirra rýrni í verði vegna hinnar
fyrirhuguðu byggðar framan við
hús sín, en samkvæmt fyrra aðal-
skipulagi átti ekki að byggja á
þessu svæði.
Árni Bergur Eiríksson, sem
sæti á í stjórn hagsmunasamtak-
anna, tjáði Mbl. í gær að mögu-
legt væri að farið yrði út í máls-
höfðun vegna þessa. Væri þarna
um að ræða 90 íbúðareigendur og
sagði hann að yrðu eigendum
dæmdar skaðabætur vegna þess-
arar nýju byggðar gæti kostnað-
ur borgarinnar skipt milljónum.
Á svæðinu eru nú hafnar mæl-
ingar og aðrar undirbúnings-
framkvæmdir vegna bygginga.
Gæzlu-
varðhald
framlengt
GÆZLUVARÐHALD var í gær
framlengt yfir pilti þeim, sem setið
hefur inni vegna innbrotsins í Gull
& Silfur á Laugavegi.
RLR gerði kröfu um, að gæzlu-
varðhald yrði framlengt tii 5. maí,
en Sakadómur úrskurðaði piltinn í
gæzluvarðhald til 28. apríl. Piltur-
inn neitar staðfastlega allri aðild
að þjófnaðinum.
Nýi Daihatsu Charmant
sameinar íburð og hagkvæmni
Þaö kann aö viröast ótrúleg blanda aö eitt farartæki bjóöi upp á hagkvæmni smábílsins og iburö stóra
bilsins. En nýi CHARMANTINN frá Daihatsu sannar aö hagnýtur bíll getur veriö nægilega rúmur og
þægilegur.
Nýi CHARMANTINN er 9 cm lengri og 9,5 cm breiöari en fyrri árgeröir, sem öölast hafa frábærar
vinsældir Þetta þýöir breiöari sæti, lengra bil og jafnframt rými fyrir íburöarmikla innréttingu, sem fram til
þessa hefur aöeins fengist í dýrum lúxusvögnum.
DAIHATSU CHARMANT býr yfir frábærum aksturseiginleikum viö granna eldsneytiseyöslu, einkum ef þú
velur 1300 cc-vélina. Ef þú vilt enn meiri kraft velur þú 1600 cc-vélina.
Kraftur, sparneytni, rými, íburöur og frábært nýtt útlit, er samnefnari fyrir DAIHATSU CHARMANT.
DAIHATSU CHARMANT býöur upp á alla stóru hlutina, sem þig langar í og litlu hlutina sem þú þarfnast.
OAIHATBU
CHARMANT
Til afgreiðslu strax
Verö frá kr. 113.600
meö ryövörn og fullum benzíntanki.
Daihatsuumboðið Ármúla 23. símar 85870 - 39179
Place your name and address here