Morgunblaðið - 11.02.1983, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1983
3
Rannsókn fjársvikamálsins:
Héraðsdómarinn
leystur úr gæslu
„RANNSÓKN málsins hefur miðað vel áfram, og héraðsdómarinn hefur
verið leystur úr gæsluvarðhaldi,“ sagði Hallvarður Einvarðsson, rann-
sóknarlögreglustjóri ríkisins, í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í
gærkveldi. Hallvarður var að því spurður hvað liði rannsókn á meintu
broti héraðsdómarans á okurlöggjöfinni og á meintu fjárdráttarbroti
lögfræðingsins á Akureyri, sem einnig hefur verið leystur úr gæsluvarð-
haldi eins og Morgunblaðið hefur skýrt frá.
„Þessi mál eru enn í rannsókn
og verða það, og því fer fjarri að
rannsókninni sé lokið þótt margt
hafi skýrst," sagði Hallvarður
ennfremur. „Héðan munu til
dæmis fara tveir menn til Akur-
eyrar í dag og rannsaka hluta
málsins þar og til að afla gagna,
en kærendur eru búsettir þar.“
Héraðsdómarinn, sem í gær var
leystur úr gæsluvarðhaldi, hefur
nú að eigin ósk fengið lausn frá
störfum við embætti viðkomandi
bæjarfógeta um óákveðinn tíma.
Bjarni Helgason
skipherra látinn
LÁTINN er í Reykjavík eftir langa
sjúkdómslegu, Bjarni Helgason,
skipherra hjá Landhelgisgæslunni.
Bjarni Ólafur Helgason var fæddur
hinn 7. maí 1930 í Haukadal í Dýra-
firði, sonur Bergljótar Bjarnadóttur
og Helga Pálssonar, kennara.
Bjarni lauk landsprófi frá Núpi
í Dýrafirði 1948. Fiskimannaprófi
lauk hann 1952, farmannaprófi
1956, og varðskipspróf tók hann
árið 1962. Hann starfaði sem
stýrimaður á togurum á árunum
1952 til 1954, og stýrimaður og síð-
ar skipherra hjá Landhelgisgæsl-
unni var hann frá 1957. Árið 1977
stundaði hann nám við National
Search and Rescue School, USGG
Training Center, Governors Island
í New York í Bandaríkjunum.
Eftirlifandi eiginkona Bjarna er
Hrönn Sveinsdóttir.
Bjarni Helgason
Veiðilegur þingmaður
ÞÓTT „pólitískt stríðsástand" sé nú á Alþingi og ýmiskonar erjur á
vettvangi stjórnmálanna, þá er það ekki af þeim ástæðum sem Stefán
Jónsson alþingismaður arkaði með byssu og byssubelti um öxl að bfl
sínum í gærdag. Kagnar Axelsson Ijósmyndari Morgunblaðsins smellti
þessari mynd af þingmanninum við Laufásveginn og lopapeysan í hendi
Stefáns gefur vísbendingu um fyrirætlan hans, því Stefán er harðsæk-
inn fjallgöngumaður og fuglaveiðimaður og bregður sér oft út fyrir
bæinn, ýmist suður á Miðnesheiði eða upp til fjalla. Ef til vill hefur
þingmanninum þótti veiðilegra utan þingsala í gær og allavega er hann
sjálfur hinn veiðilegasti í fasi. En skyldi varnarliðinu á Miðnesheiði
ekki verða bylt við slíka heimsókn!
Janúar:
2,2% atvinnuleysi
51 þúsund atvinnuleysisdagar í janúar —
Hefur fjölgað um 20 þúsund frá í desember
SKKÁUIK atvinnuleysisdagar í nýliðnum janúarmánuði voru
í heild tæp 51 þúsund á landinu öllu, samkvæmt upplýsingum
er blaðamaður Morgunblaðsins fékk í gær hjá Vinnumála-
deild félagsmálaráðuneytisins. Atvinnuleysisdagarnir skipt-
ust nokkurn veginn jafn milli kynja, 25.391 dagur hjá konum
og 25.441 dagur hjá körlum. Tölurnar jafngilda því, að 2.346
manns hafi verið á atvinnuleysisskrá allan mánuðinn, sem
svarar til 2,2% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði í mán-
uðinum.
Síðan segir í frétt frá vinnu-
máladeildinni:
„Samkvæmt þessu hefur skráð-
um atvinnuleysisdögum fjölgað
frá því sem var í desember 1982
um rösklega 20 þúsund en þá voru
skráðir 30.607 atvinnuleysisdagar,
sem jafngildir 1.412 manns at-
vinnulausum í þeim mánuði eða
1,3% af mannafla. Atvinnulausum
hefur samkvæmt þessu fjölgað um
934 í janúar miðað við desember
1982.
í janúarmánuði 1982 voru hins
vegar skráðir um 73 þúsund at-
vinnuleysisdagar á landinu, en þá
lá, sem kunnugt er, fiskvinnsla að
mestu niðri vegna verkfalla sjó-
manna. Af þeirri ástæðu er sá
mánuður vart marktækur í sam-
anburði. Meðaltal skráðra
atvinnuleysidaga í janúarmánuði
árin 1975—1981 að báðum árum
meðtöldum er tæpir 18 þúsund
dagar. Fjölgun daga nú umfram
meðaltal nemur því tvöfaldri
þeirri tölu eða 36 þúsund dögum.
Verulegur þáttur í þessari
miklu aukningu á skráðu atvinnu-
leysi nú, eru þær stöðvanir fisk-
vinnslu sem átt hafa sér stað víðs-
vegar um land vegna rekstrar-
vanda útgerðarinnar svo og
óvenju erfið veðrátta og gæfta-
leysi sem af því hefur leitt víða
um land. Enda þótt þetta eigi við
þegar litið er á landið í heild hlýt-
ur það að vekja athygli t.d. að í
Reykjavík, þar sem fiskvinnsla
var að mestu með eðlilegum hætti,
eru skráðir um 9 þúsund atvinnu-
leysisdagar í janúar sl., sem jafn-
gildir um 400 manns atvinnulaus-
um allan mánuðinn.
Gera má ráð fyrir að V* til 'A
hluta megi rekja til samdráttar í
bygginariðnaði og annarri úti-
vinnu vegna veðurfars og sam-
dráttar í útlánum en a.m.k. %
hlutar komi úr öðrum starfsgrein-
um. Er áberandi hve verslunar-
fólki og fólki úr ýmsum þjónustu-
greinum hefur fjölgað á atvinnu-
leysisskrá siðustu tvo mánuði. Ef
taka má mið af þeim tilkynning-
um, sem borist hafa um uppsagnir
í janúarmánuði eru horfur á að
þessari þróun geti haldið áfram á
næstunni.
Á öðrum stöðum á landinu verð-
ur ekki annað séð, en að atvinnu-
ástand sé sem óðast að komast í
eðlilegt horf miðað við árstíma."
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins:
Auka þarf atvinnu í borginni
INNLENT
Á kvöldráöstefnu verkalýösráds
Sjálfstæöisflokksins, sem haldin var
mánudaginn 7. febrúar 1983, var
samþykkt eftirfarandi ályktun:
Á undanförnum vikum hefur at-
vinnuleysið stóraukist, sérstak-
lega í Reykjavík og á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Atvinnu-
lausir á skrá eru nú ríflega tvöfalt
fleiri en venjulega á þessum tíma
árs í Reykjavík og þarf að fara allt
aftur til áranna 1968 og 1969 til að
finna hliðstæðu.
Ráðstefna verkalýðsráðs
Sjálfstæðisflokksins haldin í
Reykjavík 7. febrúar 1983 telur
mjög brýnt að kannað sé nú þegar
til hvaða ráða megi grípa til þess
að auka atvinnu í borginni.
Því er skorað á borgaryfirvöld
og ríkisvald, að hraðað verði fram-
kvæmdum á þeirra vegum, sem
auka myndu atvinnu. í því sam-
bandi skal sérstaklega bent á,
hvort ekki sé hægt að hraða t.d.
fyrirhuguðum viðhaldsverkefnum
og undirbúningi útboða verklegra
framkvæmda.
AMERÍKA
PORTSMOUTH/
NORFOLK
Mare Garant 18. feb.
City of Hartlepool 1. mars
Mare Garant 11. mars
City of Hartlepool 22. mars
NEWYORK
Mare Garant 17. feb
City of Hartlepool 28 feb
Mare Garant 10. mars
City of Hartlepool 21. mars
HALIFAX
Hofsjökull 14. feb.
City of Hartlepool 4. mars
Hofsjökull 25. mars
BRETLAND/
MEGINLAND
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 14. feb.
Alafoss 21 feb.
Eyrarfoss 28. feb.
Alafoss 7. mars
ANTWERPEN
Eyrarfoss 15. feb.
Alafoss 22. feb.
Eyrarfoss 1. mars
Alafoss 8. mars
ROTTERDAM
Eyrarfoss 16. feb.
Alafoss 23. feb.
Eyrarfoss 2. mars
Alafoss 9. mars
HAMBORG
Eyrarfoss 17 feb.
Alafoss 24. feb.
Eyrarfoss 3. mars
Alafoss 9. mars
WESTON POINT
Helgey 14. feb.
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 11. feb
Dettifoss 18. feb.
KRISTIANSAND
Manafoss 14. feb.
Dettifoss 21. feb
MOSS
Manafoss 11. feb
Dettifoss 18 feb.
HORSENS
Manafoss 16. feb.
Mánafoss 2. mars
GAUTABORG
Mánafoss 16. feb.
Dettifoss 23. feb.
KAUPMANNAHÓFN
Mánafoss 17. feb.
Dettifoss 24. feb.
HELSINGBORG
Manafoss 18. feb.
Dettifoss 25. feb.
HELSINKI
Hove 21 feb.
GDYNIA
Hove 23 feb.
THORSHAVN
Dettifoss 19 feb.
-fram og til baka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP
*