Morgunblaðið - 28.12.1982, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1982
Prófkjör Framsóknarflokksins í Reykjavlk:
*
Olafur Jóhannesson
í prófkjör til Alþingis
Guðmundur G. Þórarinsson tilkynnti ekki
þátttöku, áður en frestur til þess rann út
Ólafur Jóhannesson utanríkis-
rártherra hefur ákvedið að taka þátt í
prófkjöri fulltrúaráðs framsóknarfé-
laganna i Reykjavík 9. janúar nk.
vegna væntanlegra Alþingiskosn-
inga, samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað sér. Frest-
ur til að skila inn framboðum rann
út kl. 18 i gær, en þá var ekki unnt
að fá staðfest nöfn á skrifstofu
Framsóknarflokksins og verður það
ekki hægt fyrr en 31. janúar þegar
prófkjörsnefnd hefur fyllt upp a.m.k.
10 manna tölu til prófkjörs innan
fulltrúaráðsins þar sem um 300 full-
trúar hafa kosningarétt.
Morgunblaðinu er hins vegar
kunnugt um að Haraldur Ólafsson
sem skipaði 3. sæti á lista flokks-
ins í Reykjavík fyrir síðustu Al-
þingiskosningar, hefur skilað
framboði, en það hafði Guðmund-
ur G. Þórarinsson alþingismaður
ekki gert fyrir kl. 18 í gær og mun
vera óvíst hvort hann tekur þátt í
prófkjörinu. Samkvæmt heimild-
um Mbl. mun Guðmundi hafa lík-
að það illa að nær 200 fulltrúa-
ráðsmenn skoruðu á Ólaf Jóhann-
esson að gefa kost á sér áfram.
Guðmundur G. Þórarinsson vildi
ekki ræða þetta mál við Morgun-
blaðið í gærkveldi. Þá er vitað að
Björn Líndal fyrrum formaður
SUF hefur einnig skilað inn fram-
boði í prófkjörið.
Pétur Sigurðsson, formaður ASV um láglaunabæturnar:
Kötturinn
Kobbi bjargaði
fugli úr fönn
KÖTTURINN Kobbi bjargaði í
fyrrakvöld snjótittlingi sem var að
dauða kominn vegna kujda
skammt frá heimili Kobba að Alf-
heimum 72.
Þegar eigandi Kobba, Anton
Ringelberg, í Rósinni, var að búa
sig undir hefðbundna kvöld-
göngu með Kobba í fyrrakvöld,
kom kötturinn askvaðandi á
móti honum upp stigaganginn í
fjölbýlishúsinu og með miklum
látum og tilþrifum fékk hann
Ringelberg til þess að fylgja sér
um það bil 100 metra vegalengd
að húsi Tennis- og badmintonfé-
lags Reykjavíkur. Þar stað-
næmdist Kobbi hjá smáfuglin-
um, sem lá með útbreidda vængi
í fönninni, magnþrota. Ringel-
berg tók fuglinn upp á sína arma
og fór með hann inn til sín, hlúði
að honum og gaf honum að éta,
en í gærmorgun var fuglinn orð-
Ringelberg I Rósinni með köttinn
Kobba, en Kobbi hefur um langt
skeið verið eins konar húsköttur í
Glæsibæ, því til skamms tíma var
Ringelberg með Rósina þar, en
hann er sem kunnugt er nýfluttur
með búðina i Hótel Esju.
inn hinn hressasti og þegar
Ringelberg setti kassann með
fuglinum í út á svalir, leið ekki á
löngu þar til snjótittlingurinn
var búinn að taka flugið á ný,
með viðeigandi söng, en innan
við gluggann malaði Kobbi í
mestu makindum.
Bæturnar yfirklór og koma
láglaunafólki lítt til góða
,FÓLK hér er þrumulostið yfir því
hvernig láglaunabæturnar deilast út.
Þess er dæmi, að forstjóri fyrirtækis
hér á ísafirði fær láglaunabætur en
starfsfólkið engar. Kaupmenn og
framkvæmdastjórar fyrirtækja fá
bætur á meðan þeir, sem mest
þarfnast uppbóta sitja hjá. Þetta er.
fálm út í loftið. Menn hefðu þess
vegna getað kastað þessu út um
gluggann — þar sem happ virðist
hafa ráðið hverjir fengu láglauna-
bætur,“ sagði Pétur Sigurðsson, for-
maður Alþýðusambands Vestfjarða,
í samtali við Mbl. um láglaunabætur
ríkisstjórnarinnar.
„Óánægja er mikil — en miklu
frekar að menn séu hissa á því
hverjir fengu tékkinn og hverjir
ekki. Engin glóra virðist í því. Eg
veit dæmi um menn sem unnið
hafa hlið við hlið. íbúðareigandi,
sá er mér virðist betur staddur,
fékk láglaunabætur, en hinn sem
enga íbúð á fær engar bætur. Það
Bæjarútgerð Hafnarfjaröar:
150 sagt upp störfum í gær
„STAÐAN hjá okkur er í raun alveg
óbreytt. Togararnir þrír eru komnir í
höfn og undirmönnum hefur verið sagt
upp eins og áður hefur verið skýrt frá. I
dag fara svo út uppsagnarbréf til
starfsmanna í frystihúsinu varðandi
kauptrygginguna," sagði Sigurður
Þórðarson, stjórnarformaður Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar, i samtali við
Mbl.
„Um 200 starfsmönnum fyrirtæk-
isins hefur því verið sagt upp störf-
um, um 50 undirmönnum á togurun-
um og síðan um 150 starfsmönnum
frystihússins," sagði Sigurður Þórð-
arson ennfremur.
„Vandamálið er í raun tvíþætt.
Fyrir það fyrsta er rekstrargrund-
völlurinn undir togaraútgerð brost-
inn hjá okkur eins og öðrum og hins
vegar er fjárhagsstaða okkar mjög
bág um þessar mundir.
Við erum með almennar viðskipta-
skuidir upp á 20 milljónir króna.
Miðað við stöðuna í skuldbreyt-
ingarmálum útgerðarinnar, þá ætt-
um við að ná 13—14 milljónum
króna miðað við 10% markið, sem nú
hefur verið ákveðið. Við höfum hins
vegar aðeins náð um 5 milljónum út
úr þessu, þannig að 7—8 milljónir
króna vantar upp á. Ef við næðum
þeim fjármunum væri staða okkar
allt önnur og betri.
Við skuldum hins vegar nánast
ekkert í bankakerfinu, heldur er
mestur hluti skulda okkar við þjón-
ustufyrirtæki, sem ekki hafa fengizt
skuldbreyttar. Aðgerðirnar frá í
september hafa því ekki gagnazt
okkur eins og við áætluðum.
Aðspurður sagði Sigurður Þórð-
arson, að engin breyting væri í aug-
sýn, nema ef til kæmu nýjar aðgerð-
ir af hálfu stjórnvalda. „Við sjáum
hins vegar engin þau kraftaverk í
augsýn, sem gætu breytt þessari
ákvörðun okkar að stöðva útgerð-
ina,“ sagði Sigurður Þórðarson
ennfremur.
Starfsfólki í f iskvinnslu á Seyðisfirði sagt upp:
Á annað hundrað atvinnulausir
RÚMLEGA eitt hundrað manns hef-
ur verið sagt upp störfum á Seyðis-
firði og er hér um að ræða erfiðleika
vegna hráefnisskorts í tveimur fyrir-
tækjum, Norðursíld og Fiskvinnsl-
unni.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá Ólafi
Óskarssyni skrifstofustjóra Fisk-
vinnslunnar, var öllu fólki í fisk-
verkun sagt upp störfum sl. föstu-
dag og taka uppsagnirnar gildi í
dag. Sagði Ólafur að um væri að
ræða 60—70 manns, en þess bæri
að geta að ekki væru allir í fullu
starfi. Sagði hann að um 40—50
stöðugildi væri að ræða. Þá hefði
öllum undirmönnum á togurum
verið sagt upp, en tveir togarar
eru gerðir út af fyrirtækinu.
Ólafur sagði að eitthvað mikið
þyrfti að koma til til þess að úr
rættist. Undirmönnum á togurun-
um hefur verið boðin vinna við
lagfæringar á togurunum á meðan
þetta ástand varir.
Astæðu þessa sagði óiafur vera
aflaleysi, togararnir væru stöðv-
aðir og fiskvinnslan væri hrá-
efnislaus. Hins vegar væri gert
ráð fyrir því að hefja vinnu við
saltfisk og skreið strax eftir ára-
mót, þannig að þá fengju flestir
vinnu aftur.
Hafsteinn Sigurjónsson, verk-
stjóri hjá Norðursíld, sagði, að þar
hefði öllum konum í fiskvinnslu
verið sagt upp og hefðu uppsagn-
irnar tekið gildi sl. föstudag. Hér
er um að ræða 30 konur. Astæðu
uppsagnanna sagði Hafsteinn
hráefnisskort og ekki væri fyrir-
sjáanlegt að úr rættist að óbreytt-
um aðstæðum.
Nú eru 12 karlmenn við störf í
fyrirtækinu og vinna þeir við frá-
gang á síld og undirbúningi við
útskipun. Einnig sagði Hafsteinn
að hægt yrði að útvega mönnunum
vinnu við skreið, þannig að ekki
væru fyrirsjáanlegar fleiri upp-
sagnir.
er kannski vegna þess að íbúðar-
eigandinn þarf að kynda upp íbúð
sína, ég veit það ekki.
Láglaunabæturnar eru fyrst og
fremst notaðar til þess að reikna
niður kjaraskerðinguna — bæt-
urnar nema sem svarar 2Vfe% af
skerðingunni. Og það eykur á
svindlið að bæturnar eru reiknað-
ar út á desemberverðlagi — en eru
greiddar út í þremur áföngum,
síðast í júní næstkomandi og sá
tékki verður mun verðminni en
desembertékkinn. Þetta er yfir-
klór, sem kemur láglaunafólki lítt
til góða,“ sagði Pétur Sigurðsson.
Fiskverðsákvörðun:
Aukinn verðmunur
milli gæðaflokka
STEINGRÍMIJR Hermannsson sjávarútvegsráðherra kynnir ríkisstjórninni
árdegis hugmyndir sínar um fiskverðshækkun um áramótin. Yfirnefnd Verð-
lagsráðs sjávarútvegsins fundaði i gær og voru þar áfram til umfjöllunar ýmis
hliðaratriði, en að sögn Olafs Davíðssonar formanns nefndarinnar hefur verið
rætt um að gera breytingar á verðhlutfalli milli gæðaflokka, einnig milli slægðs
og óslægðs fisks. Engar ákvarðanir voru teknar i Yfirnefndinni í gær. Hún
kemur saman á ný í dag.
Steingrímur Hermannsson sjáv-
arútvegsráðherra sagði aðspurður í
gær, að hann væri hlynntur þeim
hugmyndum að auka verðmun milli
gæðaflokka og slægðs fisks og
óslægðs. Hann sagði í því sam-
baodi: „Ég tel að breytingar sem
hvetja til betri og meiri gæða í
vönduðum fiski séu til bóta. Mark-
aðurinn hefur ráðið miklu, menn
hafa getað hent upp lélegum fiski
og fengið fyrir hann fyrsta flokks
útflutning. Það er það sem hefur
ráðið þróuninni." Ólafur Davíðsson
sagði að bilið milli gæðaflokka
hefði verið minnkað fyrir tveimur
árum. Þá hefðu markaðsástæður
verið öðruvísi og auðveldara að
koma lakari fiski í afurðir. Nú hefði
þetta breyst og því væri talað um að
breikka bilið á ný milli gæðaflokk-
anna.
Steingrímur sagði aðspurður í
gær að hann stefndi enn að því að
nýtt fiskverð lægi fyrir um áramót-
in. Ólafur Davíðsson sagði að
ómögulegt væri að segja til um
hvort það tækist, en hann teldi það
ekki útilokað.
Utanríkismálanefnd Alþingis:
Hans G. Andersen boðað-
ur til fundar 11. janúar
HANS G. Andersen sendiherra hefur verið boóaður til fundar hjá
utanríkismálanefnd Alþingis 11. janúar nk. til viðra'ðna um þrjár þingsályktun-
artillögur scm liggja fyrir Alþingi frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins. Ilér er
um að ræða tillögur um hafsbotnsréttindi íslands i suðri, á Reykjaneshrygg og
um laxveiðar Færeyinga í sjó.
Þingsályktunartillagan um hafs-
botnsréttindi íslands í suðri er flutt
af Eyjólfi Konráð Jónssyni og sjö
öðrum þingmönnum Sjálfstæðis-
flokksins. Tillagan fjallar um að
fela ríkisstjórninni að iáta nú þegar
á það reyna, hvort samkomulag geti
náðst við Færeyinga um sameigin-
lega réttargæslu á Rockall-svæðinu
í samræmi við ályktanir Alþingis
frá 1978 og 1980. Jafnframt að
áfram verði haldið samkomulags-
umleitunum við Breta og íra um
eignar- og umráðarétt hafsbotnsins
á Rockall-sléttu. Þá er lagt til að
Alþingi kjosi hlutbundinni kosn-
ingu fimm menn sem starfi með
ríkisstjórninni að framgangi máls-
ins.
Pétur Sigurðsson og Eyjólfur
Konráð Jónsson flytja tiliöguna um
hafsbotnsréttindi Islands á Reykja-
neshrygg. Þar er gert ráð fyrir
ráðstöfunum til að tryggja form-
lega þau réttindi til hafsbotnsins á
Reykjneshrygg og út frá hlíðum
hans, sem Island á tilkall til sam-
kvæmt 76. grein hafréttarsáttmála
Sameinuðu þjóðanna.
Eyjólfur Konráð Jónsson og Al-
bert Guðmundsson eru flutnings-
menn þingsályktunartiilögunnar
um laxveiðar Færeyinga í sjó. Þar
er gert ráð fyrir að ríkisstjórnin
geri nú þegar ráðstafanir til að
stöðva rányrkju Færeyinga við
veiðar Atlantshafslaxins í efna-
hagslögsögu sinni, eins og segir i
þingskjalinu. Þá segir einnig að
hafa skuli um það samráð við önnur
upprunalönd laxastofnsins, ef
nauðsynlegt reynist.