Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983 Koltvísýrmgurinn jókst undir lok ísaldarinnar - og nú fer óðum að hlýna - eftir Önnu Bjarnadóttur Bananatré í Belgíu og hitabelt- isloftslag í London? Rósarunnar í Reykjavík og vínberjarækt við Vopnafjörð? Getur verið að ung- viði dagsins í dag eigi eftir að upp- lifa þetta þegar það vex úr grasi og aldurinn fer að hníga yfir hann? Rannsóknir vísindamanna benda til að svo geti orðið. Þær sýna fram á að koltvísýringur i andrúmsloftinu fer sívaxandi vegna brennslu lífrænna efna eins og kola og olíu. Koltvísýr- ingur hleypir sólargeislum inn í andrúmsloftið en hamlar út- geislun frá jörðinni. Hann hefur sömu áhrif og gler á gróðurhúsi og hitar þvi smátt og smátt upp andrúmsloft jarðarinnar. Vís- indamenn hafa rætt þessi gróð- urhúsaáhrif koltvísýringsins sín á milli á ráðstefnum í þó nokkur ár, en almenningur fékk fyrst verulegan áhuga á þeim þegar Umhverfismálastofnun Bandaríkjanna gaf út skýrslu um málið fyrir nokkru. Þar er því lýst hvernig gróður- og loftslagsbelti munu færast til, hluti heimskautaíssins bráðna og yfirborð sjávar hækka um nokkra metra. Loftslagsbreyt- inga mun verða vart eftir um 15 ár samkvæmt skýrslunni, en Morgunblaðið sagði frá henni á sínum tíma. Mikill fjöldi rannsókna liggur að baki skýrslu umhverfisstofn- unarinnar. Ein þeirra er sam- eiginleg rannsókn landeðlis- fræðideildar Kaupmannahafn- arháskóla, jarðfræðideildar New York-háskólans í Buffalo og eðlisfræðideildar háskólans í Bern á íslögum í Grænlands- jökli. Starfið hófst árið 1971 og stóð til 1981. 2038 m djúp hola var boruð í ísinn og lög allt aft- ur um 90.000 ár voru og eru enn rannsökuð. íslög myndast svip- að og árhringir í trjám og í þeim má finna hin ólíkustu efni sem andrúmsloftið hefur að geyma og sest í ísinn. Sigfús Johnsen, sem starfar bæði við Háskóla íslands og Kaup- mannahafnarháskóla, er meðal þeirra sem vinna við þetta verk- efni. Hans Oeschger, prófessor í Bern, er annar. Hann hefur mestan áhuga á koltvísýringn- um í ísnum og hefur skrifað fjölda greina um efnið. Hann er feginn athyglinni sem banda- ríska skýrslan hefur vakið og vonar að af henni muni jafnvel leiða eitthvað gott. „Fólk fer kannski að hugsa minna um pólitík í Líbanon og á Grenada og meira um umhverfið og nátt- úruöflin," sagði hann. Rannsóknir Oeschgers hafa leitt í ljós, að koltvisýringurinn í andrúmsloftinu jókst úr 0,0315%, eða 315 ppm í 340 ppm á árunum 1958—1982. Rann- sóknir á sýnishornum af íslög- unum á Grænlandi sýna, að koltvísýringsmagnið var um 260—280 ppm fyrir iðnbylting- una en þá fór mannkyninu að fjölga verulega og brennsla líf- rænna efna að aukast. Svo mikil Hans Oeschger eðlisfræðiprófessor í Bern. Hann hefur sérstakan áhuga á koltvísýringsmagninu í ísnum. aukning koltvísýringsins hefur ekki átt sér stað fyrr á tímum stöðugs veðurfars, en undir lok síðustu ísaldar, eða fyrir um 13.000 árum, jókst koltvísýr- ingsmagnið nokkuð hratt úr 200 ppm í 280 ppm. Ekki er vitað hvað olli þessari aukningu, en Oeschger þykir þetta mjög áhugaverð staðreynd. Hann er ekki alls kostar ánægður með afstöðu banda- rísku vísindamannanna sem sömdu skýrslu Umhverfismála- stofnunarinnar. Þar er því fleygt fram, að loftslagsbelti muni færast norðar, sólstrand- arveður færist frá Florida til Boston, og gróðurbelti muni þar af leiðandi einnig færast norð- ar, kornakrarnir í Kansas fær- ist norður til Kanada. Oeschger telur þetta ekki eins einfalt og látið er að liggja í skýrslunni. Efnahagskerfi jarðarinnar er að mestu reist á loftslagsbelt- unum, eins og þau eru í dag, og það verður ekki svo auðvelt fyrir mannfólkið að laga sig að nýjum aðstæðum, sérstaklega ef þeirra verður vart eins fljótt og skýrslan gefur í skyn. Ef brennsla lífrænna efna á jörðinni heldur áfram að aukast á næstu árum, mun forði líf- rænna efna verða uppurinn í kringum 2200. En áður en það gerist, mun koltvísýringsmagn- ið fara upp í 1200 ppm og hita- stigið hækka um ein 4 stig. Kol- tvísýringsmagnið mun minnka mjög hægt þótt hætt verði að brenna lífrænum efnum og hitastigið því haldast hátt. Fjögurra stiga hærra hitastig gæti brætt allan ís hafsins á sumrin, en það hefur ekki gerst í nokkrar milljónir ára. Yfir- borð sjávar myndi hækka um nokkra metra, Feneyjar færu í kaf og íslendingar gætu vænt- anlega flust af strandlengjunni innar í landið, kannski þangað sem gamli Vatnajökull er nú. Eru útgerðarmenn að verða brjálaðir? - eftir Gísla Kristjánsson Dr. Sigurður Pétursson gerla- fræðingur spyr þessarar spurn- ingar í Morgunblaðinu 4. nóv. síð- astliðinn. Það er með ólíkindum, hvernig menn geta spurt. Þrátt fyrir dr. -titla og óralanga skóla- vist eru menn sífellt að spyrja spurninga, en virðast lítið leggja niður fyrir sér hvað spurningin felur í sér. Spurt er um brjálsemi útgerð- armanna, en þó að ég sé ekki út- gerðarmaður, þá finnst mér spurningunni beint til okkar sjó- manna. Fyrir nokkrum árum skrifar einhver gæðingur á ritvelli sjávar- útvegsins að forkastanlegt sé að rista fisk á kviðinn áður en honum sé blætt út. Hvað ætla þessir menn okkur sjómenn (útgm.) vera? Óhæfa verkamenn eða heilalausar skepnur? Ég er nú sjálfur glaðari maður en það, að ég telji mig og starfsbræður mína óhæfa til verka úti á sjó. Það er hægara um að tala en í að komast. Að mínu mati er nauðsynlegt að eiga doktora og fræðinga á öllum sviðum atvinnulífsins. Ekki síst í sjávarútvegi, en þeir verða þá að virða aðra. Ég held að haga megi störfum þessara manna á annan hátt og nýta krafta þeirra, útveginum bet- ur til góða. Tilfellið er að velflestir þeir, sem um þessi mál fjalla, þekkja ekki til aðstæðna um borð í fiskiskipunum. Ekki væri til dæm- is óeðlilegt fyrir þessa menn, sem geysast fram á ritvöllinn, að kynnast málinu af eigin raun um borð í fiskiskipunum, stórum og smáum. Skip okkar eru eðlilega mjög misjafnlega búin hvað snertir vinnuaðstöðu, en ég veit að sjó- maðurinn gerir sitt besta til að vanda meðferð aflans. Á því byggjast launin okkar. Sjómaður fær nefnilega greitt meira fyrir velunnið starf en illa unnið. Vegna þess hve skip okkar eru misjafnlega vel búin hvað vinnu- aðstöðu snertir, þá er oft erfitt að framkvæma verkin eins og við vildum gera þau. En dr. Sigurður efar eðlilega geðheilsu hjá þeim útgerðar- mönnum, sem fjárfest hafa í full- komnun skipa sinna, hvað varðar aðstöðu sjómannsins til verksins, sem er að koma með betra hráefni að landi. Það er furðulegt hvað alltaf þarf að klína því, sem miður fer í gæðum hráefnisins, á sjó- mennina. Það er útþvæld tugga í mínum eyrum, setningin „Lengi býr að fyrstu gerð". Við verðum að hafa möguleika til að framkvæma verk- ið. Ég held að allir sjómenn og útgerðarmenn, séu þess meðvitað- ir að þeir eru með viðkvæmt hrá- efni í höndum og það er víst að við högum okkur samkvæmt því. Ég segist halda, en ég ætla að segja frá því, sem ég veit með vissu. Ég er sjómaður á mb. Freyju RE 38 og höfum við fiskað þokkalega í gegnum tíðina. Á síðustu vetrarvertíð lögðum við á land 940 t. Þessi afli fékkst á 3V4 mánuði og var veitt með botnvörpu. Uppistaða aflans var æjög góð ýsa. Veiðar fóru ein- göngu fram á svæðinu frá Dyr- hólaey að Reykjanesi. öllum afl- anum var landað hjá Meitlinum í Þorlákshöfn, þannig að ekki var langt til löndunar. í langflestum tilfellum gerðum við að aflanum, en fyrir kom, vegna mikils afla og ónógrar að- stöðu um borð, að við urðum að blóðga fiskinn og landa honum þannig. „Og nú held ég aö komið sé að kjarna málsins. Allir „fræðingar“ verða að hætta að beina spjótum að öðrum, taka sig taki og beina starfskrafti sínum að breyttri vinnslu á hrá- efninu í landi. Afla nýrra markaða fyrir þá vöru, sem við fullvinnum hér í okkar landi.“ Fiskinn blóðguðum við beint niður í lest og var einn maður nið- ri og ísaði fiskinn. Aldrei vorum við lengur úti en 20—24 tíma með óaðgerðan fisk. í lestinni lögðum við, og gerum reyndar alltaf, tvö- faldar hillur, til þess að minnka þungann á fiskinum. Á bátnum erum við átta menn og allir orðnir fagmenn í sjó- mennskunni. Menn í landi þurfa að gera sér ljóst að sjómennskan krefst kunnáttu og dugnaðar og ekki vil ég trúa því að fólk af þess- ari fiskveiðiþjóð trúi öðru. Ég sagði að við værum átta á bátnum og þeir sem til þekkja sjá að með þennan afla var ekki alltaf setið auðum höndum. Veðráttan við Is- land er ekki sú blíðasta, sem um getur, og vegna aðstæðna um borð, sem eru ekki svo mjög frábrugðn- ar því sem gerist á sambærilegum bátum, þá var vinnutími langur. En hvað snertir gæðamatið hjá okkur, þá vorum við ánægðir með það. Ég tel að ekki sé hægt að koma með 100% fisk að landi. En allt yfir 70% í fyrsta flokk á heilli vetrarvertíð er frábær árangur. Þeir sjómenn, sem því skila, hafa ekki kastað til höndunum. Dr. Sigurður minnist á aðferðir gyðinga við sauðfjárslátrun. Ég veit að dr. Sigurður er þarna að- eins að taka dæmi og orðlengi ég það ekki frekar. En það er einmitt þessi samanburður á ósambæri- legum hlutum, sem stingur hvað verst, þetta er svipað og þegar stjórnmálamenn eru að bera okkur íslendinga saman við „hin Norðurlöndin",* lönd sem telja milljónir íbúa en við á þriðja hundrað þúsunda. Við þurfum fyrst að hugsa um okkur og sleppa öllum samanburði þar til við verð- um hæfir til samanburðar, sem ég tel vanta mikið á. Lítum til Fær- eyja. Ég held að við stöndum á tíma- mótum. Tímamótum sem krefjast aðgerða en ekki sífellds barlóms um fjárfestingar úr hófi og blóðg- un á fiski o.s.frv. Laun útgerðar, sjómanna og verkafólks í fisk- iðnaði hafa hingað til og gera áfram ef ekkert verður að gert, byggst á aflamagninu. Og nú held ég að komið sé að kjarna málsins. Allir „fræðingar" verða að hætta að beina spjótum að öðrum, taka sig taki og beina starfskrafti sín- um að breyttri vinnslu á hráefni í landi. Afla nýrra markaða fyrir þá vöru, sem við fullvinnum hér í okkar landi. Stjórnvöld ættu að huga meira að þeirri stóriðju, sem nú þegar er í gangi, þ.e. sjávarútvegi. Það er til lítils barist ef ekki verður breyting á. Dr. Sigurður segir í grein sinni að útgerðarmenn hafi aukið svo sókn sína í helstu nytja- fiska okkar, að framundan sé ekk- ert annað en eyðing þeirra. Halda menn að sjómenn fari varhluta af þessari sókn? Nei, ekki aldeilis. í dag leggur sjómaðurinn meira á sig fyrir hvert tonn sem fæst en áður þegar nógur var fiskurinn og kemur það fram í meira veiðar- færasliti, sem sjómaðurinn lag- færir og útgerðarmaðurinn borg- ar. En spurningin er: Hvað á að gera þegar afkoma sjómanna og útgerðarmanna byggist á magn- inu, sem borið er að landi? Það er mikið talað um að minnka þurfi veiði okkar en minna heyrist, hvernig við, þessar hræður sem í þessu störfum, eig- um að komast í gegnum þetta. Væri ekki ráð að allir afætuliðirn- ir, sem við köllum svo, færu að íhuga breytingar til hagsbóta? Ég held að skriffinnskan og pappírsflóðið, sem er í kringum afurðina okkar, sé að ganga frá þessu öllu. Ég hef þá skoðun að við Islendingar allir sem einn verðum að gefa meiri gaum að þeim mögu- leikum, sem eru fyrir höndum í betri nýtingu sjávarafla eftir að við sjómennirnir erum búnir að ná í hann. Ég hef nú svo mikla trú á land- inu okkar og möguleikum þess ennþá að ég vil trúa því að við getum snúið leiknum okkur í hag. Sem ein besta fiskveiðiþjóð heims- ins væri eðlilegt að við værum ráðandi aðilar á erlendum mörk- uðum. Við seljum úr landi fæðu, sem öllum þjóðum er nauðsynleg. Þar af leiðandi gætum við verið sá aðilinn sem velur og hafnar. En svo er ekki. Ástæðan? Vöruvönd- un okkar á hráefninu í landi er ekki nógu góð. Þetta verður ekki rakið að öllu leyti til meðferðar sjómannanna á fyrsta stigi í verk- uninni. Það hljóta allir að sjá að við verðum að gera átak í vinnsl- unni í landi. Allir sjómenn eru opnir fyrir því að bæta meðferðina eins og kostur er á. Nú segir einhver eflaust að hægara sé um að tala en í að kom- ast. Það er einmitt málið. Það sést af þessu, svo ekki verður um villst, að gagnrýni er einnig þörf í bákn- inu, sem setur reglugerðir, sem svo oft á tíðum eru með öllu óframkvæmanlegar. Ég held að allir geti verið sam- mála mér í því, að með minnkun afla verður að auka verðmæti af- urðanna. Þetta gerum við í landi, með annarri og betri fullvinnslu á aflanum en tíðkast hefur. Hver hún er? Því get ég ekki svarað, til þess eru fræðingarnir. Við sjó- menn skulum sjá um að afla hrá- efnisins. Málið allt snýst jú um að afla tekna þjóðinni til handa. Að skað- lausu held ég að taka mætti starfskrafta úr öðrum greinum (þjónustugreinum) og nýta þá í þágu sjávarútvegs. En meinið er að íslendingar eru ekki reiðubúnir til að koma í „slorið" eins og einu sinni var sagt við mig í spjalli. Ég vitna mikið í skrif dr. Sig- urðar Péturssonar, það er einung- ■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.