Morgunblaðið - 10.06.1982, Síða 17
17
verða of háður kennaranum.
Kennarans er að hjálpa honum til
þessa, en ekki að búa til myndirn-
ar fyrir nemandann. En svo verða
nemendur líka að gæta sín á því í
viðleitni sinni við að skipta sér af
málefnum skólans, að skyld alda
gekk yfir Evrópu í lok sjötta ára-
tugarins og fram eftir þeim
sjöunda með þeim afleiðingum, að
flestir listaháskólar fóru í rúst og
náðu sér ekki upp fyrr en mörgum
árum síðar. Farsælla væri áreið-
anlega að hagnýta sér þá reynslu
en að detta í sama pyttinn með því
að ganga í gegnum það sama öll-
um til leiðinda og skaða. Allar
skoðanir eiga að vera jafn rétthá-
ar innan skólans og pólitískar
skoðanir eiga ekki að blandast
starfsemi hans. Okkar hlutverk er
einungis að miðla fróðleik, lífs-
reynslu og þekkingu en nemenda
sjálfra er svo að mynda sér skoð-
anir á lífi og list.
Þá skal vikið að stöðu kennar-
anna við skólann, en þeir hafa ver-
ið vanræktir alla tíð. Þeir hafa
hvergi haft afdrep innan skólans í
allri sögu hans nema í ófullkomn-
um kennarastofum og meira að
segja hefur þeim verið gefið í
skyn, að þeir megi vera þakklátir
fyrir það(!). Þá eru þeir undirborg-
aðir miðað við menntun sína og
tekur t.d. stigakerfið lítið tillit til
listháskólamenntunar erlendis og
hræddur er ég um að sumir
myndu sprengja stigakerfið, væri
það gert. Þá njóta þeir sín ekki til
fulls við kennslu vegna of margra
nemenda og úrelts annakerfis.
Hér vil ég sérstaklega vísa til og
minna á, að enginn listaskóli er-
lendis sem vandur er að virðingu
sinni, myndi ráða til sín kennara,
sem ekki eru um leið virkir í list
sinni samfara kennslu og telja sig
í raun skylduga til þess að stuðla
beinlínis að því. Þannig nýtur við-
komandi listamaður sín betur í
kennslu og er færari um að miðlá
nemendum stöðugt af reynslu
sinni.
í ljósi þessa er kennsluformið í
þessum skóla næsta fjandsamlegt
skapandi einstaklingum og frysti
athafnasemi þeirra. Hér er það
manngildið, sem er mikilvægast,
og víst er, að bæði kennarar og
nemendur þarfnast hverjir ann-
arra í vinnu sinni til að skapa góð-
an skóla. Ábyrgð kennara gagn-
vart einstökum deildum þarf að
vera meiri og hann ráðinn til fjög-
urra ára í senn til að byggja hana
upp. Ef aðstaða kennara batnar og
þeir verða færari um að njóta sín í
starfi, batnar einnig aðstaða nem-
enda. Og hér skal það koma fram,
að kennsla í listaskólum er ekki
venjuleg kennsla, svo sem fólk
skilur hana, heldur miðlun lífs-
reynslu, skapandi kennda og þekk-
ingar. Hér er ekki hægt að fara
eftir bókum einvörðungu.
— Það má vera til umhugsunar,
að er núverandi skólastjóri, Einar
Hákonarson, var valinn í embætt-
ið fyrir fjórum árum, var það í
fyrsta skipti í allri sögu skólans
eftir að hann fékk ný lög að skóla-
stjóri var valinn á eðlilegan og
lýðræðislegan hátt, — svo sem
gerist erlendis og án íhlutunar
fráfarandi skólastjóra. Megi slíkt
verða Afram og megi ábyrgðin á
innri stjórnun skólans flytjast á
fleiri herðar innan hans, því að
þetta eru í raun margir skólar.
Merkilegt hve þessum fyrsta
lýðræðislega kjörna skólastjóra
var margt gert erfitt í starfi og
hér má koma fram, að starfið er
svo erfitt í núverandi formi, að svo
virðist sem síðustu skólastjórar
hafi horfið á braut sem tauga-
hrúgur, kalnir á sál og hjarta.
Er ekki kominn tími til að hér
verði breyting á og nýjum mark-
vissum lögum og reglugerð hraðað
ásamt því að skólinn fái sérhann-
að húsnæði?
— Að síðustu er ástæða til að
vísa til og minna á, að hið mikla
og óeigingjarna starf til uppbygg-
ingar, sem innt hefur verið af
hendi í 43 ára sögu skólans, væri
mögulegt að rífa niður á skömm-
um tíma ef ekki er aðgát höfð. En
slíkt má ekki verða, því að þetta er
alltof mikilvæg stofnun fyrir ís-
lenzkt skólakerfi og íslenzka þjóð.
MORGUNBLAÐIO, FLMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982
Útivist:
Ferðir um
helgina
HÁPUNKTUR þessarar ferðahelgar
hjá Útivist er svokallaður Útivistar-
dagur fjölskyldunnar, einn af þrem-
ur slíkum á þessu ári. Er tilvalið
fvrir alla fjölskylduna að vera með.
Útivistardagurinn er á sunnudaginn
og er um tvær ferðir að ræða sem
sameinast undir lokin í gamalli fjár-
rétt undir Húsmúlanum hjá Hengli.
Þar verður haldin pylsuveisla, sung-
ið og jafnvel farið í leiki.
Farnar verða tvær gönguferðir.
Sú fyrri er lengri og hefst kl. 10.30
og er gengið á Skálafell á Hellis-
heiði. Af Skálafelli verður svo
gengið um Hellisskarð að Drauga-
tjörn. Kl. 13 er styttri og léttari
ganga, um 6—7 km, bæði á jafn-
sléttu og undan fæti. Þá verður
fylgt hluta af gömlu vörðuðu leið-
inni yfir Hellisheiði. Aðalfarar-
stjóri verður Jón I. Bjarnason.
Brottför er frá Umferðarmið-
stöðinni að vestanverðu. Á sunnu-
daginn verður einnig dagsferð í
Þórsmörk og er brottför kl. 8.00. Á
föstudagskvöldið 11. júní eru tvær
helgarferðir. Farið verður í
Þórsmörk og gist í nýja Útivist-
arskálanum í Básum. Einnig verð-
ur ferð á Hekluslóðir (Hekla eða
Krakatindur) ásamt Þjórsárdal.
Safnaðarferð
Laugarnessóknar
NÆSTKOMANDI sunnudag, 13.
júní, efnir sóknarnefnd Laugar-
nessóknar til safnaðarferðar. Farið
verður frá Laugarneskirkju kl. 9.30
og ekið austur fyrir fjall sem leið
liggur í Þykkvabæ.
Þar tekur safnaðarfólk á móti
hópnum og býður heitt kaffi í
skólahúsi staðarins. Er því nóg að
taka með sér nestisbita til hádeg-
isverðar. Kl. 14.00 tekur hópurinn
þátt í messu hjá sóknarprestinum
sr. Auði Eir, en að henni lokinni
verður haldið að Hvolsvelli. Þar
gefst hópnum kostur á að kaupa
sér síðdegiskaffi. Áður en lagt
verður af stað heim á leið verður
ekið að sögustaðnum Odda.
Ferðamálaráðstefn-
an 1982 verður
haldin á ísafirði
SAMKVÆMT lögum um skipulag
ferðamála hefur Fcrðamálaráð ís-
lands ákveðið að halda ferðamála-
ráðstefnuna 1982 á ísafirði. Ráð-
stefnan verður sett föstudaginn 27.
ágúst kl. 10 f.h., og verður lokið sið-
degis á laugardag, 28. ágúst.
Ferðamálaráðstefnan 1982 verð-
ur auglýst síðar í fjölmiðlum og
getið um fyrirkomulag og dagskrá.
Ferðamálaráðstefnan 1982 er opin
öllum sem áhuga hafa á ferðamál-
um og ferðaþjónustu.
Leiðrétting
í síðasta fimmtudagsblaði Morg-
unblaðsins var greint frá því í
myndatexta með landsliðinu í
knattspyrnu, að Kinar Gíslason
sjúkraþjálfari færi utan með lands-
liðinu í knattspyrnu. En það mun
ekki rétt vera. Einar er íþróttakenn-
ari, en hefur ekki réttindi sem
sjúkraþjálfari. Leiðréttist það hér
með.
Okkur
tókst það
Með hagstæðum innkaupum
getum við boðið þér
ótrúlegt verð
og 3ja ára ábyrgö
Jolly er bólstraö í úrvals krónusútað nautaleöur og meö form-
steypta gúmmípúöa í sætum.
Horn 283x228 kr. 14.785
3+2+1 sófasett kr. 16.770
3+2+1 sófasett kr. 14.785
Leðurlitir: Dökkbrúnt, rautt, gulbrúnt, grænt, rauöbrúnt.
Við skulum ekki vera í neinum vafa um það að
hvergi er hægt að gera betri kaup í leöursófasetti
í dag.
HÚSGAGNAHÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVÍK SÍMAR: 91-81199 -81410
Opið til kl. 7 á föstudag og hádegis á laugardag.