Morgunblaðið - 08.05.1982, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 08.05.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAÍ1982 45 ----AKÁNOI ^ SVARAR Í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS sEEriJ ir Þá er farið að lesa um lánga sumardaga Magnús Jónsson, Hafnarfirði, skrifar 25. apríl: „Kæri Velvakandi. Starf kennarans er erfitt. Hann er sem undir smásjá. Mér hefur gengið illa að tolla þar, þótt rétt- indin hafi. í þessu efni langar mig að minnast á einn stóran þátt, sem er þjóðtunga okkar í ræðu og riti. Reyndar er þetta svo umfangs- mikið, að í „ræðu“ ætla ég aðeins að minnast á tvennt. Annað er það, hvort að þeir sjónvarpsþulir sem segja: „dagskrá kvöldsins", gætu ekki gert sér það ómak að koma d-hljóðinu að, og segja kvöldsins, eins og hinir gera. Hitt atriðið er, að einn veðurspámanna segir alltaf vinstig í stað vindstig. En þá er það ritmálið. í skólum landsins hefur löngum, sem kunn- ugt er, verið varið mjög miklum tíma í stafsetningarkennslu. En því fleiri rithöfundar og aðrir þekktir menn sem telja sig vaxna frá venjubundinni stafsetningu og fylgja henni ekki, því erfiðara held ég að stafsetningarkennurum skólanna sé gert fyrir. í tólf ára bekkjum, a.m.k. sums staðar, er í ljóðatímum haft um hönd hefti Handrið til beggja hliða — við útgöngudyr SVK-vagnanna Karl Árnason hjá Strætisvögn- um Kópavogs skrifar: „I Velvakanda í blaðinu í gær, 5.maí, var fullorðin kona að þakka hugulsemi sem fram hafði komið í bréfi unglingsstúlkna, og er það vel. Því miður getur það komið fyrir, eins og frá sagði í bréfi stúlknanna, að fólk verði á milli hurða í afturdyrum strætisvagna. Það er aldrei nógu gott fyrir vagn- stjórann að fylgjast með því. Það er ánægjulegt að eiga góða sam- vinnu við farþegana, ekki síst gangvart eldra fólki, sem er mis- vel á sig komið, en þarf engu að síður að ferðast með almennings- vögnum. SVK væntir góðrar sam- vinnu við farþega sína hér eftir sem hingað til og á það vel við á yfirstandandi ári, að því er snertir aldraða. Vegna þess sem konan segir um vöntun á einhverju til að styðjast við, þegar farið er út úr vögnun- um, vil ég taka fram að á öllum hurðarvængjum eru slár til beggja hliða til að halda í, og á það við um alia okkar vagna, en slá, sem upphaflega var í miðjum dyrum var tekin burtu til að auðvelda fólki að komast um með barna- vagna og kerrur." með ljóðum og söguköflum eftir þann frægasta. Hann víkur víða frá hefðbundinni stafsetningu og er raunar getið um eitt þessara atriða í eftirmála heftisins. Ein- mitt þegar kennarinn vonar að hann hafi endanlega komið því inn hjá nemandanum að láta alltaf nægja grannan sérhljóða á undan ng og nk, þá er í áðurnefndri bók farið að lesa um lánga sumardaga og únga dreingi. Þetta var um stafsetningu, en svo vil ég geta um nokkur atriði efnisins í þessu riti. í lokaerindi kvæðis eins framarlega er orðið amen haft innanum heila romsu af efnislitlum orðskrípum. Þar með er sem dregið úr virðingu, að ég ekki tali um hátíðleik, þessa orðs sem jafnan er lokaorð þegar guð- Stebbi á Áttunni skrifar: „Velvakandi. Þegar Drottningarvegurinn var lagður yfir Höfnersbryggjurnar, liggur hann rúman metra frá gömlum beituskúrum, sem ekki eru augnayndi þegar ekið er inn í höfúðstað Norðurlands. En annað er þó verra: Þarna fara ungmenni Innbæinga og fleiri með veiði- stangir sínar til að sækja fisk í matinn. Ef litli snáðinn fær á, hleypur hann hiklaust heim með aflann. En kemst hann heim? Þarna er dauðagildra, einn metri og síðan er komið á hraðbraut. dómurinn er ávarpaður. Þetta á svo ungdómurinn að lesa, einmitt á þeim aldri sem fermingarund- irbúningurinn hefst. Hvað segið þið, prestar? Vitanlega er margt þokkalegt í þessu riti og vandasamt er að komast vel frá að yrkja kvæði með jafn stuttum línum og Stóð ég við Öxará er. En þegar kemur að síð- asta kvæðinu á undan óbundna málinu, þá keyrir aftur um þver- bak á neikvæðan hátt, að minni skoðun. Eiga tólf ára börn að lesa þetta kvæði í heyranda hljóði, með öllum þess fúkyrðum, blótsyrðum og göngu á kanti guðlastsins? Nú er talað um tilraunakennslu á mörgum sviðum. Væri ekki nóg að hafa „tilraunakennt" þetta rit í vetur og láta þar við sitja?" Ekkert merki, engin viðvörun, hvorki fyrir akandi né hlaupandi. Hvað er dauðgildra, ef ekki þetta? Það hefur bjargað að kalt hefur verið í vor og fáir verið við veiðar. En biksvört bremsuförin á mal- bikinu segja sína sögu. Við krefj- umst úrbóta strax, annað hvort á þann hátt, að þarna verði girt eða skúrarnir fjarlægðir. Ég hef oft bent blaðamönnum okkar hér á Akureyri á ýmsar hættur, en þeir hafa skellt skolla- eyrum við því. Að endingu þetta: Þið ráðamenn, sem þarna eigið hlut að máli, vaknið." Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta — eða hringja milli kl. 10 og 12 mánudaga til föstudaga. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð. Þeir sem ekki koma því við að skrifa slá þá bara á þráðinn og Velvakandi kemur orðum þeirra áleiðis. Nöfn, nafnnúmer og heimilis- föng þurfa að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar þess óski nafnleyndar. GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Það skeður ekki ósjaldan, að vinir verði sundur- orða. Rétt væri: Það gerist ósjaldan, að vinum verði sundurorða. Akureyri: Dauðagildra við Drottningarbraut Stúdentasamband VI Aðalfundur Stúdentasambands VÍ veröur haldinn þriöjudaginn 11. maí kl. 17.30 í Versl- unarskóla íslands viö Grundarstíg. Venjuleg aöalfundarstörf. Fulltrúar afmælisárgangs eru sérstaklega hvattir til aö mæta á fundinn. Stúdentahóf VÍ veröur haldiö föstudaginn 28. maí í Víkingasal Hótel Loftleiða. Stjórnin. STYRKTARFÉLAG LAMADRAOG FATLAÐRA Aóalfundur Styrktarfélags lamaöra og fatlaöra veröur haldinn fimmtudaginn 13. maí nk. aö Háaleitisbraut 11 —13 og hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar og reikningar ársins 1981. 2. Ákvöröun um félagsgjöld. 3. Kjör fulltrúa í Framkvæmdaráð SLF. 4. Kjör fulltrúa og varafulltrúa á þing Öryrkjabanda- lags íslands. 5. Skipulagsskrá fyrir Ferilsjóö SLF. 6. Önnur mál. Reykjavík, 5. maí 1982. Stjórn Styrktarfélags lamaðra og fatlaöra. Kaupmenn - Innkaupa- stjórar EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.