Morgunblaðið - 10.06.1982, Side 22

Morgunblaðið - 10.06.1982, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982 Annar kafbátur undan Svíþjóð? Frá GuAHnnu Kagnarsdóttur, fréttaritara Mbl. í Stokkhólmi, 9. júní. ELTINGARLEIKURINN við útlenda kafbátinn heldur áfram í Svíþjóð í dag. í gær kastaði þyrla frá hernum niður tveimur djúpsprengjum í nánd við kafbát yst í skerjagarðinum utan við Stokkhólm. Nú spyrja menn sig hvort þetta sé sami kafbátur og verið er að eltast við í Helsingjabotni þar sem herflugvélar, þyrlur og herskip hafa staðið á verði frá því sl. föstudag, eða hvort hér sé um að ræða nýjan kafbát sem sendur hefur verið inn í sænska landhelgi til að draga athyglina frá kafbátnum í Helsingjabotni, sem ætlað er að sé innilokaður af sænska hernum og landhelgisgæslunni. Þegar þyrla frá hernum varð vör við kafbátinn sem lá kyrr á botninum utan við skerjagarð- inn norðan við Stokkhólm skaut hún aðvörunarskotum en kaf- báturinn hreyfði sig hvergi. Þá var kastað niður tveimur djúpsprengjum með fimmtán minútna millibili og við það kom skriður á kafbátinn. Hann stefndi beint til austurs og sænsku þyrlurnar fylgdust með honum nokkra stund áður en hann hvarf. „Það er ekki gott að segja hvort þetta er sami kafbátur- inn,“ segir Emil Svensson, kafb- átasérfræðingur sjóhersins. „Tímans vegna gæti það verið sami kafbátur. Þeir sigla að meðaltali með fjögurra hnúta hraða. Hvaða erindi kafbáturinn á inn í sænska landhelgi er ekki gott að segja," heldur Emil Svensson áfram. „Trúlega er markmiðið hjá viðkomandi landi að æfa sig i að sigla um sænska skerjagarðinn og athuga hvar best er að koma fyrir kafbát sem getur skotið fjarstýrðum eld- flaugum." „Eystrasaltið er mjög erfitt yfirferðar fyrir kafbáta," segir herforingi sjóhersins, Per Rud- berg, „og við vitum að það er æfingastaður bæði fyrir austur og vestur. í Eystrasaltinu eru að jafnaði 12 sænskir kafbátar, 30 kafbátar frá NATO-löndunum, 22 frá Sovétríkjunum og 2 frá Póllandi." En leitin að óþekkta kafbátn- um heldur nú áfram af fullum krafti bæði í Helsingjabotni og á Álandshafi milli Stokkhólms og Álandseyja. Kafbáturinn getur leynst í kafi lengi enn, en að jafnaði þarf hann að koma upp á yfirborðið með efsta hlutann einu sinni í viku til að hlaða rafgeymana. Á hverri eyju og á hverju skeri við hinar þröngu neðansjávar- leiðir í Helsingjabotni bíða nú leitarmenn með kíka og þyrlur, herflugvélar og skip sveima stöðugt yfir svæðið. ands“ látinn Kaliforníu, 9. júní. AP. HENNING Dahl Mikkelsen, danski teiknimyndahöfundurinn sem skóp hinn fræga Ferdinand, lést sl. föstu- dag af hjartaslagi, 67 ára gamall. Mikkelsen teiknaði Ferdinand allt frá árinu 1937 þar til fyrir 12 árum að annar listamaður tók við af honum. Mikkelsen gerði fleira en að teikna Ferdinand, m.a. birtu dönsk blöð á stríðsárunum eftir hann teiknimyndaröð byggða á norrænni goðafræði. En ekkert af hugarfóstrum hans náði viðlíka vinsældum og Ferdinand; litli þög- uli miðaldra maðurinn með hatt- inn á kringlótta höfðinu, sem birt- ist í blöðum vítt og breitt um heiminn. I „Alfræðibókinni um teiknimyndaséríur" segir að í „Ferdinand" mætist evrópskar og amerískar hugmyndir og vinsæld- ir hans stafi af því að höfundur leggi áherslu á smáatriðin í hversdagsleikanum, sem höfði jafnt til allra. Áður en hann hóf að teikna Ferdinand, starfaði Mikkelsen við kvikmyndir og teiknaði dýra- myndir, m.a. í Englandi. Hann flutti til Bandaríkjanna eftir seinni heimsstyrjöldina og gerðist bandarískur ríkisborgari árið 1954. Falklandseyjar HaUrófa argentínskra stríðsfanga á göngu hji Goose Green. Aðeins einn brezkur hermaður gætir fanganna. Sjö argentínskum flugvélum grandað London, 9.júní. AP. Sjö Skyhawk- og Mirage-flugvélar Argentínumanna voru skotnar niður þegar þær gerðu tvær loftárásir á skip brezka leiðangursflotans undan Falklandseyjum á þriðjudaginn og brezka freigátan „Plymouth" og tvö landgönguskip löskuðust að sögn talsmanns brezka landvarnarráðuneytis- ins, Ian MacDonald. A.m.k. fjórar aðrar argentínsk- ar flugvélar löskuðust og ekki var búizt við að þær næðu aftur til stöðva sinna á meginlandinu. Af argentínsku flugvélunum grönd- uðu Sea Harrier-þotur fjórum Mirage-flugvélum með Sidewind- er-eldflaugum, en skyttur flotans grönduðu þremur Skyhawk-flug- vélum. Árásirnar voru gerðar ná- lægt Bluff Clove, 21 km frá Stan- ley, skv. áreiðanlegum heimildum. Þar með hafa Argentínumenn misst 79 flugvélar, þar af sjö þyrl- ur. En að viðbættum flugvélum, sem talið er að hafi verið eytt ,á landi eða í loftbardögum, hafa Argentínumenn alls misst 93 flugvélar. Sagt er að brezkir hermenn hafi náð öruggri fótfestu í Bluff Clove og Fitzroy eftir þriggja daga leyniaðgerð. Þar með hefur hringnum um Stanley verið lokað, svo að þess er talið skammt að bíða að yfirmaður Breta, Jeremy Moore hershöfðingi, fyrirskipi al- gera árás á bæinn. Bretar höfðu búizt við loftárás- um Argentínumanna, en þær virð- ast hafa tafizt þar sem veður hef- ur verið slæmt, en nú fer það batnandi. Samkvæmt fyrstu frétt- um særðust fimm sjóliðar á „Ply- mouth", sem er 2.800 lestir. Sprengjubrot ollu tjóni umhverfis byssuturninn frammi á skipinu. Engan sakaði á landgönguskipun- um, „Sir Tristram" og „Sir Gala- had“, sem eru 3.270 lestir. „“Gala- had“ varð einnig fyrir tjóni í loft- árás 26. maí. Hvítasunnufólk fær enn Moskva, 9. júní. AP. YFIRVÖLD í Síberíu neituðu Vaschenko-fjölskyldunni enn einu sinni um leyfi til að flytjast úr landi og neituðu að taka til greina þá ráðstöfun hvítasunnusafnaðarins að afsala sér sovéskum ríkisborgara- rétti. Þetta kom fram skv. upplýsing- um frá nákomnum ættingjum þeirra sem búa nú í bandaríska sendiráð- inu. Yfirvöld í Siberíu segja þessa ákvörðun komna frá Moskvu, en þar er einnig tekið fram að enga þýðingu hafi fyrir fjölskylduna að sækja um leyfi til að flytjast úr landi á ný fyrr en Lubov Vasch- enko og þrír aðrir fjölskyldumeð- limir, sem nú búa innan veggja bandaríska sendiráðsins, snúi aft- ur til Síberíu. Vaschenko sagði að greinilegt væri að yfirvöld hefðu dregið að taka ákvörðun í þessu máli þangað 5 Pólverj- ar flýja til Svíþjóðar Malmö, 9. júní. AP. FIMM Pólverjar, þrennt fullorðið og tvö börn, flýðu til Svíþjóðar í dag á lítilli tveggja hreyfla tékkn- eskri flugvél og báðu um hæli sem flóttamenn. Sjötti maðurinn um borð óskaði eftir samtali við pólska ræðismanninn í Malmö og sagt var að hann vildi fara aftur til Pól- lands. Flóttamennirnir eru allir frá Stettin. Flugmaðurinn er 33 ára. Frá því herlög voru sett í Póllandi hafa 600 Pólverjar beðið um eða verið veitt hæii í Svíþjóð. afsvar til trúboðinn Billy Graham hefði snúið til baka úr ferð sinni til Sov- étríkjanna, en ferð hans lauk um miðjan síðasta mánuð. Þar heim- sótti hann hvítasunnufólkið í bandaríska sendiráðið og sagðist ekki hafa trú á öðru en mál þeirra leystist fljótt og farsællega. Hvítasunnufólkið, sem nú býr í sendiráðinu bandaríska, segist hafa leitað þar hælis í örvæntingu sinni, en sovésk yfirvöld hafa neit- að því um leyfi til að flytjast úr landi allt frá árinu 1962. Banna ber brjóst 6 Tropea, ÍUJíu, 9. júni. AP. YFIRVÖLD í ítalska baðstranda- bænum ('alabria hafa numið úr gildi reglugerð, sem leyfði konum að sóla sig „topplausar" við strend- ur bæjarins, „með þvi skilyrði að þær væru fallegar". I reglugerðinni var lagt blátt bann við því að konur „sem ekki hefðu til að bera hæfilega lík- amsfégurð", væru að myndast við að fækka fötum. „Þetta var að- eins meint sem hótfyndni," sagði borgarstjórinn í Calabria, Gius- eppe Romano, um reglugerðina, sem bæjarráðið samþykkti í maí sl. Reglugerðin vakti strax mót- mæli kvennasamtaka og ýmissa stjórnmálahópa, sem sögðu hana móðgun við konur, en við afnám hennar gengur aftur í gildi eldri samþykkt, sem bannar allt stripl á ströndum Calabria. Ekki fylgdi sögunni hvort til tals hefði komið að setja karlmönnum einhverjar fagurfræðilegar takmarkanir í klæðaburði. Bretar náðu Fitzroy eftir símtal þangað London, 9.júní. AP. BRETAR náðu aftur yfírráðum yfír byggðunum Fitzroy og Buff Clove á Falkiandseyjum eftir þriggja daga leynilegar aðgerðir, sem hófust með símhringingu, að sögn Robert Hutchinson, varnarmálafréttaritara brezku fréttastofunnar Press Association (PA). Honum segist m. a. svo frá: Brezkur varðflokkur í Swan Inlet komst að því fyrir nokkr- um dögum að símalínurnar það- an til Fitzroy, 24 km í norð- austri, væru enn í lagi. Tony Wilson hershöfðingi, yfirmaður 5. brezku fótgönguliðs-stór- deildarinnar, gekk inn í al- menningssímaklefa, stakk 50 pencum í símsalann og hringdi til Fitzroy, þar sem hann náði sambandi við þorpsbúann Reg Benney og spurði: „Eru Argarnir (Argentínu- menn) enn í Fitzroy?" Binney sagði: „Nei. Hvers vegna komið þið ekki til okkar?" Wilson sendi þá framvarðar- flokk, 80 km vegalengd, með þyrlu frá landgöngusvæðinu við Port San Carlos til Fitzroy. Þar sem lágskýjað var sást ekki til þyrlunnar frá eftirlitsstöðvum Argentínumanna. Síðan gerðu Falklendingar við skip úr eigu Falklandseyja- félagsins, „Monsunen", sem laskaðist þegar fallhlífaher- menn báru Argentínumenn ofurliði í Goose Green. Eyjar- skeggjar sigldu skipinu til Buff Clove með birgðir handa fram- varðarsveitinni, þrátt fyrir hættu á árásum argentínskra flugvéla. Næstu tvo til þrjá daga var flogið með hermenn frá Goose Green til eyjunnar Lively Is- land, suður af Choiseul-sundi, og þaðan voru þeir fluttir til Fitzroy með landgönguskipi. Alger leynd hvíldi yfir aðgerð- inni. Varðflokkar úr 7. Gurkha- rifflasveitinni þögguðu niðri í Argentínumönnum í eftirlits- stöðvum þeirra fyrir ofan Fitzroy og Buff Clove. Argentínumenn höfðu að nokkru leyti eyðilagt trébrúna við Fitzroy og brezkir verkfræð- ingar unnu að viðgerð hennar allan sólarhringinn. Brúin og lítið landgöngusvæði Breta við Buff Clove njóta nú verndar Rapier-loftvarnaeldflauga og á sama tíma halda brezkir her- menn áfram að sækja fram til Stanley á suðurvæng tangar- sóknarinnar þangað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.