Morgunblaðið - 21.04.1982, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1982
Frá Henrik Lund á Grænlandi:
bbjominn, yfírskyggir allt
um Aka Hoegh
listakonu
og Ivar Silis
landkönnuð
Frá frétUriUr* Morgunblaösins
í (irænlandi, Henrik Lund:
í LITLU húsi í Qaqortoq (Juli-
aneháb) búa og starfa hjónin Aka
Hoegh og Ivars Silis. Hún er græn-
lenskur listamaður, gerir kirkju-
skreytingar og sýnir grafikverk sín
um heim allan — tvisvar í Reykjavík
til þessa. Silis, sem er leiðangurs-
maður,' Ijósmyndari og blaðamaður,
fsddur í Lettlandi og uppalinn í
Danmörku, flakkar um Norður-
heimsskautslandið í ferðum fyrir
vísindastofnanir og alþjóðleg tíma-
rit. Enda þótt þau séu sjaldan heima
hjá sér samtímis, hefur þeim orðið
tveggja barna auðið og nýlega gátu
hjónin af sér fallega bók um Norður-
heimsskautiö sem gefín er út hjá
Vindrose-forlaginu, dótturfyrirtæki
Gyldendals, í Kaupmannahöfn.
fsbirnir í nyrstu byggöum Alaska
sækja gjarnan í öskuhauga eins og
sjá má, en það þykir ekki mikil
reisn yfir slíku hjá þessu tignar-
lega dýri.
Þjóðleikhúsið frum-
sýnir Meyjarskemmuna
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir nk.
laugardag söngleikinn Meyjar-
skemmuna í leikgerð leikstjóra sýn-
ingarinnar, Wilfrieds Steiners. Sin-
fóníuhljómsveit íslands leikur tón-
list Eranz Schuberts við leikinn
undir stjórn Páls P. Pálssonar. Sig-
urjón Jóhannsson hannaði leik-
mynd og búninga, en lýsingu ann-
aðist Páll Kagnarsson. Björn Franz-
son þýddi leikinn.
Um 50 manns koma fram í sýn-
ingunni. Með helstu sönghlutverk
fara Sigurður Björnsson, Júlíus
Vífill Ingvarsson, Kristín Snædal
Sigtryggsdóttir, Katrín Sigurð-
ardóttir og Elísabet F. Eiríks-
dóttir. Má geta þess að Júlíus er
sérstaklega kominn hingað til
lands til að taka þátt í sýning-
unni, en hann stundar söngnám á
Ítalíu. Er þetta frumraun hans á
fjölum Þjóðleikhússins. Katrín
sem nemur sönglist í Svíþjóð,
kemur einnig fram í Þjóðleikhús-
inu í fyrsta sinn í Meyjarskemm-
unni.
Með önnur veigamikil söng-
hlutverk í leiknum fara Guð-
mundur Jónsson, Þuríður Páls-
dóttir, Kristinn Hallsson, Hall-
dór Vilhelmsson, Bergþór Páls-
son og Anna Júlíana Sveinsdótt-
ir. Hins vegar fara Jón S. Gunn-
arsson, Kristján Viggósson, Árni
Tryggvason, Erlingur Gíslason,
Myndin er tekin á blaðamannafundi i vegum Þjóðleikhússins. Frá vinstri: Sigmundur Örn Arngrímsson, Sigurjón
Jóhannsson, Wilfried Steiner, Páll P. Pálsson og Árni Ibsen.