Morgunblaðið - 02.11.1982, Page 28
32
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 1982
Leikfélag Akureyrar sýnir
Atómstöðina í Þjóðleikhúsinu
Frá tízkusýninKunni í verzluninni Kristján Siggeirsson hf.
Kristján Siggeirsson
hf. hefur sölu á
finnskum tízkufatnaði
KRISTJÁN Siggeirsson hf. er
verzlun, sem í rúma sex áratugi
hcfur selt húsgögn í hjarta
Kevkjavíkur eins og mönnum er
kunnugt. Á síöustu árum hefur
verzlunin hafiö sölu á finnskum
tízkufatnaöi frá Marimekko í
Finnlandi.
Um miðjan mánuðinn var af
þessu tilefni tekin upp sú ný-
breytni að halda tízkusýningu í
verzluninni, þar sem haust- og
vetrartízkan frá þessu finnska
fyrirtæki var kynnt. Voru
Modelsamtökin fengin til þess
að sýna fötin. í fréttatilkynn-
ingu frá verzluninni segir að í
framtíðinni verði það kappkost-
að að tryggja fjölbreytt úrval
vandaðs fatnaðar yzt sem innst,
nær eingöngu úr náttúrulegum
efnum, svo sem bómull og ull.
Marimekko framleiðir einnig
töskur undir merkinu „dec-
embre", svo og bakka, dósir,
krúsir o.fl.
Akureyri, 27. október.
NÚ ER 65. leikár Leikfélags Akur-
eyrar komið vel á veg. Leikárið hófst
með frumsýningu á Atómstöðinni 7.
október. Sýningin hefur hlotið mjög
jákvæða gagnrýni leikdómenda og
vinsældir áhorfenda. I Samkomu-
húsinu á Akureyri hafa verið þétt-
setnir bekkir á þeim 9 sýningum,
sem þegar eru orðnar og verða
10.—13. sýning um helgina.
Skáldsagan Atómstöðin eftir
Halldór Laxness, sem kom út 1948 og
olli miklum deilum á sínum tíma,
var áður sviðsett hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar 1972, en nú hefur Bríet Héð-
insdóttir leikstjóri gert nýja leikgerð
eftir skáldsögunni og fengið til liðs
við sig Sigurjón Jóhannsson leik-
myndahönnuð og Ingvar Björnsson
Ijósameistara. Undir stjórn Bríetar
hefur orðið til þessi margslungna
sviðsetning sem 19 leikarar sýna
okkur á sviði Samkomuhússins á
Akureyri.
Aðalhlutverkið, norðanstúlkan
Ugla, er í höndum Guðbjargar
Thoroddsen, en hún mun leika
Jómfrú Ragnheiði í jólasýningu
Þjóðleikhússins, undir stjórn Bríetar
og er það sama leikrit og frumsýnt
var hjá Leikfélagi Akureyrar á síð-
astliðnu leikári — leikverk sem Bríet
vann eftir Skálholti Kambans.
Aðrir leikarar í Atómstöðinni eru:
Theódór Júlíusson (Dr. Árland),
Marinó Þorsteinsson (organistinn),
Ragnheiður Tryggvadóttir (Aldin-
blóð), Kjartan Bjargmundsson
(feimna löggan), Þráinn Karlsson
(forsætisráðherra og ófeimna lögg-
an), Sunna Borg (frú Árland), Bjami
Ingvarsson (Arngrímur), Gunnar
Ingi Gunnsteinsson (gullhrútur),
Þórey Aðalsteinsdóttir, Arnór Ben-
ónýsson, Halldór Björnsson, Gestur
E. Jónasson, Halla Svavarsdóttir,
Ingibjörg Eva Bjarnadóttir, Þórður
Rist, Jónsteinn Aðalsteinsson, Ragn-
ar Einarsson og Gunnlaugur Ingi-
valdur Grétarsson.
Signý Pálsdóttir
Nú ætlar Leikfélag Akureyrar að
leggja land undir fót með Atómstöð-
ina og sýna í Þjóðleikhúsinu þriðju-
daginn 23. nóvember. Aðeins 1 sýn-
ing. Þjóðleikhúsið hefur góðfúslega
boðið hjálp frá starfsmönnum húss-
ins til að samhæfa megi norðansýn-
ingu þessa að stóra sviðinu í Þjóð-
leikhúsinu.
Æfingar eru komnar vel á veg á
næsta verkefni Leikfélagsins. Það
sérstaka við þá sýningu er að hún er
unnin svo til einvörðungu af föstum
starfsmönnum hússins, en auk
þeirra leika nokkur börn. Þetta er
barna- og unglingaleikritið „Siggi
var úti“ eftir Signýju Pálsdóttur
leikhússtjóra, sem jafnframt leik-
stýrir verkinu. Þráinn Karlsson
hannar leikmyndina, Viðar Garð-
arsson lýsinguna og Freygerður
Magnúsdóttir búningana.
Sigga, líffræðing, sem vinnur að
rannsóknum á íslensku tófunni úti í
hrauni á íslandi, leikur Bjarni Ingv-
arsson. Fjölskyldu, sem lendir í
margskonar ævintýrum í útilegu í
hrauninu leika Marinó Þorsteinsson
(refaskytta, afi), Ragnheiður
Tryggvadóttir (mamma), Jónsteinn
Aðalsteinsson (pabbi), Melkorka
Ólafsdóttir (Tóta) og Gunnlaugur
Ingivaldur Grétarsson (Villi).
Skúrkinn Úlf leikur Theódór Júlíus-
son og tískudrottninguna Stellu leik-
ur Sunna Borg. Auk þess munu börn
leika litla refi.
Ásgeir Jónsson hefur samið og æf-
ir tónlistina, sem hann flytur ásamt
tveimur öðrum meðlimum Bara-
flokksins á Akureyri. Frumsýning á
Siggi var úti er áætluð 1. desember.
Samkomuhúsið hefur nú verið
málaö utan sem innan og teppalagt.
Auk þess hafa ýmsar meiriháttar
endurbætur verið gerðar á húsinu
fyrir veturinn, svo sem ný hljóm-
sveitargryfja fyrir framan sviðið.
LA hefir óskað eftir því við
bæjaryfirvöld að reist verði viðbót-
arbygging sunnan við húsið, því að
þrengsli eru nú gífurleg að tjalda-
baki.
Leikhússtjóri er Signý Pálsdóttir,
leikhúsfræðingur, sem tók við starfi
í haust. Fastir starfsmenn LA eru
auk hennar leikararnir Sunna Borg,
Theódór Júlíusson, Marinó Þor-
steinsson, Ragnheiður Tryggvadótt-
ir, Bjarni Ingvarsson, Þórey Aðal-
steinsdóttir og Þráinn Karlsson, sem
einnig er húsvörður og yfirmaður
smíðadeildar, ennfremur Freygerður
Magnúsdóttir, búningameistari, og
Viðar Garðarson, tæknimaður, og
Ijósameistari.
Leikhúsráð skipa Guðmundur
Magnússon, formaður (LA), Val-
garður Baldvinsson ritari (fulltrúi
Akureyrarbæjar), Þórey Aðal-
steinsdóttir (LA), Freygerður Magn-
úsdóttir (LA) og Sunna Borg (full-
trúi starfsfólks). Auk þeirra sitja
fundi leikhúsráðs Signý Pálsdóttir,
lejkhússtjóri og Theódór Júlíusson,
varaformaður LA.
SvæÓisfundur
á Blönduósi
Kaupfélögin á Ströndum og Norðurlandi vestra halda svæðisfund með
stjórnarformanni og forstjóra Sambandsins í Félagsheimilinu á Blönduósi,
laugardaginn 6. nóvember kl. 13.30.
Fundarefni:
1. Ávarp
Valur Arnþórsson, stjórnarformaður Sambandsins
2. Viðfangsefni Sambandsins
Frummælandi: Erlendur Einarsson, forstjóri
3. Samvinnustarf á svæðinu
Frummælandi: Aðaibjörn Benediktsson, formaður KVH
4. Önnur mál - almennar umræður.
Allt áhugafólk um samvinnustarf er hvatt til að koma á fundinn.
Kaupféiag Strandamanna Kaupfélag Steingrímsfjarðar
Kaupfélag Bitrufjarðar Kaupfélag Hrútfirðinga
Kaupfélag V-Húnvetninga Kaupfélag Húnvetninga
Sölufélag A-Húnvetninga Kaupfélag Skagfirðinga
Samband íslenskra samvinnufélaga
Ellimálaráðstefna heilsu-
gæzluhjúkrunarfræðinga
ÞANN 23. október var haldin ráð-
stefna undir nafninu „Síðasti áfang-
inn, gerum hann beztan“. Til hennar
boðaði Deild heilsugæzluhjúkrunar-
fræðinga, innan Hjúkrunarfélags ís-
lands.
Markmið ráðstefnunnar var að
vekja fólk til umhugsunar um það,
hvernig það geti búið sig undir ell-
ina, þannig að það geti notið þess
æviskeiðs ekki siður en þeirra sem á
undan eru gengin. Til að ná þessu
markmiði var valin sú leið að bjóða
fulltrúum stéttarfélaga þátttöku á ná
þannig til fólksins.
Ráðstefnan, sem haldin var á
Hótel Loftleiðum var sett af Pál-
ínu Sigurjónsdóttur, hjúkrunar-
forstjóra Heilsugæzlustöðvarinn-
ar að Asparfelli 12, en einnig flutti
Svavar Gestsson, ráðherra, ávarp.
Þeir aðilar, sem erindi fluttu á
ráðstefnunni voru: Davíð Oddsson,
borgastjóri, Eiríkur örn Arnar-
son, sálfræðingur, Þórir Guð-
bergsson, félagsráðgjafi, Karl Sig-
urbjörnsson, prestur, Katrín
Fjeldsted, læknir, Marga Thome,
hjúkrunarfræðingur, dr. Laufey
Steingrímsdóttir, næringarfræð-
ingur, Ella Bjarnason, sjúkra-
þjálfari, Björk Pálsdóttir, iðju-
þjálfari, Guðrún Halldórsdóttir,
skólastjóri, Guðrún Jónsdóttir,
arkitekt, Valborg Bengtsdóttir,
fyrrv. skrifstofustjóri, en í lok
ráðstefnunnar voru pallborðsum-
ræður. Ráðstefnustjóri var Ingi-
björg R. Magnúsdóttir, deildar-
stjóri.
Gódan daginn!