Morgunblaðið - 30.05.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ1982
65
Arsenik
hér
og
EITUR
arsenik þar
- en upp komast svik um síðir
Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladsina í Waahington.
Charles Albanese værí vænt-
anlega frjáls maður í dag, ef
líkskoðarar í héruðunum fyrir
norðan Chicago héldu ekki ávallt
með sér fund annað slagið. Þrír
aldraðir ættingjar hans létust
með heldur stuttu millibili fyrir
nokkru og bróðir hans þjáðist af
arsenikeitrun, en enginn sá neitt
athugavert við það fyrr en lík-
skoðararnir fóru að bera saman .
bækur sínar. Grunur vaknaði á
fundinum og líkin þrjú voru
grafin upp og endurkrufin. Alb-
anese hefur nú verið fundinn
sekur um að hafa byrlað föður
sínum, bróður, tengdamóður og
tengdaömmu arsenik og stolið úr
sjóðum fjölskyldufyrirtækisins.
Bróðirinn lifði eitrið af, en nær
aldrei fullri heilsu. Charles kann
að eiga dauðarefsingu yfir höfði
sér.
Mæðgurnar Mary Lambert og
Marion K. Mueller voru 89 og 69
ára, þegar þær létust með
þriggja daga millibili í ágúst
1980. Nokkrum dögum áður
höfðu þær eytt deginum með
Albanese-hjónunum í smábæn-
um Spring Grove, Illinois, og
snætt hjá þeim. Virginia Alban-
ese sór við réttarhöldin að mað-
ur hennar hefði ekki komið
nærri matargerðinni þennan
dag, en hann hefði kannski
blandað drykk handa móður
hennar og ömmu. Sjálfur sagðist
hann hvorki hafa gefið gömlu
konunum vott né þurrt. Virginia
hlýddi á réttarhöldin yfir manni
sínum með herptar varir og
krosslagðar hendur. Hún er
þriðja kona hans. Þau hjónin
erfðu 67.229 dollara eftir mæðg-
urnar er þær höfðu nýlega
breytt erfðaskrám sínum Virg-
iniu i vil.
Við réttarhöldin kom í ljós, að
Charles hafði lifað nokkuð um
efni fram á þessum tíma. Hann
átti meðal annars yfir höfði sér
fangelsisvist fyrir ógreidda 3000
dollara í barnameðlag. Hann
starfaði í fyrirtæki föður síns
við verðlaunagripaframleiðslu
og hafði dregið sér fé frá fyrir-
tækinu. Bróðir hans, Michael,
veiktist fyrst í september 1980 af
arsenikeitrun og síðan aftur í
janúar 1981. Charles sagðist
hafa verið frá vinnu í bæði skipt-
in, en saksóknari lagði fram
ávísanir fyrirtækisins sem
Charles hafði skrifað undir á
þessum tíma.
Michael var hærra settur í
fyrirtækinu en Charles, þótt
hann væri 34 ára og 10 árum
yngri en Charles. Faðir þeirra,
M.J. Albanese, var 69 ára og er
enn forstjóri fyrirtækisins.
Saksóknari sagði, að Charles
hefði byrlað honum smá-
skammta af arseniki í nokkra
mánuði, en hellt örlagaskammt-
inum í undanrennuglas þegar
hann heimsótti föður sinn í
sjúkrahús, þegar gamli maður-
inn þjáðist af magasári. Charles
sagði við réttarhöldin, að hann
hefði aldrei verið einn með föður
sínum í sjúkrastofunni, móðir
sín, Clara, hefði ekki vikið frá
sjúkrabeði eiginmanns síns.
Verjandinn í málinu reyndi ár-
angurslaust að hafa upp á Clöru,
svo hún gæti borið vitni með
syni sínum.
Charles viðurkenndi, að hann
hefði fengið tvær tunnur af ars-
eniki frá félaga sínum fyrir all-
löngu. Hann sagðist hafa notað
eitrið strax, löngu áður en nokk-
ur ættingja hans veiktist eða
lést, til að drepa rottur sem
sóttu í ruslatunnurnar hans.
Hann sagðist aldrei hafa sagt
konu sinni eða nágrönnum frá
eitrinu og ekki varað neinn við
hættunni sem stafaði af því.
Charles var handtekinn í nóv-
ember þegar hann var á leið í frí
til Florida með móður sinni og
konu. Rannsókn málsins var þá
ekki lokið, en laganna verðir
óttuðust um líf kvennanna.
Saksóknari fagnaði úrskurði
kviðdómenda á þriðjudag og
sagði að þeim hefði tekist að
ráða sannkallaða sakamála-
þraut. Verjandinn sagði, að
saksóknara hefði alls ekki tekist
að sanna sekt Charles. Charles
fullyrti við réttarhöldin, að hann
væri saklaus og Michael, bróðir
hans, væri hinn seki. Michael
hefði tekið eitrið til að beina at-
hygli frá sjálfum sér, en hann
hefði viljað bola Charles út úr
fyrirtækinu, svo hann gæti setið
einn að afrekstrinum af sölu
verðlaunagripanna.
— ab.
SAGA HÓTEL Kaupmannahöfn,
Colbjornsensgade 20,
DK-1652 Copenhagen,
sími (01)-24-99-67
Staösett 200 fm frá járnbrautarstööinni, 300 m frá
Tívolí og 700 fm frá Ráðhústorginu.
íslendingar fá 10% afslátt.
Eins manns herbergi án baös frá kr. 145—165.
Tveggja manna herbergi án baös frá kr. 240—260.
Eins manns herbergi meö baöi kr. 230—240.
Tveggja manna herbergi meö baöi frá kr. 340—360.
Morgunmatur innifalinn. Litasjónvarp og bar.
Meö vinarkveöju frá Bredvig-fjölskyldunni
meö ósk um gleöilegt sumar.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
HAFSKIP HF.
REYKJAVIK
AÓalfundur
Aðalfundur Hafskips hf. verður haldinn föstudaginn 4. júní í
salarkynnum Domus Medica v/Egilsgötu.
Fundurinn hefst kl. 17.00
Stjórn Hafskips hf.
Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að hafa með sér atkvæðaseðla og
aðgöngukort er send voru út með fundarboði.
Aðgöngukortin afhendist við innganginn.
^Baukne cht
Sérti
ílboð
kÆU-°g
jlSKÁPAP
PD 2601
pC 30
wæa:153„cl"
®rei?fi0crT> q 05O
uæö:14lcrTL
eSSd;55crn
;60 cno
Sta«
ögreiös
luverö
DýP1
kr.7-3°°‘
magn
^ RAFBUÐ
@ SAMBANDSINS
Ármúla 3 • Simi 38900