Morgunblaðið - 02.11.1982, Page 20

Morgunblaðið - 02.11.1982, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982 Beirút: Tveir létust í sprengjutilræöi lU'irút, Líhanon, I. nóvemher. AP. TVEIR óbreyttir borgarar létu líflð og einn bandarískur her- maóur slasaðist er sprengja sprakk í bifreið í miðborg Beir- út, aðcins fáum klukkustundum eftir að forsetinn Gemayel hafði flogið til Rabats til viðræðna við Hassan Marokkókonung um varanlegan frið í Miðausturlönd- um. Þetta er í annað skiptið sem bandarískir hermenn verða fyrir aðkasti eftir að 1.500 manna flokkur þeirra kom til Líbanon til friðargæslu 29. september síðast- liðinn. Það fylgdi sögunni að her- maðurinn hafi ekki meiðst alvar- lega. Bretland: Ný sjónvarps- stöð stofnsett l/ondon, I. nóvemher. Al*. NÝ sjónvarpsstöð, „(’hannel 4“, hefur starfsemi sína á morgun, þriöjudag, í Bretlandi. Þetta er fyrsta nýja stöðin sem stofnsett hefur verið þar í landi í fimmtán ár, og hefur verið mikil umræða um væntanlega starfsemi henn- ar að undanförnu og ekki allir á einu máli. Þessi nýja, sjálfstæða, sjón- varsstöð er sett á stofn af 14 sjón- varpsauglýsingafyrirtækjum, og hefur þegar fengið mikla gagnrýni fyrir fyrirhugaða dagskrá. I blað- inu Times segir að margir óttist að þessi sjónvarpsstöð komi til með að verða álitshnekkir fyrir breskt sjónvarp þegar fram í sæk- ir sakir óvandaðrar dagskrár. „Channel 4“ kemur ekki til með að framleiða efni sitt sjálf, heldur verður það að mestu aðkeypt frá hinum 14 sjónvarpsauglýsingafyr- irtækjum eða frá öðrum nýstofn- settum fyrirtækjum í tengslum við hina nýju stöð. Nígería: Hundruð falla í trúardeilum lionrion, I. nóvemh<T. Al*. YFIKVÖLI) í borginni Maidug- uru í Norðaustur-Nígeríu hafa beðið alríkisstjórnina að lýsa yf- ir neyðarástandi í héraðinu en þar og í tveimur öðrum borgum hafa blóðugar trúardeilur staðið í heila viku og hundruð manna látið lífið. Það var breska ríkisútvarpið, sem greindi frá þessu í gær,' sunnudag, en samkvæmt heimild- um þess munu um 300 manns hafa fallið í átökunum milli öfgasinn- aðra múhameðstrúarmanna og lögreglunnar. SI. laugardag kom til mikilla átaka í borginni Kano en þar hafa múhameðstrúarmenn brennt kirkjur kristinna manna af þeirri ástæðu, að þær væru of nærri moskum þeirra. Árið 1980 féllu 4000 manns í Kano í óeirðum, sem áttu sér líkan aðdraganda. Óeirðaseggirnir telja sig læri- sveina Álhaji Mohammadu Marwa, sem var spámaður að eig- in sögn og lét lífið í uppþotunum 1980. Þeir gefa ekkert fyrir sjálfan Múhameð, sem trúarbrögðin eru kennd við, og sjá tálsnörur myrkrahöfðingjans í hverju skúmaskoti. ERLENT Aðdáendur og stuðningsmenn Felipe Gonzales, leiðtoga jafnaðarmanna, fagna hér ária á fostudagsmorgni i síðustu viku þegar löngu var orðið Ijóst, að hann myndi vinna glæsilegan sigur. Myndin er tekin á Miklatorgi í Madrid eða Plaza Mayor. AP Bankastjórar og atvinnurekendur lýsa yfir stuðningi við Gonzales Krá llt-h'u Jónsdóltur, frt-Uarilar* Mhl. í Burgos, Spáni. NIDUKSTÖÐIIR i þingkosningunum á Spáni hinn 28. október urðu eftirfarandi: Á kjörskrá voru 26.837.212. Alls kusu 21.353.996. Þátttaka var þvi 79,50%. PSOE fékk 9.836.579 atkvæði í þessum kosningum (1979 5.469.813), Al’ fékk 5.412.401 atkvæði núna (1979 1.067.732), UCD fékk 1.549.447 atkvæði nú (1979 6.268.593), PCE (kommúnistar) 824.978 at- kvæði nú (1979 1.911.217), CDS (flokkur Adolfo Suarez) fékk 615.540 atkvæði, CIU (þjóðernisflokkur í Cataluna-héraði) fékk 794.554 atkvæði (1979 483.353), PNV (þjóðernisflokkur baska) fékk 406.804 atkvæði (1979 275.292), HB og EE (baskaflokkar) fengu samanlagt 305.400 at- kvæði, ERC (lýðveldisflokkur í Cataluna-béraði) fékk 140.870. PSOE fékk 201 þingmann kjörinn í neðri deild (1979 121). AP fékk 106 þingmenn kjörna (1979 9). UCD fékk 12 þingmenn kjörna (1979 168). PCE fékk 5 þingmenn kjörna (1979 23). CDS fékk 2 þingmenn kjörna, CIU 12 þingmenn kjörna, PNV 8 þing- menn. HB og EE fengu samtals 3 þingmenn og ERC fékk 1 þing- mann kjörinn. í öldungadeild (efri deild) fékk PSOE 134 menn kjörna, AP 54 menn, UCD fékk 4 (1979 119), CIU 7 og PNV einnig 7 menn kjörna. PSOE fékk í kosningunum 46,00% allra atkvæða, AP 25,30%, UCD 7,20%, PCE 3,80% og CIU 3,37% Bankastjórar sjö stærstu banka landsins, atvinnurekend- ur og verkalýðsleiðtogar óska PSOE til hamingju og lýsa stuðningi sínum með næstu rík- isstjórn. Felipe Gonzalez gekk í gær til fundar við núverandi forsætis- ráðherra, Leopoldo Calvo Sotelo. Var hér um að ræða fyrsta fund þeirra af fjölmörgum er áætlaðir eru næstu vikurnar til þess að undirbúa stjórnarskiptin. Jafn- aðarmenn munu taka við völdum á tímabilinu 2. til 12. desember næstkomandi. Allt var með eðli- legum hætti í kauphöllum lands- ins daginn eftir. Bandaríkja- menn óskuðu Felipe Gonzalez til hamingju með kosningasigurinn og undirstrikuðu öruggan stuðn- ing frá Washington á spænska lýðræðinu. Jafnframt minntu Bandaríkjamenn á þá ósk sína að áfram yrði haldið traustri og náinni samvinnu milli landanna. Fréttin um yfirburðasigur jafnaðarmanna í þingkosningun- um á fimmtudag hefur vakið gíf- urlega eftirtekt alls staðar í heiminum. Mest hefur borið á jákvæðum og hlynntum við- brögðum erlendra stjórnmála- leiðtoga. Hvaðanæva hafa heil- la- og hamingjuóskir borist til aðalritara PSOE, Felipe Gonzal- es. Allir eru sammála um að úr- slit þessara kosninga séu mikill sigur fyrir ungt lýðræðið á Spáni og efiingu þess. Grænfriðungar létu til sín taka í Kaupmannahöfn Haupmannahófn Isirshófn. I. uóvrmber, frá fréllaritara MhL. Jogvan Ar*e. <>* Al*. FIMM MANNS úr Green Peare-samtökunum réðust í dag inn á skrifstofur Færeyja í Kaupmannahöfn og neituðu að yfirgefa skrifstofurnar fyrr en þeir hefðu fengið svar við ákveðnum spurningum frá landsstjóra Færeyja. Tveir mannanna hiekkjuðu sig með handjárnum við skáp nokk- urn á skrifstofunni, en Green Peace-samtökin fara fram á það við landsstjóra Færeyja og danska Haig Var Haig heimilda- maður Woodward? New Vork, 1. nóvember. AF. JOHN DEAN, sem hlaut dóm fyrir að hafa átt þátt í Watergate-málinu svokallaða, fullyrðir í nýútkominni bók sinni, að Alexander Haig hafi veríð sá er „lak“ upplýsingum, þ.e. sá sem gaf fréttaritara Washington Post leynilegar upplýsingar er síðan leiddu til afsagnar þáverandi forseta Bandaríkjanna, Richard Nixons, samkvæmt fregnum úr timaritinu Time. Fréttaritari Washington Post, Bob Woodward, hefur aldrei gefið upp hvaðan hann hafði upplýsingar sínar varðandi hneykslið, en þessi tilgáta Deans um heimildamann er a.m.k. sú þriðja sem hann setur fram. Woodward sagði eftir að Time birti fregnir um þessa fullyrðingu Deans, að hann hefði ekkert um þetta mál að segja og Haig sagði aðspurður að þetta væri í fyrsta skipti sem hann heyrði þetta og sagði ásökunina fjarstæðu og greinilega setta fram í auglýs- ingaskyni. Bók Deans mun koma út síðla þessa mánaðar og bera nafnið „Lost Honor“. í henni segir að Haig hafi verið einn örfárra manna sem var í aðstöðu til að vita að segul- bandsupptökur Hvíta hússins höfðu að geyma dularfullar út- þurrkanir. Time segir að aðrir sem hafi ver- ið í aðstöðu til að vita um þær hafi verið Nixon, einkaritari hans, Rose Mary Woods og aðstoðarmenn Hvíta hússins, þeir Stephen Bull og Fred Buzhardt, sem nú er látinn. forsætisráðuneytið að samstundis verði gefin út trygging fyrir því, að veiðar Færeyinga á langreyði verði stöðvaðar. Green Peace-samtðkin fara einnig fram á það, að fallbyssan verði fjarlægð af hvalveiðiskipinu Hvítiklettur, sem hefur veitt sex langreyðar á síðastliðnum tveim- ur árum, en það er liður í vísinda- legum rannsóknum. Síðasta krafa samtakanna er síðan að fá að vita hvernig þeim sex milljónum króna, er fengist hafa fyrir hvalveiðar síðastliðin fimm ár þar í landi, hefur verið ráðstafað. Landsstjóri Færeyja hefur ekki enn svarað þessu bréfi Green Peace-samtakanna. Þá hlekkjuðu tveir félagar í Grænfriðungasamtökunum sig við dyr norska sendiráðsins í Kaup- mannahöfn og vildu með því mót- mæla hvalveiðum Noregs, en Norðmenn hafa lýst yfir að þeir hyggist virða að vettugi hvalveiði- bann það sem taka á gildi 1986. Lögreglan handtók ungmennin og fór allt friðsamlega fram. Ekki er líklegt að fólkið verði sótt til saka. Hvalveiðar Norðmanna þykja ekki stórar í sniðum, þær eru bundnar við Lófót og íbúar eyj- unnar lifa bókstaflega af veiðum þessum. Árið 1980 framleiddu Norðmenn rúmlega fjögur þúsund tonn af hvalafurðum að andvirði 36 milljónir norskra króna. Vanþróuðu löndin: Daglega deyja 30.000 Muila, Filippseyjum. I. nóvemtxT. AP. ÞRJÁTÍU þúsund manna í van- þróuðu löndunum deyja á degi hverjum vegna mengaðs vatns og ónægrar hreinlætisaðstöðu og fer þessi tala stöðugt hækkandi, segir fulltrúi Alþjóðaheilbrigðismáia- stofnunarinnar. Dr. Hiroshi Nakajima, sem er fulltrúi stofnunarinnar við vest- anvert Kyrrahafið, birti tölur þessar í ræðu er hann hélt í Suva á Fiji-eyjum í upphafi fimm daga fundar um vatn og hreinlætisaðstöðu. Hann segir í þessari ræðu sinni: „Það er álitið að tala þeirra sem drukku ódrykkjar- hæft vatn árið 1980 hafi verið 100 milljónum hærri en árið 1975 og þeir sem höfðu ófull- nægjandi hreinlætisaðstöðu voru 400 milljónum fieiri árið 1980 en fimm árum fyrr.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.