Morgunblaðið - 13.07.1982, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ1982
Samningar bankamanna runnu út 1. jýní:
Leggjum áherzlu
á tæknimálin og
atvinnulýðræði
— segir Vilhelm G. Kristinsson, frkvstj. SÍB
Kjarasamningar banka-
manna runnu út 1. júní sl., að
sögn Vilhelms G. Kristins-
sonar, framkvæmdastjóra
Sambands íslenzkra banka-
manna, en undanfarið hafa
farið fram viðræður sam-
bandsins og bankanna um
ýmis atriöi málsins.
—Á síðasta ári náðist lítið fram
af kröfugerðinni, þannig að á
heildina litið er kröfugerðin mjög
svipuð nú, við leggjum þó sérstaka
áherzlu á að ná inn einhverjum
samningaákvæðum varðandi
INNLENT
tæknivæðingu og atvinnulýðræði.
Þá eru launakröfurnar svipaðar
og í fyrra, en þá var það sett fram
sem viðmiðun að ná aftur kaup-
mættinum frá 1978—1979, sagði
Vilhelm G. Kristinsson ennfrem-
ur.
Aðspurður um hversu mikla
hækkun bankamenn þyrftu, ef
þeir ættu að ná umræddum kaup-
mætti, sagði Vilhelm að sú tala
lægi á bilinu 16—17%. — Það er
hins vegar ljóst, að menn verða
eitthvað að spila þetta eftir því,
sem verið hefur að gerast á hinum
almenna vinnumarkaði, sagði Vil-
helm ennfremur.
Vilhelm sagði, að nefndir
bankamanna og bankanna væru
að störfum, bæði um launakerfið
og um tæknimálin og atvinnulýð-
ræðið. — Við viljum því bíða
átekta og sjá hvað kemur út úr
þessum viðræðum, sagði Vilhelm.
Félagar í Sambandi íslenzkra
bankamanna eru um 2.400 talsins,
starfandi víðs vegar um landið.
Lóðum í Laugarási úthlutað eftir tvær vikur:
Umsækjendur
með 104 stig fá
að líkindum lóð
Dregið á milli umsækjenda með 96 stig
ÞKJÁTÍl! einbýlishúsalóðum í Laug-
arási sem auglýstar voru til úthlut-
unar í maímánuði sl., verður vænt-
anlega úthlutað eftir u.þ.b. tvær vik-
ur, samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Davíð
Oddssyni borgarstjóra í Reykjavik í
gær.
I samtali við Mbl. sagði Hjör-
ieifur Kvaran hjá borgarverk-
fræðingsembættinu í Reykjavík,
að úthlutað yrði 30 lóðum í Laug-
arási. Um 750 umsóknir bárust um
lóðir í Laugarási og Sogamýri,
flestar um Laugarás, en þeir sem
sóttu um lóðir í Sogamýri sóttu
flestir um Laugarás til vara, að
sögn Hjörleifs. Eins og kunnugt er
af fréttum hefur verið hætt við að
byggja í Sogamýri.
Hjörleifur taldi að um 650 um-
sóknir ættu við um Laugarásinn,
og þeir umsækjendur sem hafa
104 stig myndu að líkindum fá þar
lóð. Hins vegar yrði dregið á milli
þeirra umsækjenda sem hefðu 96
stig.
Lóðaumsækjendum var á dög-
unum gefinn kostur á að kynna
sér stigaútreikning lóðanefndar
og gera athugasemdir við hann og
sagði Hjörleifur að 14 umsækjend-
ur hefðu nýtt sér þann rétt. Af-
staða til athugasemdanna verður
tekin á borgarráðsfundi nk.
þriðjudag. Þá sagði Hjörleifur að
nokkrir aðilar hefðu farið fram á
úthlutun vegna sérstakra
ástæðna, en ekki hefði verið tekin
afstaða til þeirra umsókna.
Treysti mér ekki til að
mæla með auknum hraða
á malbikuðum vegum
— segir framkvæmdastjóri Umferðarráðs
„ALLAR þessar brautir eru með
eina akrein í hvora átt og á sambæri-
legum vegum eriendis er yfirleitt
ekki heimilaður meiri hámarkshraði
heldur en hér er, en þó er það til,“
sagði Óli H. Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs í sam-
tali við Mbl., en hann var spurður
um hvort eðlilegt teldist, hve lítill
munur væri á hámarkshraða á mis-
jöfnum malarvegum annars vegar og
malbikuðum akbrautum hins vegar.
Óli H. Þórðarson sagði að al-
mennur hámarkshraði úti á veg-
um landsins væri 70 km á klukku-
stund, en á sumum vegum væri 80
km hámarkshraði leyfður yfir
sumarmánuðina. „Þegar á heild-
ina er litið þá held ég að flestir
malarvegir úti á landi séu þannig,
að það sé í lagi að aka á þeim á 70
km hraða. Hins vegar gefa mal-
bikuðu vegirnir möguleika á meiri
hraða. Það má kannski segja að
það sé óeðlilegt að þarna sé ekki
meiri munur á, en það er ljóst að
þetta mál verður tekið upp innan
nokkura ára, en hvort það leiðir til
hraðaaukningar, um það skal ég
ekki segja," sagði Óli H. Þórðar-
son.
Óli H. Þórðarson sagðist ekki
treysta sér til þess að mæla með
auknum hámarkshraða á malbik-
uðum vegum að óbreyttu ástandi,
—þegar ein akrein væri í hvora
átt, það væri lykilatriði. Hins veg-
ar sagðist hann þeirrar skoðunar
að hækka mætti hámarkshraða á
akbrautum í Reykjavík, þar sem
tvær akreinar væru í hvora átt og
vegur lægi ekki alveg að byggð.
Hafsteinn Aðalsteinsson og Birgir V. Halldórsson á þessum glæsilega Ford Escort sigruðu í Húsavíkur-
rallinu. Taldi Birgir, eigandi bíisins, að rásfesta bílsins hefði hjálpað þeim mikið. Hér má sjá hve vel
bíllinn liggur i beygjum.
Húsavíkurrall:
Sex bílar af sextán
luku erfiðri keppni
AÐEINS sex bílum af sex-
tán er hófu keppni í Húsa-
víkurrallinu á laugardag-
inn komust í mark. Sigur-
vegarar urðu Hafsteinn
Aðalsteinsson og Birgir
Viðar Halldórsson á Ford
Escort 2000. í öðru sæti
urðu Óskar Ólafsson og
Árni Óli Friðriksson á
Ford Escort 2000. Þriðja
sæti náðu Ævar Hjartar-
son og Bergsveinn á Lada
1600, er árangur þeirra
sérlega lofsverður þar sem
þeir eru tiltölulega nýbyrj-
aðir að keppa í rallakstri.
Rallið hófst klukkan sex á
laugardagsmorgunn og stefndu
allmargir ökumenn á fyrsta sæt-
ið. Bilanir settu hins vegar stórt
strik í reikninginn. Fjórir bílar,
sem búist var við að berjast
mundu um toppsætin féllu úr
leik fyrir hádegi. Ómar og Jón
Ragnarssynir byrjuðu á að velta
Renault-bíl sínum á annari sér-
leið. Missti Ómar stjórn á hon-
um í hvarfi og velti bílnum heil-
hring og endaði á hliðinni. Var
honum komið á hjólin, en þeir
Ómar og Jón urðu síðan að
hætta keppni þegar gírkassinn
bilaði nokkru seinna. Birgir
Bragason og Óskar Gunnlaugs-
son á Skoda 130 RS duttu út þeg-
ar afturspyrna brotnaði í bíln-
um. Höfðu þeir þá náð besta
tíma á nokkrum sérleiðum. Egg-
ert Sveinbjörnsson kom mörgum
á óvart þegar hann náði forystu
í rallinu eftir að nokkrar sérleið-
ir höfðu verið eknar. Hafði hann
rúmlega mínútu forskot á keppi-
nautana, er öxull brotnaði í bil
hans. Fjórði toppbíllinn sem féll
úr keppni var Escort 2000 þeirra
Jóhanns Hlöðverssonar og
Magnúsar Arnarssonar. Kúpling
fór hjá þeim eftir að sjö sérleiðir
höfðu verið eknar. Eftir að þess-
ir kappar voru fallnir út áttu
Hafsteinn Aðalsteinsson og
Birgir V. Halldórsson tiltölulega
auðvelt með að halda forystu allt
til loka. En það gékk á ýmsu
þrátt fyrir það. Snemma um
morguninn veltu þeir félagar
Logi Einarsson og Gunnlaugur
Rögnvaldsson Escort sfnum.
Rann afturendi bílsins fram af
háum kanti og rúllaði á toppinn,
þar sem hann stöðvaðist. Eftir
að hafa velt bílnum við og bætt
olíu á vélina héldu þeir ótrauðir
áfram. Náðu þeir fjórða sæti,
þrátt fyrir veltuna og ýmsar
smábilanir er þá öngruðu.
Skrautlegasta atvikið í rallinu
var án efa vatnskassaþétting
þeirra kumpána, Matthíasar
Sverrissonar og Sigurjóns Harð-
arsonar, á Mitsubishi Celeste. Er
vatnskassinn hjá þeim fór að
leka illilega sóttu þeir kúamykju
inn á næsta tún og smurðu í göt-
in á vatnskassanum. Reyndist
þetta svo vel að í gríni ræddu
þeir um að sækja um einkaleyfi
á þessari aðferð við þéttingu á
vatnskössum. Ymsar smábilanir
töfðu Matthías og Sigurjón og
luku þeir keppni að lokum og
höfnuðu í fimmta sæti. Á eftir
þeim komu bræðurnir Auðunn
og Pálmi Þorsteinssynir á Es-
cort 1600. Bílarnir gerðu þeim
lífið einnig leitt og voru þeir
fegnir að komast í mark eftir
mikinn barning. Húsavíkurrallið
var mjög erfitt að þessu sinni og
reyndi mjög á ökumenn. Skipu-
lag var gott og almenn ánægja
var með keppnina. Eftir þetta
rall hafa Óskar Ólafsson og Árni
ÓIi Friðriksson forystu í ís-
landsmeistarakeppninni, en
næstir koma bræðurnir Ómar og
Jón Ragnarssynir og jafnir þeim
Hafsteinn Áðalsteinsson og
Birgir V. Halldórsson.
Þrátt fyrir þessa veltu og ýmsar bilanir tókst Loga Einarssyni og Gunnlaugi Rögnvaldssyni að halda
áfram keppni og ná fjórða sæti í „Morgunblaðsbílnum“, sem er Ford Escort.