Morgunblaðið - 30.05.1982, Side 26
74
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. MAÍ1982
íþróttamaðurinn í Harvard-háskóla, búinn að rífa sig uppúr aumingja-
dóm æskuáranna.
manns. Ég bið aðeins um það, sem
Roosevelt hefir beðið um sjálfur,
að honum sé leyft að koma fram á
vígvöllinn með sjálfboðaliðs her-
deild. Hann hefir verið forseti
Bandaríkjanna, og einn helzti og
snjallasti meistarinn í tilrauna-
verksmiðju þeirri, sem mestum
frægðarljóma bregður yfir nútíð
ykkar og framtíð. Þér getur ekki
verið móðgun í því, herra forseti,
að nöfn ykkar verði sameinuð í
sálum okkar — og framtíðarinnar.
Hermennirnir okkar trúa á snilld-
ar leiðtogahæfileika hans; nær-
vera Roosevelts mundi veita þeim
nýjan fögnuð og þrótt. Kitchener
hafði þannig löguð áhrif. Málefni
mannkynsins, sem er einnig þitt
málefni, krefst þess, að þú fram-
kvæmir áhrifamesta kraftaverkið,
sem þú hefir vald til þess að gera,
fyrir hina þjökuðu hermenn, til
þess að gleðja þá. Þegar fyrsta
herdeildin ykkar kom fram á víg-
völlinn, vakti það innilegan fögn-
uð meðal hersveita okkar. En dát-
arnir spurðu: „Hvar er Teddy
Roosevelt?" Það var töfranafnið
„Teddi", sem við fundum að skap-
aði þeim þrek og þrótt."
Theodore Roosevelt tók mikinn
þátt í pólitísku lífi Banda-
ríkjanna síðustu árin í lífi sínu.
Hann var alltaf á oddinum, en þó
ekki frambjóðandi Repúblikana-
flokksins í kosningunum 1916.
Theodore Roosevelt, 26ti forseti
Bandaríkja Norður-Amríku, lést í
svefni þann 6ta janúar 1919 á
frægu heimili sínu í Sagamore
Hill.
Er þá lokið stuttri samantekt
um mikinn mann, sem var barn
síns tíma. Eins og oft vill verða
um mikla afkastamenn er mis-
jafnt um langlífi verka þeirra.
Theodore Roosevelts verður
minnst sem undraverðs gáfu- og
afkastamanns, fremur en að hann
hafi skilið eftir sig mikil spor í
sögunni — og persónan Teddi mun
Kosningarnar 1912 — Taft og Roosevelt slást uppá líf og dauða, en iifa.
Wilson fylgist rólegur með. J.F.Á.
Vönduð y
SUMARHUS
með mörgum valkostum
flexpksn
-húsin
Sumarhús okkar thna
Ji^SKJÓLBÆRSF.
Borgartúni 29
Sími29393
Nú á dögum gerum við
meiri kröfur til sumarbú-
staða en áður tíðkaðist. Við
erum farin að tala um
SUMARHÚS og eigum þá við
vönduð, falleg og vistleg
hús sem nota má í fristund-
um bæði sumar og vetur.
Við viljum að þau falli vel inn
í umhverfið og innrétting
og allur búnaður á að vera
haganlegur og eiga sinn
þátt í að gefa notendum
góðar frístundir saman.
Með samstarfi íslenskra og
danskra aðila hefur tekist
að uppfylla þessar kröfur
og aðrar að auki FLEXPLAN
- sumarhúsið er byggt á
einingakerfi sem býður
marga valkosti um stærð,
innréttingu, liti, fyrirkomu-
lag glugga og hurða og það
sem hver og einn kýs að
fýlgi húsinu (útihús, bílskýli,
kamina sérhannað útigrill,
útipallur, torfþak ofl.)
FLEXPLAN sumarhúsin eru
auðveld í uppsetningu og
gefa þannig kaupandanum
kost á hollri og skemmti-
legri tómstundarvinnu.
Skýrar leiðbeiningar fýlgja.
Aukþesserhægtaðfáhús- §
in uppsett og tilbúin til J
notkunar - jafnvel borð- sl
búnaður og sængur-
fatnaður geta fylgt húsun- M
um.
Flexplan sumarhúsin eru nýstárleg og vönduð. Pau voru
kosin sumarhús ársins af tímaritinu Bo Bedre 1976. Flex-
plan sumarhúsin eru hönnuð af arkitektunum Torben Rix
og Leif Jensen, m.a.a. sem hlotið hafa margs konar viður-
kenningu. Mikil sala víða um heim og hagkvæmni í fram-
leiðslunni gerir verðið einkar sanngjarnt.
Auk allrar venjulegrar fyrirgreiðslu önnumst við útvegun
sumarbústaðalands - og getum nú þegar boðið land í
fögru umhverfi við Svínavatn í Vatnaskógi. Afgreiðslu-
frestur á húsunum er tveir mánuðir og til uppsetningar
má áætla hálfan mánuð.
i KaupnioniMihöfvi
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI