Morgunblaðið - 13.07.1982, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1982
35
Hermann Vernharð
Jósepsson — Minning
Fæddur 12. ágúst 1906
Dáinn 9. maí 1982
Það fækkar óðum aldamótafólk-
inu svokallaða. A nokkrum mán-
uðum þessa árs, höfum við orðið
að sjá á eftir, yfir móðuna miklu,
þremur bændum úr okkar fá-
mennu bændastétt hér í Skutuls-
firði.
Vernharður, en hann gekk undir
því nafni hér, andaðist í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á ísafirði eftir
sólarhrings legu 9. maí sl. Þetta
kom eins og reiðarslag á okkur,
því Vernharður var svo unglegur
og hress, í fullu starfi daglega.
Hann var fæddur í Fljótavík á
Hornströndum 12. ágúst 1906.
Foreldrar hans voru þau hjónin
Margrét Katrín Guðnadóttir og
Jósef Hermannsson ábúendur þar.
Þau hjón áttu 6 börn sem komust
á legg og var Vernharður þeirra
elstur. Hin voru Gunnar, Ásta,
Ingibjörg, Finnbogi, búsettur í
Hnífsdal, svo Sólveig og hálfsystir
þeirra Brynhildur Jósefsdóttir.
Þessi börn ólust upp við óblíð
náttúruskilyrði norður þar, vönd-
ust allri vinnu til lands og sjávar,
því sjórinn var þeirra hálfa líf.
Allir urðu að vinna sem kráftar
leyfðu til sjálfsbjargar heimilinu,
enda er það einkenni þessa fólks
að geta ekki verklaust verið. Þegar
Vernharður var 18 ára deyr móðir
hans af barnsburði. Hafði það
geysileg áhrif á heimilishaldið og
þótt Jósef tækist að halda heimil-
inu saman með hjálp barna sinna
og ráðskvenna, þá varð umhyggja
og álag á elstu börnin ennþá meiri.
Því þótt Vernharður væri létt-
lyndur og dagfarsprúður, fann ég
oft að viðkvæmir strengir voru
innra með honum. 27. nóvember
1929 urðu þáttaskil í lífi Vern-
harðs. Þá var mikill hamingjudag-
ur í lífi hans þegar hann kvæntist
Maríu Friðriksdóttur frá Látrum í
Aðalvík. María var mikil dugnað-
arkona meðan heilsan entist. Hún
stóð svo sannarlega við hlið
manns síns í blíðu og stríðu á
hverju sem valt með efnahag og
ástæður. Þau hófu búskap sinn í
Miðvík, bjuggu þar í tvö ár, flutt-
ust þá að Atlastöðum, þar sem þau
bjuggu í sex ár. Þaðan fóru þau að
Tungu og byggðu þar upp öll hús á
tíu árum. Þá festu þau kaup á ný-
býlinu á Atlastöðum, en þar höfðu
þau aðeins verið eitt ár, þegar þau
fluttust vestur í Hnífsdal. 16. júní
1946 var fámennið orðið það mikið
að ekki þótti ráðlegt að haldast við
þarna norðurfrá lengur, svo átt-
hagaböndin voru slitin og landið
fór til síns upphafs.
Vernharður og María eignuðust
átta börn sem öll fæddust fyrir
norðan, en þau urðu fyrir þeirri
sáru sorg að missa þrjú barna
sinna innan við sjö ára aldur, tvö
elstu börnin og sömuleiðis það
yngsta. Hin sem lifðu eru Þórunn,
Herborg, Bára, Sigrún og Jósef.
Afkomendur eru alls 49. María
átti dóttur, Helgu að nafni, áður
en hún giftist Vernharði og gekk
hann henni í föðurstað. Öll eru
börnin dugnaðar- og manndóms-
fólk. í Fljótavík var lifað á land-
inu eins og gert hafði verið um
aldaraðir og sjórinn sóttur vor og
haust eftir því sem fært var og allt
nýtt af aflanum til manneldis og
fóður fyrir búfé. Og þegar um var
að ræða vinnu sem selja mátti, var
ekki spurt að því hvort það væri
karlmanna- eða kvennaverk. Ég
hugsa að yngra fólk eigi þess eng-
an kost að gera sér grein fyrir því
hversu afskekkt þetta fólk bjó.
Vernharður var ekki maður raup-
samur en hann sagði mér margt
um harða lífsbaráttu sem þó var
gaman að glíma við. Hann var
póstur þeirra Fljótvíkinga um sjö
ára skeið. Svo kom það oft á hann,
svo léttur á fæti sem hann var, að
fara nauðsynjaferðir í skyndingu.
Var þá ekki alltaf spurt um færð
og veður. Hann sagði mér að einn
daginn hefði hann mátt fara tvær
ferðir til Hesteyrar eftir meðul
um. Þessi tíu ár sem þau bjuggu í
Tungu var símalaust. Aldrei segist
María hafa fundið til einmana-
kenndar eða hræðslu þótt hún
væri barnshafandi sem oft var og
erfitt að komast framfyrir Ósinn
sem var fell svo langt fram í dal-
inn og Vernharður oft að heiman
til sjálfsbjargar. „Þá breiddi ég
hvítt lak á hólinn ef autt var, ef ég
þurfti hjálp, taugastress og vol
ásóttu mig aldrei," sagði María og
hló. „Það var svo gaman að lifa og
vera sjálfbjarga á sínu heimili.“
Á haustin varð að reka sláturfé
til Hesteyrar til að koma því í bát
til ísafjarðar. En þrátt fyrir þetta
allt var mikill söknuður hjá mörg-
um að flytjast þaðan. Þegar til
Hnífsdals kom varð að lúta lægra
en lotið hafði verið fyrir norðan
því enginn var til að leysa út búin
og jarðirnar. Fyrst var flutt í
skemmu í Heimabæ þar til þau
keyptu hús og tún á Brekku IV í
Hnífsdal, sem þau endurbættu og
færðu í huggulegri stíl innan.
Fyrst vann Vernharður við sjó-
mennsku, sjö sumur vann hann
við vegalagningu á þeirri frægu
Óshlíð, sem talin var óferjandi á
allan hátt. En vegaverkstjóri
okkar þá, Charles Bjarnason, var
aldrei deigur í stórræðum, enda
má segja að jarðýtustjórinn,
Kristján Jónsson, kynni ekkert að
óttast. Samhliða þessari vinnu
náði Vernharður næstu árin í
jarðnæði, Heimabæ I, þar sem
hann hafði á annan áratug 10 kýr
og fjárbú, en alltaf gat Vernharð-
ur unnið með þessu í íshúsi og
greftrun nema blá sláttinn. Oft sló
hann með orfi í tvo tíma að
morgni áður en farið var í vinnu.
Magnús Hákonarson svili minn,
bóndi í Heimabæ, sem hafði unnið
í Noregi og víðar, sagði mér að
aldrei hefði hann kynnst meira
vinnuþreki hjá nokkrum manni
heldur en Vernharði Jósefssyni.
Vinnan var hans nautn og bónda
starfið. Heyforða átti hann alltaf
nægan.
A síðastliðnu sumri, 12. ágúst,
þegar Vernharður var 75 ára,
héldu þau hjón veglega veislu í
Samkomuhúsinu í Hnífsdal og
buðu ættingjum og vinum. Þá var
sungið, dansað og töluð hlýleg orð
til afmælisbarnsins. Þetta norð-
an-fólk kann að skemmta sér án
víns, enda átti það betur við
Vernharð. Við erum hverfulleik-
anum háð. „Dauðans fótmál fljótt
er stigið," segir í sálminum og satt
er það. Það verður að taka mót-
lætinu í hvaða mynd sem það birt-
ist. Það var líka gott að losna við
langa sjúkrahúsvist og ekki síst
fyrir slíkan eljumann. Hann átti
sína öruggu barnatrú á lífið eftir
dauðann. Og nú þegar hann er
kvaddur hinstu kveðju þá hrann-
ast upp í huga mér margar góðar
minningar. Með þakklátum huga
kveð ég vin minn, og við hjónin
vottum eftirlifandi konu hans,
börnum og öðrum aðstandendum
einlæga samúð.
Hjörtur Sturlaugsson
SENDffilLSTJORAR
Eigum íyrirliggjandi dekk
undir hinar ýmsu gerðir sendibila
HAGSTÆÐ VERÐ
PRISMA