Morgunblaðið - 30.05.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ1982
67
Ihaldsemin
bitnar
á kvenfólkinu
í Grúsíu ... hafði borgarstjóri haft samband
við fólk, sem var á höttunum eftir íbúðum, og
boðist til þess að útvega því þær — gegn þóknun
(Sjá: KOMMARAUNIR)
FJOLDAMORÐl
Byltingu lauk
með blóðbaði
Til Vesturlanda hafa borizt sögur af því,
að þær „refsiaðgerðir“ sem íbúar hinnar
fornu borgar Hama voru beittir að undir-
lagi sýrlenzku stjórnarinnar í febrúar sl.
hafi verið hryllilegri en orð fái lýst.
ASSAD. Morftsveitir huu fengu frjáisar bendur.
gemeinde" án alvarlegra afleið-
inga.
Tillaga um að veita konum at-
kvæðisrétt til héraðsstjórnar í
Appenzell var felld með fjórum at-
kvæðum gegn einu og urðu konur
bæði undrandi og reiðar yfir þess-
um málalokum. Úrskurðurinn í
Liechtenstein kom hins vegar ekk-
ert sérlega á óvart, en konurnar
þar ætla ekki að láta deigan síga.
Þær eru staðráðnar í að vísa máli
sínu til Evrópuráðsins og ef til vill
til mannréttindanefndar Samein-
uðu þjóðanna.
— LIESL GRAY
Flóttamenn frá Hama full-
yrða að 25 þúsund manns að
minnsta kosti hafi verið drepnir
og heilu borgarhverfin jöfnuð
við jörðu í tveggja vikna ráns-
og drápsherferð. Það voru svo-
kallaðar varnarsveitir stjórnar-
innar undir forystu Rifaat al-
Assad, bróður forsetans, sem
stóðu fyrir þessum níðingsverk-
um og nutu þar aðstoðar sér-
þjálfaðra sveita undir stjórn Ali
Haydar.
Hvernig svo sem í málinu
liggur er ljóst, að morðin voru
flest framin eftir að yfirvöld
höfðu aftur náð Hama á sitt
vald eftir að byltingarhópurinn
„Muslim-bræður" hafði tekið
rniðborgina herskildi 2. febrúar.
Um 10.000 hermenn með fa.ll-
byssur og þyrlur voru sendir á
vettvang og fóru létt með að
vinna sigur á uppreisnar-
mönnum, sem voru um 500 tals-
ins. Því næst fóru þeir með
morðum og ránum um borgina
að undirlagi stjórnvalda að því
er virðist.
Flestir þeirra, sem létu lífið,
voru saklausir borgarbúar. Auk
þess voru unnin mikil skemmd-
arverk á rúmlega 100 moskum
og þrem kirkjum kristinna
manna.
Það er óhjákvæmilegt að
skoða þessi ofbeldisverk í sam-
OTIÐINDI
Enn hrakar vesalings
Fyrr í þossum mánuði var haldin í Nairobi í Kenýa umhverfis-
málaráðstefna Sameinuðu þjóðanna og var það viðfangsefni hennar
að meta stöðuna eins og hún er nú, tíu árum eftir að hin sögulega
Stokkhólmsráðstefna lagði fram
fyrir mannanna börn.
Til umfjöllunar á þessum fundi
voru skýrslur, sem sérfræðingar
víðs vegar um heim höfðu unnið,
og er ekki hægt að segja, að þar
hafi verið um mikinn fagnaðar-
boðskap að ræða. Á þessum ára-
tug, frá 1972, hefur sem sagt afar
lítið áunnist, hvort sem er í bar-
áttu iðnríkjanna gegn menguninni
eða í baráttu þriðja heimsins gegn
uppblæstri og ásókn eyðimark-
anna og fyrir varðveislu þeirra á
náttúrulegum auðlindum eins og
t.d. skógum, ræktarlandi og
hreinu vatni. Og horfurnar eru
þær, að á þessum áratug muni
náttúruslysunum fjölga enn.
í einni skýrslunni, sem unnin er
tillögur um bjartari og betri heim
af heimskunnum vísindamönnum,
er því spáð, að mengun af völdum
iðnaðar og umferðar eigi eftir að
stóraukast á næstu árum, en sam-
kvæmt tölvuspám mun hitinn á
jörðinni aukast um 1,5—3 stig á C
ef mengunin tvöfaldast. Um þetta
síðastnefnda eru þó ekki allir
sammála því að aðrir þættir
kunna að hafa hér áhrif á. Ef hita-
stigið fer hins vegar að hækka
munu afleiðingarnar t.d. verða
þær, að heimskautaísinn bráðnar
og sjávarborðið hækkar um marga
metra. Um það voru þó vísinda-
mennirnir sammála, að afleið-
inganna af aukinni mengun muni
ekki gæta fyrr en um það bil þær
veröldinni
skella yfir og að þá muni verða of
seint að grípa í taumana.
Kolsýringur og „súr rigning"
eru ein af þeim plágum, sem nú
herja á iðnvædd ríki, og á ráð-
stefnunni var sérstaklega varað
við vaxandi hættu á húðkrabba
hjá hörundsbjörtu fólki. Stafar
það af því, að áðurnefnd efni eyða
ozon-laginu, sem hlífir jörðinni
við hættulegum útfjólubláum
geislum.
Önnur vandamál, sem við blasa
á þessum áratug, einkum þó í
þriðja heiminum, eru sjúkdómar
af völdum mengaðs vatns, en
ástandið í þeim málum verður
stöðugt alvarlegra. Malarían mun
leggja æ fleiri í gröfina, fyrst og
fremst ung börn, vegna þess, að
venjulegt skordýraeitur er hætt að
hafa nokkur áhrif á moskító-
fluguna auk þess sem sýkillinn
sjálfur er orðinn ónæmur fyrir
þeim lyfjum, sem notuð hafa ver-
ið.
í staðinn fyrir að þessi áratugur
verði tími allsnægtanna, munu
erfiðleikar í matvælaframleiðslu
og dreifingu sjá svo um, að helsta
banamein manna og sjúkdóms-
valdur í þróunarlöndunum verður
vannæring og stöðugt hungur.
Sérfræðingar SÞ telja, að á síð-
asta áratug hafi vannært fólk ver-
ið um 450 milljónir talsins en nú
er það miklu fleira og 30—40%
allra barna í þróunarlöndunum
bera einhver merki um vannær-
ingu.
Enn er einn umsvifamesti
manndráparinn ótalinn en það er
bíllinn. Ekki bara vegna óhollust-
unnar af útblæstrinum, heldur
fyrst og fremst fyrir það, að á
hverju ári hníga 250.000 manna í
valinn fyrir þessu „tæki dauðans".
— ÁLASTAIR MATHESON
hengi við hatramma baráttu
Assads Sýrlandsforseta við neð-
anjarðarhreyfingu múham-
eðstrúarmanna, en í henni hafa
fallið hundruð manna úr Ba’-
ath-flokknum og Alawis, sem er
trúflokkur í minnihluta, en nýt-
ur stuðnings og aðildar forset-
ans.
Þegar uppreisnarmennirnir
tóku Ilama, tóku þeir af lífi alla
fulltrúa stjórnarinnar og þá
embættismenn, sem þeir náðu
til. En heiftarleg viðbrögð
stjórnvalda við þessum aðgerð-
um geta samt engan veginn
flokkast undir sjálfsvörn, til-
raunir til að koma á lögum og
reglu, né heldur refsiaðgerðir
gegn glæpamönnum.
Það er engum vafa undirorpið,
að aðgerðirnar í Hama þjónuðu
ákveðnum tilgangi. Með þeim
vildi forsetinn vara íbúa ann-
arra borga í landinu við því að
rísa gegn valdi sínu. Leynilög-
reglan hefur látið það kvisast
út, að aðrir andófsmenn geti átt
samskonar blóðbað yfir höfði
sér.
Sagt er, að borgarstjórinn í
Hama hafi gefið Ássad forseta
skýrslu um gang mála, þá er enn
rauk úr rústum borgarinnar. Á
þá forsetanum að hafa orðið ein-
ungis þetta að orði: — Geta
„Muslim-bræður" nokkru sinni
risið upp aftur? Það var raunar
yfirlýstur tilgangur stjórnar-
innar, að ganga milli bols og
höfuðs á „Muslim-bræðrum" í
eitt skipti fyrir öll.
Eins og fyrr segir tilheyrir
forsetinn Álawi-trúflokknum,
en trúbræður hans fara með öll
völd í landinu og hreykja sér
hátt. Hins vegar stendur þeim
ógn af Sunnítum, sem eru í
miklum meirihluta, og þeir hafa
sýnt fullan fjandskap. Það er
einmitt þessi fjandskapur, sem
lá á bak við hinar hroðalegu að-
gerðir í Hama.
Það virðist óhjákvæmilegt, að
allar vonir um sættir á milli
hinna stríðandi afla í Sýrlandi
séu brostnar. Forsetinn virðist
hafa gefið upp á bátinn allar til-
raunir til að breikka þann
grunn, sem vald hans hvílir á, og
hallar sér nú eingöngu í þá átt,
þar sem hann veit að honum er
tryggilega borgið, þ.e. að trú-
bræðrum sínum, sem eru í
minnihluta.
- PATRIC SEALE
II
NORDSJO
málning
og lökk
I þúsundum lita, útl og Innl,
blandaö eftir hlnu vinsœla
TINTORAMA-litakerti, sem far-
iö hefur slgurför um alla Evr-
ópu. Gæöin þekkja alllr þelr
sem notað hafa NORDSJÖ-
málnlngarvörur.
Útsölustaöir
Reykjavík
Malarameistarinn,
Grensásvegi 50, sími 84950.
Hafnarffjörður
Lækjarkot sf., Lækjargötu 32,
sími 50449
Grlndavík
Haukur Guðjónsson,
málarameistari,
Víkurbraut 8, sími 92-8200.
Kefflavík
Birgir Guönason,
málarameistari,
Gróflnni 7, sími 92-1950.
Höfn, Hornaffjörður
Víöír Jóhannsson,
málarameistari,
Hafnarbraut 7, simi 97-8622.
Borgarnes
Einar Ingimundarson,
málarameistari,
Kveldúifsgötu 27, sími 93-
7159.
Akranes
Gler og Málning sf.,
Skóiabraut 25, sími 93-1354.
Selfoss
Fossval, Eyrarvegi 5,
simi 99-1803.
Elnkaumboö fyrir island:
Þorsteinn Gíslason,
heildverslun,
Grensásvegi 50, sfmi 84950.