Morgunblaðið - 10.11.1983, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1983
21
Mál og menning:
„Litla rauða
rúmið“
Barnabók eftir Ás-
laugu Ólafsdóttur
ÚT EK komin hjá Máli og menningu
ný íslensk bók fyrir yngstu börnin:
Litla rauða rúmið. Höfundur er Áslaug
Ólafsdóttir, kcnnari á Kirkjubæjar-
klaustri, en myndirnar gerði Kagnhild-
ur Ragnarsdóttir.
Eiginlega er litla rauða rúmið að-
alpersónan í sögunni. Það er orðið
gamalt rúm, því þrír bræður Ásu eru
búnir að sofa í því og kunnu ágæt-
lega við sig. Nú er komið að Ásu. En
henni finnst svo þægilegt að sofa hjá
pabba og mömmu og alveg ástæðu-
laust að flytja sig. Þangað til Pési
kcmur. Hann vill endilega fá að sofa
í litla rauða rúminu ...
Bókin Litla rauða rúmið er sett og
prentuð hjá Formprenti, en útliti
hannaði Repró, Valgeir J. Emilsson.
(Úr fréUatilkynningn)
Barna- og unglingabók:
„Lassi í
baráttu“
KOMIN er út ný bók eftir Thöger
Birkeland, Lassi í baráttu. Þýðinguna
gerði Sigurður Helgason, bókavörður,
en útgefandi er Æskan.
I frétt frá útgefanda segir m.a.:
„í baráttu er fyrsta bókin í bóka-
flokki um strák sem heitir Lassi.
Hann elst upp í litlu sjávarþorpi, en
aðstæður verða til þess að hann
verður að flytjast til stórborgarinn-
ar. Sagan segir frá baráttu Lassa i
hörðum heimi stórborgarinnar. Hún
lýsir því hversu ólík tilveran er á
þessum tveim stöðum, þorpinu og
borginni.
Sagan er einkar vel rituð og held-
ur lesandanum við efnið frá upphafi
til enda. Hún gefur ljósa mynd af lífi
sem ótrúlega mikill fjöldi barna og
unglinga verður að búa við, en fæst
okkar yrðu líklega ánægð með.“
Þá segir, að höfundur bókarinnar
sé einn snjallasti barna- og ungl-
ingbókahöfundur Dana og fáir njóti
þar viðlíka hylli og hann. Bókin er
128 bls. að stærð.
F^rsta skrefið
í tölvuvæðingu
fyrirtækis
kostar aðeins
lkrónu 67aura
Hjá sumum verður kostnaðurinn
aldrei meira en eitt símtal.
Hjá fleirum á símtalið þó eftir að leiða til verulegra
fjárfestinga í tölvubúnaði, því fyrir langflestfyrirtæki
er tölvuvæðing nauðsynleg til þess að standast
hina höröu samkeppni nútlmans.
Þess vegna er mjög mikilvægt að tölvuvæðingin
hefjist á réttum stað.
I 7 ár hefur tölvudeild HeimilistæKja unnið að
þróun og uppsetningu fjölda Wang tölvukerfa
víðs vegar um land.
Frábær framleiðsla Wang hentar nær öllum
fyrirtæKjum og að viðbættri öruggri þjónustu og
reynslu tölvudeildar Heimilistækja er tryggt að um
framtíðarlausn sé að ræða.
Hafið samband og notfærið yKkur reynslu okkar
og ánægðra Wang notenda.
við verðum hérna li'ka á morgunl
Wang er skref í rétta átt
Heimilistæki hf
TOLVUDEILD-SÆTÚNI8-SÍMI27500
Opið í kvöld tíl kl. 20
TT Amr ATTP Skeifunni 15
niiVJliAU 1 Reykjavík