Morgunblaðið - 30.05.1982, Blaðsíða 14
62
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1982
„Vid höldum út núna um
næstu mánaöamót og leikum
á einum átta stöðum — aðal-
lega í Lundúnum,“ sögöu
Þeysarar er Járnsíðan lagði
leið sína til þeirra þar sem
þeir hafa æfingaaðstöðu úti á
Álftanesi. Ekki amalegt að
geta æft í friði og ró svo aö
segja úti í sveit og ekki gerir
það neitt verra, að forsetinn
er í næsta nágrenni, á Bessa-
stöðum.
f ensku poppblööunum er þaö
algild regla aö ekki er heiglum hent
aö komast í gegnum viötöl blaöa-
manna án þess aö vera mjög vel
aö sér í „local-húmor“ og þekkja
ákaflega vel til innviöja poppsins
þar í landi. Fyrir vikiö eru viötöl oft
á tíöum nær ólesanleg.
í Ameríku er þessu ööru vísi far-
iö. Viötölin eru undantekningarlítið
auömelt og þægileg aflestrar, en
gallinn er bara sá, aö meginhluti
ritmálsins fer oft á tíöum í þaö eitt
aö útlista fyrir lesandanum á
hvaöa hátt viökomandi blaöa-
manni tókst aö ná tali af, eöa sitja
fyrir, umræddri poppstjörnu. Þar
eru poppara meöhöndlaðir eins og
guöir og framkoma i þeirra garö af
hálfu blaöamanna tekur oft mjög
miö af því.
Hér á íslandi erum viö blessun-
arlega laus viö allt slíkt glingur.
Mannfæðin gerir þaö að verkum
aö hér er allt miklum mun per-
sónulegra og popparar eru ekki aö
setja sig á háan hest (meö fáeinum
undantekningum þó). En sleppum
þessu.
Ekki var ætlunin aö gera úttekt
á viðtökum í erlendum blööum aö
þessu sinni heldur voru þaö Þeys-
arar sem voru til spjalls. Litlum
vandkvæöum var bundiö aö ná tall
af þeim drengjum, þótt tveir þeirra
gætu ekki veriö viöstaddir og viö
erum ekkert að meöhöndla hina
þrjá sem einhverja guöi heldur
ávörpum þá bara eins og þeir
koma fyrir: Maggi, Gulli og Tryggur
(Sigtryggur).
Þeysara voru orönar ansi háþróaö-
ar um skeiö. Alls kyns sögur gengu
um höfuðborgina þvera og endi-
langa varðandi samstarf Þeys og
þeirra Jaz og Geordie úr Killing
Joke. Á endanum varö ekkert úr
því samstarfi — a.m.k. ekki aö
sinni — og Þeysarar halda áfram
reynslunni ríkari.
ÁTÖK
„Þetta er búiö aö vera skrambi
átakamikið tímabil og um tíma
vissu menn vart í hvorn fótinn þeir
áttu aö stíga. Menn settust niöur
og fóru aö velta hlutunum fyrir sér
og á endanum sáu menn hvernig
landiö lá. Viö settum Jaz upphaf-
lega ákveöin takmörk í fyrirhugaðri
samvinnu viö hann. Þau fólust þó
aöeins í því aö viö vildum hafa
frumkvæðiö. Hann virti þaö hins
vegar ekki.
Viö erum á því aö hljómsveitin
komi sterkari en nokkru sinni út úr
þessu erfiöleikatímabili. Þaö er bú-
iö aö hreinsa allt illgresiö frá, en
það er ósköp eölilegt aö hljómsveit
þurfi aö ganga í gegnum svona
tímabil fyrr eöa síöar. Þetta á sér
allt eölilegar skýringar ef út í þaö
er fariö. Viö vorum komnir fram á
brún hengiflugsins en menn náöu
aö bremsa sig af í tæka tiö og
hugsa málin. Lausnin varö farsæl.
Allt þetta umstang hefur komiö
okkur til aö átta okkur almennilega
á þeim kjarna Hávamála, sem
kveöa svo á um aö maöur eigi aö
reynast vinur vina sinna, en láta
hina sigla sinn sjó. Máliö er aö
vera sannfæringu sinni trúr.“
Hljómsveitin Þeyr hefur veriö
starfrækt af miklum krafti undan-
farin tvö ár eöa svo. Á þeim tíma
hefur hljómsveitin sent irá sér fjór-
ar hljómplötur, þótt sú fyrsta hafi
aö mestu leyti fariö fyrir ofan garö
og neöan hjá almenningi. Lenti
upplagiö á flækingi og sást mest
lítiö af því. Bar sú plata nafniö
Þagaö í hel og veröur aö segjast
aö meira viöeigandi nafn er vart
hugsanlegt á plötuna.
„Það hefur mikiö breyst hjá
okkur. Áöur fyrr sömdum viö t.d.
lög þannig, aö einn okkar kom
með hugmynd og síöan var unniö
út frá henni. Nú veröa lögin þannig
til, aö allir vinna aö þeim í samein-
ingu. Viö erum pólitískasta
hljómsveit landsins. Þetta hefur
bara á einhvern hátt alltaf fariö
framhjá öllum.
Viö höfum dálítiö fundiö fyrir því
aö fólk er aö finna aö okkar
„image“, en þaö á bara ekkert aö
vera aö einblina á þaö. Það er
tónlistin, sem skiptir öllu máli.
Annars erum viö ekkert svo upp-
teknir af þessari ímynd, svoköll-
uöu. Þaö er eins og fólk finni þessa
ímynd í textunum. Ef svo er þá er
helmingur þjóöarinnar bara ekki
læs.“
— SSv.
Jonee Jonee
í stúdíói
Þungbúnir Þeysarar á Álftanesi. Frá vinstri: Guðlaugur, Sigtryggur og Magnús. Litla innfellda myndin er af
tæplega aldargömlu húsi þar sem viðtaliö var tekið. vtorKunbiaðíA/ — ssv.
öflugt (á okkar mælikvarða)
plötudreifingarfyrirtæki aö nafni
Greenworld Dístributions þar
sem starfa 45 manns.
Hein jiessi var fyrir nokkru
staddur í höfuöstöövum enska út-
gáfufyrirtækisins Rough Trade og
þar heyröi hann lög af safnplötunni
margumtöluöu (og kannski
gleymdu líka), Northern Lights
Playhouse, sem hefur aö geyma ís-
lenskt efni meö 6 flytjendum.
Hein heillaöist af því sem hann
heyröi þarna og ákvaö aö skella
sér til eyjunnar köldu í Dumbshafi
til að kynnast þessum tónlistar-
mönnum betur og af eigin raun.
Undanfarna daga hefur hann veriö
á fundum meö plötuútgefendum
hérlendis og viöaö aö sér fróöleik
um íslenska tónlist.
Járnsiöan veit fyrir víst, aö hann
keypti 100 eintök af stóru plötum
Purrksins, Ekki enn og Googoo-
plex, en alls mun hann hafa haldiö
út meö um 1000 plötur. Hefur
hann í hyggju aö koma þessu á
framfæri í Kaliforníu og að því er
viö best vitum mun ætlun hans aö
helga íslandi eina síöu í mjög ítar-
legum „katalóg“ sem fyrirtækið
býöur upp á.
Jonee Jonee hefur undanfarið
dvalið viö upptökur í Grettisgati
viö Grettisgötu, stúdíói þeirra
Þursa. Hafa þeir tekiö upp 12 lög,
sem ekki hefur enn verið ákveðið
hvort veröa gefin út á einni eöa
tveimur plötum.
Þá hafa heyrst sögusagnir þess
efnis aö einhverjar af yngri
hljómsveitum höfuöborgarinnar
hyggji jafnvel á plötuútgáfu, en hér
skulu engin nöfn nefnd fyrr en af
því verður.
Jonee Jonee hafa undanfariö veriö
við upptökur og plata er
væntanleg frá tríóinu áður en
langt um líöur.
AÐALNÚMER
„Við komum alls staðar fram
sem „headline", þ.e. erum aðal-
númeriö þar sem við spilum. Viö
leikum t.d. á frægum klúbbum eins
og Venue og Heaven auk annarra
staöa. Þá er ætlunin aö taka
eitthvaö upp í leiöinni og veröur
þaö aö líkindum í Hastings."
— Hvaö er fleira í deiglunni?
„Svíþjóö viröist standa okkur
vel opin og maöur þar, Arnar Há-
konarson í Hot-lce, sá sami og
flutti inn plötu Utangarösmanna á
sínum tíma, vill óöur og uppvægur
fá okkur til Svíþjóöar. Okkur var
nýveriö sagt aö hann heföi fjölda
staöa þar sem viö gætum leikiö og
í raun væri bara veriö aö bíöa eftir
aö viö gætum komiö. Þá er útvarp
og sjónvarp í Svíöþjóö inn í mynd-
inni.
Margt fleira er opiö. Þaö gæti
t.d. vel veriö aö viö færum í lengra
og umfangsmeira feröalag i haust
og i sambandi viö England má t.d.
nefna þaö að John Peel hefur
reynst okkur ákaflega innan hand-
ar og veriö er aö athuga möguleika
á þvi aö viö komum fram i BBC.
Peel þessi er einhver virtasti plötu-
snúöur Breta og hefur veriö í
„bransanum“ um langt skeiö. Fylg-
ist mjög vel meö allri þróun í tónlist
og þrátt fyrir aö vera vel kominn til
ára sinna af plötusnúö að vera, er
hann opinn fyrir öllum nýjungum.
Annars veltur þetta mikiö á af-
stööu FÍH. Þaö er félagsskapur,
sem viröist ekki vera til neins
gagns fyrir poppara, a.m.k. höfum
viö ekki fundiö fyrír slíku. Annars
erum viö ekki í FÍH nema Steini frá
fyrri tíö. Viö eigum nú samt tæpast
von á því aö FÍH geti teygt arma
sína til Englands, þótt þeir hafi
kæft íslenska tónlist i Keflavíkur-
útvarpinu af því Kaninn vildi ekki
borga STEF-gjöld.“
NÝTT EFNI
— Hvaöa efni bjóöiö þiö upp á í
feröinni?
„Viö veröum meö svo til allt nýtt
efni nema hvað viö leikum 4—5
lög af Mjötviöur mær, svona rétt til
(sem í raun er Mjötviöur mær meö
smávægilegum breytingum, m.a.
tveimur lögum af Iðrum tll fóta)
kom út hjá Shout-útgáfufyrirtæk-
inu í byrjun þessa mánaöar. Hafa
fyrstu 5000 eintökin sem pöntuö
voru, rokiö út eins og heitar lumm-
ur og þaö sem meira er, þær fóru
allar til Þýskalands og Japan.
Englandsmarkaöur fær því ekki
sneiö af kökunni fyrr en í næstu
sendingu.
„Viö vorum mjög heþpnir aö
ÞEYR
aö lofa fólki aö heyra hvernig tónn-
inn er á henni. Tónlistin hefur
talsvert breyst hjá okkur undanfar-
iö eöa frá því Mjötviöur mær kom
út. Sennilega er þetta stærsta
stökkiö í okkar tónlist. Hér eru
komnar hugmyndir, sem hafa veriö
aö meltast í allan vetur en eru nú
loks aö brjótast út. Þaö er meiri
tilgangur kominn i tónlistina hjá
okkur en var. Þótt Mjötviöur mær
sé ágætis piata á margan hátt er
hún mjög sundurlaus. Þaö er nú
búiö aö koma togstreitunni, sem
ríkti á milli einstakra laga, inn í lög-
in sjálf.“
Plata Þeysara, As above...
komast í samband viö fyrirtæki
eins og Shout. Aðalmaöurinn á
þeim vígstöövum er Mark Easton
og þaö var einmitt John Peel, sem
leiöbeindi okkur aö þeim örfáu út-
gáfufyrirtækjum, sem enn eru til
og leggja ekki ofurkapp á pen-
ingaspursmálið. Easton þessi er
sjálfur tónlistarmaöur og hefur
aöra afstööu til þeirra hljómsveita,
sem eru á snærum Shout, en flest-
ir aörir í hans stööu. Viö erum t.d.
meö mjög góöan samning við
Shout aö okkar mati, sem hljóöar
upp á 60% alls hagnaöar til okkar.
Slíkt er nánast fátítt nú orðiö.“
Vangavelturnar um framtíö
Tengsl íslenskra poppara við
umheiminn eru greinilega farin
að vinda örlítið upp á sig eins og
snjóboltinn í sögunni forðum. Hér
á landi var fyrir nokkru staddur
maöur aö nafni William Hein,
búsettur í því suölæga ríki
Bandaríkja Norður-Ameríku,
Kaliforníu. Þar rekur sá hinn sami
Fjórða plata Purrks-
ins í burðarliðnum
Purrkur Pillnikk gerir það
ekki endasleppt í plötubrans-
anum. Þriðja plata kvartettsins,
Googooplex, er rétt nýkomin út
en engu aö síður hafa þeir til-
kynnt að fjögurra laga plötu,
sem tekin var upp í Southend
Studios í Lundúnum fyrir
nokkru, sé að vænta áður en
langt um líöur.
Umsjónarmaöur Járnsíðunnar
fékk aö heyra upptökur af plöt-
unni og eins gott er fyrir að-
dáendur Purrksins aö halda niöri
í sér andanum. Googooplex er
sterk plata en þessi nýja vænt-
anlega fjögurra laga hlýtur aö
flokkast undir eitthvað meirihátt-
ar. Bíöiöi bara!
„Síðasti vals-
inn“ á Borg-
inni að sinni
Tónleikar hafa veriö meö
miklum blóma í borginni und-
anfariö, enda sumarið á næstu
grösum (sumir segja þaö
reyndar löngu komiö) og létt yf-
ir mönnum, jafnt tónlistar-
mönnum sem öörum. Hótel
Borg mun á fimmtudag bjóöa
upp á sína síöustu popptón-
leika aö sinni. Verður þar
Purrkur Pillnikk í aöalhlutverki,
en ennfremur koma hljómsveit-
irnar Jonee Jonee og Vonbrigöi
fram.
íslensk popptónlist á
framfæri í Kaliforníu