Morgunblaðið - 02.11.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982
3
AIISTUR
Safnaöarheimili
í Seljasókn?
mz3i
Umsókn um leyfi til byggingar safnaðarheimilis í Seljasókn í Breiðholti liggur nú fyrir byggingarnefnd borgarinnar. f ráði er að safnaðarheimilið rísi
við enda Hagasels, en meðfylgjandi teikning sýnir safnaðarheimilið.
Keflavík:
• •
Olvaður stal
bíl — endaði
á steinvegg
DRUKKINN sjómaður úr
Reykjavík stal bifreið fyrir
framan benzinstöð í Kefiavík á
fostudagskvöldið og hugðist
aka tii Reykjavíkur. Eigandi
bifreiðarinnar, leigu bí Istjórí,
hafði brugðið sér inn til þess að
greiða olíuna.
Félagar leigubílstjórans
veittu hinum drukkna sjó-
manni eftirför og endaði eftir-
förin í Njarðvíkum — þar ók
sjómaðurinn á ljósastaur og
hafnaði á steinvegg. Bifreiðin,
sem er nýleg Oldsmobile dies-
elbifreið, er mikið skemmd.
Óvenju mikið hefur verið um uglur hér á landi að undanförnu og er talið að
þær hafi komið frá Skandinavíu. Nokkrar þeirra hafa verið færðar til Nátt-
úrufræðistofnunar til rannsóknar og fitunar áður en þeim er sleppt. Hér er
Ævar Petersen með tvo slíka gesti frá Vestfjörðum og er ekki annað að sjá,
en þeir séu hinir spökustu. Ljósm. Mbi. Emiiia.
Óvenjumikið af
uglu á landinu
Líklega flækingar frá Skandinavíu
segir Ævar Petersen fuglafræðingur
ÓVENJUMIKIÐ hefur sézt af
branduglu og flækingsfuglum
frá Skandinavíu hér undanfar-
inn hálfan mánuð. Brandugla er
eina uglutegundin, sem verpir
hér á landi, en áður verpti snæ-
ugla einnig hér á landi, en ekki
hefur fundizt snæugluhreiður
hér síðastliðin 25 ár.
Að sögn Ævars Petersen fugla-
fræðings eru nokkur hundrað
branduglur hér á landi að stað-
aldri. Heldur hún sig aðallega í
móum og mýrlendi og er strjáll
varpfugl um land allt. Brandugl-
Hvatarfund-
ur um stjórn-
málastöðuna
í KVÖLD verður haldinn félags-
fundur í Valhöll, kl. 8.30, um stöð-
una í íslenskum stjórnmálum.
Ræðumenn verða Friðrik Soph-
usson, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, og Salóme Þorkelsdótt-
ir, alþingismaður.
an er ránfugl, sem mest lifir á
músum og smáum fuglum.
Þá gat Ævar þess, að varðandi
þær branduglur, sem hér hefðu
sézt undanfarinn hálfan mánuð,
væri annað á ferðinni. Líklegt
væri að þetta væru alls ekki ís-
lenzkar branduglur heldur væru
þær komnar frá Skandinavíu.
Astæða þess væri sú, að síðastlið-
inn hálfan mánuð hefði austanátt
verið ríkjandi og þá hefðu byrjað
að sjást hér margir torkennilegir
flækingsfuglar frá Evrópu svo og
branduglur. Á þessum tíma hefði
Náttúrufræðistofnun verið til-
kynnt um 15 branduglur, sem
aðallega hefðu sezt á skip víða
um landið. Það væri mjög óvenju-
legt og ekki væri vitað til svo
mikillar uglugengdar áður.
Gat Ævar þess að nokkuð hefði
verið um uglur hjá stofnuninni og
væru þær oftast illa haldnar og
magrar. Væru þær hafðar í fitun
hjá stofnuninni um tíma áður en
þær væru merktar og þeim
sleppt. Ef menn yrðu varir við
uglur vildu þeir hjá stofnuninni
gjarnan fá að vita af því, því hér
væri eitthvað óvenjulegt að ger-
ast og þá langaði að fá eins mikl-
ar upplýsingar og mögulegt væri.
GOODWYEAR
GEFUR v' RÉTTA GRIPIÐ
Minni bensín- Meiri ending Betra grip í Örugg rásfesta í
eyðsla bleytu og hálku snjó
Goodyear hefur framleitt
hjólbaröa síðan árið 1898
og er stærsti fram-
leiðandi og tæknilega
leiðandi á því svíði í
heiminum.
Hjá Goodyear hefur
öryggi ökumanns,
farþega og annarra
vegfarenda ávallt verið í
fyrirrúmi.
Það er því ekkert skrum
þegar sagt er að þú sért
ÖRUGGURÁGOODYEAR.
FULLKOMIN
H JÓLBARÐ AÞ JÓNUST A
Tölvustýrð jafnvægisstilling
GOODYEAR á íslandi í meira en hálfa öld
HEKLAHF
LAUGAVEGI 170-172 SIMAR 28080 OG 21240
—*m---------------------------