Morgunblaðið - 30.05.1982, Page 22
I
„Ég hef séð hér tvö undursamleg furðu-
verk í Amríku: Theodore Roosevelt og
Niagara-fossana.u Þetta sagði enski skör-
ungurinn John Morley, þegar hann heim-
sótti hinn nýja heim árið 1904. Theodore
Roosevelt var vissulega furðuverk.
Yngsti forseti Bandaríkjanna, 43ja ára
gamall cg forseti í sjö ár; ræðuskörung-
ur, rithöfundur, vísindamaður; stríðs-
hetja; veiðimaður; íþróttamaður. Hann
varð þjóðhetja í lifanda lífi og jafnan
kallaður „Teddi“.
Þann 27da október 1857 fædd-
ist hjónunum Mðrtu og Theo-
dore Roosevelt sveinn, sem heitinn
var í höfuðið á föður sínum.
Roosevelt þessi var kaupmaður af
þýskum ættum og þótti maður
ráðríkur, en þó léttlyndur og geð-
góður. Hann brýndi fyrir syni sín-
um góða siði og heiðarleika. Theo-
dore Roosevelt yngri var heilsu-
veill í æsku, þjáðist af andarteppu
og var allur hinn aumingjalegasti
í útliti. Hann naut kennslu í
heimahúsum heilsu sinnar vegna
og leið ákaflega fyrir bágindi sín.
Saga er af því, þegar hann
mætti eitt sinn tveimur jafnöldr-
um sínum á götu úti. Svo sem
stráka er háttur tóku þeir uppá
því að stríða Tedda, fyrir hvað
hann væri vesæll og reiddist þá
Teddi og réðist á strákana, sem
hlógu upp í opið geðið á honum og
sneru hann léttilega niður. Teddi
grét sárt eftir. Þegar hann hélt til
New York skömmu síðar byrjaði
hann líkamsæfingar af miklum
þrótti og tókst smám saman að
byggja upp mikinn skrokk — ekki
ósvipað og Atlas síðar. Eftir það
fylgdu honum, hvert sem hann
fór, boxhanskar, gormar og þess
konar tæki sem aflraunamenn
skemmta sér við.
Hann sinnti íþróttum fram á
gamalsár, gekk mikið, glímdi uppá
amríska vísu, æfði hnefaleika —
og í hnefaleikakeppni í sjálfu
Hvíta húsinu mun hann hafa
misst sjón á öðru auga — hann fór
í útreiðartúra, var tennisleikari
ágætur, og í forsetatíð hans voru
ráðgjafar hans jafnan nefndir
„The Tennis Cabinet".
Roosevelt var sæmilegasti
námsmaður og mikill áhugamaður
um náttúruvísindi og sagnfræði.
Hann lauk prófi frá Harvard-
háskóla árið 1876. Þremur árum
síðar gekk hann að eiga Alice Lee
og áttu þau saman eitt barn.
Roosevelt unni konu sinni mjög.
En þó hann hefði eflst mjög lík-
amlega var hann enn smeykur við
lífið á marga lund. Hann var hald-
inn nær sjúklegum ótta um að
kona sín hlypist á brott með öðr-
um manni. í náttborði sínu hafði
hann til taks pistólu, slíka sem
menn brúkuðu fyrrum í einvígum.
„Ég hræddist margt sem ungur
maður," skrifaði hann í æviminn-
ingum sínum. „En með því að ein-
setja mér að hegða mér ævinlega
eins og ég væri hvergi smeykur,
tókst mér með tímanum að yfir-
stíga þessa hræðslu."
Roosevelt hóf laganám við Col-
umbia-háskóla, en lagði það á hill-
una, þegar hann var kosinn á þing
búskap og sagnfræðirannsóknum.
En áhugi hans á pólitík reyndist
svo djúpstæður að áður en langt
um leið var hann aftur kominn á
kaf í stjórnmálabaráttu. Hann
gekk einnig að eiga Edith Carow,
sem hvatti hann ákaft útí pólitík-
ina á nýjan leik. Þau voru æskufé-
lagar og áttu saman fimm börn.
Arið 1886 var Teddi útnefndur
borgarstjóraefni flokks síns í
New York, en lenti ekki nema
þriðji í þeirri orustu. Það sama ár
skrifaði hann á fjórum mánuðum
ævisögu Tómasar Hart Bentons og
á næstu árum sjö stórar bækur
um sagnfræðileg efni, stóð jafn-
framt á haus í pólitík og sinnti búi
sínu samviskusamlega.
„Komdu þér að verki," ráðlagði
hann, „gerðu eitthvað og þú held-
ur sönsum. Sólundaðu ekki tíma
þínum, skapaðu, framkvæmdu,
láttu til þín taka, hvar sem þú
ert.“
í þessum orðum felst lífshug-
sjón Theodore Roosevelts. Hafi
einhver maður fylgt þessum heil-
ræðum, þá var það Teddi sjálfur.
Hann skrifaði „The Winning of
the West“ í fjórum bindum á ár-
unum 1889—1895 og skipaði sér þá
sess meðal öndvegis sagnfræðinga
bandarískra á sinni tíð.
Arið 1889 var hann skipaður yf-
irmaður „Civil Service Commis-
sion“, sem var lítilsmegandi fyrir-
tæki, en Teddi blés lífi í starfsem-
ina og þegar hann lét af starfan-
um sex árum síðar var „Civil Ser-
vice Commission" orðið að mikil-
vægri stofnun í Bandaríkjunum.
Árið 1895 gerðist Roosevelt lög-
reglustjóri í New York. Hann að-
lagaði lögregluna nýja tímanum,
Hin vaska sveit sjálfboðaliða í spænsk-ameríska stríðinu, „The Rough Riders“.
í New York fyrir Repúblikana-
flokkinn. Þetta var árið 1881 og þá JSkOb F.
var Teddi einungis 23ja ára gam- ÁonoireefM*
all. Hann vakti snemma athygli á ASJöllSSOII
sér á þingi, sérílagi fyrir heilindi tók saman
sín í baráttu gegn spillingu innan
Repúblikanaflokksins. En árið
1884 varð hann fyrir þungu áfalli.
Kona hans, Alice, og Marta móðir
hans létust með stuttu millibili.
Þessi dauðsföll fengu svo á Roose-
velt að hann dró sig um skeið útúr
stjórnmálum og gaf sig að búskap
og fræðistörfum.
Hann kom sér upp búgarði í
Dakóta sem hann nefndi Elkhorn.
Þar vann hann jafnan 14—16
stundir á sólarhring við búskap-
inn, en gaf sér samt tóm til rit-
starfa. Um tíma hugleiddi hann
jafnvel að hætta alfarið afskiptum
af stjórnmálum og helga líf sitt
Þáttur afþeim furðulega
manni, Theodore Roosevelt,
yngsta forseta Bandaríkjanna