Morgunblaðið - 21.04.1982, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 1982
43
Sími 78900
Lögreglustöðin í
Bronx
(Fort apahe the Bronx)
Nýjasta myndin meö Paul
Newman. Bronx-hverfiö í New
York er illraemt, þaö fá þeir
Paul Newman og Ken Wahl aö
| finna fyrir. Frábær lögreglu-
mynd. Aöalhlutverk Paul
Newman, Ken Wahl, Edward
Asner. Leikstjóri: Daníel
Petric.
Bönnuð innan 16 ára.
fsl. texti.
Sýnd kl. 3, 5.15, 9 og 11.20.
Lífvörðurinn
(My bodyquard)
Every kki should have one...
MY BOmCUUU)
Lifvörðurinn er fyndin og frá-
bær mynd sem getur gerst
hvar sem er. Sagan fjallar um
ungdóminn og er um leið
| skilaboö til alheimsins. Aöal-
hlutverk: Chris Makepeace,
Adam Baldwin.
fal. texti.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Fram í sviðsljósið
(Being There)
r\
Aöalhlutverk: Peter Sellers,
Shirley MacLane, Melvin
Douglas, Jack Warden.
Sýnd kl. 3. 5.30 og 9.
Vanessa
I.
I Djörf mynd um unga stúlku
I sem lendlr í ýmiskonar
I ævintýrum.
Sýnd kl. 11.30
fsl. texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Snjóskriðan
ROCK
HUDSON^
MiA
FARROW
CUM NU mt CHT Mll
luaaiMt'. noicakk
Stórslysamynd tekin í hinu
hrífandi umhverfi Klettafjall-
anna. Mynd fyrir skiöaahuga-
fólk og þá sem stunda vetr-
I arlþróttirnar.
| Aöalhlutverk: Rock Hudson,
Mia Farrow, Robert Foster.
fsl. texti.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Allar meö íal. texta. ■
Árásir og hjáseta:
Er Alþýðubandalagið að
hefna sín á Hafnfirðingum?
eftirPál. V.
Daníelsson
Álverið í Straumsvík hefur ver-
ið allmikið í umræðu að undan-
förnu og hefur verið vegið að því á
hinn furðulegasta hátt undir for-
ystu iðnaðarráðherra. En er þar
um furðulegheit að ræða, þegar al-
þýðubandalagsmenn eru annars
vegar? Það er ekki úr vegi að rifja
upp sögu hafnfirskra alþýðu-
bandalagsmanna í sambandi við
álverið.
Alltaf á móti
Á árinu 1966 þurftu Hafnfirð-
ingar að taka afstöðu til staðsetn-
ingar og samninga um álbræðsl-
una. Þegar haínar- og lóðarsamn-
ingur var tii afgreiðslu í bæjar-
stjórn þá greiddi Alþýðubandalag-
ið atkvæði á móti. Þegar tillaga
kom fram um að veita bæjarstjórn
umboð til þess að undirrita samn-
inga greiddi Alþýðubandalagið at-
kvæði gegn slíku umboði. Þegar
tillaga um byggingaleyfis- og
gatnagerðargjald var afgreidd
greiddi Alþýðubandalagið enn at-
kvæði á móti. Þannig hafði Al-
þýðubandalagið þrisvar sinnum
möguleika til þess að styðja að
auknu atvinnulífi í Hafnarfirði en
greiddi alltaf atkvæði gegn því.
Hvaðan er rótin
runnin?
Sé þannig horft um öxl kemur
óneitanlega í hugann að iðnaðar-
ráðherra sé að hefna harma Al-
þýðubandalagsins í Hafnarfirði og
þaðan sé rótin runnin. Alþýðu-
bandalagið skiptir ekki máli,
hvort fleiri hundruð manns hafa
atvinnu eða ekki. Það skiptir held-
ur ekki máii, þótt ýmis viðskipti
við álverið hafi aukið og eflt ann-
að atvinnulíf í bænum.
Auknar tekjur
Bæjarfélagið hefur haft tals-
verðar tekjur af framleiðslugjaldi
ÍSAL. Tekjurnar vegna aukinnar
atvinnu, bæði beint hjá ÍSAL og
hjá aðilum, sem ISAL kaupir
þjónustu af hafa verið miklar. IS-
AL hefur þannig stutt að aukn-
ingu og eflingu atvinnulífs í Hafn-
arfirði og nágrenni. Er þetta í
samræmi við það, sem sagt var í
upphafi, að ISAL mundi renna
traustum stoðum undir atvinnu-
lífið í bænum. En slíkt er ekki að
óskum alþýðubandalagsmanna.
Ofagur viðskilnaður
Bærinn hefur rekið stórt at-
vinnufyrirtæki, sem fjölmörgum
veitir vinnu, en það er Bæjarút-
gerðin. Hún hefur oft átt í miklum
fjárhagserfiðleikum, sem orðið
hefur að leysa. Einna dýpst var
hún sokkin í niðurníslu og skulda-
fen á árunum fyrir 1962. Verður
það mál ekki rakið að sinni en í
kosningunum 1962 breyttist stað-
an þannig í bæjarstjórn að hægt
var að losna við áhrif Alþýðu-
bandalagsins og hefja viðreisn
bæjarfélagsins og þar með Bæjar-
útgerðarinnar.
Hjásetan
Síðast liðin ár hefur Bæjarút-
gerðin átt við fjárhagserfiðleika
að stríða, sem þó er barnaleikur
hjá því sem orðið var 1962. Þann
vanda verður að leysa. En það
verður ekki gert með hjásetu í
bæjarstjórn eins og Aiþýðubanda-
lagið gerði, þegar tillaga kom
fram um að leggja fram í auknum
mæli fjármagn Bæjarútgerðinni
til styrktar. Þar þarf annað og
meira að koma til sé mönnum ekki
sama um hlutina. Að vilja ekki
gera neitt, bara að sitja hjá í hinni
mestu fýlu sýnir mikla óskamm-
feilni í garð starfsfólks Bæjarút-
gerðarinnar.
Nokkrar tölur til
fróðleiks
Ef við nú tengjum saman að-
stoðina við Bæjarútgerðina síðast
liðin ár og tekjurnar af fram-
leiðsiugjaldi ISAL, þá kemur þessi
mynd út. Tölum er breytt í nýkr.
Árið 1979 var framleiðslugjald af
ÍSAL 1.797 þús. kr. og framlag til
Bæjarútgerðarinnar 1.630 þús. kr.
Árið 1980 var framleiðslugjaldið
2.400 þús. kr. og framlag til Bæj-
arútgerðarinnar 2.000 þús. kr. og
árið 1981 var framleiðslugjaldið
3.186 þús. kr. og framlag til Bæj-
arútgerðarinnar 2.000 þús. kr.
Þetta sýnir að tekjur af fram-
leiðslugjaldi ISAL hafa gert held-
ur betur en nauðsynlegur stuðn-
ingur við Bæjarútgerðina og sýnir
því ljóslega hver stoð álverið hef-
ur verið í sambandi við að halda
uppi og efla atvinnulífið í bænum.
En Alþýðubandalagið var á móti
álverinu í upphafi og þrjóskast við
að halda áfram á sömu braut.
Páll V. Daníelsson
Kemur þér þetta við?
— eftir Indriða
Indriðason
Oft er minnst á áfengisvanda-
málið í blöðum og fjölmiðlum og
er það ekki undrunarefni, jafn víð-
tæk sem áhrif þess eru á efnahag,
tilfinningalíf og sambúðarhætti
manna. Og eins og löngum fyrr,
eru menn ekki á eitt sáttir hvernig
bregðast eigi við vandanum og.
hvaða hömlum háðar skuli þær
reglur er settar séu af stjórn-
völdum um dreifingu þess og sölu.
Á síðustu árum hafa vísinda-
legar rannsóknir kveðið skýlaust
upp úr með það að áfengi sé vímu-
gjafi, sá eini meðal hinna sterkari
tegunda sem enn er lögleyfð sala á
í öllum velferðarríkjum hins vest-
ræna heims, þó með margvísleg-
um og mismunandi hömlum, um
sölu, dreifingu og neyzlu.
Það er einnig staðreynd sem
margir virðast ekki átta sig á, að
það tjón er áfengisneyzlan veldur
þjóðarheildinni er í beinu hlutfalli
við neyzluna. Þess vegna eru þær
reglur er stjórnvöld setja, um
fjölda útsölustaða og opnunartíma
þeirra, um aldurstakmark kaup-
enda og neytenda, fjölda vínveit-
ingastaða o.fl., nauðsynlegar og
sjálfsagðar hömlur af ríkisins
hálfu til verndar sjálfu sér.
Allt spjall áfengisneytenda um
að meira frjálsræði varðandi
notkun og fleiri tegundir svo sem
áfengt öl o.þ.h., mundi skapa betri
meðferð áfengis, aukna „áfengis-
menningu“, er oftast sprottið af
óskhyggju einstaklingsins er hef-
ur það mál uppi, að sveigja alla
meðferð þessara mála að sínum
þægilegheitum, og er þá gengið
framhjá þeirri höfuðstaðreynd
sem ráðamenn hljóta að taka mið
af í þessum efnum, að hverskonar
takmörkun á sölu og neyzlu áfeng-
is, með sjálfsögðum hliðarráðstöf-
unum, dregur úr þeim vanda sem
þessi vímugjafi skapar í samfélag-
VERÖLD
O ÁN VÍMU
ÍUT - IOGT
inu. Minni áfengisneyzla, minni
vandræði af hennar völdum þegar
á heildina er litið; færri umsækj-
endur um Sogn og Silungapoll.
Þess vegna set ég orðið áfengis-
menning í umfjöliun hér á undan í
gæsalappir, að ég skoða það rang-
nefni. Sá lífsmáti, er afsidar stórt
hlutfall iðkenda sinna, getur naum-
ast talizt til menningar.
Það er næsta eðlilegt með tilliti
til þess sem að framan segir, að
starfandi séu í landinu félaga-
samtök er vilji veita viðnám og
leita að leiðum til að draga úr
vanda áfengisneyzlunnar. Sá
vandi snertir okkur öll samfélagá-
lega og fjölmörg persónulega. Því
er næsta eðlilegt að ýmsar spurn-
ingar komi í hugann og séu bornar
fram, eins og til þess að þreifa
fyrir sér.
Ætti ekki nútímamaðurinn með
sína fjölbreyttu menntun og ým-
islega möguleika til forsjár sér og
sínum og sköpunar fegurra
mannlífs, að finna sig megnugan
þess að vera án þessa vímugjafa?
Sú staðreynd er kunn, að áfengi er
engum einstaklingi nauðsynlegt.
Það er öllum kunnugt, að neytend-
ur þess valda slysum og dauða.
Það er vitað að neyzla þess er bein
orsök stórs hluta þeirra lögbrota
sem framin eru. Það er á allra vit-
orði að það hryggilegasta og ör-
lagaríkasta í sambandi við áfeng-
isneyzluna, er sú vissa, að í mörg-
um tilfellum veldur áfengisneyt-
andinn börnum sínum, maka eða
venzlaliði þeirri sáru kvöl og
óhamingju er aldrei verður að
fullu bætt.
Þá kemur manni einnig í hug, að
notkun vímuefna sé ekki samræm-
anleg þeirri vélvæddu og tölvu-
stýrðu tilveru sem er orðin þýð-
ingarmikill þáttur í lífi okkar. Þá
er eðlilegt framhald máls míns á
þessa leið:
Indriði Indriðason
„Sú staðreynd er
kunn, að áfengi er eng-
um einstaklingi nauð-
synlegt. Það er öllum
kunnugt, að neytendur
þess valda slysum og
dauða. Það er vitað að
neyzla þess er bein
orsök stórs hluta þeirra
lögbrota sem framin
eru.“
Sérhver einstaklingur er sér og
viðurkennir vandann, en beygir
sig fyrir siðvenjum aldarinnar,
hjálpar til að viöhalda venjunni
sem skapar vandamálið, og tekur
þar með á sig hluta af ábyrgðinni
á ríkjandi ástandi.
Bindindissamtökin í landinu
hafa tekið félagslega afstöðu gegn
siðvenjum áfengisneyzlunnar. Og
þú sem stendur hjá, og hefur ekki
tekið afstöðu með áfengisvenjun-
um. Hvers vegna ekki að ljá liö
þeim félagasamtökum er reyna að
veita viðnám og leita að leiðum til
öflugri sóknar gegn þessari lífs-
venju, fremur en að standa hjá,
yppta öxlum og segja: Þetta kem-
ur mér ekki við.
Vtaslciafe.
STAÐUIU?INN^ANDLATU
________Opið í kvöld til kl. 3.
GHLDMKnRLKR
leika fyrir dansi
Viö höfum gert gagnger-
■r breytingar á diskótek-
inu hjá okkur, komió, sjá-
íó og hlustiö á góóa mús-
ik I splunkunýju græjun-
um okkar.
Fjölbreyttur matseóill
aó venju
Boróapantanlr eru í síma 23333. Áskiljum okkur rétt til að
ráóstafa boröum eftir kl. 21.00.
Velkomin í okkar huggulegu salarkynni og njótiö ánægju-
legrar kvöldskemmtunar.
Spariklæðnaóur eingöngu leyföur.
Ath: Annaö Kvöld veröur Feröamiöstööln meö teröakynningu
og aö sjálfsögöu okkar vinsæli Þórskabarett.