Morgunblaðið - 10.06.1982, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ1982
|Heimsmeistarakeppnin í knattspymu
Guðmundnr Torfason er hér kominn á auðan sjó inni í vltateig Fortuna eftir aendingu frá Sverri Einarssyni. Og
Guðmundur vippar knettinum snyrtilega yfir markvörðinn sem sá ekki annað ráð en að hlaupa út úr markinu.
Ljósm. KÖE.
FRAM gerði sér Iftið fyrir og sigraði
vestur-þýska atvinnumannaliðið For-
tuna Dsseldorf 1—0 í vináttuleik lið-
anna á Laugardalsvellinum í gær-
kvöldi. Guðmundur Torfason skor-
aði sigurmarkið í fyrri hálfleik og er
óhætt að segja að sigurinn hafi verið
meira en sanngjarn, Framarar fengu
nokkur stórgóð marktækifæri, auk
þess sem þeir áttu góð skot utan af
velli. Leikmenn Fortuna virkuðu
áhugalitlir, þeir fengu nokkur sæmi-
leg færi, en færri og lakari en leik-
menn Fram.
Þetta var ekki átakaleikur, yfir-
leitt sniðgengu menn návígi,
reyndu fremur að ná samspili. Var
samleikur oft með ágætum hjá
báðum liðunum, en hins vegar bar
leikurinn keim af því að úrslit
hans höfðu enga þýðingu og á það
einkum við um þýska liðið. Fram-
arar höfðu hins vegar fullan hug á
að sigra og léku af mun meiri
ákveðni. Trausti Haraldsson og
Halldór Arason höfðu báðir átt
góð færi áður en Guðmundur
Torfason skoraði sigurmarkið á
29. mínútu. Fram fékk þá horn-
spyrnu hægra megin, en þýska
vörnin skallaði frá. Sverrir Ein-
arsson lyfti knettinum rakleiðis
til baka til Guðmundar Torfason-
Fram — Fortuna
1:0
ar sem lyfti honum snyrtilega yfir
þýska markvörðinn. Vörn Fortuna
sofnaði þarna hroðalega á verðin-
um.
Eftir þetta gekk á ýmsu, Atli
átti skalla í þverslá hjá Fram og
Pétur Ormslev átti hörkuskot sem
var varið. Hinu megin áttu Janus
Guðlaugsson, Lárus Grétarsson og
fleiri góð færi til þess að bæta
mörkum við fyrir Fram, en allt
kom fyrir ekki. Bestir hjá Fram
voru ungur markvörður að nafni
Friðrik Friðriksson og Janus Guð-
laugsson, sem var besti maðurinn
á vellinum. Enginn skaraði fram
úr hjá Fortuna. — gg.
Þór áfram
ÞÓR sló KS út úr bikarkeppni KSÍ í
gærkvöldi er liðin mættust á Akur-
eyri. Lokatölur leiksins urðu 2—1 og
skoruðu þeir Guðjón Guðmundsson
og Bjarni Sveinbjörnsson mörk
Þórs, en Óli A. Agnarsson svaraði
fyrir KS.
— segir Þórdís Gísladóttir,ÍR, sem varö bandarískur háskólameistari
Leiðrétting
í grein í Mbl. í gær um sjóskíða-
íþrótt á ísafirði segir í mynda-
texta með mynd af manni, sem er
að falla í sjóinn, að hans bíði ekk-
ert nema kaldur sjórinn í ísafirð-
inum. Kaupstaðurinn ísafjörður
stendur við Skutulsfjörð en ekki
ísafjörð. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
EINS OG fram hefur komið í frétt-
um sigraði Þórdís Gísladóttir frjáls-
íþróttakona úr ÍR í hástökki á
bandaríska háskólameistaramótinu
um helgina, og setti íslandsmet í
leiðinni, stökk 1,86 metra. Þetta er
gott afrek, því mótið er jafnan talið
til fimm mestu frjálsíþróttamóta
heims á ári hverju. Með þessum
árangri hefur Þórdís jafnframt náð
lágmarki fyrir Evrópumeistaramótið,
sem haldið verður í Aþenu í sept-
emberbyrjun. Morgunblaðsmenn
tóku Þórdísi tali er hún kom til
landsins með Flugleiðavél á þriðju-
dagsmorgun, en miklir fagnafundir
urðu á Keflavíkurflugvelli, þar sem
foreldrar, systir, ættingjar og vinir,
og framámenn í frjálsíþróttum fögn-
uðu henni við heimkomuna.
unni Susanne Lorentzon sigri, hún
var nýbúin að stökkva 1,89, og á
1,92 frá í fyrra. Hún þurfti þó
tvær tilraunir við bæði 1,80 og
1,83, og komst ekki yfir 1,86 fyrr
en í þeirri þriðju og hlaut þriðja
sætið. Phuys Blunston fór yfir 1,86
i annarri tilraun og varð önnur.
Mér finnst ég geta stokkið
hærra, og nú er bara að vona að
vel gangi í þeim mótum sem fram-
undan eru, Reykjavíkurleikunum
um miðjan júlí, Kalott-keppninni,
og fleiri mótum í útlöndum þar á
eftir," sagði Þórdís, sem er 21 árs.
Þess má að lokum geta, að Þór-
dís var eini íþróttamaðurinn frá
háskóla sínum, sem sigraði á mót-
inu, en skólinn varð í níunda sæti
í stigakeppninni, þremur stigum á
undan Texas-skólanum í Austin,
skóla þeirra Óskars Jakobssonar
ÍR, Odds Sigurðssonar KR og Ein-
ars Vilhjálmssonar UMSB, en þeir
kepptu allir á mótinu, og stóðu sig
með ágætum.
„Þetta gekk vel, fór alltaf yfir í
fyrstu tilraun. Og í fyrstu tilraun-
inni við 1,89 vantaði örlítið upp á
að ráin sæti eftir. En þá kom
skyndilega fellibylur, með miklu
skýfalli, svo fresta varð keppninni
og hýrðumst við í tjaldi á meðan.
Þegar tekið var við þráðinn að
nýju gengu málin ekki upp, hvorki
hjá mér né öðrum.
Það er rétt, það hafði ekki geng-
ið of vel í síðustu keppnunum fyrir
þetta mót, en mér fannst ég alltaf
eiga meira inni, og var staðráðin í
að standa mig á meistaramótinu.
Það höfðu allir spáð sænsku stúlk-
Þórdís Gísladóttir með foreldrnm slnnm, Gísla Kárasyni bílstjóra á BSR og
Sigríöi Jónatansdóttur, við komuna til Keflavíkurflugvallar.
Ljósm. Mbl. Kristján Einaræon.
NOKKRIR LEIKIR fóru fram I
bikarkeppni KSÍ í fyrrakvöld og
voru sum úrslit með óvæntara móti.
Til dæmis sigraði Víðir í Garði 2.
deildar lið Njarðvíkur 3—0 í Njarð-
vík. Talsverð harka var i ieiknum og
var einum af leikmönnum Njarðvík-
ur vikið af leikvelli undir lok fyrri
hálfleiks. Eina mark fyrri hálfleiks
skoraði Guðjón Guðmundsson úr
vítaspyrnu, en Guðjón og Björgvin
Björgvinsson bættu mörkum við í
síðari hálfleik, er Víðismenn léku
gegn sterkri golu. Úrslit leikja urðu
annars sem hér segir:
Njarðvík — Víðir 0—3
ÍK - FH 3-1
• Ólafur Petersen, 23 ára framherji
hjá ÍK, skoraði tvö mörk er lið hans
sló FH út í bikarkeppni KSÍ.
Reynir — Augnablik 2—0
Ármann — Grindavík 3—2
Víkingur Ól. — Þróttur R. 1—3
Grundarfjörður — UMFA 1—3
Huginn — Austri 3—2
Einherji — Þróttur N. 2—0
Tindastóll — Magni 5—1
Dagsbrún — Leiftur 1—5
Völsungur — Árroðinn 8—0
Sigur ÍK gegn FH kom ekki síð-
ur á óvart og sigur Víðis gegn
Njarðvík. Ólafur Pedersen (2) og
Bárður Guðmundsson skoruðu
mörk ÍK. Reykjavíkur-Þróttur
hélt áfram sigurgöngu sinni er lið-
ið sló Víking út úr keppninni. Vík-
ingur náði forystu í leiknum, en
Daði Harðarson og Júlíus Júlíus-
son (2) svöruðu fyrir höfuðborgar-
liðið og tryggðu því sigur.
a-tejCjxKS nsLÍLXndíKioN-v "tCklst
f=y&ie: €>Vctot
fcö rbáeSTA »CU= 6tA
BotJSvy c
óre-fcTt-J OE.OÖOAT StCOVZA. S
ptestl) . 1 uovcaaJ
oulm, EC&Teœn t-teiEei tu®.
OIS.OfccLJAT'AeL \jieöAt>T
-e.un<2ÍiPT s>eí.a5TAKa_efctA
KifSAVS •ajfAtvA. TJO
MAIUlsXJSSötOÍ KIO«CXJ>OÍ»T
'I ^fcSÚT. M
I-
ueiicjv
HZTA K\ t
, fc
tuiMCJWAiUL., VA
<^JST pt,
!)LgO£M
Fram vann Fortuna
Diisseldorf mjög
verðskuldað
Tel mig geta stokkið hærra
3. deildar liðin
komu á óvart