Morgunblaðið - 13.07.1982, Síða 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ1982
Náttúruverndarráð:
Verðlaunaveitingum fyr-
ir seladráp verði hætt
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun frá Náttúru-
verndarráði varúandi greiðslu
verðlauna til örvunar selaveiAa, en
ályktun þessa sendi ráAiA forsæt-
isráAherra 7. júlí:
„NáttúruverndarráA beinir því
til ríkisstjórnarinnar, aA hún hlut-
ist til um, aA þegar verAi hætt
„verAlaunaveitingum til örvunar
selveiAa", sem hafnar eru á veg-
um hringormanefndar. Náttúru-
verndarráA telur aA þetta mál
þurfi aA athuga miklu betur eins
og nánar kemur fram í eftirfar-
andi greinargerA.
Greinargerd
Hrjngormanefnd, sem skipuð
er fulltrúum hagsmunaaðila í ís-
lenskum fiskiðnaði, en formaður
skipaður af sjávarútvegsráð-
herra, hefur ákveðið að hefja
greiðslu á verðlaúnum „til örv-
unar selveiða" eins og það er
orðað. Eru hér greinilega á ferð
aðgerðir til fækkunar sela, er
hafa að markmiði að draga úr
því mikla vandamáli, sem hring-
ormar í þorski eru hérlendis.
Telur hringormanefnd að selum
fari nú mjög fjölgandi h'ér við
land og að tíðni ormasýkinga í
þorski fari jafnframt vaxandi.
Atelja verður þau vinnubrögð
hringormanefndar, að hrinda
slíkum aðgerðum í framkvæmd,
án þess að leitað sé álits aðila og
stofnana, sem málið snertir,
eins og Hafrannsóknarstofnun-
ar og Náttúruverndarráðs.
Náttúruverndarráð vill lýsa
yfir alvarlegum áhyggjum sín-
um af því, að unnt skuli vera á
löglegan hátt að hefja aðgerðir
sem þessar, þar sem leitast er
við að draga úr stofnstærð
ákveðinna tegunda villtra dýra,
án þess að til þess þurfi sérstaka
heimild stjórnvalda. Vill ráðið
beina þeim eindregnu tilmælum
til ríkisstjórnarinnar, að hún
beiti sér fyrir setningu laga, er
tryggi að mál sem þetta fái eðli-
lega umfjöllun stjórnvalda.
An þess að fullyrða það leyfir
Náttúruverndarráð sér að draga
það mjög í efa að tímabært sé að
hefja aðgerðir til fækkunar sela
hér við land, og vill í því sam-
bandi benda á eftirfarandi atr-
iði:
(1) Margt er enn á huldu um
tengsl sela við hringormavanda-
málið, og tæpast er unnt að full-
yrða nokkuð um það hvaða áhrif
einhver fækkun sela hefði á
hringormasýkingu þorsks hér
við land. Rannsóknir á Bret-
landseyjum benda til einhverrar
samsvörunar milli tíðni orma-
sýkingar þorsks og fjölda útsela,
en þessi tengsl eru eflaust afar
flókin. Má í því sambandi minna
á það, að selir (einkum útselir)
eru mun fleiri við Bretlandseyj-
ar en við Island, en sýking
þorsks af völdum selorma er
samt miklu minni þar en hér.
(2) Breytingar á stofnstærð sela
hér við land eru lítt kunnar.
Selatalningar undanfarinn ára-
tug eru ekki það nákvæmar að
unnt sé á grundvelli þeirra að
fullyrða, að selum hafi fjölgað á
því tímabili.
(3) Leit að ormum í fiski er
miklum vandkvæðum háð, en öll
tækni við ormaleit hefur verið
stórbætt á undanförnum árum
og hefur leitt til þess að fleiri
ormar finnast nú en áður. Hins
vegar verður ekki séð að óyggj-
andi sannanir liggi fyrir um
aukningu á selormasýkingu
þorsks hér við land.
(4) Náttúruverndarráð vill
benda á, að illmögulegt eða
ókleift verður að meta niður-
stöður þessara tilrauna hring-
ormanefndar vegna skorts á
nægilega haldgóðri þekkingu,
t.d. hvað varðar núverandi
fjölda sela. Enn erfiðara yrði að
sjálfsögðu að meta áhrif hugs-
anlegrar fækkunar sela á
ormasýkingu þorsks.
Náttúruverndarráð bendir
einnig á, að þegar hefur komið í
ljós að verulegur hluti þeirra
sela, sem drepnir hafa verið
vegna hárra verðlauna, hefur
ekki skilað sér til frystihúsa
eins og til var ætlast. Ýmsir
hafa greinilega freistast til þess
að fjarlægja hægri neðri kjálka,
sem verðlaun eru greidd fyrir,
en láta síðan skrokkana liggja.
Við slíkt er að sjálfsögðu margt
að athuga, og skal t.d. minnst á
áhyggjur fuglafræðinga af því,
að ernir gætu mengast af grút
frá slíkum hræjum og drepist.
Jafnframt óttast Náttúruvernd-
arráð, að skotmenn muni víða
valda fólki óþægindum og hafa
truflandi áhrif á fuglalíf."
EF ÞAÐ ER
FRETTNÆMT
ÞA ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐENU
\k;iasim,\
SÍ.MINN KK:
22480
ÞórAur Valdimarsson tekur við sigurlaunum. Hann hefur nú örugga
forystu í íslandsmeistarakeppninni i rallycross.
Rallycross á Húsavík:
Þórður Valdimarsson
sigraði í fjórða skiptið
IHIRÐUR Valdimarsson sigraAi
rallycross-keppni, sem fram fór á
Ilúsavík á sunnudaginn. Ók hann
að venju VW-bifreið og sigraði
nokkuð örugglega.
í öðru sæti varð Birgir Þór
Bragason á Datsun 2000 eftir til-
þrifamikinn akstur. Hafði hann
hinsvegar ekki nægilega kraft-
mikinn bíl til þess að veita Þórði
verulega keppni. Fjöldi vel bú-
inna bíla tók þátt í keppninni og
er áhugi mikill á Húsavík fyrir
rally-crossi. Má telja að öku-
menn þaðan eigi eftir að standa
sig vel þegar fram líða stundir.
Hér er hart barist, Birgir Bragason reynir að þröngva bíl sinum framhjá
kcppinaut. Það tókst ekki fyrr en i næsta hring og reyndar í sömu beygju.
A HOIVTDA
Æcord
Vökvastýri
Útvarp/segulband/rafm.loftnet
Sóllúga/rafdrifin
Einnig fylgir m.a.:
• Litaöar rúöur Verö 1. júlí 1982
• Hiti, þurrka
afturrúðu
• Speglar stillanlegir
innan frá
• Snúningsmælir
• Klukka/dagatal
• Ásamt fleiru
Beinskiptur 5 gíra EX 155.000,-
Sjálfskiptur m/overdrive EXS
165.000.-
Honda á Islandi,
Suðurlandsbraut 20, sími 38772.
S
I