Morgunblaðið - 21.04.1982, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1982
33
Frá heimsókn I
liakáká
Nokkrir af eldri ungmennaféWjfum á afmjelisfnndinum 1. apríl sl.
Frá sundæfingu í wimHanginnL
Skíðalyftan í Tradarhvammi.
dag var teflt á 6 borðum og
hver keppandi hafði tvær klst.
til umráða. Þeirri viðureign
lauk einnig með sigri Bolvík-
inga með 5% vinningi gegn xk.
Á sunnudag voru fyrst tefld-
ar 15 mín. skákir. Þá unnu
heimamenn með 23 vinningum
gegn 13 og í lokin voru tefldar
5 mín. skákir. Þá fengu heima-
menn 28Vfe vinning en skák-
konur 7'Á.
Eins og ég gat um áðan er
skáklífið hér í miklum blóma
og reglulegar skákæfingar í
viku hverri.
Það er eitt sem ég vildi koma
hér á framfæri að lokum. Und-
anfarin ár höfum við verið með
þá kröfu, að UMFB verði sér-
stakt íþróttahérað, en UMFB
er aðili að ÍBÍ (íþróttabanda-
lagi Isafjarðar). Þrátt fyrir
samþykki UMFB og ÍBÍ hefur
þetta réttlætismál ekki fengið
náð fyrir dyrum Iþróttanefnd-
ar ríkisins.
Bolvíkingar eru óánægðir
með það að þeirra keppnisfólk
þurfi að keppa undir nafni ÍBÍ
t.d. á mótum Sundsambands
Islands og Skíðasambands ís-
lands.
Hvítasunnusöfnuðurinn:
Evrópumót á Islandi
Á sumardaginn fyrsta, 22. apríl,
hefst Evrópumót stjórnarnefndar
Evrópumóta hvítasunnusafnaðanna.
Mótin eru haldin þriðja hvert ár í
ýmsum löndum álfu okkar. Það síð-
asta var haldið í Helsingfors, Finn-
landi sl. sumar. Sóttu það fjórir Is-
lendingar, en tugir þúsunda þátt-
takenda frá öllum þjóðlöndum Evr-
ópu, nema Tékkóslóvakíu og Al-
baníu.
í undirbúningsnefnd mótanna eru
rösklega 40 meðlimir, leiðtogar og
prédikarar í hvítasunnusöfnuðum
landa sinna. Af þeim mæta nú til
móts í Reykjavik um 30 menn. For-
seti nefndarinnar er Dr. Jakob Zofi
frá Sviss. Hlutverk mótsins er und-
irbúningur næsta Evrópumóts sem
haldiö mun verða í V-Þýskalandi
sumarið 1983.
Með þessu móti er Islandi sýndur
sómi og sæmd. Margir kunnustu
prédikarar landa sinna eru í þessum
hópi. Leiðtogar tuga þúsunda manna
og forstöðumenn í stærstu kirkjum
mótmælenda álfunnar. Þátttakend-
ur munu koma frá löndum Austur-
Evrópu, valinkunnir ræðuskörungar.
Ef áætlanir standast, þá mun
ræðumaður á sumardaginn fyrsta
verða Karl-Erik Heinerborg frá
Fíladelfíukirkjunni í Stokkhólmi. En
það er ein stærsta kirkja og söfnuð-
ur lands síns og þó víðar væri leitað.
Á föstudagskvöld, 23. apríl, mun dr.
Hermann von Amerom frá Hollandi
verða ræðumaður, á laugardag Melv-
in Jörgensen frá Belgíu. Á sunnudag
fyrstan í sumri, 25. apríl, verða guðs-
þjónustur kl. 14.00 aðeins fyrir söfn-
uðinn í Fíladelfíu og svo almenn
guðsþjónusta að kvöldinu kl. 20.00.
Ræðumaður verður þá Eric Dando
frá Wales. Hann er ritstjóri tíma-
ritsins „Pentecost" og leiðtogi Elim-
hvítasunnusafnaðanna á Bretlands-
eyjum.
Fundahöld halda svo áfram frá
þriðjudeginum 27. 4. og reynt verður
að ljúka nefndarstörfum fimmtu-
daginn 29. 4. Almennar guðsþjónust-
ur verða hvert kvöld kl. 20.00 í aðal-
sal Fíladelfíukirkjunnar. Organisti
verður Árni Arinbjarnarson og kór
kirkjunnar mun syngja. Jafnframt
munu erlendu gestirnir taka þátt í
söng og hljóðfæraleik, svo og aðrir
kraftar safnaðarins, með blönduðum
þrísöng og söngtríói ungra stúlkna.
Fólk er hvatt til þess að koma og
njóta þess sem fram verður boðið í
Fíladelfíu framangreind kvöld.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, biskup hinnar islensku
þjóðkirkju, séra Pétur Sigurgeirs-
son, og dóms- og kirkjumálaráð-
herra, herra alþingismaður Friðjón
Þórðarson, munu sýna gestum móts-
ins móttökur á vegum embætta
sinna. Allir gestir mótsins munu búa
á heimilum safnaðarfólks í Fíla-
delfíu. Einar J. Gíslason
REF. 6550 65x31 cm H. 130 cm
Verö kr. 988,-
Verö kr. 540,-
Verö kr. 813,-
REF. 148/F 53x40 cm H. 78 cm
Verö kr. 725,-
Hillur — Stólar
Borö — Sófasett
Mikiö úrval
Verð við allra
hæfi.
VöruroarkaHurinn hf.
Armula 1 A. Sinv 86112.