Morgunblaðið - 30.05.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1982
51
„Sjúkdómur í líffærí getur einnig haft áhrif á rásirnar, og viðkvæmir
blettir myndast á ferli vidkomandi rásar. Punktur að na fni Lanwei
(botnlangi) getur orðið viðkvæmur í bráðu botníangakasti, en Zhong fu
ef lungun eru sýkt.“
„Hjartarásin á upptök sín í hjartanu. Þaðan fer hún í gegnum þindina
og tengist við smágirnið. Grein fer frá hjartanu upp eftir hlið vélindis, í
tungu, og bindst auganu. Aðalrásin fer þvert frá hjartanu í lungað, og
kemur út í handarkrika, — fer síðan eftir aftari brún á innanverðum
handlegg að úlnlið — eftir lófanum og meðfram innri hlið litla fingurs
að nögl og tengist við smágirnisrásina, sem byrjar þar. — Efum truflun
er að ræða í hjartarásinni, getur það lýst sér sem sársauki eða óþægindi
eftir aftari og innri hlið efri útlima, þar sem hjartarásin fer um, eða það
getur verið um grípandi tilfinningu að ræða fyrír brjósti, vélindi, tungu
og auga, sem sársauki eða önnur einkenni. “
eða tvo nálastungupunkta. Nála-
stunguaðferðin hefur um þúsundir
ára verið ein aðal lækningaraðferð
Kínverja og er það en þann dag í
dag, ásamt öðrum læknisaðferðum.
Vandamálið hefur hins vegar alltaf
verið að finna nálastungupunktinn
sem meðferðin á að fara fram á —
til þess þarf meistara í þessum
fræðum, og dugar stundum ekki til.
Með tækinu, sem ég hef smíðað,
getur hins vegar hvert barn fundið
nálastungupunktana nákvæmlega.
Margar nálar voru neyðarúrræði
sem sumir nálastungulæknar gripu
til í þeirri von að a.m.k. ein nál
hitti í réttan punkt. Eins og ég
sagði áðan getur stundum verið
nóg að nota aðeins einn punkt, liggi
nákvæm greining fyrir, en algengt
er þó að fjórir til sex punktar séu
notaðir í hvert skipti."
Eru nálastungu-
lækningar hættulegar?
Nú hefur nálastunguaðferðin
verið talin hættuleg nema í hönd-
um færustu nálastungulækna.
„Já, hún er það óneitanlega —
jafnvel í höndum færustu nála-
stungulækna. Ég get sýnt þér
myndir af hreint ótrúlegum nála-
stunguaðgerðum sem framkvæmd-
ar eru í Kína. Þriggja tommu löng-
um nálum er iðulega stungið á kaf
inn í líkamann þannig að ekki má
muna hársbreidd að þær skaddi
viðkvæm líffæri s.s. hjarta, mænu
eða heila. Eftir að þeim hefur verið
komið fyrir er þeim snúið og þær
jafnvel undnar, og dregnar fram og
aftur. Árangur af þessum lækning-
um er oft stórkostlegur, en það
hvarflar að manni að það hljóti að
koma fyrir að örlítil mistök valdi
óbætanlegum skaða.
Það er hins vegar einn helzti
kosturinn við þetta tæki mitt að
ómögulegt er að skaða sig á því ef
fylgt er vissum einföldum varúð-
arreglum. í stað nálarinnar er
komin sérstök rafeindaverkun, sem
undir engum kringumstæðum get-
ur skaðað vefi líkamans. Þá hef ég
komist að því við tilraunir með
tækinu í fjölda ára, að það virðist
hafa lítil áhrif á nálastungu-
punkta, nema því aðeins að þeir séu
á rás sem tengist „líffæri“ sem er í
ójafnvægi."
Þú telur sem sé að tækið og þessi
lækningaraðferð hafi nánast enga
ókosti?
„I hreinskilni sagt, nei. En þessi
lækningaaðferð hefur að sjálfsögðu
sín takmörk, þó ég sé hreint ekki
viss um hver þau eru.“
Fyrirbyggjandi
lækningar
„Hafa verður í huga að í kín-
verskum fræðum er litið þannig á
að lækningar eigi að vera fyrir-
byggjandi. Sjúkdómur getur verið
orðinn svo rótgróinn að hann sé því
sem næst ólæknandi. Samkvæmt
kenningunni hefst sjúkdómur við
röskun orkujafnvægis aðallíffær-
anna 12. Verði röskun á tiltekinn
hátt viðvarandi, verður vart sjúk-
dómseinkenna í líkamanum. Og
viðhaldist röskunin áfram breiðist
sjúkdómurinn sífellt meira út.
Af þessu leiðir að því fyrr sem
meðferð er framkvæmd, því betur
gengur lækningin — og er þetta
einmitt reynslan af mínum til-
raunalækningum. Þess vegna væri
æskilegast að geta framkvæmt að-
gerðir gegn sjúkdómum áður en
þeirra yrði vart í líkamanum —
þannig tel ég hugsanlegt að koma
mætti í veg fyrir ansi marga sjúk-
dóma. Það er einmitt af þessum
ástæðum sem ég hef lagt kapp á að
hanna greiningartækið sem ég
minntist á. Væri það til staðar gæti
fólk einfaldlega lítið „yfirfara" sig
t.d. fjórum sinnum á ári. Grein-
ingartækið mundi gera það fram-
kvæmanlegt að finna hvort „líffær-
in“ 12 væru í orkujafnvægi eða
ekki, og gæti þannig greint sjúk-
dóm áður en hann kemur fram í
líkamanum. Þetta er lýgilegt — en
gæti engu að síður verið fram-
kvæmanlegt."
En hvað með kenningakerfið sem
liggur að baki nálastunguaðferð-
inni? — í hreinskilni sagt virðist
það vera út í hött.
„Nei Ching“
„Ég get ekki annað en verið sam-
mála því — það virðist vera út í
hött, en er það bara alls ekki. Kín-
verjar hafa stundað lækningar eft-
ir því í tæp fimmþúsund ár en aldr-
ei fundið í því vitleysu eða agnúa.
Sjálfur hef ég af því sömu reynslu,
en ég hef að vísu aðeins rannsakað
það í áratug.
Svo virðist sem þetta kerfi sé
byggt á allt öðrum husunarhætti
og þekkingargrundvelli en við
Vesturlandamenn kunnum skil á.
Ef til vill á kínverska myndletrið
og sú tjáning sem það leiðir af sér
nokkurn þátt í þessu — framsetn-
ing þessa lækningakerfis er greini-
lega mótuð af tjáningarháttum
myndletursins. Ég hef þurft að
kynna mér kínverska myndletrið
nokkuð, í sambandi við nöfn og ein-
kenni nálastungupunkta, og tel að
hluti skýringar þess hve þetta kerfi
er einkennilegt gæti legið í þessu.
í kínversku bókinni „Nei Ching“,
elztu lækningabók veraldar, sem
skrifuð var fyrir um 4500 árum, er
kenningin bakvið nálastunguað-
ferðina sett fram fullmótuð. A öll-
um þeim tíma sem liðinn er síðan
hefur mönnum ekki tekist að bæta
neinu við það hugmyndakerfi sem
þar er sett fram, og það hefur held-
ur ekki tekist að finna á því neinn
agnúa eða vöntun.
Ef til vill verður hægt að útskýra
þetta kerfi og skilgreina hina ýmsu
hluta þess með rannsóknum, þann-
ig að við getum skilið eðli þess og
tengt það nútíma þekkingu. En
varðandi notagildi kerfisins held ég
að það breyti ekki öllu hvort við
skiljum til fulls hvað þarna er að
verki.“
Veitingastofan <:
Þrastalundur
v. Sog
—------
Höfum opnað I
Veriö ávallt velkomin
Eins og áður
bjóðum viö upp á:
★ Veitingar og feröamannavörur
•k Málverkasýningar
★ Laxveiði í Soginu
★ Bensínafgreiösla Esso-þjónusta
Til helgarinnar
Hamborgari feröamannsins
eöa Þrastalundar-samloka og
TAB kr. 69,00
Ath.: Sérstakur kaffi- og
kökuskammtur í tilefni árs
aldraöra kr. 39,90. — Úrvals
kökur og rjúkandi kaffi.
Sigþrúður Pálsdóttir sýnir verk sín um
þessar mundir. Hún nam í New York.
Fyrsta sýning hennar á islandi.
Óskum öllum landsmönnum ánægjulegrar
helgar og hafiö hugfast aö áfengi og útivist
eiga ekki samleiö
Sprite
Þ
R
£
T
A
L
U
N
D
U
R
Drekkið
TaB
sykurlaust
AVALLT KALDIR
OG HRESSANDi
Þjonusta —
Vörur
Afgreiöslupiltur Hörður KR Traustason
Verið ávallt velkomin
Uthverfi:
Hjallavegur
Austurbrún frá 8
Kambsvegur
Síðumúli
Upplýsingar
í síma
35408
Tn Uj
m : ■ ' PTi iTl Kl 1