Morgunblaðið - 29.11.1983, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983
Ljóð Vilmund-
ar Gylfasonar
ÚT ERU komin hjá Almenna
bókafélaginu öll Ijód Vilmundar
Gylfasonar. Eru Ijóð bókarinnar
alls 74 talsins. Matthías Johann-
essen ritar aðfaraorð um Vilmund
Gylfason, stjórnmálamanninn og
skáldið, og er niðurlag þeirra á
þessa leið:
„En Vilmundur Gylfason orti
sig heim — eins og hann sagði
sjálfur. Hann átti að eigin sögn
margar ógleymanlegar stundir
með ljóðunum. Nú getum við átt
slíkar stundir með þeim minn-
ingum sem hann skildi eftir í
sínum ljóðum. Þau eru ekki
einkaeign höfundar, sagði Vil-
mundur Gylfason, sem var eig-
inlegra að gefa en taka.
En hvort ég er hrifinn af þér?
Hvernig spyrðu?
Bókin er kynnt af útgáfunnar
hálfu þannig:
„Vilmundur Gylfason var sér-
stæður maður hvort heldur
hann birtist okkur sem stjórn-
málamaður eða skáld. Hrein-
Vilmundur Gylfason
skiptni, einlægni og samúð með
þeim sem áttu í vök að verjast
voru einkenni hans — eiginleik-
ar sem almenningur kunni vel
að meta hjá stjórnmálamanni. í
skáldskapnum njóta þessir eig-
inleikar hans sin enn betur, og
er ekki vafi á því að mörg þess-
ara ljóða hitta lesandann í
hjartastað. Ljóðin fjalla um
ástina, lítilmagnann og dauð-
ann, og á þessu efni nær skáldið
svo sannfærandi tökum að
okkur finnst eins og ljóðin séu
töluð út úr hjarta tímans. í
þessari bók eru prentaðar þær
tvær ljóðabækur sem Vilmund-
ur Gylfason gaf út í lifanda lífi.
Auk þeirra er hér viðauki með
miklu ljóði sem nefnist Sunnefa
og lá með handritum skáldsins
fullbúið til prentunar."
Ljóð Vilmundar eru 120 bls.
að stærð. Setningu, prentun og
band hefur Prentverk Akraness
annast.
_________________________3^
Rússar og A-ÞjóÖverjar:
Mótmæltu heim-
sókn forsetans
„SENDIHERRA Sovétríkjanna kom
til utanríkisráðherra 11. nóvember sl.
og sama dag kom sendifulltrúi Aust-
ur-Þýskalands til mín. Þeir báru fram
mótmæli vegna heimsóknar forseta
íslands til Berlínar og sögðu hana
ekki samræmast fjórveldasamkomu-
laginu um Herlín," sagöi Ingvi S.
Ingvarsson, ráðuneytisstjóri í
utanríkisráðuneytinu, í samtali viö
blm. Mbl. í gær.
Ingvi sagði að þessi heimsókn
forsetans væri ekki opinber og hefði
báðum aðilum verið bent á það. „í
þessu tilviki er alls ekki um opin-
bera heimsókn að ræða og það er
einkaaðili sem stendur að heim-
sókninni. Þess vegna var þetta til-
efnislaus umvöndun," sagði Ingvi
einnig.
"boröstjoíuborö og stólar
Stök borð — stakir stólar eða samstætt -
Spurningin er bara hvað þú vilt?
Þetta er sýnishorn af úrvalinu. Sumt er til - sumt er
á leiðinni, svo getur líka þurft að panta eitthvað.
ÞÚ GENGUR AÐ GÆÐUNUM VÍSUM.
- OG GÓÐUM GREIÐSLUSKILMÁLUM.
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartúni 29 Sími 20640
LA BARCA
LC/6
(f |f
CAB412
LA BASILICA