Morgunblaðið - 08.03.1983, Page 45

Morgunblaðið - 08.03.1983, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1983 45 VELVAKANOI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS alltof mikið um hið veraldlega. Stærstu viðfangs- En gleymt er því aö musteri Guðs eru „Mér finnst kirkjan hugsa efnin eru kirkju- og húsbyggingar. hjörtun sem trúa.“ Stærstu viðfangsefnin eru kirkju- og húsbyggingar. En gleymt er því að musteri Guðs eru hjörtun sem trúa. „Hvers vegna," spyr ég aftur og aftur, „sker íslenska kirkjan ekki upp herör og ver kröftum sín- um í baráttu við það sem brýtur niður og sundrar og tortímir að lokum manninum, sjálfri guðs- myndinni?““ Þjónusta við aldraða enn fyrir hendi Þættinum hefur borist svar frá Landsbanka íslands, aðalbanka, við fyrirspurn Kristjáns Guðmundar Kristjánssonar í Velvakanda- dálkunum 18. febrúar sl. „Fyrirspyrjandi getur verið full- viss um, að þjónusta þessi er enn fyrir hendi. Landsbankinn aðstoðar og leiðbeinir öldruðu fólki eftir þörf- um eins og verið hefur, svo og öðr- um sem þess þurfa með.“ Veit ekki um neinn sum- arbústaðareiganda sem hef- ur fengið úr þessum sjóði Hafliði Benediktsson, félagi í verkalýðsffelagi, skrifar: „Heill og sæll, Velvakandi góð- ur. Ég er einn af þeim mörgu sem eiga sumarhús í sveitinni og hef þar af leiðandi fylgst vel með um- ræðum um sýslusjóðsgjaldið sem fram hafa farið í þætti þínum ný- lega. Er ég sammála þeim í einu og öllu. En ég hef ekki orðið var við nein svör við öllum þeim spurningum, sem þar hafa verið bornar upp, og langar þar af leið- Alþingi og varðar skráningu allra hunda á höfuðborgarsvæðinu og yfirvofandi þungaskatt á okkur líka sem höldum hund, sem sjald- an raskar ró náungans með ótíma- bæru gelti, vil ég koma á framfæri þeirri tillögu, að bróðurpartinum af fénu verði varið til að hækka laun þeirra einstaklinga í þjóðfé- laginu, sem fá mæðra- eða feðra- laun með einu barni, en uppeld- isstarf þeirra er núna metið á rúmar tvö hundruð krónur á mán- uði. Eykur breidd menningar- lífs okkar Ásgeir Pálsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Þeir dag- ar sem manni tekst ekki að hlæja eru alveg glataðir. Ég gæti leyft mér að ganga um með fýlusvip í heila viku, því að ég hló fyrir alla vikuna, ef ekki meir, á sýningu Revíuleikhússins á „Karlinum í kassanum" um daginn. Ég hvet alla sem tök hafa á að fara á þessa sýningu; ekki bara vegna þess að ekki veiti af að kippa dálítið í munnvikin á landsmönnum þessa dagana, heldur einnig til að styrkja framtak Revíuleikhússins. Það eykur breidd menningarlífs okkar, sem höfum ríka tilhneig- ingu til að líta á lífið alvarlegum augum. andi að bæta aðeins við, ef það er ekki of seint. Það er þá i fyrsta lagi: Þarf utanbæjarfólk að borga sambæri- legt gjald af þeim fasteignum sem það á í borgum og bæjum lands- ins? I öðru lagi: Hvers vegna þarf maður, sem á sumarhús en ekki bíl og notar rútu eins og ég veit dæmi um, að borga þetta gjald, plús tvöföld fasteignagjöld, plús lóðarleigu til landeiganda, plús brunatryggingu, plús viðhald á vegum og brúm að sínum bústað? Ég veit ekki um neinn sumarbú- staðaeiganda sem hefur fengið vegarlagningar- eða viðhaldsfé úr þessum dæmalausa sjóði. Núna eru að hefjast umræður um vegalögin í þinginu og jafn- framt um þá sem komi til með að njóta þeirra forréttinda að þurfa ekki að greiða þennan skatt og verður fróðlegt að sja hverjir það verða, en eins og menn muna voru framkvæmd „slétt skipti" milli ákveðinna manna vegna kjara- breytinga hérna um árið. Kannski verður líka bætt í vegalög að þeir sem aki um á gulum Volvo þurfi að borga hærri vegaskatt? Grein- argerð með þingsályktunartillög- unni gæti hljóðað: vegna þess að þeir endast lengur og eru þar af leiðandi lengur á vegunum en önn- ur ökutæki er ekki óeðlilegt að álykta að bla bla bia. Ef engin svör berast skora ég á Mbl. að gera út rannsóknarblaða- mann og rannsaka þessi mál oní kjölinn og reyna þar að ná fram öllu því sem spurt hefur verið um og einnig m.a. hvort hægt sé að reikna út tekjur/eða gjöld þjóðar- bústertunnar af þessu bústaða- brölti okkar, þ.e. kaupum á dýr- asta bensíni í heimi, tolli, vörugj., sölusk. af efni og verkstæðisvinnu, vinnu fyrir smiði, rafmagnssölu o.fl. o.fl. Enn eitt: hvað væru þetta margar Mæjorkaferðir ef við hefð- um eytt þessum peningum öllum í svoleiðis sem væri ekki óeðlilegt ef við hefðum ekki látið glepjast af byggðastefnuismanum, og hvað væri þá gjaldeyrisfjallið okkar hátt/lágt? Sumarbústaðaeigendur, notum tímann vel fram að kosningum. Nú er verið að stofna bandalög, flokka, fjölga þingmönnum og allt þar fram eftir götunum. Verðum við ekki að fara á útsölurnar og reyna að tryggja okkur þó ekki væri nema einn talsmann við Austurvöll næstu 4 árin?“ Es. Það er verst að ekki skuli vera hægt að sprengja neinn skúr í loft upp eins og þegar vegatoll- skýlið var sprengt í loft upp á Keflavíkurveginum forðum daga þegar þeir sem endilega langaði til að aka um Reykjanes þurftu að borga aukalega fyrir það.“ Ríkisútvarp- iö með fjöl- breytta dagskrá Jóhanna Leifsdóttir, Keflavík, skrifar: „Velvakandi. Ríkisútvarpið er með mjög fjölbreytta dagskrá og hef ég bæði gagn og gaman af efninu, sem þar er flutt. Mig langar að þakka Her- manni Ragnari Stefánssyni fyrir frábæran þátt sem er á mánu- dögum og heitir Ég man þá tíð. Ég tala fyrir munn margra og við skorum á útvarpsráð að lengja þennan þátt fyrir okkur sem erum komin á þann aldur að við erum farin að rifja upp gamlar og grónar minningar. Með kveðjum." GÆTUM TUNGUNNAR Sagt var: Hann Ijóstaði upp glæpnun: Rétt væri: Hann Ijóstraði upp glæpnu: SIEMENS Einvala lið: Siemens- heimilistækin Úrvai v-þýskra SIEMENS-heimilistækja þar sem hvert tæki leggur þér lið við heimilisstörfin. Öll tæki á heimilið frá sama aöila er trygging þín fyrir góöri þjónustu og samræmdu útliti. SMITH & NORLAND HF. NÓATÚNI 4, SÍMI 28300. STJORNUNARHUEIISLA Birgðastýring Laiðbeinendur: Markmið námskeiösins er: — að þátttakendur verði færir um aö finna (reikna) hvert sé heppilegasta pöntunarmagn (framleiöslumagn) þar sem tekið er tillit til öflunar og fjármagnskostnaöar — aö þátttakendur fái yfirlit yfir nauösynlega þætti í birgöa- stýringarkerfi og hvernig þeir tengjast. Efni: — Orsakir birgóasöfnunar, stýr- ingarhugtakið, tegundir birgða, birgðakostnaöur, markmið birgöa- stýringar, útreikningsformúlur fyrir heppilegasta innkaupamagn, til- færslureglur, öryggisbirgöir; reikn- uð dæmi. — Greining birgöa eftir mikilvægi miöað viö mismunandi forsendur. Aðferöir til að halda birgðum í lág- marki. Skortur og afleiöingar hans. Tölvukerfi fyrir birgðabókhald og stýringu. Hagkvæmni tölvunotkun- ar fyrir birgöabókhald. Þátttakendur: Þeir sem hafa birgöahald og vilja kynnast aöferöum til þess aö forðast aö binda of mikið fjármagn í birgðum. Þaö eru t.d. forstöðumenn meöalstórra og lítilla verslunar- og iön- fyrirtækja. Hjá stærri fyrirtækjum: inn- kaupastjórar,\ deildarstjórar og verk- stjórar er hafa birgöahald meö hönd- Pétur K. Maack um. verkfræöingur Halldór Friðgeirsson verkfræðingur STADUR: Síðumúli 23. TÍMI: 14.—16. mars kl. 15:00—19:00. Mótun starfsumhverfis, starfsferils og hvatning í starfi Tilgangur námskeiösins er aö lýsa upp- byggingu og eöli starfsmannahalds og hlutverki þess í stjórnun fyrirtækisins, starfsmati og þátt streitu og annarra sálfræöilegra atriða í starfsumhverfi. Efni: — Fjallað veröur um eftirtalin atriöi: — Starfsumhverfi og þróun þess. — Atvinnusálarfræöi. — Áhrif streitu og umskipta. — Þroski einstaklingsins innan fyrir- tækisins. — Hvatning í starfi. — Skipulag starfsferils. — Ráðningarsamningar og starfslýs- ingar. — Móttaka nýrra starfsmanna. Þátttakendur: Námskeiöiö er ætlaö stjórnendum minni fyrirtækja þar sem starfsmannahald er ekki sérstök deild innan fyrirtækisins, og starfsmanna- stjórum stærri fyrirtækja. STAÐUR: Síðumúli 23 TÍMI: 17,—18. mar* kl. 09:00— i6:30. Leiðbeinendur: Haukur Haraldsson markaðsfulltrúi Dr. Eiríkur Örn Arnarson sálfræðingur Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.