Morgunblaðið - 13.07.1982, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 13.07.1982, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ1982 18 feta seglbátur í erfiðleikum vegna veðurs við Garðskaga AÐKARANÓTT mánudagins lenti segl- háturinn Assa frá Kópavogi i erfiðleik- um, skammt innan vió GarAskagavita, en þá hafAi gert talsverAan sjó og veó- urhæA var orAin mikil. Seglháturinn hafAi rekiA af leiA vegna slæms skyggn- is og hófðu bátsverjar þvi samband við Slysavarnafélagið og báðu þá um að fylgjast með sér, ef þeir skyldu lenda í enn frekari vandræðum, þvi þeim fannst þeir komnir of nálægt Garð- skaga, en röstin þar getur verið hættu- leg. Skipstjórinn á Reykjaborginni RE 25, sem kom þarna að, ráðlagði þeim að fara inn i Sandgerði, og lóðsaði hann þá fyrir Garðskagann, en tók þá síðan i tog inn í Sandgerði, þar sem þeir náðu höfn á sjötta tímanum á mánudagsmorgun. „Það hefði getað farið verr ef við hefðum lent í vandræðum með að ná sambandi við menn, en slíkt hefur oft komið upp við slíkar aðstæður. Við erum með VHS-stöð og vorum þar af leiðandi í mjög góðu talstöðvarsam- bandi við Slysavarnafélagið og menn í Keflavík og Sangerði," sagði Ari Bergman, sem var ásamt félaga sín- um Jóhanni Hallvarðssyni á leið frá Arnarstapa til Reykjavíkur í 18 feta seglbát, er þeir lentu í erfiðleikum vegna veðurs. „Við lögðum mikla áherslu á að blotna ekki og þá sér- staklega að ofreyna ekki bátinn, en hann er mjög vel útbúinn öllum tækj- um og var það geysilegt öryggi fyrir okkur að vita, enda urðum við ekki hræddir og við slíkar kringumstæður eru menn skynsamir og breyta jafnan rétt. Við lögðum í hann klukkan átta á sunnudagsmorgun frá Arnarstapa og hefðum eftir öllum kringumstæðum átt að vera komnir til Reykjavíkur fyrir kvöldið, en við lentum í stillu sem varði til klukkan átta um kvöldið og komumst lítið áfram. Veðurspáin var nokkuð góð, suðaustan gola eða kaldi, þannig að við vorum nokkuð öruggir með okkur. Upp úr miðnætti fór hann að gera svolítinn sjó og ákv- áðum við því að komast undir Skip- askaga, en lentum of nálægt Mýrum og kusum því heldur að slá undan yfir á Reykjanesið og ná höfn í Vogum eða þá í Keflavík. Vegna slæms skyggnis rak okkur meir af leið en okkur grunaði, en þar sem við höfð- um góða miðunarstöð gátum við séð, að við vorum komnir of nálægt Garðskaga, þar sem röstin getur ver- ið hættuleg. Við reyndum þó eftir megni að þrauka á móti og feta okkur áleiðis til Keflavikur, en til öryggis höfðum við samband við Slysavarna- félagið og báðum þá að fylgjast með okkur. Skipstjórinn á Reykjaborginni kom þarna að og ráðlagði okkur að vera ekki að rembast þarna fyrir í Kefla- víkinni, því þar var orðinn slæmur sjór. Við sigldum eftir hans leiðsögn í gegnum röstina enda var sjólag það vont að það var útilokað að taka okkur í tog, en Reykjaborgin dró okkur síðan inn í Sandgerði, síðasta spölinn. Við vorum aldrei í neinni lífshættu. Þetta sýnir hversu mikil- vægt er að menn séu rétt útbúnir ör- yggistækjum, því enginn veit hvenær slíkar aðstæður geta komið uppv“ sagði Ari Bergman í samtali við Morgunblaðið í gær. Seglbáturinn Assa i Sandgerðis- höfn í gærmorgun. Ljósmynd Kax. ISUMARFERDALAGID og snjóinn næsta vetur SAAB99 Verð frákr. 160.600 SAAB900 Verð frá kr. 187.600 Nú er einmitt rétti tíminn til þess aö fá sér framhjóladrifinn bíl fyrir sumarferðalögin. Framhjóladrifiö eykur stórlega öryggi í akstri á vegum úti - og svo koma kostir þess enn betur í Ijós í snjónum næsta vetur - bíddu bara. Komdu og kynntu þér SAAB - þú getur verið komin á einn eftir viku TOGGURHR SAAB UMBOÐIÐ j BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530 |

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.