Morgunblaðið - 11.02.1983, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
34. tbl. 70. árg.
FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
Prentsmiðja Morgunbladsins
Mynd þessi er tekin fyrir
utan skrifstofu Menachem
Begin í dag meðan á fundi
stjórnarinnar stóð, en þar
fóru fram mótmæli tveggja
hópa, þeirra sem stydja Shar-
on og þeirra sem eru andvíg-
ir stefnu stjórnarinnar. Talið
er að fimm til sjö þúsund
manns hafi tekið þátt í mót-
mælunum þegar mest var.
Sharon úr embætti
varnarmálaráðherra
Ríkisstjórnin hefur fallist á til-
lögur rannsóknarnefndarinnar
íranar segjast hafa
hafíð aðra stórsókn
Nikósía, 10. febrúar. AF.
ÍKANAR segjast hafa haöð annan
hluta síðustu stórsóknar sinnar gegn
írökskum herafla í nótt við suður-
hluta bardagasvæðanna.
í yfirlýsingu írana segir að her-
deild fraka hafi verið „upprætt og
hernaðarmáttur óvinarins sé stór-
skertur".
Útvarpið í Bagdað segir hins
vegar að fimmtu tilraun íranskra
herdeilda til að reyna að komast
yfir landamærin inn í suðurhluta
Saudi Arabar ætla
að lækka olíuverð
Jidda, Saudi-Arabíu, 10. febrúar. Al».
SAUDI-Arabar sjá „enga leið til að
komast hjá verðlækkun" á olíu
sinni, sagði Ahmet Zaki Yamani
olíumálaráðherra þeirra í viðtali sem
formlega mun birtast á morgun.
„Konungdæmi okkar mun ekki
lengur reyna að verja olíuverðið
og mun láta aðra um að bera
ábyrgð á mistökum þeirra“, sagði
Yamani í viðtali við vikuritið
Magazine Iqra.
„Verðlækkun er eina leiðin, en
þetta er stór biti að kyngja. Þetta
mun koma illa við nokkur lönd
vegna þess tekjumissis sem þetta
hefur í för með sér á þessu ári, og
neysluaukning sú sem gert er ráð
fyrir vegna lækkunarinnar mun
ekki fara að segja til sín fyrr en
síðar á þessu ári,“ sagði Yamani í
viðtalinu.
Hann sagði ekki hversu mikil
verðlækkunin gæti orðið eða hve-
nær hún myndi eiga sér stað.
Aðspurður um hvað OPEC,
samtök olíuútflutningsríkja,
myndu hugsanlega gera í stöðunni
sagði hann: „Ég sé enga leið til að
komast hjá lækkun á olíuverði.
Nokkur ríki munu án efa reyna að
standa vörð um olíuverðið, en ef
engin ákvörðun er tekin af
OPEC-ríkjunum sameiginlega
verður hvert ríki að taka ákvörðun
fyrir sig, og það getur haft ólýs-
anlegar afleiðingar í för með sér.“
Nissan-héraðs hafi verið hrundið.
Þar segir að herdeildir írana hafi
gefist upp við sólarupprás í morg-
un.
íranir sendu þúsundir her-
manna í bardaga á sunnudags-
kvöld til að reyna að komast yfir
íröksku landamærin. íranir sögðu
þessa sókn gerða í þeim tilgangi
að reyna að binda enda á stríðið
sem staðið hefur í tæpa 28 mán-
uði. í síðustu tilkynningu íraka
segir að lík írana þeki bardaga-
svæðið, en þúsund íranir hafi gef-
ist upp.
íranir segjast hins vegar hafa
skotið niður íranska þotu í morg-
un, og séu þær vélar sem þeir hafi
skotið niður á undanförnum sól-
arhring orðnar fimm.
Jerúsalem, 10. febrúar. AF.
STJÓRN Menachem Begins sam-
þykkti í kvöld í einu og öllu tillögur
rannsóknarnefndarinnar, sem kann-
aði fjöldamorðin í Beirút, þ.á m. til-
lögu um að Ariel Sharon, varnar-
málaráðherra, segði af sér embætti.
Hins vegar mun Sharon hafa neitað
að segja af sér.
Yitzhak Modai. orkumálarðherra,
sagði við fréttamenn að fundinum
loknum að Sharon hefði sagt að
hann myndi ekki segja af sér, og
álitið er að með því skori hann á
Begin að reka sig úr stjórninni. Beg-
in hefur sagt að það sé nokkuð sem
hann muni ekki gera.
Modai sagði einnig að pólitísk
framtíð hans felist í því hvernig
hann tekur þessari ákvörðun. Að-
spurður um hvort stjórnin hefði
ákveðið hver yrði næsti yfirmaður
varnarmála, sagði hann: „Við höf-
um enn ekki rætt um eftirmann."
Tilkynning um að stjórnin hefði
samþykkt tillögur rannsóknar-
nefndarinnar var gefin út af Dan
Meridor ritara stjórnarinnar, sem
sagði að atkvæði um tillögur rann-
sóknarnefndarinnar hefðu fallið
þannig, að sextán hefðu verið
samþykkir og einn á móti. ísra-
elska útvarpið sagði það hafa ver-
ið Sharon.
Fréttamenn spurðu Meridor
hvort Sharon hefði greitt atkvæði
gegn því að tillaga nefndarinnar
yrði samþykkt og hann svaraði því
til að það hefði „sennilega“ verið
svo.
Talið hafði verið liklegt að Beg-
in myndi velja þann kost að segja
af sér og boða til nýrra kosninga.
Yosef Burg innanríkisráðherra
landsins lýsti því yfir áður en
fundurinn hófst, að hann myndi
beita sér fyrir því að Begin segði
af sér og myndaði nýja ríkisstjórn
innan sólarhrings án þess að boða
til kosninga.
Haim Corfu, samgönguráð-
herra, sagði í kvöld, að stjórnin
myndi ræða á næsta fundi sínum
á sunnudag hvernig bæri að
bregðast við því að Sharon neitaði
að segja af sér.
Mikil mótmæli voru fyrir utan
skrifstofu Begins í kvöld og
sprakk þar sprengja sem talið er
að hafi orðið einum manni að bana
og sært þrjá.
Mótmælendahóparnir voru
tveir, þeir sem styðja Sharon og
friðarhreyfing sem nefnist „Frið-
ur nú þegar“. Lögreglan hafði sett
upp girðingu á milli hópanna
tveggja til að tryggja að ekki
kæmi til átaka þar á milli.
Þrjú sund-
urtætt lík
fundust í
Lundúnum
— maöur hefur veriö
handtekinn í tengslum
viö moröin
Lundúnum, 10. febrúar. AF.
MAÐUR var handtekinn í dag
eftir að lögreglan tilkynnti að
sundurslitin Ifk þriggja manna
hefðu fundist í norðurhluta
Lundúna og leitað væri líka
„nokkurra annarra“.
Scotland Yard sagði að
hinn grunaði yrði ákærður í
samræmi við það sem hugs-
anlega kæmi í ljós í málinu á
föstudag. Talsmaðurinn neit-
aði hins vegar að segja hver
maðurinn væri eða fyrir hvað
hann yrði ákærður.
Fréttastofan sagði í
kvöld að þetta kæmi til með
að verða „ein umfangsmesta
rannsókn sem nokkurn tíma
hefur farið fram á fjölda-
morðum í Bretlandi". Einnig
kom frarn hjá talsmanni
fréttastofunnar að allt að
þrettán lík gætu átt eftir að
finnast til viðbótar, en lög-
reglan neitaði að staðfesta þá
töiu.
Enn eitt njósnahneyksli:
Sovéskum sendiráðsstarfs-
manni vísað frá Danmörku
kaupmannahöfn, 10. febrúar. AF.
SOVÉSKUM stjórnarerindreka
var í dag gefinn hálfur mánuður
til að hafa sig á brott frá Dan-
mörku vegna meintra njósna,
segir í tilkynningu utranríkis-
ráðuneytisins.
Sovétmaðurinn kvað heita
Evgueni Leonidovich Motorov og
vera vísinda- og tækniráðgjafi
við sendiráð Sovétmanna í
Kaupmannahöfn.
Starfsmaður við sendiráðið
sem svaraði síma þar í kvöld
sagði að sendiráðið myndi ekki
svara neinum spurningum um
málið. Aðspurður um hvort ein-
hver starfsmaður við sendiráðið
hefði verið rekinn úr landi sagði
hann:„Ég mun hvorki staðfesta
né neita þessum fregnum....Þetta
er allt sem ég hef um málið að
segja."
Talsmaður utanríkisráðuneyt-
isins sagði að skrifstofustjóri
ráðuneytisins, Egil Jörgensen.
hefði í dag boðað Nikolai Egor-
ytchev, sendiherra Sovétríkj-
anna, á sinn fund og tjáð honum
að Motorov „hefði verið staðinn
að ólöglegum njósnum í Dan-
mörku.“ Jörgensen sagði að
dönsk stjórnvöld krefðust þess
að hann yrði á brott úr landinu
innan fjórtán daga.
Talið er að Motorov hafi safn-
að ólöglegum upplýsingum um
tækninýjungar í þau fjögur ár
sem hann hefur starfað í Dan-
mörku frá fvrirtækjum þar í
landi sem framleiða hergögn.