Morgunblaðið - 08.03.1983, Qupperneq 18
18
Bob Hawke, nýi forsætisráöherrann.
Ástralía:
Stórsigur
Verkamanna-
flokksins
Sydney, 7. mar.s. AP.
Verkamannaflokkurinn undir
stjórn Bobs Hawke vann mikinn sig-
ur í áströlsku kosningunum sem
fram fóru á laugardaginn. Stjórn
Malcolms Frazer, sem setiö hefur
við völd í sjö ár samfleytt, beið mik-
ið afhroð.
Talning atkvæða var enn í full-
um gangi í gær, en línur þó orðnar
nokkuð skýrar. Verkmannaflokk-
urinn virtist þá öruggur um
21—29 sæta meirihluta í fulltrúa-
deild þingsins. Staðan var óljósari
í öldungadeildinni, en hún getur
stöðvað afgreiðslu mála. Síðustu
tölur bentu þó til að Verkmanna-
flokkurinn hefði minnst 29 sæti
gegn 27 sætum Frjálslynda þjóð-
arflokksins.
Veður
víöa um heim
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berlín
BrUssel
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Færeyjar
Gent
Ftelsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Jóhennesarborg
Kaupmannahötn
Kairó
Lissabon
London
Los Angeles
Madrid
Mallorca
Malaga
Mexicoborgd
Miami
Moskva
Nýja Delhi
New York
Oslð
París
Peking
Perth
Reykjayík
Rio de Janeiro
Rómaborg
San Francisco
Sydney
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
+3 alskýjaó
11 skýjað
16 heíóskfrt
14 mistur
9 skýjaó
10 skýjaó
21 rigning
8 þoka
9 skýjaó
6 rigning
12 heióskírt
0 skýjað
16 skýjað
5 skýjaó
30 heióskírt
7 skýjaó
16 skýjaó
21 heiðskírt
14 heióskírt
22 skýjaó
16 heiðskfrt
16 heióskfrt
15 alskýjaó
26 haióskfrt
25 skýjaó
+1 heióskfrt
25 heióskírt
10 rigning
2 heióskírt
10 skýjaó
7 heióskírt
28 heiöskírt
2 rigning
31 skýjað
16 heióskfrt
15 skýjaó
28 heióskfrt
14 skýjaó
10 skýjaó
13 skýjaó
9 skýjað
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1983
„Ætlum að hafa önnur og lýðrædis-
legri vinnubrögd að leidarljósia
— segir Petra
Kelly, leiðtogi græn-
ingja, í viðtali við
Morgunblaðið
Frá Val Ingimundarsyni, frétUmanni Morgun-
blaðNÍns í Bonn, 7. mars.
„ÞETTA eru söguleg úrslit því
hvergi í heiminum hefur umhverf-
isverndarflokkum tekist að kom-
ast inn á löggjafarþing. Því er hlut-
verk okkar á sambandsþinginu
ekki aðeins að framfylgja stefnu
græningja í V-Þýskalandi, heldur
og að berjast fyrir málefnum um-
hverfisverndarsinna í öðrum lönd-
um“, sagði leiðtogi græningja,
Petra Kelly, er blaðamaður Morg-
unblaösins náði tali af henni í dag.
Umhverfisverndarsinnar voru
hinir eiginlegu sigurvegarar
kosninganna því þeir hlutu 5,6%
atkvæða og komust í fyrsta sinn
i sögu flokksins á þing.
„Þetta er einnig mikill sigur
fyrir kvenréttindahreyfinguna
því í þingflokki okkar verða
fleiri konur en í öllum hinum
þingflokkunum til samans,“
sagði Kelly ennfremur.
Hún var næst spurð að því á
hvaða mál græningjar ætluðu að
Petra Kelly fagnar sigri graeningjanna í v-þýsku kosningunum með Rain-
er Trampert. Slmamynd AP.
leggja mesta áherslu í stjórnar-
andstöðu.
„Við raunum gera allt, sem í
okkar valdi stendur til að koma í
veg fyrir uppsetningu banda-
rískra eldflauga í V-Þýskalandi,
en þó án valdbeitingar. Einnig
munum við leggja fram tillögur
til að vinna bug á atvinnuleysinu
og verða fulltrúar ýmissa þjóð-
félagshópa á þingi, sem minna
mega sín, s.s. kvenna og ellilíf-
eyrisþega.
En við ætlum líka að berjast
gegn afturhaldsstefnu þeirrar
hægristjórnar sem nú situr að
völdum, hvort sem Frans Jósef
Strauss verður utanríkisráð-
herra eða ekki. Það, sem þó
skiptir ekki minna máli, er að
við höfum allt annað yfirbragð
en hinir flokkarnir og ætlum á
þingi að hafa önnur og lýðræðis-
legri vinnubrögð að leiðarljósi
en þar hafa fram að þessu tíðk-
ast.“
Hafa græningjar í hyggju að
starfa með sósíaldemókrötum í
stj órnarandstöðu ?
„Það fer eftir því hvort flokk-
urinn stendur við þá stefnu í
umhverfisverndarmálum sem
þeir hafa markað í kosningabar-
áttunni. En við vonum eindregið
að sósíaldemókratar flýti flokks-
þingi sínu svo úr því verði skorið
hver afstaða þeirra er til meðal-
drægu eldflauganna í V-Þýska-
landi“, sagði Kelly í lokin.
„Niðurstöður kosninganna
slæmar fyrir V-Þýskaland“
— segir formaður flokks græningja, Rainer Trampert, í viðtali við Morgunblaðið
Frá Val Ingiraundarsyni, fréttamanni Morjrun blaésins í Bonn, 7. mars.
BLAÐAMAÐUR Morgunblaðsins
ræddi við formann flokks græn-
ingja, Rainer Trampert, í dag og
spurði hann hvaða áhrif kosninga-
úrslitin hefðu í for með sér.
„Fyrir umhverfisverndarsinna
eru þetta mjög jákvæð úrslit því
á stefnuskrá okkar eru mörg
málefni, sem hinir flokkarnir
hafa með öllu vanrækt, en ef á
heildina er litið tel ég niðurstöð-
ur kosninganna mjög slæmar
fyrir V-Þýskaland, því kjósendur
hafa enn einu sinni veitt hægri
flokkunum brautargengi í
kreppu."
— Hverju getið þið áorkað á
þingi?
„Möguleikar okkar á að fá þar
miklu framgengt hafa minnkað
verulega því að við höfðum von-
að fyrir kosningar, að umhverf-
isverndarsinnar og sósíaldemó-
kratar fengju meirihluta at-
kvæða til að ná fram sameigin-
legum stefnumálum sínum. En í
þinginu verðum við harður
stjórnarandstöðuflokkur. Þar
munum við reyna eftir mætti að
vekja athygli á ýmsum málum
og upplýsingum sem hingað til
hafa ekki verið rædd opinber-
lega, til að styðja samtök, sem
ekki hafa tækifæri til að koma
málum sínum á framfæri á
þingi.“
íranir ekki til við-
ræðu um verðlækkanir
Ix>ndon, 7. mars. AP.
Olíumálaráðherra íran, Ghar-
azi, tilkynnti í London í gær, að
íranir hefðu síður en svo í hyggju
að lækka olíuverð sitt niður fyrir
34 dollara á hverja tunnu. Hann
væri kominn til London til að
ræða um framleiðslukvóta.
Þessi yfirlýsing kom eins og
reiðarslag yfir olíuráðherra
átta annarra OPEC-landa, sem
setið hafa á fundum í London
síðustu dagana til að komast að
samkomulagi að sameiginlegri
verðlækkun. Olíuráðherrar á
borð við Yamani frá Saudi Ara-
bíu höfðu lýst ánægju sinni með
gang mála og talið líklegt að
samkomulag myndi nást. Sam-
eiginlegum fundi hinna 13
OPEC-landa, sem vera átti í
gær, var frestað til dagsins í
dag vegna ummæla Gharazi.
Dr. Sunbroto, olíuráðherra
Indónesíu, sagði fréttamönnum
í gær, að fundarhöld tveggja til
þriggja ráðherra í einu stæðu
enn yfir og öll von væri ekki úti.
Aðspurður hvað myndi gerast
ef Iranir stæðu fastir á ákvörð-
un sinni um verðið, svaraði Su-
broto: „Ef? ef?, ef?“
Sjónarmið Irana þykir
forvitnilegt, því þeir hafa að
undanförnu undirboðið önnur
olíuframleiðsluríki til að losna
við eigin olíu. Talið er að íranir
Tilraun til að myrða
Joshua Nkomo mistókst
Bulawayo, Zimbabwe, 7. mars. AP.
JÖSHUA Nkomo, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar í Zimbabwe,
skýrði frá því að stjórnarhermenn
hefðu verið sendir til að ráða hann
af dögum nú um helgina. Þeim
hafl hins vegar ekki tekist ætlun-
arverk sitt, þar sem hann var ekki
heima er þá bar að garði. Sagði
hann þá aftur á móti hafa orðið
lífverði sínum og einkabflstjóra að
bana.
„Líf mitt er í hættu," sagði
Nkomo og bætti því við, að
morðtilraun stjórnvalda væri
liður í tilraun til þess að útmá
stjórnmálaflokk sinn, Zapu-
flokkinn. „Ég get aðeins biðlað
til þjóða heimsins um að þau
reyni að berja einhverja vitglóru
inn í höfuð Mugabes," sagði
Nkomo ennfremur.
Mörg hundruð hermenn
þrömmuðu hús úr húsi í dag,
þriðja daginn í röð, í leit að
vopnuðum stjórnarandstæðing-
um. í dagblaðinu Harare Herald
var í dag haft eftir háttsettum
aðstoðarmanni Mugabes, að
undangengnar handtökur með-
lima Zapu-flokksins væru nægi-
leg sönnun þess, að banna bæri
starfsemi hans.
ætli sér að fá framleiðslukvóta
sem hljóðar upp á 3.000 tunnur
á dag að meðaltali. Það er aukn-
ing um 500 tunnur á dag, auk
þess sem þeir heimta að S-Ar-
abar minnki framleiðslu sína úr
5.000—6.000 tunnum á dag í
3.000 tunnur.
Mikill geigur er nú í mörgum
olíuráðherrum OPEC, ekki síð-
ur en í öðrum olíuframleiðslu-
ríkjum. Náist ekki samkomulag
innan OPEC um olíuverðið nú,
eru dagar samtakanna líklegast
taldir og þá er spáð að hver
verðlækkunin muni reka aðra,
þar sem framleiðsluríkin munu
reyna hvert fyrir sig að selja
. ERLENT.