Morgunblaðið - 08.03.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1983
19
• •
Blaðburðarfólk
óskast!
IIIIM'J,
Hans Jochen Vogel og Ilelmut Schmidt, fyrrum kanslari, takast í hendur á fundi SPD í Bonn í dag. Símamynd AP.
Ofl úr viðskiptalífinu
höfðu áhrif á kjósendur
— segir í yfirlýsingu sósíaldemókrata
Krá Val ingimundarsyni, irétumanni MorgunblaAsins í Bonn, 7. mars.
í YFIRLÝSINGU, sem sósíaldemó-
kratar gáfu út í dag kemur fram, aö
þeir hafi ekki náð markmiðum sín-
um, en myndu í stjórnarandstöðu
berjast fyrir stefnumálum sínum á
þingi. Þá kom einnig fram, að aðal-
áherslan yrði lögð á atvinnumá), fé-
lagslegt réttlæti og frið.
í yfirlýsingunni segir ennfrem-
ur: „Kristilegir demókratar hafa
unnið kosningarnar á kosningalof-
orði sínu um efnahagsbata, en
áhrifasamtök í viðskiptalífinu
hafa með stuðningi sínum við
kristilega demókrata ekki síður
haft áhrif á kjósendur."
Þar kemur einnig fram, að
stjórn flokksins hefur farið þess á
leit við Hans Jochen Vogel, að
hann taki að sér forystuhlutverk
sósíaldemókrata í stjórnarand-
stöðu, sem þingflokksformaður.
Vogel gaf í skyn í dag, að hann
hyggðist taka þessu boði.
Sigur kristilegra demókrata
og græningja í V-Þýskaland
hljiHTilir vel - .SSK
HLJOMBÆRl^Si^”
u m
HUOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 S(MI 25999
ÚTSÖLUSTAÐIR: Portlö. Akranesi — KF Borgf Borgarnesi — Stálbúöin. Seyöistiröi — Skógar. Egilsstööum — Djúplö. Djúpavogi -
Verls inga, Hellissandi — Patróna. Patreksfiröl — Serla. Isafiröl — Hornbær. Homaflröl — KF Rang Hvolsvelll — MM, Selfossi —
Sig. Pálmason. Hvammstanga — Alfhóll. Sigluflröl — Cesar, Akureyri — Eyjabær, Vestmannaeyjum — Rafeindavirklnn, Grlndavlk—■
Radfóver. Húsavík — Paloma. Vopnafiröi — Ennco, Neskaupsstaö — Fataval. Keflavík.
Krá Val Ingimundarsyni. fréttaritara Mbl. í Bonn. 7. mars.
„NIÐURSTÖÐURNAR sýna Ijóslega, að kjósendur styðja stefnu miðju-
stjórnar minnar, en sigrinum fylgir mikil ábyrgð,“ sagöi Helmut Kohl,
kanslari V-Þýskalands, þegar fyrstu tölvuspár um úrslit þingkosninganna
voru birtar á sunnudagskvöld. Þá var Ijóst, að kristilcgir demókratar og
systurflokkur þeirra í Bæjaralandi höfðu unnið stórsigur.
Endanleg úrslit urðu þau, að
kristilegu flokkarnir hlutu 48,8%
atkvæða og 244 þingsæti, sósíal-
demókratar 38,2% og 193 þing-
sæti, frjálsir demókratar 6,9% og
34 þingsæti og umhverfisvernd-
arsinnar, eða græningjar eins og
þeir eru alla jafna nefndir, fengu
5,6% atkvæða og 27 þingmenn.
Aðrir flokkar hlutu aðeins 0,5%
atkvæða og engan mann kjörinn.
Kristilegu flokkarnir bættu við
sig 4,3% frá þvi í kosningunum
1980, en það er næstbesti árangur,
sem þeir hafa náð í þingkosning-
um eftir stofnun sambandslýð-
veldisins. Sósíaldemókratar, undir
forystu Hans Jochen Vogel, biðu
hins vegar mikinn ósigur og töp-
uðu 4,7% atkvæða frá síðustu
kosningum. Þarf að leita allt aftur
til ársins 1961 til að finna sam-
bærilegt fylgi flokksins.
Sigur græningja
Segja má, að græningjar, sem
komust nú í fyrsta sinn á þing,
hafi ásamt kristilegum demókröt-
um verið sigurvegarar þessara
kosninga. Þeir hlutu aðeins 1,5%
atkvæða í kosningunum 1980.
Þrátt fyrir að frjálsir demókratar
hafi misst 3,7% fylgi frá síðustu
kosningum kom árangur þeirra nú
mjög á óvart þar sem margir
höfðu spáð því fyrir kosningarnar,
að þeir kæmust ekki á þing.
Hans Jochen Vogel, kanslara-
efni sósíaldemókrata, sagði þegar
úrslitin voru kunngerð, að flokk-
urinn hefði goldið afhroð í kosn-
ingunum. Hann lýsti því hins veg-
ar einnig yfir, að SPD myndi
halda uppi öflugri stjórnarand-
stöðu á þingi.
Síðan sagði hann: „Sem kansl-
araefni ber ég að sjálfsögðu að
miklu leyti ábyrgð á tapi flokks-
ins.“ Vogel bætti við og sagði, að
sá áróður kristilegra demókrata í
kosningabaráttunni, að núverandi
stjórn hefði á fimm mánaða ferli
sínum náð árangri í efnahagsmál-
unum, hefði haft mikið að segja
um úrslit kosninganna.
Frans Josef Strauss, formaður
systurflokks kristilegra demó-
krata, sagði er úrslitin lágu fyrir,
að flokkurinn, sem fékk 60% at-
kvæða í Bæjaralandi, hefði aldrei
náð jafn góðum árangri í þing-
kosningum frá stofnun sam-
bandslýðveldisins.
Strauss vildi ekkert segja á
þessu stigi um hvort hann tæki við
ráðherraembætti í næstu stjórn,
en sagði: „Ég flýg til Bonn á morg-
un til fundar við Kohl.“
Þriöja aflið
Hans-Dietrich Genscher, for-
maður frjálsra demókrata, sagði
að flokkurinn hefði fest sig í sessi,
sem þriðja aflið í v-þýskum
stjórnmálum. „Þrátt fyrir áróð-
ursherferð sósíaldemókrata gegn
flokknum bera úrslitin því vitni,
að kjósendur styðja stjórnar-
samstarf frjálsra og kristilegra
demókrata," sagði Genscher.
Petra Kelly, leiðtogi græningja,
sagði í tilefni úrslita kosninganna,
að flokkurinn hefði náð takmarki
sínu með því að komast á þing.
„Fyrsta skref okkar í stjórnar-
andstöðu verður að gera allt, sem í
okkar valdi stendur til að hindra
þau áform stjórnarflokkanna að
koma fyrir meðaldrægum eld-
flaugum í V-Þýskalandi í lok
þessa árs,“ sagði Kelly.
Þess má geta í lokin, að kjör-
sókn var 89,1%, sem er þriðja
besta kosningaþátttaka í
V-Þýskalandi frá því 1949.
Austurbær Vesturbær Kópavogur
Flókagata 1—51. Granaskjól Hrauntunga
Bólstaöarhlíö 1—39
Belyavski
vann Gary
Kasparov
Moskvu, 7. mars. AP.
ALEXANDER Belyavski bar á
laugardag sigurorð af landa sín-
um Gary Kasparov í fjórðu ein-
vígisskák þeirra í fjórðungsúr-
slitum einvíganna um hver raætir
heimsmeistaranum Anatoly Kar-
pov í áskorendaeinvígi.
Með sigri sínum jafnaði
Belyavski metin í einvígi hans
við hinn efnilega Kasparov,
2—2. Fyrstu skák þeirra lauk
með jafntefli, sem og þriðju
skákinni, en Kasparov vann
aðra skákina.
Belyavski hafði hvítt í sigur-
skákinni á laugardag og lagði
grunninn að sigri sínum með
peðsfórn í 13. leik eftir 40 mín-
útna umhugsun og svo annarri
peðsfórn í 15. leik.
Sókn hans á kóngsvængnum
bar loks árangur í 38. leik er
Kasparov gafst upp og játaði
sig sigraðan. Þetta var aðeins
22. tap Kasparovs í 244 skákum
á stórmeistaraferli hans.