Morgunblaðið - 10.11.1983, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐM. HALLDÓRSSON
Umboð til umbóta
HVÍTI minnihlutinn í SuAur-Afríku hefur samþykkt nýja stjórn-
arskrá, sem kveður á um að kynblendingar og Indverjar og
annað fólk af asískum uppruna, fái að kjósa til þings. Stjórn-
arskráin var samþykkt með 66% atkvæða og P.W. Botha forsæt-
isráðherra benti á að þetta væri miklu meiri stuðningur en búizt
hafði verið við. Úrslitin eru talin mikill sigur fyrir hann og flokk
hans, Þjóðernisflokkinn, sem nú hefur fengið umboð til að gera
fleiri breytingar í kynþáttamálum Suður-Afríku.
Margir kjósendur, sem
venjulega kjósa ekki Þjóð-
ernisflokkinn, greiddu hinni nýju
stjórnarskrá atkvæði, því að þeir
töldu hana til bóta þótt hún
breytti litlu. Þeir vona að þetta
sé aðeins fyrsta skrefið og rétt-
indi blökkumanna verði einnig
aukin. Kröfur um slíkt hafa auk-
izt síðan þjóðaratkvæðagreiðslan
fór fram. Sjálfur sagði Botha að
stjórnarskráin útilokaði ekki að
réttindi blökkumanna yrðu aukin
síðar og aðstoðarmaður hans
sagði að þrátt fyrir ströng
ákvæði til að varðveita yfirráð
hvítra manna þróuðust mál oft
öðru vísi en ráð væri fyrir gert.
Áhrifamikil blöð enskumæl-
andi manna, sem venjulega eru
andvíg ríkisstjórninni, studdu
nýju stjórnarskrána. Sama gerði
töluverður fjöldi enskumælandi
manna, sem venjulega styður
Framfarasinnaða sambands-
flokkinn (PFP), sem er í stjórn-
arandstöðu og berst fyrir afnámi
aðskilnaðarstefnunnar í kyn-
þáttamálum (apartheid). PFP
hefur hins vegar barizt gegn
stjórnarskrárfrumvarpinu síðan
það var fyrst lagt fram fyrir sex
árum, þar sem blökkumenn séu
skildir út undan.
PFP hefur því verið á sama
báti og Ihaldsflokkur Andries
Treurnicht, sem stendur lengst
til hægri, þótt afstaða flokkanna
byggist á ólíkum forsendum. Síð-
an stjórnarskrártillögurnar litu
fyrst dagsins Ijós hafa þær mætt
geysiharðri andstöðu hvítra
harðlínumanna, sem eru andvíg-
ir hvers konar tilslökunum gagn-
vart blökkumönnum, og flokkur
Treurnicht var stofnaður vegna
þess klofnings, sem stjórnar-
skrármálið hefur valdið í röðum
hvítra manna. Stuðningsmenn
Treurnichts segja að stjórn-
arskráin muni leiða til meiri-
hlutastjórnar blökkumanna og
leggja efnahaginn í rúst.
Lýðveldisflokkurinn, sem er
nýr smáflokkur, studdi einnig
stjórnarskrána og leiðtogi hans,
Vause Raw, segir að stjórn Botha
hafi fengið „grænt ljós“ til að
ganga lengra í umbótaátt.
Fredrik van Zyl Slabbert, leið-
togi PFP, sagði að hvítir menn
hefðu stutt stjórnarskrána, þar
sem þeir teldu umbætur nauð-
synlegar, og gaf til kynna að
flokkurinn mundi lýsa yfir
stuðningi við hana nú þegar úr-
slitin lægju fyrir. Ef ríkisstjórn-
in túlkaði úrslitin sem umboð til
umbóta teldi hann það skyldu
stjórnarandstöðunnar að styðja
slíka umbótaþróun, þótt gallar
væru á stjórnarskránni.
Samkvæmt nýju stjórnar-
skránni skiptist þingið í þrjár
deildir, deildir hvítra manna,
kynblendinga og Indverja. Hver
þingdeild fær lögsögu í málum
síns kynþáttar, en „almenn" mál
verða að hljóta afgreiðslu allra
þingdeilda. Síðan er ætlunin að
kjósa valdamikinn forseta, sem
velur sér sjálfur ríkisstjórn, fær
vald til að ákveða hvaða mál fari
fyrir hvaða deild og stjórnar
svokölluðu forsetaráði, sem getur
hnekkt vilja þingdeilda kyn-
blendinga og Indverja. Forsetinn
getur beitt hinum miklu völdum
sínum með stuðningi aðeins 30 af
hundraði þingmanna og aðeins
einnar þingdeildar.
Ef blökkumönnum verða
tryggð sömu réttindi og kyn-
blendingum og Indverjum gengi
það í berhögg við apartheid-
stefnuna, sem gerir ráð fyrir að
komið sé á laggirnar „sjálfstæð-
um“ blökkumannaríkjum.
Stjórnin lítur svo á að blökku-
mennirnir séu borgarar þessara
„heimalanda", fjórum slíkum
ríkjum hefur þegar verið komið á
fót og hið fimmta er í burðarliðn-
um. En þjóðernissinnar gera sér
grein fyrir því að helmingur
blökkumanna, sem eru 21 millj-
ón, býr í borgunum og umhverfis
þær og að ekki er hægt að flytja
þá þaðan, því að þá hryndi efna-
hagskerfið til grunna.
Botha var landvarnaráðherra í
12 ár og fréttaritari Observer tel-
ur að hernaðarráðunautar hans
hafi sannfært hann um nauðsyn
þess að treysta betur valdastólpa
hvíta minnihlutans. Því er spáð
að á næstu 50 árum muni blökku-
mönnum fjölga í 80 milljónir, en
hvítir menn, sem eru tæpar þrjár
milljónir, muni standa í stað. Því
finnst hvítum mönnum að þeir
þurfi að gera kynblendinga og
Indverja að bandamönnum. Þeir
vilja einnig fjölga í heraflanum
og Botha hefur oft sagt að her-
skylda án pólitískra réttinda
komi ekki til greina.
En Botha vill búa svo um hnút-
ana að hinir nýju bandamenn
ógni ekki pólitískum yfirráðum
hvítra manna og í nýju stjórn-
arskránni er reynt að finna leið
til að skipta völdunum án þess að
hvítir menn glati yfirráðum sín-
um. Hún er þannig úr garði gerð
að komið verður í veg fyrir hvers
konar tilraunir, sem kynblend-
ingar eða Indverjar kunna að
gera til þess að hafa áhrif á
stjórn landsins.
Næsta skref Botha verður að
koma á fót einhvers konar stjórn,
sem fer með málefni borgar-
blökkumanna og getur dregið úr
hugsanlegum stuðningi þeirra
við þjóðernissinnaða blökku-
menn, sem reyna að kollvarpa
ríkisstjórninni. Sérfræðingar
Þjóðernisflokksins vinna að gerð
áætlunar um þetta, en hingað til
hefur ekkert verið gert að öðru
leyti en því að borgarblökku-
menn hafa fengið bæjarstjórnir.
Botha mun síðan ræða við leið-
toga kynblendinga, sem eru 2,7
milljónir, og Indverja, sem eru
800.000, um afstöðu þeirra til
stjórnarskrárinnar. Herskáir
leiðtogar Indverja og kynblend-
inga hafa fordæmt þjóðarat-
kvæðagreiðsluna, eins og við var
búizt, og spá því að nýju þing-
deildirnar verði hundsaðar.
Flokkur hófsamra kynblendinga
hefur hins vegar samþykkt að
taka þátt í störfum hins nýja
þings og leiðtogi hans, Allan
Hendrickse, segir að hinn mikli
stuðningur hvítra manna við
stjórnarskrána muni auka stuðn-
ing kynblendinga við hana.
Leiðtogi helzta flokks Ind-
verja, Þjóðlega alþýðuflokksins,
Amichand Rajbansi, segir að
flokkurinn vilji sjá hvernig
stjórnarskráin reynist áður en
hann taki afstöðu til hennar.
Blökkumenn hafa reiðzt til-
raunum, sem þeir segja að gerðar
séu til að mynda bandalag hvítra
manna, kynblendinga og Ind-
verja gegn þeim, og hafa gert
nýjar tilraunir til að sameinast.
Þrjú ný bandalög blökku-
manna hafa komið til sögunnar.
Þeirra stærst er Sameinaða lýð-
ræðisfylkingin (UDF), samtök
400 verkalýðsfélaga og annarra
félagasamtaka, sem aðhyllast
stefnu Afríska þjóðarráðsins.
Um 200 samtök hafa sameinazt í
félagsskap, sem kallast „Nation-
al Forum“, og aðhyllist hug-
myndir „vitundar“-hreyfingar
Steve Biko. Loks hafa sex
„heimalanda“-leiðtogar og nokk-
ur bæjarráð og fyrirtæki blökku-
manna myndað samtök (South
African Federal Union), sem
stefna að því að koma á fót þingi
blökkumanna. Leiðtogi þeirra er
ættarhöfðinginn Gatsha Butel-
ezi, leiðtogi Zulumanna, sem
harðast hefur gagnrýnt nýju
stjórnarskrána og óttast að hún
geti leitt til ofbeldisverka.
Botha segir að nýju stjórn-
arskránni verði hrundið í fram-
kvæmd á seinni hluta næsta árs
og líklega verður hann kjörinn
forseti þegar þar að kemur. Þá
verða ný þáttaskil í Suður-
Afríku.
Botha: verður hann valdamikill forseti?
Þakjárns-útsala
Viö köllum þetta útsölu, því nú seljum viö þakjárn á
aöeins 119 kr. hvern metra.
Frá Englandi: 2 m, 21/z m og 3 m, Bg. 28.
Frá Belgíu: 2,4 m, 2,7 m og 3 m, Bg. 28.
Tökum niöur þantanir í síma 38560 fyrir hádegi og í
síma 42740 eftir hádegi.
Afgreiöslustaöur: Smiðjuvegur 11, Kópavogi.
Staögreiösla.
Verslanasambandiö hf.
NOACK
FYRIR ALLA BÍLA 0G TÆKI
Sænsku bilaframleiðendurnir VOLVO, SAAB og SCANIA
nota NOACK rafgeyma vegna kosta þeirra.
HVERFISGATA 56, SfMI 23700. NÓATÚN17, SÍMI23670.
Með nýju afsláttarkortunum gefst þér nú kostur á að safna saman
öllum úttektum þínum hjá Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna jafn-
óðum og vinna til okeypis útlánsá myndefni síðar.
Þegar þú hefur safnað 20 úttektum á kortið færðu að velja þér 3
spolur til afnota ókeypis. Þannig getur þú aftur og aftur fengið nýtt
afsláttarkort og haldið saman úttektum þínum, vitandi það að slíkt
borgar sig. Komdu, fáðu þér afsláttarkort strax í dag og kynntu þér f
leiðinni allar nýju myndirnar sem voru að koma. Úrvalið aldrei meira.
Nú er einnig hægt að taka út og skila spólum á hvorum staðnum sem
er, hafi menn samninginn meðferðis. Athugið að i verslunarmiðstöð-
inni að Nóatúni 17 eru þó aðeins VHS-spólur ennþá.
y&RÁNK,
A VIDEO
nrm
csc 0% y © [ími
VIDEO L *’ PICTUMS