Morgunblaðið - 08.05.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.05.1982, Blaðsíða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAÍ1982 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAÍ1982 27 Lltgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 7 kr. eintakiö. Álviðræður út um þúfur Síðasta viðræðufundi fulltrúa Alusuisse og iðnaðarráðherra, Hjörleifs Guttormssonar, lauk án þess að samkomulag tækist og án ákvörðunar um það, hvort aðilar ætli að hittast aftur. Hvað sem þessari niðurstöðu líður í viðræðum iðnaðarráðherra Alþýðu- bandalagsins við Alusuisse er ljóst, að enn er ósamið við fyrirtæk- ið um þau mál, sém allir aðrir en kommúnistar vilja, að leidd verði til lykta, það er endurskoðun á raforkuverði og skattareglum og stækkun álversins í Straumsvík, ef til vill með eignaraðild íslend- inga. Bægslagangi iðnaðarráðherra og kommúnista í þessu máli hefur lyktað í einangrun þeirra, jafnvel meðráðherrar Hjörleifs Guttormssonar, þeir Gunnar Thoroddsen og Steingrímur Her- mannsson, viðurkenna opinberlega, að þeir hafi ekki haft hug- mynd um það fyrr en eftir á, hvaða mál Hjörleifur ræddi við dr. Paul Múller, formann framkvæmdastjórnar Alusuisse, hér í Reykjavík. Umræðurnar, sem fram fóru á Alþingi um álviðræðurnar að frumkvæði þeirra Geirs Hallgrímssonar, formanns Sjálfstæðis- flokksins, og Kjartans Jóhannssonar, formanns Alþýðuflokksins, leiddu í ljós algeran trúnaðarbrest milli ráðherra í þessu máli. Kommúnistar pukrast með sjónarmið sín, iðnaðarráðherra hunds- ar formlega skipaða viðræðunefnd við Alusuisse og lætur enga nema sína nánustu trúnaðarmenn vita um áform sín. Þessi vinnu- brögð eru svo ámælisverð, að það er með eindæmum, að forsætis- ráðherra skuli líða slíka starfshætti og ekki veita þeim ráðherra lausn, sem þannig hagar sér. Sé litið fram hjá þessari formlegu hlið, kemur ekki betra í ljós. Augljóst er, að laumuspil Hjörleifs Guttormssonar á rætur að rekja til þess, að hann veit um andstöðu meðal stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar við þau sjónarmið, sem kommúnistar vilja ræða við Alusuisse. Þó hefur Hjörleifur Gutt- ormsson dregið mjög í land frá því að hann hélt blaðamannafund- inn í desember 1980 og látið var að því liggja, að um „sviksamlegt athæfi" væri að ræða í samskiptum Alusuisse við íslendinga. Jafnvel iðnaðarráðherra sjálfur þorir ekki lengur að kannast við þessa málsástæðu, sem var til skamms tíma kjarninn í árásum fiokks hans og málgagns á Alusuisse. Nú er svo komið, að Hjörleif- ur Guttormsson virðist ekki treysta sér til að nýta einhliða rétt Islendinga samkvæmt samningum við Alusuisse til að láta ágrein- ingsmál um uppgjör milli aðila í gerð. Það er furðulegt, að Hjörleifur Guttormsson skuli leyfa sér að líkja álmálinu við landhelgismálið og láta orð falia á þann veg, að ekki vinnist sigur nema þjóðin standi sameinuð að baki sínum samningamönnum. Frá því að fullur sigur vannst í landhelgismál- inu með útfærslunni í 200 sjómílur án atbeina kommúnista og raunar í andstöðu við þá, því að Lúðvík Jósepsson vildi 1973, að beðið yrði með 200 mílurnar eftir lyktum hafréttarráðstefnunnar, hafa alþýðubandalagsmenn reynt að gera sem minnst úr landhelg- ismálinu. Síðasta dæmið um það mátti sjá í leiðara Þjóðviljans nú í vikunni. Málflutningur Hjörleifs Guttormssonar miðar einnig að þessu. í hugum íslensku þjóðarinnar jafnast álviðræðurnar alls ekki við landhelgisbaráttuna. Hjörleifi tekst ekki að slá sig til riddara á kostnað annarra með því að vitna sí og æ til landhelgis- málsins. Með þessum áróðri er iðnaðarráðherra aðeins að undir- strika þá staðreynd, að það er hann og flokkur hans, sem koma í veg fyrir þjóðarsamstöðu um skynsamlega málsmeðferð í viðræð- unum við Alusuisse. Kommúnistum finnst það gott fyrir illan málstað sinn í þeirri kosningabaráttu, sem nú er háð, að álviðræðunum skuli hafa verið siglt í strand. Alþýðubandalagið er niðurrifsaflið í íslenskum stjórnmálum. Áróðursmeistarar þess leggjast gegn því, að því sé haldið á loft, sem vel er gert, eins og berlega kemur i ljós í umfjöllun Þjóðviljans um fræðsluþátt í sjónvarpinu á miðviku- dagskvöldið um stóriðju á íslandi og ótvírætt gildi hennar fyrir afkomu þjóðarinnar. Þjóðviljinn krefst þess, að sérstakur sjón- varpsþáttur verði gerður um niðurrifsstarf Hjörleifs Guttorms- sonar í orku- og iðnaðarmálum. Á hann að byrja á því, þegar Hjörleifur skrifaði sitt fyrsta ráðherrabréf til Landsvirkjunar í september 1978 og mæltist til þess að framkvæmdum við Hraun- eyjafoss yrði frestað? Eða á fyrsta atriðið að sýna Hjörleif lýsa því yfir á Alþingi í byrjun desember 1980, að besti kostur íslendinga í virkjanamálum sé að loka álverinu í Straumsvík? Af mörgu nei- kvæðu er svo sannarlega að taka. Lyktir álviðræðnanna koma engum á óvart, Hjörleifur Guttormsson hefur svo sannarlega siglt minni málum í strand. Þegar utanríkisráðherra sakaði hann um valdníðslu vegna jarðborana í Helguvík, sagði Ólafur Jóhannesson í ræðustól á Alþingi, þegar honum varð hugsað til iðnaðarráð- herra, lagalegra forsendna og álviðræðnanna: „Hjálpi okkur allir heilagir." — Hvað skyldi hann segja núna? Menn úr 40. strandhöggssveit konunglega landgönguliðsins á æfingu á þiljum flugvélamóðurskipsins Hermes við Falklandseyjar. Landganga reynd á Vestur-Falklandi ? LÍKUR á því að Bretar ráðist á land á Falklandseyjum hafa auk- izt: Tilraunir til að leysa deiluna með diplómatískum ráðum hafa farið út um þúfur og fátt bendir til þess að takast megi að leysa málið friðsamlega. Því lengur sem landganga dregst, því meiri hætta er búin brezka flotanum á Suður-Atlantshafi, og veður fer versnandi og á þessum slóðum er vetur að ganga í garð. Þetta er álit hernaðarsérfræðinga eins og Stewart Menauls fyrrum varaflugmarskálks. John Notts land- varnaráðherra hefur ítrekað í Bruss- el að ekki verði hvikað frá því hern- aðarlega markmiði að ná eyjunum aftur og talið er víst að yfirmenn brezkra varnarmála hafi skipulagt leiðir til að ná því marki, þrátt fyrir þær friðartilraunir sem hafa farið fram. Líklegasta leiðin, að dómi sérfræð- inga, er „takmörkuð landganga" á Vestur-Falklandi, sem er lítt varin, til undirbúnings hugsanlegri alls- herjarárás á Austur-Falkland, þar sem höfuðstaðurinn, Port Stanley, er. Á Austur-Falklandi er talið að Argentínumenn hafi 5,400 hermenn til varnar, eða megnið af varnarliði sínu á eyjunum. Brezk landganga á Vestur-Falklandi mundi hins vegar sundra liði John Woodwards aðmír- áls, sem enn hefur aðeins 1.500 land- gönguliða. Eftir tvo til þrjá daga er von á 2.500 landgönguliðum og fall- hlífahermönnum með farþegaskip- inu „Canberra", en um ein vika er þangað til brynsveitir, þungar fall- byssur, aukaþyrlur og 20 Harrier- orrustuþotur í viðbót berast með flota þeim, sem var sendur á eftir fyrstu herskipunum. Landganga mundi flýta fyrir lausn deilunnar og gera Bretum kleift að komast hjá langdregnu hafnbanni, sem fæli í sér hættu á eldflaugaárás- um á fleiri brezk skip en „Sheffield" sem sökk. Allsherjarárás gæti hins vegar kostað mikið manntjón og snúið almenningsálitinu í Bretlandi og heiminum gegn ríkisstjórn Marg- aret Thatcher forsætisráðherra. Loftárásir á flugstöðvar á megin- landi Argentínu gætu lamað flug- vélamátt Argentínumanna, en yrðu mjög hættulegar og hefðu víðtækar pólitískar afleiðingar. Langt hafn- bann gæti svelt argentínska setuliðið til uppgjafar, en gæti dregið úr bar- áttuhug landgönguliðanna, sem hír- ast um borð í brezku herskipunum í versnandi veðri. Andrúmsloftið um borð í herskip- unum er þrungið spennu, alvöru og staðfestu að sögn fréttaritara, sem segja að eftir árásina á „Sheffield" hafi sjóliðarnir og landgönguliðarnir fyrir alvöru gert sér grein fyrir hin- um harða raunveruleika orrustunn- ar um Falklandseyjar. „Ef við gerum ekkert eftir það sem henti „Shef- field", hvernig getum við þá farið aftur heim eftir öll hvatningaorðin, sem fylgdu okkur þegar við fórum frá Portsmouth?" spurði liðsforingi nokkur fréttamann Daily Telegraph, A.J. Mcllroy. Fréttaritari The Times, John Witherow, segir að missir „Shef- field“ hafi að engu gert hvers konar sjálfsánægju, sem kunni að hafa ríkt um borð í „Invincible", og vitnar í sjóliðsforingja, sem sagði: „Allir héldu að við ættum að kljást við ein- hverjar baunaætur, en nú gera þeir sér grein fyrir að þeir standa and- spænis vel útbúnu herliði." Flugmað- ur af Sea Harrier-þotu sagði: „Þessir strákar eru miklu betri en við vild- um viðurkenna." „Áhafnirnar eru við öllu búnar all- an sólarhringinn. Sjóliðarnir sofa í öllum fötum og fá lítinn svefn og flugmenn eru alltaf tilbúnir í Sea Harrier-þotunum, þar sem þeir bíða eftir skipunum um að elta uppi arg- entínskar þotur. Stríðshugur er í mönnum eftir áralanga þjálfun og allt er í fyrsta flokks lagi,“ segir fréttamaður The Guardian, Gareth Parry, um borð í „Invincible". Á þriðjudaginn segir Parry að gef- ið hafi verið viðvörunarmerki og til- kynnt að eldflaugaárás hefði verið gerð á skipið. „Þetta stóð í eina mín- útu, en það er heil öld í þessu nútíma tæknistríði." í ljós kom að engin hætta var á ferðum í það skipti. Kannski verður stutt þangað til næst verður gefið viðvörunarmerki um borð í brezku herskipi og líklega verður meira að marka það. A víkingaskipi yfir Atlantshaf Duluth, MinneNota, 7. maí. AP. HUNDRUÐ manna kvöddu áhöfn víkingaskipsins „Hjemkomst" þegar það lagði af stað til Noregs í dag, fostudag. Draga varð skipið fyrstu 16 km leiðarinnar frá Duluth, Minnesota, til Knife River, en þaðan siglir það um Superior-vatn og Huron-vatn til Detroit. Leiðin til Noregs er 4.828 km löng og 12 manna áhöfn skipsins má búast við vondum veðrum á Atl- antshafi. Vegna siglingareglna er skipið með talstöð, siglingatæki, rafstöð. eldavél, dieselstó, kolaofn og örygg- isútbúnað. Ferðin mun taka þrjá mánuði og var draumur námsstjórans Bob Asp, sem lézt í desember 1980. Níu árum. áður hóf hann smíði „Hjem- komst", sem er eftirlíking Gauk- Bush ræðir vid Kínverja Peking, 7. maí. AP. GEORGE BUSH varaforseti átti í dag, föstudag, fyrsta fund sinn af þremur með Huang Hua utanríkis- ráðherra, sem segir að „alvarlegar hindranir" standi i vegi fyrir eðli- legum samskiptum Bandaríkjanna og Kína. Bush kvaðst þó viss um að sam- skiptin væru „í meginatriðum góð“ og sagði að Ronald Reagan forseti vildi efla þau. Taiwan-málið verður líklega efst á baugi í viðræðunum, sem standa í tvo daga. Kínverjar hafa krafizt þess að Bandaríkjamenn hætti hergagnasölu til Taiwan fyrir einhvern ákveðinn tíma og varað við því að ella verði um aft- urkipp að ræða í samskiptum þjóðanna — sem líklega merkir að sendiherra Kína í Washington verði kallaður heim. Bush er á 17 daga ferðalagi til sex Asíu- og Kyrrahafsríkja. staðarskipsins frá því um 800,’ árið 1971 í gamalli kartöfluskemmu í Hawley í norðvesturhluta Minne- sota skammt frá heimili hans í Moorhead. Fjögur af sjö börnum Asps eru með í förinni, en skipstjórinn, Erik Rudström, er frá Osló. Hann er 62 ára og hefur siglt á norskum haf- svæðum og í Norðursjó síðan hann var 17 ára. Hann er sérfræðiogur í siglingum einmastra seglbáta eins og „Hjemkomst". Ahöfnin hefur tröllatrú á skipinu. „Við ætlum ekki að sanna að skipið þoli allt,“ sagði Lynn Halmrast, áhafnarmeðlimur frá Moorhead. „Ef við fáum vont veður á stóru vötnunum siglum við til hafnar. Auðvitað eru engar hafnir á Atl- antshafi. Við vitum að okkur mun takast þetta og við munum leggja okkur alla fram.“ Hundruð vinnustada heimsótt: Greinilega mikill áhugi á borgarmálunum núna — segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson „Eg hef, eins og aðrir frambjóð- endur Sjálfstæðisflokksin.s, farið á fjölmarga vinnustaðafundi að und- anförnu," sagði Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, framkvæmdastjóri, í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gær. „Þessir fundir hafa tekist mjög vel að mínu mati,“ sagði Vilhjálmur ennfremur, „margar fyrirspurnir hafa komið fram og það er nauðsynlegt að fá að heyra skoð- anir borgarbúa á hinum ýmsu mál- um. Betra tækifæri en fundir á vinnustöðunum gefst varla." Að sögn Vilhjálms hefur fyrir- komulag fundanna yfirleitt verið á þann veg, að þrír frambjóðendur fara saman á vinnustaði, einn flytur framsöguræðu, og síðan svara allir fyrirspurnum. „Ég hef í mínum inngangsorðum meðal annars rætt um skipulagsmál, fjármál borgarinnar, skattamál, atvinnumál og mörg önnur mál,“ sagði Vilhjálmur, „og fyrirspurn- Fellaskóli 10 ára: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson á fundi með starfsmönnum Heklu hf. í hádeginu einn daginn nú í vikunni. „Við munum heimsækja hundruð vinnustaða fram að kosningum," sagði Vilhjálmur, „og auk þess höfum við verið beðin að koma á fjölmarga fundi með klúbbum og félögum þar sem fjallað er um borgarmál. Það er greinilega mjög mikill áhugi á málefnum borgarinnar meðal kjósenda að þessu sinni.“ irnar hafa einnig fjallað um nán- ast allt sem viðkemur stjórn borg- arinnar, dagvistarmál, lóðamál og allt þar á milli. Það verða hundruð vinnustaða sem við frambjóðendur D-listans munum heimsækja nú, og það er okkur hvatning hve vel hefur verið tekið á móti okkur. Það kann að vera að Alþýðuflokkur og Fram- sóknarflokkur séu með slíka fundi, en ef svo er, þá fer ekki mikið fyrir þeim, og við höfum ekki komið á fundi þar sem frambjóðendur þessara flokka hafa verið eða ver- ið væntanlegir. Örlítið höfum við heyrt um ferðir Alþýðubandalags- ins, en lítillega þó. Márgir sem ég hef rætt við á vinnustöðunum hafa því þakkað okkur sérstaklega það frumkvæði sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur tekið í þessu," sagði Vilhjálmur að lokum. Leiksýning, plötuútgáfa og hátíð í tilefhi afinælisins FELLASKÓLI í Reykjavík á um þessar mundir 10 ára af- mæli og hefur af því tilefni ver- ið skipulögð ýmiss konar dægradvöl og tilbreyting í skólastarfinu. Frumsýndi t.d. leikhópur úr 9. bekk leikritið Tíu litlir negrastrákar eftir Agöthu Christie sl. mánudag og í dag, laugardag, gangast skólinn og Foreldra- og kenn- arafélag skólans fyrir sérstakri dagskrá milli kl. 14 og 17. Forráðamenn skólans tjáðu Mbl. að skólalóðin og næsta nágrenni yrði lagt undir skemmtun og markmiðið væri að allir viðstaddir geti skemmt sjálfum sér og öðrum. Milli kl. 13 og 14 fara nemendur skólans í skrúðgöngu um skólahverfið, en sem fyrr segir er sérstök dagskrá frá kl. 14 við skólann og þar fer m.a. fram: Sýnt brúðu- leikhús, leikir og leiktæki verða til brúks, keppni í reiðhjóla- þrautum, sýndar verða í skólan- um kvikmyndir gerðar af nem- endum og kostar aðgangur 5 kr., haldinn verður kökubasar og ágóðinn látinn renna til eflingar félagslífi, kynnt verður hljóm- plata sem Nemendafélag skólans gaf nýlega út og afhjúpaður Nemendur og kennarar Fellaskóla hafa ákveðið að gera sér dagamun á laugardag í tilefni afmælis skólans og verður sérstök dagskrá við skólann kl. 14—17 á laugardag. Ljósm. Kristján. verður skjöldur við aðalinngang- inn, eins konar „nafnspjald", sem nemendur hafa unnið í sam- vinnu við kennara. — Við viljum á afmælinu opna skólann og bjóða foreldrum að sjá hvað hér er gert og reyna á þann hátt að efla tengslin milli skólans og heimilanna, en For- eldra- og kennarafélagið, sem stofnað var í fyrra, hefur átt mikinn þátt í þessum undirbún- ingi öllum, sagði Arnfinnur Jónsson skólastjóri Fellaskóla. Skólinn telur nú um 1300 nem- endur og 100 manna starfslið, en flestallar kennslustofur eru nú tvísettar. Yfirkennari er Guðjón Ólafsson. Á hljómplötunni, sem Nem- endafélagið hefur gefið út, eru tvö lög, Ailt okkar líf, eftir Hjalta Gunnlaugsson og Halldór Lárusson og Bakaríið eftir Hall- dór Lárusson. Nefnist platan „HA::?“ og flytjendur eru Finnur frændi og smáfuglanir, níu manna hópur nemenda og nokkrir kennarar. Leikrit Agöthu Christie verður sýnt öll kvöld kl. 20:30 í skólanum til 10. maí, en leikgerðin er eftir Ágúst Pétursson og Kolbrúnu Hall- dórsdóttur og taka um 20 nem- endur þátt í sýningunni. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir í borgarstjórn: • • „Ongþveiti í fjárhag veitustofnana“ „ÞAÐ RÍKIR öngþveiti í fjárhag veitustofnana Reykjavíkurborgar," sagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, á fundi borgarstjórnar á fimmtudaginn. „Hitaveita og rafmagnsveita þurfa lík- lega lán upp á um 100 milljónir króna, 10 gamla milljarði, til að endar nái saman hjá þeim i ár, fái fyrirtækin ekki að hækka gjaldskrár sínar enn frekar," sagði Davíð Oddsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í þessum sömu umræðum. Adda Bára Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, lagði hins vegar áherslu á það í máli sínu, að teknar yrðu upp viðræður við iðnaðarráðuneytið um gjaldskrár og fjárhag veitustofn- ana og síðar litið til þess, hvort gera ætti bótakröfur á hendur ríkissjóði. Tilefni þessara umræðna var synjunar á staðfestingu gjald- samþykkt borgarráðs frá 4. maí þess efnis, að stjórn veitustofnana Reykjavíkur eigi rétt til bóta úr ríkissjóði fyrir tekjutap sökum skrár, sem borgaryfirvöld hafa löglega sett. Jafnframt fól borg- arráð framkvæmdastjóra fjár- máladeildar, hitaveitustjóra og rafmagnsstjóra að taka upp við- ræður við ríkisstjórnina um áætl- un til að ná viðunandi rekstrar- grundvelli fyrirtækjanna, að öðr- um kosti verða bótareikningar sendir iðnaðarráðuneytinu. Til- laga um þetta efni var samþykkt í borgarráði af fulltrúum Sjálf- stæðisflokks, Davíð Oddssyni og Markúsi Erni Antonssyni, og full- trúa Alþýðuflokks, Sjöfn Sigur- björnsdóttur, fulltrúi Framsókn- arflokks, Kristján Benediktsson, sat hjá en fulltrúi Alþýðubanda- lags, Sigurjón Pétursson, greiddi atkvæði á móti breytingartillögu um þessa málsmeðferð. Á fundi í stjórn veitustofnana 3. maí sl. var það samhljóða niður- staða, að hækka þyrfti gjaldskrá hitaveitunnar um 43% 1. júní nk. til að endar nái saman í ár og gjaldskrá rafmagnsveitunnar um 37% í báðum tilvikum án lántöku á þessu ári. Við afgreiðslu láns- fjáráætlunar fyrir 1982 tók ríkis- stjórnin ekki tillit til óska raf- magnsveitunnar um heimild til erlendrar lántöku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.