Morgunblaðið - 30.05.1982, Blaðsíða 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ1982
(Ljósm. A.E. Jensen)
Hörður Sveinsson f Les-prjón, ásamt konu sinni Elínu, og er hún hér í
einni af mörgum fallegum peysum sem Les-prjón framleiðir.
Umboðsmaður Álafoss f Danmörku er Elinor Jelsdorf, sem bér er með
dóttur sinni, er aðstoðaði móður sína i sýningunni. UUarrörum Álafoss var
smekklega fyrir komið f sýningarbis, þar sem innkaupendur fri mörgum
löndum litu inn.
Guðný
Bergsdóttir
skrifar frá
Kaupmannahöfn:
Katahönnuðir eru alltaf snemma i
ferðinni þegar tískan er annars
vegar og eru t.d. þegar búnir að
ákveða og hanna tískuna fyrir
næsta haust og vetur. Og fram-
leiðsluna sýndu þeir nýlega i
stórri sýningu i Bella Center í
Kaupmannahöfn, en sýning þessi
var aðeins opin innkaupendum og
lokuð almenningi. Blaðasnipar
fengu þó að kíkja inn og líta di-
semdirnar augum.
Hvorki meira né minna en 688
fyrirtæki fataframleiðenda frá
um 23 löndum sýndu þarna hina
litskrúðugu framleiðslu sína og
tæplega tuttugu þúsund inn-
kaupenda frá 31 landi komu til
að kaupa og líta á fatnaðinn. Og
það var svo sannarlega mikið að
skoða og mikið að velja í milli.
Hér situr eigandi Prjónastofunnar Iðunnar, Njáll Þorsteinsson, með konu sinni, Lovísu Marinósdóttur, og
sýningarstúlkurnar Brynja Nordquist (t.h.) og Linda Haraldsdóttir, standa hjá þeim, klæddar tvískiptum kjólum
úr eingirni, er vöktu mikla eftirtekt á sýningunni.
Fatasýningar erlend-
is hafa mikið að segja
— telja þeir íslendingar, sem
sýndu framleiðslu sína á al-
þjóðlegri tískusýningu í Höfn
Tvisvar á ári eru haldnar svona
tískusýningar í Kaupmanna-
höfn, vor og haust, og bæði sýn-
ingaraðilum og innkaupendum
fjölgar ár frá ári, jafnvel þó
sumir haldi því fram, að sams-
konar sýningar í Stokkhólmi
„steli" miklu, hvað aðsókn inn-
kaupenda snerti. Allavega er það
staðreynd, að á nýafstaðinni
sýningu hafa aldrei verið eins
margir sænskir fatahönnuðir.
Hið sama er því miður ekki að
segja um íslenska fatahönnuði,
þeir hafa sjaldan verið jafn fáir
og á umræddri sýningu, reyndar
aðeins fjórir aðilar. Aftur á móti
eru þeir margir íslensku fata-
innkaupendurnir sem áhuga
hafa á sýningunni í Bella Center
og það voru nákvæmlega 102 ís-
lenskir innkaupendur sem
skráðu sig og komu til að líta á
tískunýjungarnar.
Sýningaraðilar komu frá um
23 löndum eins og áður er sagt,
þar á meðal frá öllum Norður-
löndunum, svo og Bretlandi,
Vestur-Þýskalandi, Frakklandi,
Belgíu, Austurríki, Ítalíu og
Bandarikjunum.
En snúum okkur að hinni „ís-
lensku hlið“ sýningarinnar.
Hvað hafa hin tiltölulega litlu
íslensku fyrirtæki, a.m.k. þegar
miðað er við hin stóru erlendu
fyrirtæki, að gera á svona stóra
sýningu? Mikið, finnst hinum
fjórum íslensku aðilum sem
þarna sýndu vörur sínar, en þau
eru Prjónastofan IÐUNN, ÁLA-
FOSS, LESPRJÓN og SAM-
BANDIÐ. Þau tvö síðastnefndu
eru reyndar með fasta sýn-
ingarbása í Bella Center allt ár-
ið, en nú mun Les-prjón loka sín-
um bás og aðeins taka þátt í hin-
um tveim árlegu sýningum í
staðinn.
Alltaf vinsælt
Til fleiri ára hefur Elinor
Jelsdorf verið umboðsmaður
Álafoss í Danmörku. Hún hefur
verið með á umræddum sýning-
um í Bella Center síðan þær hóf-
ust, en rekur annars eigið fyrir-
tæki „Strikgárden" í Tureby. El-
inor Jelsdorf hefur margoft ver-
ið hér heima og er mjög hrifin af
þeim vörum sem hún selur fyrir
Álafoss. Enda, segir hún, eru
þetta gæðavörur, sem hvarvetna
eiga miklum vinsældum að
fagna. Hins vegar finnst henni
að íslendingar ættu að vara sig á
öllum hinum mörgu eftirlíking-
um, sem fyrirtaéki á Norðurlönd-
um gera. Þ.e.a.s líkja eftir ís-
lenskum mynstrum, blanda ull
saman við ýmis gerfiefni og geta
svo selt þessa vöru mun ódýrari
en íslenska varan er.
„En þeir sem til þekkja, sjá
undir eins hvort um alíslenska
ull er að ræða,“ segir hún.
Að venju var sýningarbás Ála-
foss hinn smekklegasti og þang-
að komu margir gestir og fengu
hinn myndarlega og vel unna
auglýsingapésa. Það eru að
mestu peysur, jakkar og kápur,
en einnig treflar, húfur, vettl-
ingar og sokkar, sem sýnt var að
þessu sinni.
Góð sala
Samband Of Iceland hefur haft
fastan sýningarbás í Bella Cent-
er í mörg ár. Það eru jú margir
innkaupendur frá öðrum lönd-
um, sem koma í sýningarhöllina
fyrir utan hinar föstu tískusýn-
ingar tvisvar á ári, og því eru
fjölmörg fyrirtæki, sem hafa
fasta bása allan ársins hring og
sýna þar hið nýjasta af fram-
leiðslu sinni. Það er Ólafur Har-
aldsson, sem sér um söluna hjá
Sambandinu á ullarfatnaði. Óg
Ólafur kvað sýninguna hafa
gengið vel, t.d. hefði hann fengið
mjög margar pantanir þegar
fyrsta daginn. Hins vegar sagði
hann líka, að það tæki venju-
legast fleiri mánuði áður en
hægt væri að segja um hve mikið
sýningin í heild myndi gefa af
sér, þar sem margir innkaupend-
ur kæmu sér í lagi á sýninguna
til að skoða og fá upplýsingar,
pantanirnar koma svo seinna.
Þetta á reyndar við á öllum svið-
um og því eiga sýningaraðilar
erfitt með að segja, hvað í raun-
inni þeir fá út úr svona sýningu
fyrr en 3—5 mánuðum eftir að
henni er lokið.
Nýjir pelsar
Lesprjón hefur s.l. sex mánuði
verið með fastan sýningarbás í
Bella Center, en hefur nú lokað
honum og eigandinn, Hörður
Sveinsson, segir að hann muni
nú aðeins sýna á hinum föstu
sýningum. Ýmsar ullarvörur,
peysur, vesti og jakkar úr alís-
lenskri ull, skreyttu bás Les-
prjóns en einnig kynntu Hörður
og kona hans Elín, alveg nýja
framleiðslu, pelsa úr íslensku
Gæruskinni. Pelsarnir eru gljá-
slípaðir eða klipptir, fóðraðir
með silki og þeir eru að sjálf-
sögðu í sauðalitunum.
Samskonar vesti var Lesprjón
einnig með. Bæði vestin og pels-
arnir eru hannaðir og saumaðir
af Evu Vilhelmsdóttur og eru
enn ekki komnir í framleiðslu.
Reyndar sagði Hörður að Eva
hefði setið og saumað fram á síð-
ustu stundu áður en haldið var
til Kaupmannahafnar með pels-
ana. Hörður og Elín búast við
miklu af þessari nýju vöru, sem
óneitanlega er faíleg og vakti
verðskuldaða athygli á sýning-
unni.
Frá Kaupmannahöfn héldu
þau hjón áfram með framleiðslu
sína, bæði pelsa og ullarvörur, til
að sýna á sýningum í Diisseldorf
og þaðan liggur leiðin svo áfram
til Bandaríkjanna, þar sem þau
munu kynna framleiðsluna á
sýningum meðal annars í Las
Vegas.
Vinsæl vara
Prjónastofan Iðunn er ekki að-
eins vel þekkt nafn hér heima
heldur einnig víða erlendis fyrir
bæði góða þjónustu og afburða
gæðavörur. Fyrirtækið var
stofnað 1934, en það var árið
1950 að núverandi eigandi, Njáll
Þorsteinsson tók við því. Kona
Njáls er Lovísa Marinósdóttir og
hún tekur þátt í rekstri fyrir-
tækisins af lfi og sál. Undir
stjórn þeirra hjóna hefur fyrir-
tækið bæði stækkað og eflst og
farið hefur verið inn á nýjar
framleiðslubrautir.
Iðunn hefur um langt árabil
verið virkur þáttakandi í tísku-
sýningum erlendis og þá að
mestu í Kaupmannahöfn og
Stokkhólmi, en fyrirtækið hefur
einnig umboðsmenn annars
staðar, t.d. í Frakklandi. „Við
höfum fengið hátt í tvö hundruð
fasta erlenda viðskiptavini, sem
má rekja til þáttöku okkar í sýn-
ingum erlendis," segja Njáll og
Lovísa. Hér er líka hægt að
nefna lítið dæmi, fyrir nokkrum
árum sýndi Iðunn vörur sínar á
sýningu í London, þar sem marg-
ir komu og skoðuðu vörurnar.
Einn þeirra var Frakki nokkur,
sem heilum þrem árum eftir
sýninguna, sneri sér til Iðunnar
og hafði áhuga á framleiðslunni.
Frakki þessi er í dag einn af
stærstu viðskiptavinum Iðunnar.
Og það leikur enginn vafi á að
þessar sýningar hafa mikið að
segja, ekki aðeins fyrir hin ein-
stöku fyrirtæki, heldur eru þær
mikil og góð landkynning um
leið.
Tískuvörur Iðunnar úr ein-
girni vöktu verðskuldaða athygli
á sýningunni og þá ekki síst
vegna þess, að í sýningarbás
þeirra var komið fyrir litlum
palli, sem tvær íslenskar sýn-
ingarstúlkur sýndu framleiðsl-
una við fjöruga músík. Þær eru
Brynja Nordquist og Linda Har-
aldsdóttir og fengu þær mikið
hrós fyrir eðlilega framkomu,
enda fylgdist fjöldi manns með
hverri tískusýningu hjá Iðunni,
en þær voru alls fjórar á hverj-
um degi þá daga sem sýningin
stóð.
Hönnuður tiskufatnaðar Ið-
unnar er dönsk stúlka að nafni
Kristen Ostergárd, sem þekkt er
í sínu fagi í Danmörku, hefur t.d.
lengi unnið hjá hinu þekkta
fyrirtæki Hjertegarn. Það eru
reyndar aðeins þrjú ar síðan Ið-
unn byrjaði að framleiða tísku-
fatnað úr eingirni, en hann hef-
ur vakið verðskuldaða athygli,
enda bæði léttur, þægilegur og
óvenjulegur, en fylgir þó um leið
nýjustu kröfum tískunnar. Og
eins og Njáll segir, þá er fatnað-
urinn líka á mjög hagstæðu
verði.
„Annars vil ég gjarnan koma
því hér að, að bankakerfi okkar
heima er fyrsta flokks þegar
miðað er við erlend kerfi, því hjá
okkur gengur öll afgreiðsla um
bankana miklu fljótar fyrir sig.
Það sama er að segja um tollinn,
hér heima fáum við t.d. vörur í
gegnum toll á mjög stuttum
tíma, meðan slíkt erlendis getur
tekið upp undir fleiri vikur," seg-
ir Njáll.
Hann bætir við að álagn-
ingarreglur hjá okkur mættu þó
vera öðruvísi. „Það má helst ekki
vera minni en 100% álagning á
tískuvörur, það er að ganga að
iðnverkafólki með því að leyfa
ekki meiri álagningu. Við höfum
reyndar beðið Félag ísl. iðnrek-
enda að athuga þetta mál,“ segir
hann.
„í sambandi við þetta er hægt
að geta þess, að það væri t.d.
ódýrara fyrir íslenska kaupend-
ur að kaupa okkar vörur hér á
sýningunni í Bella Center en
heima, einmitt vegna þessarar
heildsölu- og smásöiuálagningar,
en þetta er flókið mál, segja þau
hjónin.
Það leikur engin vafi á því, að
íslensku vörurnar eru í fyrsta
flokks gæðaflokki og njóta mik-
illa vinsælda hjá hinum mörgu
innkaupendum erlendis. Is-
lensku ullarpeysurnar eru t.d.
fyrir löngu orðnar sígildar og
eru alltaf mikið keyptar. Og hin-
ir mörgu innkaupendur fylgjast
af áhuga með öllum nýjungum,
sem fram koma. Svo er bara að
vona að árangurinn af þessari
sýningu hafi verið sem jákvæð-
astur fyrir þau fjögur íslensku
fyrirtæki er sýndu framleiðslu
sína í Bella Center nú í vor.
-gb