Morgunblaðið - 27.11.1983, Page 13

Morgunblaðið - 27.11.1983, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1983 61 Skokkaði í frelsið Munrhen, 24. nóvember. AP. TVÍTUGUR a-Þýskur landa- mæravördur gerdi sér lítið fyrir í gær, smcllti sér í trimmgallann sinn og skokkaði yfir landa- mærin og til móts við frelsið, án þess nokkur gerði tilraun til að stöðva hann. Engin skýring hefur enn fengist á því hvernig honum tókst að sleppa. Honum hefur verið veitt pólitískt hæli í V-t>ýskalandi. Landamæra- vörðurinn er ellefti A-Þjóð- verjinn, sem sleppur yfir landamærin til Bæjarlands á þessu ári. í þeim hópi eru m.a. tveir starfsbræður hans. Sænska sjónvarpið fær Emmy- verðlaun New York, 22. nóvember. AP. SÆNSKA sjónvarpið vann Emmy- verðlaunin í flokki heimildamynda fyrir mynd um upphaf mannsins, en tilkynnt var í dag hverjum hin árlegu verðlaun féllu í skaut. Sænska sjónvarpið beitti mjög fullkominni ljósmyndatækni við gerð þáttanna, sem bera heitið „Undur lífsins", þar sem lýst er hvernig maðurinn verður til. Helztu keppinautar sænska sjón- varpsins í heimildamyndaflokki voru japanska sjónvarpið og Thames-stöð óháðu sjónvarps- stöðvarinnar brezku. Kanadíska sjónvarpið hlaut verðlaunin í flokki barnaefnis, brezka ríkissjónvarpið BBC í flokki alþýðulistar og Granada- stöð óháðu sjónvarpsstöðvarinnar brezku í flokki leiklistar. Samtals sendu sjónvarpsstöðvar í 22 lönd- um 140 þætti í keppnina um Emmy-verðlaunin. Sog- uðust ofan í djúpið Manila, 23. nóv. AP. ÓTTAZT er, að 200 manns kunni að hafa misst lífið, eftir að ferju frá Filippseyjum hvolfdi og hún sökk í hvirfilvindi. Gerðist þetta um hádegisbil á mánudag um 700 km fyrir austan Manila. Um borð í ferjunni voru 400 manns. Einn þeirra, sem lifði skipskaðann af, segist hafa séð þrjá björgunar- báta, hvern með mörgu fólki um borð, sogast niður í djúpið á eftir ferjunni. TRYGGING HF Sts°' m

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.