Morgunblaðið - 13.07.1982, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982
Ólga í Bretlandi:
Hvernig komast óboðnir
á rúmstokk drottningar?
liondon, 12. júlí. Al*.
KKKITT á að vera að greina göt i
örvggiskerfi Buckingham-hallar en
þrátt fyrir það hefur það nú gerst
oftar en einu sinni að óboðnir gest-
ir eru á ferli þar innan dyra, nú
síðast á rúmstokki Elísabetar II
drottningar árla morguns á föstu-
dag.
Menn spyrja sig hvernig svona
nokkuð geti gerst þar sem á að
heita að öryggisverðir, lögregla
og starfsfólk sé á sveimi kring-
um drottningu og bústað hennar
allan sólarhringinn.
Aðhlátursefni varð yfirlýsing
William Whitelaws innanríkis-
ráðherra í dag er hann sagði að
gæsla umhverfis og inni í höll-
inni hefði verið bætt til muna á
undanförnum 18 mánuðum og
einum þingmanni varð að orði:
„Hvernig var hún þá áður?“
Komið hefur fram í allri þess-
ari umræðu, að maður þessi hef-
ur áður brotist inn í höllina, en
það var í síðasta mánuði er kom-
ið var að honum þar sem hann
hafði stoiið hálfri vínflösku þar
innan dyra, en hann mun ekki
hafa verið dæmdur vegna þess
máls.
Mönnum er létt er þeir hugsa
til þess hverjar afleiðingarnar
hefðu getað orðið ef um hefði
verið að ræða einbeittan hryðju-
verkamann en greinilegt er að
þar hefðu getað orðið meiri og
alvarlegri afleiðingar.
Whitelaw sagði að ríkissak-
sóknari væri nú að undirbúa
kæru á hendur hinum óboðna
gesti, en enn hefur ekki verið
gefið upp hvaða leið hann fór inn
í hpllina og hvernig hann komst
framhjá öllum öryggisvörðum,
Hér sést inngangur Buckinghamhallar, sem gætt er jafnt af lögreglu sem
öryggismyndavélum frá báðum hliðum.
þjónum og öðru, en ríkislög-
reglan mun nú vera að kanna
það mál til hlítar.
Elísabet II drottning mun ekki
hafa látið heimsóknina koma sér
úr janfvægi, en hún talaði við
manninn í rólegheitum á rúm-
stokknum þangað til hún sá sér
fært að kalla til þjón er gestur-
inn bað um sígarettu en hún
kvað ekki vera í herberginu.
Spádómar hafa verið á lofti í
dag, að Whitelaw innanríkis-
ráðherra verði neyddur til að
segja af sér vegna máls þessa, en
mikil ólga er nú meðal manna í
Bretlandi sökum þess og haft er
eftir dálkahöfundi Daily Ex-
press, Peter Mckay: „Ef drottn-
ingin getur ekki lengur sofið
óhult í sínu eigin rúmi án þess að
eiga á hættu að vakna með
óboðna gesti á rúmstokknum,
hvers er þá að vænta fyrir okkur
hin.“
Whitelaw kvaðst vera sleginn
yfir atburðinum og gerðar yrðu
miklar ráðstafanir til að auka
öryggi drottningarinnar og fjöl-
skyldu hennar. Atvikið mun
einnig verða rannsakað ofan í
kjölinn til að koma í veg fyrir að
svona nokkuð endurtaki sig.
Hann bætti við: „Augljóst er að
hér var um að ræða tæknileg
mistök, en þau voru einnig
mannleg.“
Ekki mun þó vera að sakast
eingöngu við lögregluyfirvöld,
þar sem komið hefur fram að
fjölskylda drottningar hefur
ekki verið hlynnt of mikilli ör-
yggisgæslu, eða öllu heldur
þeirri ímynd að birtast stöðugt
umvafin öryggisvörðum.
Ósló:
Ný sprengja finnst á
járnbrautarstöðinni
Örlítill galli í tímaverkinu olli því að hún sprakk ekki
Osló, 12. júlí. Krá frHlarilara Mbl.
Veður
víða um heim
Akureyri 13 rigning
Amaterdam 27 heióskírt
Aþena 30 heióskirt
Barcelona 28 mistur
Berlin 28 heióskfrt
Brilssel 28 heiðskfrt
Chicago 25 skýjað
Dyflinni 16 skýjaó
Feneyjar 28 jiokumóóa
Franklurt 32 heióskfrt
Genf 31 heióskfrt
Helsinki 25 heióskírt
Hong Kong 32 heióakírt
Jerúsalem 34 heióskfrt
Jóhannesarborg 17 heióskfrt
Kairó 33 heióekírt
Kaupmannahöfn 25 heióskfrt
Las Palmas 23 heióskfrt
Lissabon 24 helðskfrt
London 22 skýjaó
Los Angeles 30 heiðskírt
Madrid 32 heióskfrt
Malaga 33 lóttskýjaó
Mallorca 31 heióskírt
Mexikóborg 28 skýjað
Miami 30 skýjaó
Moskva 29 heióskirt
Nýja Deihi 42 sfcýjaó
New York 27 skýjaó
OSlÓ 23 skýjaó
Paris 32 skýjaó
Perth 20 heióekfrt
ísraelskir
njósnarar
inni á gafli
hjá PLO
latndon, 12. júlí. AP.
ÍSHAEI.IIM hcfur tekist að lauma
njósnurum sínum inn í rartir Palestínu-
manna, jafnt i pólitíska yfirstjórn PI.O,
frelsisfylkingar Palestínumanna, sem í
hernaóarlegu dcildina, aft því er segir í
The Timcs of London.
Fréttaritari blaðsins, Rober Fisk,
segir, að ísraelar hafi fengið ná-
kvæmar upplýsingar um allar hreyf-
ingar skæruliðanna og aðsetur
þeirra í Vestur-Beirut og sé það að
þakka einhverju „umfangsmesta
njósnaneti, sem um getur frá lokum
síðari heimsstyrjaldar".
The Times segir, að foringi í liði
skæruliða, sem „var í miklum met-
um hjá þeim“ og var oft málsvari
þeirra á fundum með erlendum
fréttamönnum, hafi skotið upp koll-
inum í Tyros eftir að ísraelar höfðu
lagt borgina undir sig. „Þegar
nokkrir ísraelskir herforingjar óku
til hans í jeppabifreið virtust þeir
bera kennsl á hann, því að þeir
handtóku hann ekki, eins og vænta
hefði mátt, heldur heilsuðu honum
að hermannasið," sagði í Times.
Times segir, að augljóst sé, að
ísraelar hafi fyrir löngu komið út-
sendurum sínum fyrir innan Frels-
isfylkingar Palestínumanna. Þeir
hafi t.d. alltaf vitað hvar Yasser
Arafat, leiðtogi skæruliðanna, hefur
verið niðurkominn hverju sinni og
ekki farið húsavillt í árásum sínum á
skrifstofur PLO.
Foran hefur komið sér fyrir t
skjóli við skorstein á þaki fangelsis-
ins u.þ.b. 18 metra frá jörðu, en þar
er lítið skjól gegn veðri og vindum
og að sögn eiginkonu hans, er heilsa
hans í alvarlegu ástandi. Hægt er
að ná sambandi við Foran með því
að klifra upp á skúrþak við
fangelsisgarðinn og kallast á við
hann og hann hefur útvarp sér til
afþreyingar. Hann er illa farinn á
höndum eftir að hafa hangiö á
þakrennam og .matarbirgðir hans
ÖFLIJG sprengja fannst sl. laug-
ardag á Austurjárnbrautarstöð-
inni í Osló og er af öllu Ijóst, að
þar hafa kunnáttumenn í
munu á þrotum. Fangelsisyfirvöld
ætla ekki að færa honum mat,
þrjóskist hann við á þakinu, en
kona hans segir að Foran búi yfir
miklum viljastyrk og muni ekki
hreyfa sig úr stað fyrr en innanrík-
isráðuneytið gengur að kröfum
hans um að ránsdómurinn verði
tekinn til endurskoðunar.
„Hann ætlar í hungur\-erkfall
fyrst hann fær hvort sem er ekki
mat,“ segir eiginkonan og bætir því
viö.að hún hafi áhyggjur af því að
sprengjugerð verið að verki.
Sprengjan fannst í farangurs-
geymslunni og hafði inni að
halda tvö kíló af dýnamíti, jafn
maður sinn kunni að detta niður af
þakinu, þótt hann sé afar varkár.
Frá innanríkisráðuneytinu ber-
ast þau boð að engin sönnunargögn
hafi komið fram sem réttlæti að
mál Forans verði tekið upp að nýju.
Foran, sem er 38 ára gamall
verkamaður, segir tvo rannsóknar-
lögreglumenn í Birmingham hafa
gert samsæri um að koma sér í
fangelsi og að sönnunargögn í ráns-
málunum hafi verið fölsuð.
„Ég stend með honum fram í
rauðan dauðann," segir eiginkona
hans og bætir því við að þau hlusti
oft á sömu útvarpsstöðina til þess
að geta dansað eftir sömu lögunum,
„til að halda honum í góðu skapi
jafnvel þó að la'ngt sé á milli
akkar."....,....................
öflug þeirri, sem 2. júlí sl. drap
unga konu, Elínu Stoltenberg
Dahl, og slasaði aðra ellefu.
Lögreglumönnum þykir ein-
sýnt, að sprengjunni hafi verið
komið fyrir á járnbrautarstöð-
inni áður en þeirri, sem
sprakk 2. júlí, en dálítill galli í
tímaverkinu olli því, að hún
sprakk ekki. „Hvor sprengjan
um sig hefði getað orðið
20—50 mönnum að fjörtjóni
og að aðeins einn skuli hafa
látist er ekkert annað en
kraftaverk," segir Nils G.
Skarning, sprengjusérfræð-
ingur lögreglunnar í Ósló.
Pakkinn með sprengjunni,
sem nú fannst, hafði upphaf-
lega verið í sama hólfi og sú,
sem sprakk, en hafði verið
fluttur til vegna þess, að leigu-
gjaldið hafði ekki verið greitt.
I tíu daga a.m.k. hafði því
klukkan tifað, oft innan um
fjölda ' manns, án þess að
kveikja í tundrinu. Talið er, að
þeim, sem kom sprengjunni
fyrir, hafi verið farið að leið-
ast biðin og því gert aðra
sprengju með þeim afleiðing-
um, sem fyrr er greint frá.
Sprengjurnar voru báðar
þannig gerðar, að tvö kíló af
dýnamíti voru sett í rörbút og
kvenúr notað til að koma
sprengingunni af stað. Sam-
bandsleysi í fyrri sprengjunni
olli því, að hún sprakk ekki, en
Skarning segir, að aðeins ör-
Htill hristingur hefði getað
komið sambandinu á og segist
ekkert skilja í, að hún skyldi
ekki springa þegar hún var
færð úr hólfinu. Skarning seg-
ir, að augljóslega sé um kunn-
áttumann að ræða og sprengj-
an ekki ólík þeim, sem alþjóð-
legir hryðjuverkamenn hafa
mestar mætur á.
Ekki er talið að sprengjun-
um hafi verið komið fyrir í
pólitísku skyni enda hefði
hryðjuverkamaðurinn þá trú-
lega komið boðskap sínum á
framfæri eða einhverjum
kröfum. Enn sem komið er er
því málið í höndum almennu
lögreglunnar en ekki
öryggislögreglunnar.
Fanginn á þakinu:
Stefnir í hungurverkfall
Notlingham, 12. júlí. Al\
FANGINN Martin Foran hefur nú hafist við á þaki Nottingham-fangelsisins í
39 daga og lýsir hann yfir að þar muni hann ótrauður áfram dvelja, þrátt fyrir
kulda og matarleysi, uns stjórnvöld láti fara fram rannsókn á órétti því sem
hann telur sig hafa verið beittan.
Foran hefur setið inni sl. fjögur ár, en hann var á sínum tíma dæmdur til að
afplána tíu ára dóm vegna þriggja rána, sem hann kveðst saklaus af.