Morgunblaðið - 08.03.1983, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.03.1983, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1983 Pálmi Jónsson á kjördæmisráðsfundi: „Stjórnin segi af sér að kosningum loknum, hvernig sem þær fara“ „ÉG TÉL rétt og sjálfsagt, aí> stjórnin segi af sér þegar aó kosningum loknum, hvernig sem þær fara,“ sagói Pálmi Jónsson landbúnaðarráóherra m. a. á kjördæmisráösfundi Sjálfstæöisflokksins í Noröurlandi vestra, sem haldinn var á Blönduósi sl. laugardag, en þar var gengið frá framboöslista flokksins fyrir komandi Alþingiskosningar. Á fundinum krafði Jón fsberg sýslumaður ráðherrann sagna um hvort komið gæti til að hann gripi til sömu aðferða við myndun ríkis- Selfoss: Mesta at- vinnuleysi í sögu staðarins „llndanfarnar vikur hefur verið mik- iö atvinnuleysi hér á Selfossi og munu ekki áöur i sögu sveitarfélagsins jafn margir hafa verið án atvinnu," sagði Gunnar Kristmundsson hjá verkalýðs- félögunum á Selfossi f samtali vió Morgunblaðið. „Segja má að þetta ástand hafi byrjað aó lokinni sláturtíð f byrjun nóvember sl.,“ sagði Gunnar „en þá fór að dragast verulega saman vinna hér. Saumastofan Framtak fór þá að eiga við verkefnaskort að stríða, og hefur starfsemin þar alveg legið niðri síðan um miðjan desember. Einnig er búið að loka hjá Prjóna- stofunni Björgu, en hjá þessum fyrirtækjum unnu milli 40 og 50 manns, sumir þó aðeins hálfan dag- inn. Tala atvinnulausra hefur farið upp í 83 þegar flest hefur verið. Nú, þegar vonast hafði verið til að úr færi að rætast, bárust fréttir af því að Sláturfélag Suðurlands hefði sagt upp um 30 manns, svo nú hefur útlitið í atvinnumálunum hér á Sel- fossi enn versnað. Unnið er að því að kanna réttmæti uppsagnanna hjá sláturfélaginu, en of snemmt er að segja um hvað út úr því kann að koma,“ sagði Gunnar að lokum. Vestfirðir: 880 kusu hjá Alþýðuflokki Alls kusu um 880 manns í prófkjöri Alþýóuflokksins á Vestfjörðum, sem fram fór um helgina, að því er Kristján Jónasson á ísafiröi sagöi f samtali við blaðamann Morgunblaósins í gær. Kristján sagði hugsanlegt að þessar tölur breyttust eitthvað, þar sem öll kjörgögn væru ekki komin til ísafjarö- ar vegna samgönguerfiðleika. Á Isafirði sagði Kristján kjósend- ur hafa verið um 340, og í Bolung- arvík um 230, færri á öðrum stöðum. Stefnt er að því að telja atkvæðin í dag, þriðjudag, en í gær var talið óvíst að það tækist vegna slæmrar færðar. 340—350 hafa kosið hjá sérframboði Skoðanakönnun vegna framboðs- lista sérframboðs sjálfstæðismanna á Vestfjörðum hófst um helgina. Halldór Hermannsson á ísafirði sagöi í samtali við blaðamann Morgunblaðsins í gær- kveldi, að milli 340 og 350 manns hefðu tekið þátt í henni, en enn ætti eftir að kjósa í ísafjarðardjúpi, það hefði ekki verið unnt um helgina vegna erfiðrar færðar. Þá sagði hann einnig að menn í áhöfnum nokkurra skuttogara, sem verið hefðu að veiðum, ættu eftir að kjósa. Kvað hann kosningu ljúka á miðnætti nk. föstudagskvöld, og yrðu atkvæði væntanlega talin á laugardaginn. stjórnar eftir næstu kosningar, eins og þær síðustu. Sagðist Jón ekki taka sæti á listanum nema ráðherrann fullvissaði hann um að hann myndi ekki ganga gegn meirihlutasamþykki þingflokks- ins, nema þá að segja sig úr flokknum. Jón tilkynnti síðar á fundinum, að svör ráðherrans nægðu sér til að hann tæki sæti sitt á listanum. Pálmi sagði ennfremur í ræðu sinni: „Öllum er kunnugt um að ég hef sótt eftir framboði á vegum Sjálfstæðisflokksins og hlotið til þess stuðning í prófkjöri. Ég mun því sem fyrr heyja þá kosninga- baráttu sem framundan er undir merkjum Sjálfstæðisflokskins. Allir sjá, að núverandi ríkis- stjórn mun ekki starfa áfram, og af háifu okkar sjálfstæðismanna í ríkisstjórninni hafa engar áætlan- ir verið um það að framlengja líf hennar eftir kosningar. Ég tel ekki ástæðu til að stjórn- in segi af sér fyrir kosningarnar, nema nýjar orsakir geri það knýj- andi, en ég tel rétt og sjálfsagt, að stjórnin segi af sér þegar að kosn- ingnum loknum, hvernig áem þær fara. Ég tel jafnframt rétt, að Sjálfstæðisflokkurinn gangi til kosninga óbundinn af því með hverjum hann muni vinna að þeim loknum, ef hann á þá aðild að rík- isstjórn, og ég vona að hann beri gæfu til að standa heill og óskipt- ur að slíku samstarfi." Framboðslisti Sjálfstæðis- flokksins í kjördæminu var sam- þykktur samhljóða í lok fundar- ins. © INNLENT Ujðsmynd Mbl. Ólafur K. Magnússon Hollenzki sendiherrann, Huydecoper, ræðir við Berg Lárusson frá Klaustri og Kristinn Guðbrandsson, f Björgun, á skrifstofu Björgunar í gær, en á milli þeirra er líkan af Het Wapen Van Amsterdam. Leitarmenn á Skeiðarársandi til viðræðna í Hollandi „Stórkostlegt og hríf- andi verkefni að bjarga hollenzka skipinu,u — segir sendiherra Hollands „ÞAÐ ER stórkostlegt og hrífandi verkefni sem liggur fyrir hjá þeim aðilum hérlendis sem hyggjast bjarga hollenzka skipinu Het Wapen Van Amsterdam af Skeiðarársandi og ég hreifst af þeim upplýsingum sem ég fékk hjá talsmönnum björgunarmanna, Kristni Guðbrandssyni og Bergi Lárussyni, í samtali við þá í gær,“ sagði hollenzki sendiherrann, Jonk- heer J.L.R. Huydecoper, í samtali við Morgunbiaðið í gær, en hann átti fund meö leitarmönnum í húsnæði Björgunar í gær. Sendiherrann, sem hefur að- setur í London, er jafnframt sendiherra Hollands á fslandi. Hann sagði það mjög spennandi hvort í sandinum leyndist eins heillegur hluti af hollenzka skip- inu og leitarmenn telja og sam- kvæmt samanburði á þessu sviði við önnur lönd væri margt sem benti til að það væri rétt þótt staðreyndirnar kæmu ekki í ljós fyrr en verkinu yrði lokið. Sendi- herrann kvaðst telja þetta verk- efni geysilega spennandi af ýms- um ástæðum, m.a. að fá í sviðs- ljósið skip af þessari stærð og tegund sem svo margt væri óljóst um þótt ekki væru nema nokkur hundruð ár síðan þau sigldu um heimshöfin með hundruð farþega og fjölbreyttan varning. Þeir Kristinn Guðbrandsson og Sigurður Jónsson í Björgun halda til Hollands í dag til við- ræðna við Amsterdamsjóðinn, en sá sjóður stefnir að því að gefa Amsterdamborg fornt skip á 1000 ára afmæli Amsterdam- borgar 1986. Sjóðurinn hefur lýst yfir áhuga sínum á að kaupa hollenzkt kaupfar sem fórst í Hastings við Bretland, en það skip liggur í flæðarmálinu og vilja Hollendingar borga 10 millj. £ fyrir það ef það næst upp. Það er þó miklum annmörk- um háð vegna ýmissa ástæðna, en hins vegar ráðgera leitar- menn á Skeiðarársandi að öll framkvæmdin við björgun „gullskipsins" kosti 2'Æ milljón punda, eða 'k af því sem Hol- lendingar vilja greiða fyrir Ha- stingss-kipið sem er þó ekki nærri eins spennandi skip, m.a. 100 árum yngra en Het Wapen og mun minna. Forsætisráðherra leggur fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá á næstu dögum: Gerir tillögur formanna flokk- anna f kjördæmamálinu að sínum — Spurning um persónulegt metnaðarmál Gunnars Thoroddsen og um heiðarleika í vinnubrögðum, segir Ólafur R. Grímsson FORSÆTISRÁÐHERRA boðaði á fundi stjórnarskrárnefndar á hádegi í gær, að hann myndi leggja fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá á þessu Alþingi. Frumvarpið sem hann kynnti var byggt á skýrslu stjórnarskrár- nefndar til þingflokkanna, nema hvað varðar kjördæmamálið. Þar var for- sætisráðherra með aðrar tillögur en þingflokkarnir hafa lagt fram sameigin- lega á Alþingi og eru þar nú til meðferðar. Þetta varð til þess að samherjar forsætisráðherra í ríkisstjórnarsamstarfinu og stjórnarskrárnefndarmenn deildu hart á hann í gær. Síðdegis lét forsætisráðherra ráðuneytisstjóra sinn færa nokkrum stjórnarskrárnefndarmönnum þann boðskap, að hann væri hættur við tillöguflutninginn í kjördæmamálinu, en myndi þess í stað leggja fram tillögur samhljóða þeim sem nú eru til meðferðar á Alþingi í nafni formanna flokkanna. Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra sagði aðspurður um mál- ið: „Ég vil ekkert um þetta segja. Þetta var trúnaðarfundur í stjórn- arskrárnefnd og ég skil ekki hverjir eru að flytja fréttir af hon- um.“ Gunnar kvað rétt vera að í undirbúningi væri frumvarp sem hann hefði gert ráð fyrir að flytja um heildarendurskoðun stjórn- arskrárinnar og yrði það í sam- ræmi við skýrslu stjórnarskrár- nefndar. Hann sagði frumvarpið koma fram á næstu dögum og að hann gerði ráð fyrir að flytja það sem forsætisráðherra. Hann vildi ekki tjá sig um innihald þess. Ólafur Ragnar Grímsson, for- maður þingflokks Alþýðubanda- lagsins og fulltrúi þess í stjórnar- skrárnefnd, sagði forsætisráð- herra hafa boðað tillögur í kjör- dæmamálinu á stjórnarskrár- nefndarfundinum í gær sem m. a. hefðu falið í sér fækkun þing- manna í kjördæmum, fjölgun upp- bótarmanna en óbreytta þing- mannatölu. Kvað Ólafur þetta hafa mætt harðri andstöðu á fundinum. „Hann lagði þetta formlega fram og síðan tilkynnir ráðuneytisstjóri forsætis- ráðuneytisins það síðdegis, að hann hefði hætt við þetta þegar hann sá andstöðuna gegn því,“ sagði Ólafur. Um frumvarpsflutning forsæt- isráðherra sagði hann: „Ef hann flytur þarna tillögur formann- anna eingöngu, þá er þetta orðin spurning um persónulegt metnað- armál fyrir Gunnar Thoroddsen. Þingflokkarnir hafa nú þegar lagt þetta fram á Alþingi svo það hefur enga pólitíska þýðingu. Þetta er einvörðungu spurning um hvernig forsætisráðherra finnst pólitísk- um metnaði sínum fullnægt. Þá flytur hann þetta ekki sem stjórn- arfrumvarp, því málið hefur aldr- ei verið rætt í ríkisstjórninni. Ef þingmaðurinn Gunnar Thorodd- sen fer að byggja einkafrumvarp sitt á sameiginlegri vinnu okkar allra í stjórnarskrárnefnd, vekur það upp spurningar um heiðar- leika í vinnubrögðum í nefndinni að formaður hennar sé að taka vinnu okkar allra og reyna að slá sig til pólitísks riddara á þann hátt. Slíkar einkaauglýsingar nú kunna að hindra að stjórnarskrár- málið geti í framtíðinni komist heilt í höfn. Ég vona því að Gunn- ar Thoroddsen fari ekki í fljótræði að skemma fyrir framtíðarárangri í stjórnarskrármálinu," sagði Ólafur Ragnar að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.