Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 31

Morgunblaðið - 13.07.1982, Page 31
landið, ýmist langsum eða þvers- um. Síðasta langferðin hans var farin í mars sl. er við ásamt einum enn, gengum á skíðum frá Egils- stöðum í Fljótsdal og suður yfir Vatnajökul. Eins og gefur að skilja er margs að minnast frá 16 ára samstarfi í virkri björgun- arsveit og margar eru orðnar ferð- irnar sem við höfum farið saman bæði til æfinga og til þess að leita að týndu fólki. Það sem fyrst og fremst stendur eftir, eru minn- ingar um góðan dreng, sem oftast var léttur og kátur og vildi öllum gott gera. í skarð Steina málara er vand- fundinn maður sem getur og vill fórna eins miklum tíma í áhuga- mál sitt og hann gerði og sem um leið stuðlaði að eflingu björgun- arstarfs á íslandi. Ég flyt Þórunni, börnunum, ættingjum þeirra og vinum inni- legustu samúðarkveðjur og þakkir Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík. Ingvar F. Valdimarsson formaður FBS. „Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.“ (Tóma-s (>uðm.) Það er erfitt að eiga að festa á blað kveðjuorð um vin okkar Þorstein Guðbjörnsson, enda hafði okkur allra síst grunað, þeg- ar við kvöddumst sunnudags- kvöldið 4. júlí sl. að við værum að kveðja Steina í síðasta sinn, sól- arhring síðar yrði hann allur. Við vorum að koma úr velheppnaðri Þórsmerkurferð, ferð sem lengi hafði staðið til að yrði farin, því nú átti líka að taka börnin með og þá þótti sjálfsagt að fara í Þórs- mörk, þar höfðum við oft verið áð- ur saman og átt ógleymanlegar samverustundir. Þessi hópur kynntist fyrir um tuttugu árum og tengdist brátt sterkum vináttuböndum, sem aldrei hafa rofnað. Þetta var glað- vær hópur og áhugamálin mörg og þar á meðal ferðalög. Það voru margar ferðir farnar og á öllum árstímum og ekki alltaf farnar troðnar slóðir, en hópurinn var samhentur og glaðværð réði ríkj- um. Þetta voru ólgeymanlegir dagar, en svo kom að því, að flest okkar stofnuðu heimili og hópur- inn tvístraðist í bili, en þó rofnuðu böndin aldrei. Brátt myndaðist sú hefð, að við hittumst öll á hverju hausti og voru þá rifjaðar upp endurminningar frá þessum ógleymanlegu dögum og þá var Steini ekki hvað sist hrókur alls fagnaðar og kom öllum í gott skap. Það er því stórt skarð hoggið í okkar hóp og Steini mun aldrei gleymast. Hann var léttur í lund og kom til dyranna eins og hann var klæddur. Máltækið segir, að börn séu mannþekkjarar. Það sannast á Steina því að okkar börn eru ekki síður harmi slegin en við, hann virtist alltaf hafa tíma fyrir þau og til að tala við þau. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ1982 39 Þorsteinn kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Þórunni Jóns- dóttur 26. nóvember 1966. Þau hafa verið samhent og búið börn- um sínum gott heimili og Þórunn hefur alltaf verið manni sínum stoð og stytta. Við þökkum Steina samfylgd- ina. Þórunn og börnunum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Þeirra er missirinn mest- ur. Vinirnir úr Farfuglum Að kvöldi þess 5. júlí, gerðist sá válegi atburður, að Steini málari, vinur okkar fórst af slysförum, þar sem hann var við æfingar og kennslu í fallhlífarstökki. Steini hóf fyrst afskipti af fall- hlífarmálum fyrir um fimmtán árum og frá því hefur það verið hans helsta áhugamál. Má segja að nær allur hans frítími hafi snú- ist um fallhlífar. Hann leysti af hendi mikið og óeigingjarnt starf fyrir Fallhlífarklúbb Reykjavíkur, gegndi þar ýmsum trúnaðarstörf- um, m.a. var hann formaður um árabil og einnig eini kennarinn síðustu árin. Með fráfalli Steina er höggvið stórt skarð í okkar vina- hóp þar sem hann var hrókur alls fagnaðar og aðal driffjöðurin í fé- lagsstarfinu. Við munum ávallt minnast Steina með hlýhug og þakklæti fyrir þær stundir sem við áttum saman í starfi og leik. Við vottum Þórunni, konu hans, sem tók ávallt mikinn þátt í þessu áhugamáli hans, svo og börnum þeirra okkar innilegustu samúð. Félagar í Fallhlífarklúbbi Reykja- víkur. AMSTERDAM STORSPARNAÐUR ISOGUFERÐ TIL AMSTERDAM Flug og bíll í viku frá kr. 2.875.- Já — þetta er staðreynd þótt ótrúlegt sé. Hafiö samband viö skrifstofu okkar og fáið allar nánari upplýsingar. Feröaskrifstofan Laugavegi 66 101 ReykjaviK, Simi: 28653 óóir í sóliimi Pierre Robert LDB PRE SUN - til notkunar fyrstu sólardagana. Vöm gegn innfrarauðum og útfjólubláum geislum sólarinnar. Sólarvörn 3. LDB SUN LOTION - til notkun- ar eftir að húðin hefur tekið lit. Vörn gegn innfrarauðum og útfjólubláum geislum sólarinnar. Sóiarvöm 2. LDB AFTER SUN - til notkunar eftir sólbað. Rakagjafi sem kælir og mýkir. UMiíT/i . , <zMyneriótzci t Viltu hafa allt í rðð og reglu? í Elfakerfinu er hver hlutur á sínum stað. Elfakerfið er sérstaklega hannað til að fullnýta rými nánast hvar sem er í: eldhúsinu, baðherberginu, barna- og hjónaherbergjum, geymslunni og bílskúrnum, gömlum skápum sem nýjum. í Elfakerfinu má finna m.a.: hillur og grindur í skápa - fatahengi - skóstatív - uppþvottagrindur - ruslagrindur - blaðagrindur o.fl. o.fl. Hlutir í Elfakerfinu eru húðaðir með sterku og endingargóðu epoxyefni, sem flísast ekki auðveldlega, ryðgar hvorki né dregur í sig óhreinindi. Það er auðvelt að sjá og finna hlutina í Elfakerfinu, jafn- framt því að það er barnaleikur í uppsetningu og gefur endalausa möguleika. n ieHh Sænsk gæðavara, sem hentar þér. heiidversiun Marinó Pétursson SUNDABORG 7 124 REYKJAVIK SÍMI: 81044

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.